Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
47
Hjálmfríður Þórðardóttir, starfsmaður Dagsbrúnar (t.v.) afhendir
Vilfríði Þórðardóttur 200.000.- kr. gjöf til Kvennaathvarfsins.
Dagsbrún gefur
200.000 krónur til
Kvennaath varfsins
VERKAM ANN AFÉL AGIÐ Dags-
brún afhenti Kvennaathvarfinu
200 þús. króna peningagjöf, 1.
okt. s.I.
Hjálmfríður Þórðardóttir, starfs-
maður Dagsbrúnar, afhenti gjöfína
á skrifstofu Dagsbrúnar og bað
athvarfíð, en einkum þó bömin, vel
að njóta. Sagði Hjálmfríður að
stjóm Dagsbrúnar vonaðist til að
þetta framlag yrði öðrum verka-
lýðsfélögum hvatning til frekari
stuðnings við Kvennaathvarfíð.
Vilfríður Þórðardóttir tók við
peningunum fyrir hönd Samtaka
um kvennaathvarf og þakkaði þessa
höfðinglegu gjöf og þann hlýhug
og skilning sem að baki býr. Hún
sagði ljóst að peningarnir kæmu í
góðar þarfír, því eins og komið
hefur fram skortir enn á að rekstur
athvarfsins sé tryggður, þrátt fyrir
allan þann góða stuðning sem það
hefur notið að undanfömu.
Jan B. Thomsen og Laufey Jóhannsdóttir í Blóminu.
Blómið, ný blómaverzlun
NÝLEGA opnaði ný blóma- og
gjafavöruverzlun, Blómið i Hafn-
arstræti 15. Eigendur hennar eru
Jan B. Thomsen og Laufey Jó-
hannsdóttir ylræktarfræðingur.
Blómabúðin mun kappkosta að
hafa á boðstólum allar tegundir
af pottablómum og afskornum
blómum og öðru því er lítur að
blómarækt. Þá hefur verzlunin
gjafavörur á boðstólum.
Blómið býður upp á skreytinga-
þjónustu og mun Vigdís Hauks-
dóttir ylræktarfræðingur annast þá
þjónustu.
Ferskur fiskur seldur
fyrir 80 milljónir króna
ÍSLENZKUR fiskur var seldur á
ferskfiskmörkuðum í Bretlandi
og Þýzkalandi i þessarí viku fyr-
ir tæpar 80 mil(jónir króna. Alls
voru seldar um 1.600 lestir og
meðalverð var á bilinu 28 krónur
til 71 eftir tegundum og löndum.
6 skip seldu afla í Bretlandi og
Þýzkalandi, tvö í Bretlandi. Hæst
meðalverð fékk Gullver NS fyrir
þorsk í Hull, 61,48 krónur. Verð á
karfa í Þýzkalandi var 36,10 til
44,17 krónur. Skipin seldu alls rúm-
lega 1.000 lestir á samtals 48,3
milljónir króna. í Bretlandi voru
seldar 524 lestir af fiski úr gámum.
Heildarverð var 30,7 milljónir króna
og meðalverð 58,60. Að meðaltali
fengust 59,89 krónur fyrir kíló af
þorski, 63,12 fyrir ýsuna, 28,18
fyrir ufsa, 30,89 fyrir karfa, 54,05
fyrir kola og 71,34 krónur fyrir
aðrar tegundir.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ÖNNU BJARNADÓTTUR
Þessi mynd var tekin í sumar þegar Vranitzky tók við stjórnartaumunum í Austurríki. Á myndinni
eru frá vinstn: Franz Vranitzky, kanzlarí, Rudolf Kirchschlaeger, þáverandi forseti Austurríkis,
Fred Sinowatz, fráfarandi kanzlarí, og utanríkisráðherra hans Leopold Graz.
Austurríki:
Stjórn stóru flokkanna
líklegust eftir kosningar
Austurriska þingið hefur samþykkt einróma að ijúfa þing í byrj-
un október og halda nýjar kosningar 23. nóvember næst komandi.
Þingkosningar stóðu til S byijun apríl en kjör Jörgs Haider í
formannssæti Fijálslynda flokksins, FPÖ, um miðjan september
olli þvi að Franz Vranitzky, kanzlari, ákváð að slíta stjórnarsam-
starfi Jafnaðarmannaflokksins, SPÖ, og FPÖ strax. Hann kennir
öfgafullrí hægrisveiflu fijálslyndra um stjórnarslitin en frétta-
skýrendur telja að hann hafi veríð feginn að fá afsökun til að
halda kosningar í haust. Óvinsælar aðgerðir gegn erfiðleikum
sem steðja að Austurríki bíða ríkisstjórnarinnar og jafnaðarmönn-
um þykir ekki verra þótt Þjóðflokkurinn, ÖVP, þ.e. hinn stóri
borgaralegi flokkur landsins, sé með í ráðum þegar þær eru
gerðar.
Samsteypustjóm stóru flokk-
anna tveggja virðist óumflýj-
anleg. Þeir stjómuðu landinu
saman í 21 ár eftir heimsstyijöld-
ina síðari, 1945-1966, og reistu
þjóðina við úr rústum stríðsins.
Vandamálum landsins nú er líkt
við erfiðleikana á þessum árum
og ekki er talið að annar stóru
flokkanna treysti sér til að ráða
fram úr þeim án stuðnings hins.
Hvomgur þeirra er líklegur til að
fá meirhluta í kosningunum. ÖVP
hefur 46% fylgi kjósenda sam-
kvæmt skoðanakönnunum en
SPÖ 45%. Fylgi FPÖ minnkaði
úr 3,5% í 2% eftir landsfund
flokksins í Innsbruck, þar sem
Haider var kjörinn formaður.
Græningjar hafa um 4% fylgi í
skoðanakönnunum.
Vranitzky eina von SPÖ
Alois Mock, formaður og kanzl-
araefíii ÖVP, talaði eins og
samstarf stóm flokkanna væri
þegar hafíð í þingumræðum um
þingslit. Hann gagnrýndi SPÖ
harðlega fyrir slæma stjóm und-
anfarin sextán ár en réðst ekki
sérstaklega á Vranitzky, sem tók
við kanzlaraembættinu í sumar
af Fred Sinowatz, formanni
flokksins. Hann tilheyrir hægri-
væng Jafnaðarmannaflokksins og
þykir raunsærri en forverar hans
í embætti. Vinsældir SPÖ hafa
aukist síðan hann tók við og bar-
áttan um kanzlarasætið er milli
hans og Mock.
SPÖ hefúr verið samfellt í
stjóm síðan Bmno Kreisky mynd-
aði minnihlutastjóm árið 1970.
Flokkurinn hlaut hreinan meiri-
hluta á þingi ári síðar og hélt
honum fram til 1983. Þá tapaði
SPÖ fímm þingsætum og Kreisky
sagði af sér. Hneykslismál og
efnahagserfíðleikar þjóðarinnar
hafa hijáð flokkinn síðan. Óvin-
sældum ríkisstjómarinnar var að
hluta kennt um þegar Kurt Steyr-
er, forsetaframbjóðandi hans,
tapaði fyrir Kurt Waldheim I for-
setakosningunum í sumar. Fred
Sinowatz sagði af sér kanzlara-
embættinu eftir ósigur Steyrers.
Sinowatz myndaði samsteypu-
stjóm SPÖ og FPÖ eftir kosning-
amar 1983, en FPÖ hlaut þá 5%
atkvæða. Frjálslyndi armurinn í
FPO hafði yfírhöndina í flokknum
og Norbert Steger var formaður.
FPO var stofnaður árið 1955 þeg-
ar tveir minniháttar flokkar,
frjálslyndir og Samband sjálf-
stæðra, sameinuðust. Samband
sjálfstæðra var flokkur gamalla
nazista. FPÖ naut lítils fylgis
þangað til vinsældir samsteypu-
stjómar stóm flokkanna fóm að
dvína á sjöunda áratugnum. Hann
var þá eini borgarlegi stjómarand-
stöðuflokkurinn og honum óx
fískur um hrygg. Hann komst þó
ekki í ríkisstjóm fyrr en fyrir
tæpum fjórum ámm.
Öfgafullir hægrisinnar
finna leiðtoga
Steger er Vínarbúi. Meirihluti
fijálslyndra stuðningsmanna
flokksins býr í helstu þéttbýlis-
kjömum landsins eins og hann.
Kjósendur FPO í dreifbýli em
hægrisinnaðri en borgarbúar og
sumir era nýnasistar. Hinn 36 ára
gamli Haider höfðar til þessa
fólks. Hann steypti Steger af stóli
í Innsbmck með 57,7% atkvæða
gegn 39,2%. Hann er velefnaður
landeigandi í Kartner, þykir að-
laðandi og kann að koma fyrir sig
orði. Um það er deilt hvort hann
sé nýnazisti. Steger er í hópi
þeirra sem telja hann einfaldlega
tækifærissinna. Skoðanir hans
höfða til hóps Austurríkismanna
sem hefur ekki átt frambærilegan
leiðtoga í langan tíma en telur sig
nú hafa fundið hann.
Nýnazistar settu svip á lands-
fúndinn f Innsbmck. Einn þeirra
sagði við konu Stegers að það
væri leiðinlegt að nýi formaðurinn
héti Haider en ekki Hitler, þá
hefði eiginmaður hennar verið
leiddur undir vegg og skotinn eða
settur í gasklefa. Frú Steger of-
bauð svo að hún sagði sig strax
úr flokknum. Steger ætlar hins
vegar að bíða og sjá hvað setur
áður en hann ákveður að segja
endanlega skilið við flokkinn.
Formannsskiptin í FPÖ komu
á óvart. Steger varaði flokkinn
við og sagði að það myndi valda
stjómarslitum ef Haider yrði kos-
inn formaður en flokksmenn létu
það eins og vind um eyrun þjóta.
Haider sagðist ekki krefjast sætis
í stjóminni en jafnaðarmenn kæra
sig ekki um að eiga samstarf við
FPÖ eftir að flokkurinn kastaði
fijálslyndisgrímunni. Mock hefur
hins vegar sagt að hann útiloki
ekki samstarf við FPÖ ef flokkur-
inn bætir við sig fylgi á lýðræðis-
legan hátt. Það þykir ólíklegt og
væntanlega verður bið á að FPO
komist aftur í stjóm.
Stuttur kosningaslagur
Stjómmálaflokkamir vom ekki
búnir undir kosningamar. Inn-
byrðis deilur hafa sett svip á
Græningja að undanfömu en hin
mörgu flokksbrot á víð og dreif
um landið hafa nú sameinast und-
ir foiystu Fredu Meissner-Blau.
Hún hlaut 5% atkvæða í forseta-
kosningunum og flokkurinn
vonast til að þau atkvæði og jafn-
vel fleiri skili sér í þingkosningun-
um.
ÖVP var búinn að leggja drög
að kosningabaráttunni fyrir kosn-
ingamar í apríl. Hann verður nú
að hefja baráttuna fyrr en til stóð,
en kosningamálin liggja fyrin er-
lendar skuldir, halli á Qárlögum
og yfirvofandi atvinnuleysi vegna
erfíðleika ríkisrekinna iðnaðarfyr-
irtækja. Flokkurinn leggur
áherslu á nauðsyn þess að ný
stjóm taki við eftir óstjóm SPÖ.
Hann vill minnka ríkisafskipti og
auka einkarekstur, hann boðar
nýja skattastefnu í anda Ronalds
Reagan; og vill endurskoða stjóm-
skipun landsins svo að almenning-
ur geti haft meiri áhrif á
landsstjómina með þjóðarat-
kvæðagreiðslum.
Mock og Vranitzky þykja báðir
frambærileg kanzlaraefni. Vran-
itzky nýtur persónulegra vinsælda
og það hjálpar SPÖ mikið. Flokk-
urinn vonast til að fá stuðning
þeirra sem vilja ekki að ÖVP nái
hreinum meirihluta og hægri-
menn sitji bæði í ríkisstjóm og á
forsetastóli. Verkalýðsleiðtogar
vilja að SPÖ verði áfram f næstu
stjóm, þótt flokkurinn tapi illa í
kosningunum, svo að ÖVP og
jafnvel FPO komist ekki að og
stjómi landinu næstu fjögur til
átta árin. Aðrir flokksmenn vilja
að SPÖ hætti í stjóm ef hann
tapar svo að honum verði ekki
borið á brýn að hann sé valdasjúk-
ur og sitji í stjóm hvað sem tautar
og raular.