Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 79

Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 79
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 79 Sigrún Ólafs í fyrstu seglbátaferð sinni. nokkuð þungur straumur, en hann ber nafn er lætur kunnuglega í eyrum, sjálfur Golfstraumurinn. En við vorum heppin, sjórinn var svo að segja lygn alla leið, voru því sjó- veikiplástrar rifnir af og þurfti þeirra ekki frekar við, það sem eft- ir var ferðarinnar. Mikil umferð skipa er þarna und- an Floridaskaganum, og sum skipin svo sannarlega engin smásmíði, þannig að nauðsynlegt er að fylgj- ast vel með allri þessari umferð. Um leið og komið er á grunnsvæð- ið umhverfis Bahamaeyjar, er svo hægt að fara að anda rólegar. Mjög góð sjókort má fá af Bahamaeyja- svæðinu, og árlega er gefin út bók með öllum hugsanlegum upplýsing- um varðandi siglingaleiðir. Bók sú er hér um ræðir heitir „The Yach- tman’s guide to the Bahamas", og er sem fyrr segir gefin út ný og endurbætt árlega. Aðrar upplýsing- ar um svæðið berast svo manna milli, þegar komið er í hafnimar eða akkerisplássin. A Bimini fylltum við út þau skjöl er þarf til að fá leyfi til siglinga á erlendum bátum á Bahamaeyjum, og fómm í tollskoðun. Þama rejmd- ist gott að liðka fyrir gangi mála með því að greiða hinum opinbem starfsmönnum þjórfé. Á Bimini var tekið til við að raða hópnum niður á kojumar um borð í Tranquilly. Þijú svefnrými vom í skútunni, það stærsta og besta afturí, eitt frammí og svo miðskips, en þar var borð- stofa að degi til. Vegna nokkurs þægindamunar milli svefnplás- sanna var ákveðið að skiptast á um þau á 4 daga fresti. Þetta fyrir- komulag reyndist hið besta, og sannaðist þama hið fomkveðna að „þröngt mega sáttir sitja". Frá Bimini var síðan siglt til Honeymoon Harbour, þar sem við hvíldumst yfír nótt. Daginn eftir var svo synt í tæmm sjónum, flat- magað á ströndinni og siglt á seglbretti. Um kvöldið, sem og oft- ar seinna meir í ferðinni, fómm við á gúmmíbátnum til nálægra eyja í skoðunar- og rommkaupaferð. Gúmmíbáturinn var mikið notað- ur í snatt milli eyja, þegar legið var í akkerisplássum og einnig í krabba- ferðir. Það skal þó tekið fram, að enginn veiddist krabbinn í ferðinni. Þó var í hópnum mikill krabbaveiði- maður, þar sem Óli var, og hann var einnig vopnaður hinu merkileg- asta vopni og veiðarfæri, svokölluðu „hawaian sling". Þetta merkilega vopn er nokkurskonar teygjubyssa, 6em notuð er til að skjóta skutli heðansjávar. Okkar óheppni var bara sú að hitta ekki á nein auðug krabbamið í þessari ferð. Atli sýndi aftur á móti frábær tilþrif, er hann veiddi 15 punda barracuda-físk á handfæri. Við vor- um á siglingu, og lét Atli færið liggja úti, svona af gömlum vana, og allt í einu var kvikindið komið á. Rommkaupaferðimar urðu strax vinsælar, og að því er okkur fannst, einhvemveginn tilheyrandi á þess- um fomu sjóræningjaslóðum. Þá var farið í nærliggjandi bátahöfn að kvöldi til, í þeim tilgangi að höndla romm hjá eyjaskeggjum. Ein vinsæl dægradvöl þama er svo að ráðast til uppgöngu í báta sem hafa strandað á grunninu við eyjamar. Þessar heimsóknir em kallaðar strandpartý, og er stjómað af innrásarliðinu. Þá er þeim er strandað hafa veitt hjálp við að losna, og komast aftur á flot ef mögulegt er, annars er bara beðið eftir næsta flóði og lífinu tekið með ró á meðan. Við urðum aldrei fyrir slíkri innrás, þar sem skútuna okk- ar tók aldrei niðri. Það má þakka Sigga skipstjóra og bræðmm hans tveimur, er greinilega þekktu alla staðhætti þama af fyrri reynslu. Næsti áfangastaður okkar var Berry Islands, þar köstuðum við akkerum í höfn að nafni Alder Harbour. Innsiglingin þama var alveg sérstaklega fögur, og legið var við akkerin í lítilli vík sem þama var. Á meðan við dvöldum þama, sigldu inn nokkuð margar skútur, fæstar þeirra köstuðu akkemm, enda margir sem aðeins sigla þama um og skoða með því að bíða eftir flóði til að komast sem næst landi. Þama dóluðum við svo meira um á Tranquilly, fengum góðan vind, og lærðum hjá kunnáttumönnunum að stýra og haga seglum. Við skipt- umst á um að stýra og standa vaktir við stýrið. í höfn að nafni Chub Cay áttum við svo eftir að dveljast í 3 daga þar sem það hvessti nokkuð, en á þessum árstíma getur komið fyrir að hvass- ir vindar biási og sjór taki að ýfast. Að þessum 3 dögum liðnum héldum við svo af stað til Nassau. Ferðin þangað gekk mjög vel, þrátt fyrir að við fengjum mótvind, enda kom hjálparvélin í Tranquilly þá að góð- um notum. Nassau, höfuðborg Bahamaeyja, sem staðsett er á eynni New Provid- ence, er miðdepill alls athafnalffs eyjanna. Þar búa yfir 100.000 manns á einni af smærri eyjum í byggð. Mikil umferð skipa er til Nassau, og þar má sjá allar stærð- ir og gerðir báta og skipa, er koma þangað með ferðalanga í leit að sól, sandi, sjó og skemmtun. Við lögðumst að í smábátahöfn á Paradise Island, er neftiist Hum>. ane Hole Marina. Þessi litla paradísareyja tengist svo New Providence með gríðarmikilli brú. Á paradísareynni hefur verið útbúin sannkölluð paradís ferðamanna, með spilavítum, hótelum í lúxus- klassa, miklum baðströndum og afar fallegu umhverfi. Við dvöldum í 3 dásamlega daga í Nassau. Mikið var dvalið í spilavít- unum, og ekki voru allir jafn ráðdeildarsamir með fé sitt þar. En ekki kom þó til þess að neinn þyrfti að leysa úr skuldafangelsi, þegar haldið var af stað frá Nassau. Nú var heimferðin hafin og siglt var yfir grunnið til Cat Cay. Þessi leið er alveg einstaklega skemmti- leg, botninn sést alla leiðina, og sjórinn er þama alveg hreint ótrú- lega tær. Þama tókum við myndir af skútunni á siglingu á myndband er var með í ferðinni. Tíminn var einnig notaður til að synda allt í kringum skútuna, liggja í sólbaði á dekkinu og æfðar vom dýfingar af einstakri list. Við vomm misjafn- lega dugleg við að nota köfunarbún- aðinn. Hann skiptist f tvær mismunandi gerðir eftir brúkunar- gildi, annarsvegar til að svamla rétt undir yfirborði sjávar án nokk- urra kúta, og svo útbúnað er nota mátti til að kafa dýpra með því að vera með loftkút á bakinu. Einhver séríslensk hákarlahræðsla var nú f okkur til að byija með, en Siggi sannfærði okkur fljótlega um að ekkert væri að óttast. Matmálstímar vom oftast með þeim hætti að við grilluðum matinn á grilli, sem var innbyggt í dekkið aftast í skútunni. Einnig var oft farið í land á eyðieyjunum og kveikt þar bál til að elda við. Að sjálf- sögðu var svo annað slagið eldað á hefðbundinn máta, á gaseldavélinni sem var um borð í Tranquilly. Við lifðum á nautakjöti og grænmeti að mestu alla ferðina, humar og kjúklingar vom svo matreiddir til tilbreytingar annað slagið. Allur kostur var tekinn um borð strax f upphafi, í Fort Lauderdale, en vegna þess hve verðlag á mat- vöm er hátt á Bahamaeyjum, var þessi háttur hafður á. Sérstaklega er vatnið dýrt á eyjunum, þar sem það er af skomum skammti þar. Geymslur fyrir matinn um borð dugðu okkur svo alla ferðina, svo ekki var þörf á meiru. Við töldum okkur sleppa mjög vel með 600 til 700 dollara í allan kostnað við ferð- ina, þ.e. í mat og svo allan kostnað er fylgdi skútunni. Hér ætla ég að láta staðar num- ið í þessari ferðalýsingu af ógley- manlegri siglingu um Bahamaeyjar. Það er skoðun mín að æ fleiri muni velja að ferðast á þennan máta, frekar en að fara í hinar hefð- bundnu sólarlandaferðir. Óhætt er að velja hvaða árstímá sem er til ferðar um Bahamaeyjar. Alltaf er veðrið jafn dásamlegt og aldrei of heitt. Það er þó svo að Bandaríkja- menn sækja helst þangað að vetri til, á flótta undan vetrarkuldunum í nyrstu fylkjunum. Á þeim tíma er verðlag á Bahamaeyjum ívið hærra en annars, og auðvitað margt um manninn. Leið sú er við fórum er ekki mjög löng þegar ljtið er á víðfeðmi þessa svæðis. Á lengri tíma má auðvitað komast víðar, en þessu stjómar hver og einn og skipuleggur eftir eigin höfði. Eitt er þó víst, svona ferð verður hveijum sem fer ógleymanleg, og hver og einn stjómar sinni ferð með það eitt að leiðarljósi, að njóta alls þess er Bahamaeyjar bjóða uppá sem allra best. Höfundur er kennari og býr á Seyðisfirði. í vetrarskoðun MAZDA eru eftir- farandi atriði framkvæmd: O o 0 o o o o o o €) 0 0 0 0 0 0 Skipt um kerti og platínur. Kveikja tímastillt. Blöndungur stilltur. Ventlar stilltir Vél stillt með nákvæmum stillitækjum. Vól gufuþvegin. Skipt um bensínsíu. Rafgeymir, geymissambönd og hleðsla athuguð. Kannaður bensín, vatns- eða olíuleki. Loftsía athuguð og hreinsuð, endumýjuð ef með barf. Viftureim athuguð og stillt. i Slag í kúplingu og bremsupetala athugað. Frostþol mælt. í Rúðusprautur stilltar og frostvari settur á. Þurrkublöð athuguð. Silikon sett á þéttikanta hurða og far- angursgeymsiu. I Ljós stillt. I Hurðalamir stilltar. | Þrýstingur í hjólbörðum athugaður. Verð með söluskatti: Kr. 3.670 Innifalið í verði: Platínur, kerti, ventlalokspcikkning, bensínsía, frostvari á rúðu- sprautu og þar að auki: ný rúðuskafa í hanskahóifið! Pantið í tíma í símum 681265 eða 681299. BILABORG HF Smiöshöfða 23sími 6812 99 ÞJÓNUSTA Blaóió sem þú vaknar við!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.