Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 56

Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 56
MÓRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR B. OKTÓBER 1986 m IÞINGHLÉI eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON Frá dómkirkju til þinghúss Síðasta þing líðandi kjörtímabils verður sett innan vörð. Áhorfendur fylgjast með. Fremst á myndinni fárra daga. Nýtt þing verður kjörið að vori. Mynd- sést á bak styttu Jóns Sigurðssonar, forseta, sem in sýnir þingmenn ganga frá dómkirkju til þinghúss svip setti á þingstörf meðan sjálfstæðisbarátta við þingsetningu. Lögreglumenn standa heiðurs- þjóðarinnar var í mótun. Islandssaga morgundagsins: Hverþjóðsem- ur eigin sögu í túnfæti upplýsingaþjóðfélagsins Líldegt er talið að íslendingum fjölgi um ná- lægt tuttugu þúsund einstaklinga fram að aldamótum. Þetta er töluvert minni fjölgun en verið hefur næstliðna áratugi. Fækkun fæðinga og breytt aldursskipting í þjóðfélaginu valda þvi, að hlutfall hinna eldri hækkar en hlutfall hinna yngri lækkar í íbúatölu landsins. Samtímis má gera ráð fyrir því að hlutur frumframleiðslu, fiskveiða og landbúnaðar, í þjóðarbúskapnum dragizt saman að tiltölu en hlutur þjónustu- greina vaxi. í þinghléi í dag verður reynt að horfa fram á veginn, þessi mál varðandi. Stuðst verður við heimildarrit Magnúsar Ólafssonar, hagfræðings, íslenzk sveitarfélög við aldar- hvörf, sem dreift var á landsþingi Sambands islenzkra sveitarfélaga fyrir skemmstu. Mannfjöldaspá in þjóð, Japanir, státar af lengri meðalævi en Is- lendingar. Stór- bætt aðbúð hverskonar, svo sem húsnæði, mataræði og vinnuaðstaða, sem og heilsugæzla og heilsurækt, hafa hækkað með- alaldur fólks hér á landi verulega, frá því sem var fyrir hálfri öld eða svo. Hinsvegar hefur fæðingum fækkað umtalsvert. Á árunum 1950-1960 fjölgaði íslendingum að meðaltali um meira en 2% á ári. Á næstu árum hrapaði „vöxt- ur“ þjóðarinnar niður í 0,7%. Stefnir í 0,5% um næstu aldamót, samkvæmt mannijöldaspám. í ritlingi Magnúsar Olafssonar segir: „Til að gera sér grein fyrir þeirri grundvallarbreytingu, sem er að gerast í aldursskiptingu þjóðarinnar, er eftirminnilegt að hafa eftirfarandi tölur í huga: Árið 1960 var 35% þjóðarinnar á aldrinum 0-14 ára, 1985 rúmlega fjórðungur og um næstu aldamót um 20%, samkvæmt spá. Auðvelt er að ímynda sér þær gífurlegu afleiðingar, sem þessi breyting hefur á þjóðlífíð, uppeldis- og skólakerfíð. Á sama tíma hefur vitanlega átt sér stað samsvarandi fjölgun meðal eldri íslendinga, en hún skiptist nokkuð jafnt milli þeirra sem eru á vinnualdri ogþeirra sem eru komnir yfír 65 ára aldurs- mörkin. Það er ekki fyrr en upp úr næstu aldamótum, sem fólki á vinnualdri tekur að fækka og veruleg §ölgun verður í elztu ald- urshópunum". í mannfjöldaspám, sem hér er stuðst við, er gert ráð fyrir að konur eigi tvö böm að meðaltali. Heilbrigði og lífsmáti Hver og einn einstaklingur hef- ur með lífsmáta sfnum veruleg áhrif á eigið heilsufar og lífslíkur. Höfundur rits þess, sem hér er stuðst við, segir: „í Bandaríkjunum hefur t.d. verið sýnt fram á, að um það bil helmingur allra dauðsfalla af völdum algengustu sjúkdóma þar- lendis tengist greinilega á einn eða annan hátt lífsvenjum fólks.“ Margra mál er að að heilbrigð- isvandamál líðandi stundar og næstu framtíðar „einkennist öðru fremur af lífsstíl og umhverfís- tengdum sjúkdómum". Af þessum sökum, sem og hinu, að sívaxandi kostnaður við heil- brigðisþjónustu veldur landsfeðr- um áhyggjum, má gera ráð fyrir, að fjármagni verði í vaxandi mæli beint til forvama. Mataræði, hreyfing og hollar. lífsvenjur skipta meginmáli. Sjúk- dómar samtímans tengjast fremur velferð en skorti, a.m.k. á Vestur- löndum. Forvamir byggjast ekki sízt á því að fræða fólk, almennt, um gildi hollra lífshátta. Fleira kemur þó til: barnaeftirlit, mæðravemd, bólusetning gegn smitsjúkdóm- um, umferðarlöggjöf, öryggi á vinnustöðum til sjós og lands og sitt hvað fleira. Á þessu sviði gegnir upplýs- ingaskylda flölmiðla stóru hlut- verki, ekki sízt sjónvarps. Samtímis því sem forvamir eru styrktar verður að sjálfsögðu að halda í horfínu með hefðbundna heilbrigðisþjónustu. Hér á landi eru 230 læknar á hverja hundrað þúsund íbúa, sem er hæsta lækna- hlutfall í heiminum (213 í Svíþjóð, 219 í Bandaríkjunum, 154 í Bret- landi, 128 í Japan). Blikur eru hinsvegar á lofti varðandi aðrar heilbrigðisstéttir. Hjúkrunarfræð- inga vantar á flestar heilbrigðis- stofnanir landsins. Fyrirsjáanleg fjölgun aldraðra í samfélaginu gerir og kröfur um óhjákvæmileg viðbrögð, um heimaþjónustu, heimahjúkrun, skipulag tómstunda og stofnanir (dvalarheimili og sjúkrahús fyrir öldrunarsjúklinga). Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, segir mál- tækið. Framvindan í þjóðarbúskapnum Við tölum gjaman um mikil- vægi fræðslukerfís okkar, heil- brigðiskerfís, hins almenna tryggingakerfís, félagslegra framkvæmda og félagslegrar þjónusta hverskonar, að ógleymdu mikilvægi almennrar kjarastöðu fólks. Allt þetta — sem og flest önnur samfélagsleg fyrirbæri — sækja kostnaðarlega undirstöðu sína til atvinnulífsins. Það sem fyrst og fremst ræður ferð um getu okkar og stöðu, sem þjóðar og einstaklinga, að þessu leyti, er einkum tvennt. í fyrsta lagi þau verðmæti, sem til verða hjá atvinnuvegum landsmanna á hverri tíð. í annan stað viðskipta- kjör okkar út á við, kaupmáttur útflutningstekna okkar gagnvart innfluttum nauðsynjum. Ef við ætlum að gera hvoru tveggja: að tiyggja fulla atvinnu til frambúðar og sambærileg al- menn lífskjör við það sem bezt þekkist annars staðar, verðum við að halda í við aðrar þjóðir um menntun, þekkingu og tæknivæð- ingu á hraðferð þjóða inn í framtíð vaxandi samkeppni. Styrkja þarf stöðu hefðbund- inna atvinnuvega, landbúnaðar og sjávarútvegs, með arðsemi að leið- arljósi. Stofnstærð nytjafíska og sölumörk búvöru þrengja þó um- fang þessara greina. Og vaxandi tækni veldur því, að þær munu auka afköst með fækkandi starfs- fólki. Störf fyrir þúsundir, sem bætast við á íslenzkan vinnumark- að næstu árin, verða að stærstum hluta að koma frá öðrum greinum, einkum þjónustugreinum, en jafn- framt nýiðnaði og stóriðju. Fleira kemur til: ferðaútvegur, fískrækt, ylrækt og skógrækt, svo eitthvað sé nefnt. Við eigum að skjóta sem flestum stoðum undir atvinnu- og efnahagslíf okkar; ekki treysta um of á eina eða fáeinar starfs- greinar. Upplýsingaþjóðfélagið í dag búa rúm 90% þjóðarinnar í þéttbýli. Þetta hlutfall var aðeins 20% um aldamótin. Mikil byggða- röskun hefur fylgt svo stórtækri byltingu í búsetu fólks í landinu. Talið er að um 60% af útfluttri vöru og þjónustu komi frá „lands- byggð,“ svokallaðri, þéttbýli og stijálbýli þar, en 40% frá „höfuð- borgarsvæðinu". Þó gera megi ráð fyrir áframhaldandi fólksstreymi frá stijálbýli til þéttbýlis er hyggi- legt, ef nýta á land og lög, gögn og gæði, svo sem bezt verður á kosið, að halda landinu öllu í byggð, m.a. með sterkum byggða- kjömum í öllum landshlutum. Styrkjaþarf atvinnulí^í stijálbýli. Framundan er mikið þjóðfé- lagslegt breytingaskeið í kjölfar tækni-, framleiðslu- og upplýs- ingabyltingar. Við erum, hvort sem okkur líkar betur eða ver, á hraðferð úr þjónustuþjóðfélagi yfír í upplýsingaþjóðfélag. Þessi hraðferð krefst sneggri viðbragða forráðamanna atvinnu-, við- skipta- og þjóðlífs. Hraðari ákvarðanataka krefst síðan meiri og ítarlegri upplýsinga, hverskon- ar. Það er megineinkenni upplýs- ingaþjóðfélagsins. Við semjum sjálf framtíð eigin þjóðar, að diýgstum hluta. Til þess leggur forsjónin okkur í hendur það sem til þarf. Alþingi, sem saman kemur eftir fáeina daga, hefur verk að vinna við að semja íslandssögu morgundags- ins. En þjóðin er í ritstjórasæti við þessa söguritun. Hún velur höfunda mikilvægustu kapítul- anna, meðal annars þingmenn, í fijálsum, leynilegum kosningum. Sjálf skrifar hún ýmsa lykilkafla, svo sem þá er gerast á svokölluð- um vinnumarkaði. Og sjálf sýpur hún seyðið af niðurstöðunni, hver sem hún verður. Þórður Þórðar- son - Minning Fæddur 26. nóvember 1893 Dáinn 24. september 1986 Það er alltaf gott að vita til þess að þreyttum gefíst værð, en samt . . . Líklega er það hvers og eins eig- ingirni að ætlast til að tilveran sé alitaf áfram eins og hún var. Við höfum nú með aðeins hálfs árs miUibili misst báða afana okkar. Fýrst afa á Ás og nú afa í Barmó, það er stór missir. Afí í Barmó átti aðeins 2 mánuði í að fylla 93 ár, og það er líklega lengra tímabil og viðameira en fljót- legt er að gera sér grein fyrir. Afí, Þórður Þórðarson, hafði yndi af lestri og las mikið meðan sjón leyfði. Sérstaklega voru rímur hon- um hugleiknar og kunni hann heilu bálkana utanbókar, enda stálminn- ugur. Liðnar stundir með afa úti í skúr rifjast upp, þar sem hann smíðaði margt handa okkur krökkunum og rétti okkur hjálparhönd við frum- raunir okkar ásamt leiðbeiningum sem síðar urðu gott veganesti. Afi var nefnilega þúsundþjalasmiður í orðsins fyllstu merkingu og það segir meira en mörg orð. Nú er afí horfínn á vit forfeðra sinna, en yndislegar minningar lifa áfram. Eftir stendur kjölfestan hans, hún amma, sem aldrei haggaðist þó hart væri í sjóinn. Hún stendur þetta brot af sér, sem og fleiri, og við biðjum góðan guð fyrir hana. Hans Unnþór og Helena Mjöll VJterkurog k-7 hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.