Morgunblaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
37
Saumastofa sett
upp í slipp stöð-
inni á Húsavík
SLIPPSTÖÐIN á Húsavík, Naustir hf., keypti nýlega saumastofuna
Verkspor hf. frá Hafnarfirði sem sérhæfði sig í framleiðslu sekkja
til pökkunar á salti, áburði og mjöli.
Þórður Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Nausta, sagði í
samtali við Morgunblaðið að kaupin
væru til komin vegna verkefna-
skorts slippstöðvarinnar á vetuma,
en ætlunin væri að reka saumastof-
una jafnhliða slippnum og í sama
húsnæði enda það nægilega stórt
fyrir bæði fyrirtækin. Haldinn var
hluthafafundur í Naustum fyrir
skömmu og voru þar menn sam-
mála um að auka hlutafé í slippstöð-
inni um allt að þijár milljónir króna.
Kaupverð saumastofunnar nemur
1.9 milljón króna og sagði Þórður
að samkvæmt útreikningum ætti
fyrirtækið að standa undir sér ef
það næði ekki í nema tæplega helm-
ing sekkjamarkaðarins hér heima,
þótt stefnt yrði auðvitað að því að
ná honum öllum.
„Sekkir þessir hafa hingað til
allir verið innfluttir og teljum við
okkur geta framleitt sambærilega
poka á svipuðu verði og þá. Sekkim-
ir taka allt frá 500 og upp í 1.600
kg., en það er hægt að búa til poka
fyrir nánast hvað sem er.“ Við
saumaskapinn starfa nú sjö manns
og sagðist Þórður þurfa að ráða
þrjá til fjóra starfsmenn í viðbót,
en hjá slippstöðinni starfa flórir
fastráðnir menn. „Við höfum í lang-
an tima þurft viðbót við rekstur
slippstöðvarinnar til að halda
rekstrinum í sæmilegu horfí, en við
höfum lagt á það áherslu að leita
eftir þjónustu, sem ekki er fyrir
hendi hér á Húsavík. Við erum
nokkuð vissir um að fá að framleiða
sekki fyrir loðnubræðslumar,
Áburðarverksmiðjuna og saltpökk-
unarstöðvamar. Nýja loðnuverk-
smiðjan á Þórshöfn hefur t.d.
pantað poka fyrir tvær og hálfa
milljón króna þannig að verksmiðj-
an er andvirði eitt til tvö þúsund
poka í framleiðslu," sagði Þórður
að lokum.
Ricardo’s Jazzmen
Jazzhljómsveit leikur á Borginni
DANSKA hljómsveitin Ricardo’s jazzmen leikur
á Hótei Borg dagana 12. til 23. október n.k.
Hljómsveitin kom fyrst fram árið 1955 í Cap
Hom klúbbnum í Nyhavn. Á ámnum 1966 til 1972
léku þeir reglulega í veitingahúsinu Vingarden og
frá árinu 1972 til 1980 í klúbbnum De tre musketer-
er í Kaupmannahöfn.
Ricard’os Jazzmen hafa komið víða fram í Dan-
mörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Grænlandi og tekið
þátt í jazzhátíðum í Kaupmannahöfn, Roskilde og
Femö. Þeir hafa komið fram í útvarpi og sjónvarpi
og gefíð út hljómplötur. Þá hafa þeir náið samstarf
við söngvarann Bjame Liller, bæði á hljómplötum og
í sjónvarpi.
(Úr fréttatttkynningu)
Kvennalistinn:
Ráðstefna um atvinnumál kvenna
KVENNALISTINN gengst á laugardag fyrir ráðstefnu um atvinnu-
mál, með sérstöku tilliti til kvenna. Ráðstefnan verður haldin í húsi
Slysavarnarfélagsins, Hjallahrauni 9 i Hafnarfirði og stendur frá
kl. 10-16.
Markmið ráðstefnunnar er að
vekja athygli á hlutdeild kvenna í
hinum ýmsu atvinnugreinum og
efla frumkvæði þeirra og virkni við
mótun stefnu í atvinnumálum þjóð-
arinnar. Dagskrá ráðstefnunnar er
í aðalatriðum sú, að Kristín Hall-
dórsdóttir alþingismaður setur
ráðstefnuna , síðan hefur dr. Alda
Möller matvælafræðingur fram-
sögu um nýjar leiðir í fískvinnslu,
Unnur Steingrímsdóttir efnafræð-
ingur fjallar um líftækni, Úlla
Magnússon framkvæmdastjóri
varpar ljósi á það sem mætir konum
sem vilja stofna fyrirtæki og Hall-
grímur Jónasson forstöðumaður
nýiðnaðarrannsókna hjá Iðntækni-
stofnun íslands flallar um nýiðnað.
Þá ræðir Lovísa Christiansen innan-
húsarkitekt um ferðaþjónustu í
Hafnarfírði, Björk Thomsen kerfís-
fræðingur ræðir um konur og
hugbúnað og Guðrún Sæmunds-
dóttir skrifstofustjóri Qallar um
atvinnu- og launamál kvenna.
Færi gefst til fyrirspuma og
fijálsra umræðna milli framsöguer-
inda og þátttakendum gefst kostur
á léttri máltíð í hádeginu. Ráð-
stefnustjórar verða Ingibjörg
Guðmundsdóttir og Ragnhildur
Eggertsdóttir.
(Fréttatílkynnmg)
Ú
Þegcir efni er til veislu bjóðcist ótal
möguleikar. Atthcigascilurinn hentcir við
öil hugscin/cg tilefni. Sö/ustjóri
veitingacleildcir f símct 29900 veitir
upplýsingar, tekur puntcinir
og léttir ctf þér 'öllum áhyggjum,
hvort scm þcer vciröa þjónustuna,
mcitseðilinn, skemmtikrcifta eda ctnnan
undirbúning. r-—,
vert sem tilefnið er