Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 72

Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 72
72 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA Níu ára krakkar úr Langholtsskóla í badmintonkennslu: Áhersla lögð á u nd i rstöðuat r iði n „Svo átt þú að horfa á bottann, rátta vel úr hendinni og nota úlnllð- inn þegar þú slaerð." Jóhann Kjartansson leiðbainir Bimi Hrafnkels- syni. MorgunblaSIS/VIP Tæknin nfð, stigið fram f vinstri fðt og spaðinn reiddur til höggs. Jón Þórarinn sposkur á svip og fólagi hans, Fjalar, bendir á boftann sem nálgast og er ekki árennilegur ásýndum. Borðaði morgunmat tvisvar sama morguninn BALDUR Sveinn Helgason er einn þeirra Langholtsskólakrakka sem fá kennslu hjá TBR en hann er nú samt ekki alger nýgræðingur f íþróttinni. „Mamma og pabbi voru með badmintontfma sein- asta vetur og þá fór óg með þeim og pabbi kenndi mór mikið. Þau eru lika með tíma f vetur og óg fer alltaf með þeim þannig að ég spila tvisvar í viku,“ sagði hann. Baldur sagðist hafa lagt aðrar íþróttagreinar á hilluna og ætlar að einbeita sér að badminton, „það er svo frábært þegar maður er í stuði og hittir boltann," bætti hann við til skýringar. Erfiöast fannst Baldri að hita upp fyrir æf- ingar því hann væri stirður eftir svefninn. Hann sagðist einu sinni næstum því hafa sofið yfir sig. „Ég vakna sko alltaf klukkan 6 og fæ mér morgunmat og halla mér svo 1 aftur. Einu sinni gleymdi ég að ég hafði borðað morgunmat og fékk j mér hann aftur og þá var ég nú Ísoldið þungur á æfingunni." Metið hans Baldurs í að hafda boltanum á lofti er 28 skipti „en þá sló ég boltann eiginlega alveg uppí þak og hafði betri tíma til að miða," sagði hann til skýringar. Baldur Ingi Ólafsson: Ekki felldur í badminton „MÉR finnst skemmtilegra f bad- minton en fótbolta því að fót- boltinn er eitthvað svona, óg meina, maður meiðir sig meira og er frekar feildur í fótbolta en f badminton," sagði Baldur Ingi Ólafsson ánægður eftir slysa- lausa æfingu hjá TBR. Þetta var 3. eða 4. badmin- tontíminn hans Baldurs og samt fannst honum að hann hefði lært heilmikið, sérstaklega um gripin og háu slögin. Það sem honum þótti aftur á móti erfiðast að eiga við var að halda boltanum á ? lofti og eins gátu lágu boltarnir frá keppinautunum verið erfiðir viður- eignar. „Ég hef getað haldið boltanum uppi tuttugu sinnum," bætti hann við til að tryggja að lesendur færu nú ekki að halda að hann væri einhver aukvisi í íþrótt- inni. Um tildrög þess að hann fór að æfa badminton sagði Baldur: „Kennarinn okkar bað okkur að koma með sér niður í TBR og þeg- ar við vorum komin þangað fengum við að vita að við fengjum tíma fram að jólum og svo gáfu þeir okkur spaða." Baldur sagðist ákveðinn að halda áfram eftir jól því það væri svo gaman að spila badminton og eiga nýjan spaða. BADMINTON er íþrótt sem á sífellt auknum vinsældum að fagna hór á landi. Ungiingasíðuna langaði að forvitnast um ungl- ingastarf þeirra. Þar var ekki komið að tómum kofanum því þá voru á æfingu sprækir strákar úr 9 ára bekk f Langholtsskóla. Að sögn Jóhanns Kjartanssonar þjálfara er það orðin árviss regla að 9 ára árgangi Langholtsskóla er boðinn ókeypis tími og kennsla fram að jólum ár hvert auk þess sem félagið gefur þeim spaða. Eft- ir áramót er krökkunum síðan gefin kostur á að halda áfram að æfa og hefur það verið tekið fegins hendi. Með því að fá krakka úr Langholtsskóla eru meiri líkur á að þau haldi badmintoniðkun áfram því stutt er á æfingar og krakkarnir þekkjast innbyrðis. Aðaláhersla á undir- stöðuatriðin Jóhann sagði að það væri mjög mikilvægt að krakkarnir fengju strax frá byrjun góða kennslu í undirstöðuatriðunum því í badmin- ton skipti tæknin mjög miklu máli. „Markmiðið er að krakkarnir fái til- finningu fyrir spaðanum og kúl- unni. Það er algengt að þessir krakkar láti kúluna detta of nálægt sér í byrjun því þau hafa ekki feng- ið tilfinningu fyrir lengd spaðans," bætti hann við. Annað unglingastarf En annað unglingastarf félags- ins er einnig blómlegt. Tveir almennir barna- og unglingaflokk- ar eru starfræktir, annar fyrir byrjendur en hinn fyrir lengra komna. Þetta annar þó ekki eftir- spurninni en með tilkomu nýs íþróttahúss sem er í byggingu auk- ast möguleikarnir ennfrekar. Skemmti- legra að nota fæturna FJALAR Þorgeirsson er þriðji f röð systkina sinna sem fær bad- mintonkennslu hjá TBR og sagði hann aö sór þætti badminton mjög skemmtilegt og þá sórstak- lega tvfliðaleikur. „Það er ein- hvern veginn skemmtilegra að vera tveir á móti tveimur en einn á móti einum," sagði hann. Þrátt fyrir að vera ánægður með að fá tækifæri til að munda bad- mintonspaðann sagðist Fjalar þó hafa meiri áhuga á fótbolta því honum þætti skemmtilegra að nota fæturna en hendurnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.