Morgunblaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
Kastalinn í Cardiff, höfuðborg Wales, þykir vel heimsóknarinnar virði, þegar á annað borð er
komið til Cardiff. Einkum eru íbúarair stoltir af fagurlega skreyttum klukkuturninum, til vinstri
á myndinni.
Cardiff í sókn sem
férðamannastaður
SÉRSTÖK hraðlest frá London
til Cardiff, höfuðborgar Wales,
braut nýlega hraðametið á
þessari leið, og stytti tíma-
lengdina um 24 mínútur. Leiðin
er um 200 kílómetrar og var
farin á einni klukkustund og
21 mínútu, en venjulegur tími
þangað með hraðlest er ein
klukkustund og 45 mínútur.
Bristish Rail (Bresku jám-
brautimar) hafa alls ekki í huga
að gera þessa sérstöku hraðlest á
milli Lundúna og Cardiff að föst-
um lið á tímatöflu sinni - heldur
var ferðin farin sem eins konar
tilraunaferð, aðeins einu sinni.
Þegar komið er til Cardiff, er
auðvelt að ná til hvaða hluta Suð-
ur-Wales sem er, og andstætt því
sem margir kunna að gera sér í
hugarlund, þá er þetta sævði fjarri
því að vera ein stór kolanáma.
Ferðamenn á eigin bíl geta reynd-
ar komist í tæri við hina fjölbreytt-
ustu náttúm og landslag, með því
að aka aðeins um eina klukku-
stund frá Cardiff. Ef steftian er
tekin í norður, er komið í Dalina
(The Valleys) sem saman standa
af litlum bæjarfélögum, sem
byggja afkomu sína á jám- og
kolaiðnaði. Þessi litlu samfélög
era umvafin grænum hæðum, sem
era eins og teiknaðar bröttum
vegum, sem tengja samfélögin
litlu.,. Þar fyrir norðan er Brecon
Beacons National Park, þjóðgarð-
ur með kjarri, skógum og fossum.
í vesturátt frá Cardiff er Gower
Peninsula (Gowerskaginn), með
sandbreiðum sínum á ströndinni,
en í austur er hinn skógi vaxkni
Wyedalur með hinum stórbrotnu
rústum af Tintem klaustrinu, sem
stofnað var árið 1131. Þar er einn-
ig hin foma markaðsborg
Monmouth, með sínum sérkenni-
legu víggirðingum.
Cardiff sjálf er vissulega heim-
sóknarverð borg. Óhætt er að
mæla með því að skoðunarferð
um borgina hefjist í kastalanum,
þar sem Rómverjar settu upp búð-
ir sfnar, fyrir um það bil 1900
Þessi bygging, sem er reyndar eins herbegis kot, frá heiðalöndum
Snowdoni er ein margra bygginga sem flutt hefur verið til velska
þjóðminjasafnsins í St. Fagan’s og endurbyggð þar, svipað þvi
og við gerum við gömul hús okkar og flytum að Arbæjarsafninu.
Veiðimenn renna gjarnan fyrir fisk í River Usk, en hún rennur
nærri Brecon, norður af Cardiff.
árum. Leifar liðlega þriggja metra
rómversk veggjar standa enn við
kastalann.
í miðborg Cardiff er einnig
fyöldi bygginga sem gestir borgar-
innar ættu að heimsækja, og rekja
þær flestar uppruna sinn til síðari
hluta 19. aldar. Það era bygging-
ar eins og ráðshús Cardiff (City
Hall) og National Museum of
Wales (Þóðminjasafnið í Wales),
en það hefur m.a. að geyma
heimsfræg frönsk impressionista-
listaverk. Þá er rétt að minnast á
Ströndin þykir einkar falleg við Three Cliffs Bay á Gower-
skaganum, en þangað er ekki löng för frá Cardiff.
Matterhorn —
Ein af perlum
Alpafjallanna
í SVISSNESKU ÖLPUNUM er
háannatími ferðaútvegs næst-
um árið um kring - burtséð frá
því hvaða fjallasprt menn vilja
leggja stund á. A veturna geta
menn lagt stund á fjallaklifur,
sem og hvaða skíðaíþrótt sem
er. Að sumri til er einnig hægt
að leggja stund á skiðaíþrótt-
ina, og svo auðvitað fjallaklifur
hvers konar.
Vissulega era sumrin og haust-
in hentugri til fjallgangna en
vetumir. Þá er hægt að klífa í 3
til 4 þúsund metra hæð í Valais
og Bemer Oberland, í Graubiind-
en og Tessin, sem og í öðrum
kantónum svissnesku Alpanna.
Til að mynda segja margir aðdá-
endur þess fræga svissneska
fjaliatinds Matterhoms „Sjá Matt-
erhom - og dey síðan".
Það er óneitanlega tílkomumikU sjón að lfta þetta fagra fjall svissnesku Alpanna, Matterhorn.
tvö önnur söfn í nágrenni Nation-
ai Museum, en það era The Welsh
Industrial Museum (Iðnaðarsafn-
ið) og Maritime Museum (Sjávar-
minjasafnið).
Helsti menningarviðburður í
Cardiff ár hvert, er tónlistarhátíð-
in, sem venjulega á sef stað síðast
í nóvember og fram í byijun des-
ember. Þessi hátíð er íslendingum
að góðu kunn, því þar hefur
Landinn tekið þátt og spjarað sig.
Það er skemmtilega mikið val
fyrir ferðamanninn, þegar að gist-
ingu kemur. Hægt að verða sér
úti um hið ágætasta „bed and
breakfast" (gisting og morgun-
verður) fyrir ekki meira en 7 pund,
sem jafngildir um 430 krónum,
en það er einnig hægt að fá gist-
ingu á Iúxushóteli fyrir verulega
miklu fleiri pund. Það er því hreint
ekki svo slæmur kostur, ef þú á
annað borð ert stödd/staddur í
London, og langar til þess að
kynnast Wales að veija tveimur
til þremur dögum f ferð til Card-
iff og nágrennis.