Morgunblaðið - 05.10.1986, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
1
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ólafsfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Ólafsfirði.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 62437
og hjá afgreiðslu Mbl. í Reykjavík í síma
91-83033.
J®nyj0MinlrlfofottS>
Skrifstofa Norrænu ráðherranefnd-
arinnar óskar eftir að ráða
Aðstoðardeildar-
stjóra (Seksjonssjef)
Norræna ráðherranefndin er samvinnustofn-
un ríkisstjórna Norðurlanda. Samvinnan
snertir allflest svið samfélagsins.
Skrifstofan annast undirbúning og útreikninga
og sér jafnframt um að ákvörðunum nefndar-
manna og annarra stofnana sem heyra undir
ráðherranefndina sé hrint í framkvæmd.
Staðan sem nú er auglýst er við fjárhags-
og stjórnunardeild og mun viðkomandi koma
til með að leysa deildarstjórann af þegar
þörf krefur.
Starfsmenn deildarinnar gera útreikninga og
annast fjárhagsáætlanir fyrir skrifstofuna,
ýmsar norrænar stofnanir og samnorræn
verkefni.
Þá hefur fjárhags- og stjórnunardeild einnig
umsjón með skjala- og bókasafni skrifstof-
unnar auk þess sem hún annast starfs-
mannahald, innkaup, útgáfumál og fleira.
Umsækjendur verða að hafa viðeigandi
menntun og starfsreynslu.
Krafist er reynslu af stjórnunarstörfum í
einka- eða ríkisgeira. Reynsla af nútímalegu
skrifstofuhaldi og skipulagningu þess kemur
sér vel.
Staða þessi krefst þess að viðkomandi sé
samvinnuþýður og geti jafnframt starfað
sjálfstætt. Einnig er krafist mjög góðrar
dönsku-, norsku- eða sænskukunnáttu.
Skrifstofan hvetur konur jafnt sem karla til
að sækja um stöðu þessa.
Viðkomandi mun starfa í Kaupmannahöfn.
Ráðningin er til fjögurra ára en til greina
kemur að framlengja hana að þeim tíma liðn-
um. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá
núverandi starfi. Laun og starfsaðstaða eru
góð og mun skrifstofan aðstoða við að út-
vega húsnæði í Kaupmannahöfn.
Umsóknarfrestur er til 27. október 1986.
Nánari upplýsingar veita:
Alf Nilsson, deildarstjóri eða Ragnar Kristof-
fersen starfsmannastjóri í síma Kaupmanna-
höfn (01) 11 47 11.
Skriflegar umsóknir skal senda:
Nordisk Ministerrád
Generalsekretæren
Store Strandstræde 18
DK-1255 Köbenhavn K
Denmark.
Framtíðarvinna
Duglegt og samviskusamt starfsfólk óskast
í pokadeild okkar. í boði er næg vinna, góð
laun og góö vinnuaðstaða. Mötuneyti á
staðnum.
Þeir sem áhuga hafa á að vinna hjá traustu
og sívaxandi fyrirtæki vinsamlega hafið sam-
band við Braga Erlendsson milli kl. 13.00
og 16.00.
Ptastprent hf
Höfðabakka 9.
Sími 685600.
Álftanes
Blaðbera vantar á Suðurnesið.
Upplýsingar í síma 51880.
fHwgtmftlfifett
RAÐNINGARSTOFA REYKJAVÍKURBORGAR
Atvinnurekandi
Hefur þú störf fyrir fatlaða?
Erum í leit að ýmis konar störfum, þ.á m.
skrifstofustörfum og léttum iðnaðarstörfum.
Hálfan eða allan daginn, fyrir fólk með hinar
ýmsu tegundir fötlunar. Vinsamlegast hafið
samband við Ástu B. Schram, deildarstjóra,
eða Elísabetu Guttormsdóttur, félagsráð-
gjafa, á Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar,
s. 18000.
'Æku RIKISSPÍTALAR
Æfii lausar stoður
BARNAHEIMILI
Fóstrur og starfsmenn
óskast til starfa á dagheimilið Sólhlíð, Kleppi,
m.a. í hálft starf e.h. og á kvöldvaktir kl.
15.30-19.30.
Upplýsingar veitir forstöðumaður, sími
38160.
Fóstrur og starfsmenn
óskast til starfa á dagheimilið Stubbasel í
Kópavogi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður, sími
44024.
Reykjavík, 5. okt. 1986.
JL húsið auglýsir í
eftirtalin störf:
1. Símavarsla o.fl.
2. Stúlkur í matvörumarkað.
Umsóknareyðublöð hjá deildarstjóra.
Jli
Jón Loftsson hf.
/A A A A A A k
i 1. J ! _J> 11111
J J
121
Verkfræðingur
Hjá eirium viðskiptavini okkar er laust starf
fyrir verkfræðing með vatnafræði sem sér-
svið. Fyrirtækið er umsvifamikið á sviði
verklegra framkvæmda og vel staðsett í
Reykjavík.
Starfið felst einkum í ráðgjöf og hönnun á
ýmsum mannvirkjum sem tengjast rennsli
og ágangi vatns.
Viðkomandi verður gefinn kostur á upprifjun
og frekara námi fyrir og í starfi.
Ætlast er til að viðkomandi sýni sjálfstæði
og frumkvæði á sínu sviði, í umhverfi þar sem
margir tæknimenn vinna saman. Skriflegar
umsóknir sendist Magnúsi Haraldssyni, fyrir
12. október nk.
RÁÐGARÐUR
STIC^RNUNAR (XRF.KSTRARRÁIX',|ÖF
NÓAT ÚNI I 7, 105RHYKJAVÍK. SÍMI (91)686688
Deildarstjóri
Óskum að ráða deildarstjóra til starfa hjá
stóru deildaskiptu innflutnings- og þjónustu-
fyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Sölustjórnun, markaðssetning,
uppbygging og viðhald erlendra og innlendra
viðskiptasambanda, áætlanagerð, auglýs-
inga- og kynningamál.
Við ieitum að manni með viðskipta-A/erslun-
armenntun og/eða reynslu af sölu- og
markaðsmálum. Nauðsynlegt að viðkomandi
geti stjórnað og skipulagt störf þeirra starfs-
manna sem undir hann heyra.
í boði er: Áhugavert vellaunað stjórnunar-
starf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Starfsþjálfun erlendis. Viðkomandi getur haf-
ið störf fljótlega eða eftir nánara samkomu-
lagi.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Skriflegar umsóknir sendist Ráðningarþjón-
ustu Hagvangs hf. merktar: „Deildarstjóri
hjá traustu fyrirtæki" fyrir 15. okt.
Hagvangurhf
RÁÐNINCARPJÓNUSTA
GRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666
Hveitimyllan hf.
óskar að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
Verksmiðjustjóra
Verksmiðjustjóra er ætlað að skipuleggja og
stjórna framleiðslu á hveiti í verksmiðjunni,
annast viðhald og eftirlit með tækjum og
búnaði og sjá um verkstjórn.
Hann ber ábyrgð á nýtingu hráefna og ber
að stuðla að hámarksnýtingu framleiðslu-
tækja verksmiðjunnar.
Leitað er að vélvirkja, vélstjóra eða manni
með sambærilega starfsreynslu. Reynsla í
meðferð véla og tölvubúnaðar er æskileg og
þekking á ensku eða einu Norðurlandamáli
er nauðsynleg.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að fara
utan til þjálfunar í nokkurn tíma.
Bakara
Starf bakara felst einkum í rekstri tilrauna-
og kennslubakarís þar sem framleiðsluvörur
Hveitimyllunnar verða prófaðar. Einnig fer
þar fram vinna við vöruþróun og vörukynn-
ingar og boðið verður upp á ýmsar nýjungar
í þjónustu til viðskiptavina. Almennt eftirlit
með hráefnum fer einnig fram í bakaríinu.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að fara
erlendis til þjálfunar í stuttan tíma.
Sölustjóra
Hlutverk sölustjóra er að vinna að markaðs-
setningu á framleiðsluvörum Hveitimyllunnar
hf.
Ennfremur verður það sérstakt verkefni sölu-
stjóra að annast nauðsynlegan undirbúning,
s.s. hönnun umbúða, vörumerkis, skipu-
leggja auglýsinga- og kynningarstarf og taka
upp bein samskipti við væntanlega viðskipta-
vini og skipuleggja þjónustu við þá.
Leitað er að manni með reynslu af markaðs-
málum, sem á gott með að umgangast fólk
og er tilbúinn að vinna úti á markaðnum.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að fara
utan til þjálfunar í stuttan tíma.
Hveitimyllan hf. er nýtt fyrirtæki á Islandi, i eigu Finax Forsaljnings
ab. i Svíþjóð, Valsemöllen as. i Danmörku og Fóðurblöndunar hf.
Starfsemi þess verður öll í Sundahöfn í Reykjavík. Fyrirtækiö mun
framleiða hveiti á neytendamarkaö og ennfremur fyrir stórnotendur.
Áhersla veröur lögð á góöa og örugga þjónustu viö viöskiptavini.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist Hveitimyllunni hf., Pósthólf
4114, 124 Reykjavík, fyrir 15. október.