Morgunblaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986 25 Sterkari, sannari SíáMæðisfkrfdoir Það er óþarfi að fara mörgum orðum um Albert Guðmundsson. Allt sjálfstæðisfólk þekkir vel kraft hans og ósérhlífni við að leggja góðum málum lið. Albert Guðmundsson er samt af ýmsum talinn rekast illa í Sjálfstæðisflokknum. Þannig er það oft um sterka, sjálfstæða einstaklinga, ekki bara í okkar flokki, heldur öllum flokkum - hérlendis sem erlendis. En þeir styrkja líka flokka og breikka stórlega, - og enginn efast um stuðning Alberts við Sjálfstæðisstefnuna. Allt sjálfstæðisfólk veit að það er stærri, sterkari og umfram allt sannari Sjálfstæðisflokkur sem býður fram með Albert Guðmundsson í fylkingarbrjósti í Reykjavík. S j álfstæðisfólk! Leggjum ekki andstæðingum Alberts Guðmundssonar lið við tilraunir þeirra til þess að koma honum á kné og grafa þannig undan mögu- leikum Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Stefnum ótrauð að glæsilegum sigri hans í prófkjörinu sem fram fer á laugardaginn. Sjálfstæðisfólk! Stöndum þétt saman um sterkan lista í Reykjavík undir styrkri forystu Alberts Guðmundssonar. Stöndum þétt saman þann 18. október um stærri, sterkari og sannari Sjálfstæðisflokk. Stuðningsmenn Alberts Guðmundssonar. Skrifstofa stuðningsmanna er að Nóatúni 17. Símar 20020,21551 og 23556.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.