Morgunblaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
Eftírmál Rey kj avíkurfundarins:
Karpov skýrir
Thatcher frá
viðræðunum
Vonir um framhald viðræðna glæðast
Ltmdúnum, Búkarest og Genf, AP.
AÐALSAMNINGAMAÐUR Kremlveija í Genf, Viktor Karpov, sagði
í gær að hann vænti enn árangurs i afvopnunarviðræðum, þrátt
fyrir Reykjavíkurvonbrigðin. Karpov ræddi við fréttamenn eftir
fund hans við Margaret Thatcher, en á honum skýrði hann forsætis-
ráðherranum frá Reykjavíkurfundinum. „Við urðum sammála um
að leita ætti leiða [úr sjálfheldunni] og að báðir aðilar þyrftu að
gera sitt tíl þess að svo mætti verða“. Genfarviðræðuraar hefjast á
fimmtudag, degi síðar en ætlað var, að ósk Sovétmanna. Á fundi
utanríkisráðherra Varsjárbandlagsins í Búkarest í gær, skýrði Ed-
vard Shevardnadze frá viðræðum Ieiðtoganna i Reylqavík.
Karpov var spurður um mögu-
leikann á öðrum leiðtogafundi,
svaraði Karpov: „Báðir aðilar þurfa
nú að velta fyrir sér niðurstöðum
Reykjavíkurfundarins og það mun
taka tíma“, og kvað það gerast í
Genf.
Karpov sagði að viðræður hans
og Thatcher, sem urðu lengri en
búist var við, hafí verið mjög gagn-
legar, þó svo að þau hefðu ekki
verið sammála á öllum sviðum.
Á mánudag sagði George Young-
er, vamamálaráðherra, að Reagan
hefði haft „algerlega rétt fyrir sér“,
þegar hann neitaði að láta af geim-
vamaáætluninni gegn því að
Sovétmenn drægju úr kjamorku-
herafla sínum.
„Það hefði skaðað Vesturlönd
mjög ef hann hefði fallist á að rann-
sóknir Vesturlöndum yrðu lagðar
niður, án þess að nokkur trygging
væri fyrir því að sömu rannsóknum
hafí verið hætt í Sovétríkjunum".
Sovétmenn óskuðu eftir því að
afvopnarviðræðunum í Genf yrði
frestað um einn dag, að þvi er virð-
ist vegna fjarveru Karpovs.
Á sama tíma héldu utanríkisráð-
herrar Varsjárbandalagsins fund í
Búkarest. í tilkynningum um fund-
inn sagði að fundarmenn stæðu
Holland:
Vongóðir
eftir Reykja-
víkurfund
Haag, AP.
HOLLENSKA ríkisstjómin
lýsti á mánudag yfir von um
að leiðtogafundurinn í
Reykjavik ýttí undir aðrar
viðræður um afvopnun milli
Bandaríkjamanna og Sovét-
tnanna.
Talsmaður hollenska ut-
anríkisráðuneytisins sagði að
stjómin vonaði að fundurinn
yrði samninganefndum stór-
veldanna í Genf lyftistöng þótt
leiðtogamir hafí ekki komist
að samkomulagi um geim-
vamaáætlun Bandarfkjanna.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI BandaríkjadoIIars var
óstöðugt í gær. Verð á gulli lækk-
aði.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,4380 dollara (1,4330) í
London, en annars var gengi dollar-
ans þannig, að fyrir hann fengust
1,9745 vestur-þýzk mörk (1,9795),
1,6165 svissneskir frankar
(1,6130), 6,4725 franskir frankar
(6,4850), 2,2340 hollenzk gyllini
(2,2375), 1.367,50 ítalskar lírnr
(1.370,00), 1,38875 kanadískir
dollarar ( 1,38770) og 153,95 jen
(154,05).
einhuga um stefnu Sovétmanna, en
jafnframt var sagt að langt hefði
miðað á Reykjavíkurfundinum.
Ekki var minnst orði á að viðræð-
umar hefðu farið út um þúfur vegna
geimvamaáætlunar Bandaríkja-
manna.
Á myndinni má sjá Margrétí Thatcher bjóða Viktor Karpov velkominn að Downingstræti 10.
Richard Perle, aðstoðarvamarmálaráðherra:
Sovétmenn sigldu viðræð-
unum vísvitandi í strand
RICHARD Perle, aðstoðarvamarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði
á blaðamannaf undi í gær, að Sovétmenn hefðu visvitandi siglt viðræð-
unuoi í Hðfða í strand með þvi að gera kröfu um, að rannsóknir
vegna geimvarna yrðu takmarkaðar við rannsóknastofur. Hann
sagði, að Reagan hefði fallist á ósk Gorbachevs um að ABM-samning-
urinn, sem bannar geimvarnir, yrði virtur í 10 ár og jafnframt hefði
Reagan lagt til, að langdrægum kjarnorkeldflaugum yrði útrýmt í
áföngum á þessum árum. Þegar Sovétmenn stóðu frammi fyrir þessu
bættu þeir við hinu óaðgengilega skilyrði um takmörkun á rannsókn-
um.
Perle var spurður að því, hvers
vegna leiðtogamir hefðu tekið til
við að semja beinlínis um fækkun
kjamorkuvopna á fundinum eftir
yfirlýsingar fyrirfram um að þar
yrði aðeins unnið að undirbúningi
næsta fundar þeirra og rætt um
meginlínur. Hann sagði, að aldrei
væri unnt að segja fyrir um, hvem-
ig fundir af þessu tagi þróuðust og
þegar Bandaríkjamenn hafí séð á
laugardeginum, að Sovétmenn virt-
ust reiðubúnir til að ræða einstök
efnisatriði í aivöru hefðu vinnu-
nefndir verið settar niður til þess.
Hann benti á, að verulegur ár-
angur hefði náðst I þessum viðræð-
um. Samið hefði verið um að
meðaldrægar eldflaugar skyldu
Qarlægðar frá Evrópu og Sovét-
menn mættu aðeins eiga 100
kjaraaodda í slfkum flaugum í Asíu
og Bandríkjamenn 100 I Banda-
ríkjunum. Þá hefði legið fyrir, að
öllum skotkerfum fyrir langdrægar
flaugar yrði fækkað í 1600 og
kjamaoddum í 6000. Á þessu stigi
.hefðu Sovétmenn Iagt fram tillögu
um, að ABM-gagneldflaugasamn-
ingurinn yrði virtur í 10 ár.
Bandaríkjamenn hefðu fallist á það
enda yrðu langdrægar eldflaugar
flarlægðar á þessu 10 ára tímabili.
Sovétmenn svöruðu því ekki en
gerðu kröfu um takmörkun á rann-
sóknum vegna geimvama. Á þetta
hefðu Bandaríkjamenn ekki getað
fallist, þar sem það skipti sköpum
fyrir öryggi í heiminum, að þessum
rannsóknum væri fram haldið.
Vamir af þessu tagi væru nauðyn-
leg trygging, ef brotið yrði gegn
samkomulaginu um útrýmingu
langdrægu eldflauganna.
Perle sagði, að Bandaríkjastjóm
hefði kannað öll skjöl og umraéður
er liggja ABM-samningnum frá
1972 og lögfræðingar hefðu komist
að þeirri niðurstöðu, að ekkert hefði
verið sagt eða fest á blað, sem bann-
aði rannsóknir eða tilraunir vegna
geimvama. Þetta gætu Sovétmenn
ekki sætt sig við og í raun féllust
þeir á þessa túlkun með því að krefj-
ast breytinga á ABM-samningnum.
Richard Perle.
Blaðamenn frá London, Bonn,
Brussel, Madrid, París, Kaup-
mannahöfn og Reykjavík lögðu
spumingar fyrir Richard Perle fyrir
tilstilli sjónvarpskerfis Ugplýsinga-
þjónustu Bandaríkjanna. í svari við
spumingu frá íslandi sagðist hann
vilja færa íslendingum þakklæti
fyrir að hafa verið giæsilegir gest-
gjafar. Sér hefði skilist að þeir
hefðu orðið fyrir vonbrigðum yfir
því, að ekki var samið á fundinum.
Þau vonbrigði væru ástæðulaus, þar
sem nafn Reykjavíkur yrði ávallt
tengt einu merkilegasta skrefi, sem
stigið hefði verið í afvopnunarmál-
um. Nú skipti mestu að nýta
árangurinn í Reykjavík í samninga-
viðræðunum í Genf.
Sendiherra Sovétmanna í Bonn:
Sérsamningar um með-
aldrægar eldflaugar
Bonn. AP.
Bonn, AP.
SENDIHERRA Sovétríkjanna í
Vestur-Þýskalandi sagði á mánu-
dag, að hvað sem liði niðurstöðu
fundarins í Reykjavík væri hugs-
anlegt, að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn semdu sérstaklega
um að fækka meðaldrægu eld-
flaugunum.
Moskva:
Rekinn fyrir gjálífi
A P «/ Oll
Moakvu, AP.
YFIRMAÐUR rannsóknalög-
reglunnar í Moskvu hefur verið
rekinn fyrir siðlaust líferni og
fyrir að hafa komið drukkinn
fram opinberlega. Skýrði blað-
ið Moskovskaya Pravda frá
þessu á laugardag.
Maðurinn, sem heitir V. V.
Anikin, „átti einnig S verzlunarvið-
skiptum við menn úr viðskipta-
heiminum og þjóðfélaginu, sem
sumir hveijir hafa verið hand-
teknir og fundnir sekir um
afbrot," segir blaðið ennfremur.
Anikin „lifði siðlausu lífí og
drakk í óhófi. Sú staðreynd, að
hann hafði komið fram drukkinn
við mörg opinber tækifæri, átti
sinn þátt f frávikningunni og því,
að hann var rekinn úr kommún-
istaflokknum."
Ekki var greint nánar frá frá-
vikningu Anikins. Hann mun vera
einn æðsti embættismaðurinn,
sem vikið er úr stöðu sinni síðan
Sovétstjómin hóf mikla baráttu
gegn áfengisneyzlu á meðal
þegna sinna fyrir 18 mánuðum.
Vladimir Lomeiko, sendiherra
Sovétmanna S Bonn, sagði á frétta-
mannafundi, að fyrir ReykjavSkur-
fundinn hefðu Sovétmenn stungið
upp á sérsamningum um meðal-
drægu eldflaugamar án þess að
setja það skilyrði, að Bandaríkja-
menn hættu við geimvamaáætlun-
ina.
„Sérstakur samningur um meðal-
drægu eldflaugamar í Evrópu er
kostur, sem keppa ber að,“ sagði
Lomeiko, „en víðtækir samningar á
grundvelli tillagnanna í Reykjavík
eru þvf aðeins hugsanlegir, að
Bandarílqamenn hætti við geim-
vamaáætlunina."
Lomeiko sagði, að í Reykjavík
hefði „sögulegt tækifæri" til að
draga úr vfgbúnaðarkapphlaupinu
farið forgörðum. „En,“ sagði hann,
„hann var langt í frá árangurslaus.
Hann var tilraun til að hleypa lífí
í viðræðumar í Genf og koma af
stað hreyfíngu í átt til umfangsmik-
illar kjamorkuafvopnunar."