Morgunblaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
9
SJÁLFSTÆÐISMENN!
BESSI16. SÆTI
Við styðjum
BESSÍ JÓHANNSDÓTTUR
af því að hún hefur víðtæka reynslu
og þekkingu á þjóðmálum en fyrst
og fremst af því að hún hefur reynst
trausts verð. Hún hefur skoðanir og
þorir að fylgja þeim eftir.
Kosningaskrifstofan er í Hafnarstræti 19, sími 621514, opin
mánud.—föstud. kl. 14—21oglaugard.ogsunnud.kl. 14—17.
Stuðningsmenn
Tíkin mín
✓
erum á höttunum eftir íbúð
helst í miðbænum.
Því miður getum við ekki borgað neina fyrir-
framgreiðslu, en við lofum skilvísum mánað-
argreiðslum og góðri umgengni.
Uppl. í síma 27557c£tirkl. 18.30 á dag-
iixn.
Háskólaerindi í
minningu
Sigurðar S.
Magnússonar
prófessors
Föstudagur 17. október.
Sir Malcolm Macnaughton, prófessor í kvensjúkdómafræð-
um við háskólann í Glasgow, mun flytja erindi í boði
læknadeildar Háskóla islands er hann nefnir:
„The Ethlcs of Artifíclal Reproductlon
Fyrirlesturinn verður fluttur í kennslusal Hjúkrunarskóla ís-
lands á Landspítalanum, og hefst kl. 13:15. Öllum er heimill
aðgangur. Sir Malcolm Macnaughton er forseti samtaka
breskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna, Royal College
of Obstetricians and Gynaecologists. Hann er þekktur fyrir
rannsóknir á sviði kvensjúkdómafræði, einkanlega varðandi
ófrjósemi. Fyrirlesturinn fjallar um siðfræðivandamál sem
tengjast tæknifrjóvgun.
Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev koma af fundi f Höfða.
Leiðtogafundurinn í Höfða
í Staksteinum í dag er vitnað í forystugreinar Alþýðublaðsins,
DV, Tímans og Þóðviljans, þar sem fjallað er um niðurstöður
fundar Reagans og Gorbachevs í Reykjavík.
Rússar unnu
áróðursstríðið
1 forystugrein Alþýðu-
blaðsins í gœr sagði nu.:
„Engrnn blöðum er um
það að fletta, að Sovét-
menn sigruðu i þvi
áróðursstriði, sem háð
var meðan á fundinum
stóð. Framkoma þeirra
og málflutningur hafði
áhrif áþá, sem með fund-
inum fylgdust. Gorbach-
ev virtíst einlægur i allri
viðleitni sitmi til að á
fram einhveiju sam-
komulagi. Rök Banda-
ríkjanna fyrir þvi að
samkomulag tókst elflH
voru ekki verulega sann-
færandi.
Þann fyrirvara verður
þó að hafa á i allri um-
fjöllun um fundinn, að
ekki eru ÖU kuri komin
tíl grafar. Þó er þ'óst, að
Sovétmenn lögðu fram
ákveðnar tUlðgur um
fækkun meðaldrægra og
langdrægra eldflauga.
Svo virðist sem báðir
aðQar hafi vijjað sam-
þykkja þessar tUlögur,
en samþykkt þeirra
strandað á kröfu Sovét-
manna um frestun eða
stöðvun á svonefndri
„stjömustríðsáætlun"
BandarUdamanna u
Og siðar sagði blaðið:
„Það er harmsefni að
ekki náðist meiri árang-
ur á fundinum. En
nauðsynlegt er að láta
ekki deigan síga og vænt-
anlega hittast þjóðarieið-
togarnir aftur. Á næstu
dögum verður reynt að
draga fram staðreyndir
um það hvað raunveru-
lega gerðist á Reykjavík-
urfundinum. Menn munu
reyna að meta mQdlvægi
tíllagna Sovétmanna og
fá á hreint hvaða tíllögur
Bandaríkjamenn lögðu
fram."
Mikil von-
brígði
í forystugrein Timans
í gær sagði ma.:
„Allt bendir til að
Gorbatojov hafi komið
ny'ög vel udirbúinn á
þennan fund og verið til-
búinn til að leggja mikið
í söhimar til að Hann og
Reagan næðu samkomu-
lagi um veigamikil atriði
i þá átt að draga úr
vigbúnaði risaveldanna.
Erfítt er að átta sig á
fylgi við hans tíllögur i
Sovétríkj uniun og vera
má að sovéskum
harðlinumönnum hafi
fundist Gorbatsjov vijja
gefa of mikið eftir. Þvi
voru það mikil vonbrigði
fyrir hinn nýja leiðtoga
Sovétríkjanna að þær
skyldu ekki nást fram,
og óvist hver viðbrögð
hans verða."
Og siðar sagði Tíniinn:
„Fólk vildi áþreifan-
legt samkomulag um
fækkun gjöreyðingar-
vopna, hvaða nafni sem
þau nefnast, og tQ leið-
toganna komu áskoranir
hvaðanæva úr heiminum
iþáátt
Þessi tílraun mistókst
og óvist hvert framhaldið
verður."
Sögulegu
tækifæri
glatað
í forystugrein Þjóð-
viljans i gær sagði mju:
„Niðurstaða
Reykjavíkur-fundar stór-
veldaleiðtoganna um
helgina hþ'óta að vera
öllum friðelskandi mönn-
um sár vonbrigði.
Mönnum var raunar
frá upphafi (jóst, að til
sögulegra tíðinda kynni
að draga i Reykjavík.
Óvænt yfiriýsing Gorb-
atejofs aðalritara við
komuna tíl Inndftina
kveikti strax vissa bjart-
sýni og jákvæða spennu
i kringum fundinn. Þær
vonir sem til urðu i upp-
hafi efldust svo enn,
þegar fundir leiðtoganna
tveggja urðu bæði lengi
og fleiri en upphaflega
var ráðgert.
En hin sögulega niður-
staða í Reykjavík var
öðruvisi en að var stefnt.
Þegar gífuriega mikil-
vægt samkomulag
fækkun kjamavopna af
öllum tegundum virtíst
einungis i seilingarfjar-
lægð sleit hin nyög svo
umdeilda Stjðmustriðs-
áætíun Bandarikja-
mannn hínn veika þráð á
milli manna. Þá kom i
Uós, að Reagan forsetí
vildi undir engum kring-
umstæðum gefa eftir
neinar tnHmartnnir á
Stjöraustriðsáæthininni.
Með þvi eyðilagði hann
stórkostlegt tækjfæri
sem hefði komið öllu
mannkyni tíl góða. Von-
irnar um jákvæða niður-
stöðu urðu á skammri
stundu einskis virði. Og
ýmislegt bendir þvi mið-
ur til þess, að kaldara
verði nú á milli stórveld-
anna en áður, og minni
Iflmr á samkomulagi i
framtiðinni.**
Arangur
náðist
Í aukaútgáfu DV á
sunnudaginn, áður en
leiðtogafundinum var
lokið, birtíst forystugrein
undir nafninu „Það
tókst", þar sem mx
sagði:
„En nú þegar er unnt
að fullyrða, að
Reykjavíkurfundur
Gorbatojovs og Reagans
markar upphaf aukins
öryggis mannkyns eftir
langt tímabQ vaxandi ör-
yggisleysis. Nafn
Reykjavíkur fær varan-
lega og einkar jákvæða
varðveizlu í stjóramála-
sögunni."
í forystugrein DV á
mánudaginn sagði hin«
vegar:
„Mikilvægur árangur
náðist á fundi leiðtoga
risaveldanna í Reykjavfk.
Margt hefur áunnizt.
Þokazt hefur i samkomu-
lagftátt i ýmftnm milril-
vægustu efnum. Menn
skyldu ekki láta nei-
kvæða tóninn i ummæl-
um Gorbatejovs Sovét-
leiðtoga villa sér sýn. En
auðvitað veltur nú allt á
framhaldinu, hvort stór-
veldin vinna rétt úr þeim
efnivið sem þau hafa
fengið, eða hvort þau
leggjast að nýju i lang-
vinnt áróðursstrið.
Grandihf:
Hefur fryst yfir 1.000 lestir
af karfa fyrir markað í Japan
GRANDI hf hefur nú framleitt
yfir 1.000 lestir af karfa fyrir
Japansmarkað í fiskvinnslunni á
Grandagarði. Á siðastliðnu ári
var framleiðsla á karfa fyrir
Japan 682,4 lestir. Útflutningur
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna á karfa á Japansmarkað
hefur aukizt um 56% frá fyrra
ári.
Þessar upplýsingar koma fram í
þriðja fréttabréfi Granda hf á þessu
ári. Upplýsingamar eru hafðar eftir
Svavari Svavarssyni, framleiðslu-
stjóra. Hann segir meðal annars,
að til þess að standa við gerða sö-
lusamninga við Sovétríkin hafi orðið
að auka framleiðslu á karfa í 7
punda pakkningar á miðju sumri,
þrátt fyrir mun lægra verð en ann-
ars staðar hafi fengizt. Nú hafi
Grandi hf hins vegar framleitt upp
í sinn hlut þessara samninga og
framleiðslu á „rússakarfa" verði því
haldið í lágmarki til áramóta. Þegar
hafi verið framleitt nægilegt magn
af 7 punda ufsapakkningum fyrir
Sovétmenn. Því sé lögð áherzla á
framleiðslu ufsa í 5 punda pakkn-
ingar og blokk, en verð á þeim
afurðum hafi hækkað í verði, en
talið sé að verð lækki lítilega aftur.
Þá verður vinnsla á lausfrystum
smákarfaflökum hjá Granda hf
aukin eins og unnt er og lausfryst-
ing fyrir Frakklandsmarkað er
hafin á nýjan leik. Nú er stefnt að
því að öllum lausfrystum flökum
verði pakkað í stóra gáma úr pappa.
Tilraunir með þessa pökkunarað-
ferð eru þegar hafnar, en þetta er
sagt nýjung hér á landi, sem spari
vinnu og umbúðakostnað.
Ýmis fyrirtæki hafa óskað eftir
kaupum á ferskum karfaflökum til
að senda með flugi á markað í
Evrópu að sögn Svavars. Fáist við-
unandi verð, segir Svavar, að búast
megi við að framleiðsla fyrir þennan
markað hefjist og verði stöðug í
vetur.
í Norðurgarði hefur þorskur ein-
göngu verið framleiddur í 5 punda
pakkningar fyrir Bandaríkjamark-
að frá miðju sumri, meðal annars
til að standa við samninga við veit-
ingahúsakeðjuna Long John Silv-
er’s. Svavar segir að líklega takist
Granda að framleiða sinn hlut upp
í þá samninga.
Þá segir Svavar Svavarsson í
fréttabréfi Granda hf að verð á öll-
um fiski á fiskmörkuðum í Vestur-
Evrópu fari aftur hækkandi.
Gámafiskurinn eigi sinn þátt í því
að skapa stöðugleikann, sem nú
ríki í vinnslunni. Þótt búast megi
við því að vinnslan þurfi mikið hrá-
efni næstu mánuðina, sé gert ráð
fyrir því að senda fisk utan í gám-
um, þegar afli verður umfram þörf
og veðurútlit sé gott.
Fulltrúar borg-
arinnar í opin-
berri heimsókn
SJÖ fulltrúar Reykjavíkurborgar
fóru I opinbera heimsókn tíl Osló
daganna 29. september til 2. októ-
ber sl.
Heimöóknin er liður í samstarfi
höfuðborga á Norðurlöndum og sagði
Gunnar Eydal skirfstofustjóri borgar-
stjóra að stefnt væri að einni heimsók
til höfuðborgar á hveiju kjörtímabili.
íslensku fulltrúamir voru að þessu
sinni borgarfulltrúamir Páll Gíslason,
sem var oddviti sendinefndarinnar,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Katrín
Fjelsted, Guðrún Ágústsdóttir og
Sigrún Magnúsdóttir og embættis-
mennimir, Gunnar Eydal og Jón G.
Tómasson. Fulltrúamir kynntu sér
hvemig borgarstjómin í Osló reynir
að örva atvinnulíf og tengsl hennar
við menningarlíf I borginni.