Morgunblaðið - 16.10.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
Flugleiðir:
20 nýir
flugmenn
ráðnir
Yfirflugstjóri
Arnarflugs þar á medal
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið
að ráða 20 nýja flugmenn til
félagsins, þar af 18 í nýjar
flugmannsstöður en 2 í stað
flugmanna sem láta af störf-
um vegna aldurs á næsta ári.
Sjö af þessum mönnum hafa
starfað hjá Arnarflugi, þar
af tveir sem flugstjórar. í
þessum hópi er yfirflugsijóri
Arnarflugs.
102 flugmenn sóttu um flug-
mannsstörfín og voru þessir 20
vaidir eftir ströng próf. Fara þeir
nú á námskeið hjá Flugleiðum til
þjálfunar á ákveðnar flugvélateg-
undir og fá fastráðningu að
venjulegum reynslutíma loknum,
að sögn Sæmundar Guðvinssonar
fréttafulltrúa Flugleiða. Allir nýju
flugmennimir byija sem aðstoðar-
flugmenn, og meirihlutinn á
Fokkervélum í innanlandsflugi.
Amarflugsmennimir sem fengu
ráðningu hafa verið atvinnulausir
undanfamar vikur vegna upp-
sagna Amarflugs, nema flugstjór-
amir. Guðmundur Magnússon
yfírflugstjóri Amarflugs vildi í
gær ekki tjá sig um ástæður þess
að hann hættir nú hjá Amarflugi
og flyst yfír til Flugieiða.
Enn hækkar frystur fiskur
VERÐ á frystum fiski á Banda-
ríkjamarkaði hækkar á næstu
dögum, frá 5 sentum til 25 sent
eftir pakkningum.
Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
sagði ástæðu þessarar hækkunar
þá að mikill fískskortur væri á
markaðnum. Yrði hækkun þessi á
sama tíma og verð á kjöti hefði
ekki hækkað og verð á kjúkling-
um, sem helst keppa við fískinn,
færi lækkandi. Um nokkum tíma
hefði dótturfyrirtæki SH, Cold-
water Seafood, orðið að skammta
viðskiptavinum sínum físk. „Við
vonum þó að úr fískskortinum
rætist nú þegar framleiðendur sjá
hve hagkvæmar pakkningar á
þorski fyrir Ameríkumarkað eru“,
sagði Friðrik.
Morgunblaðið/Sverrir
I árekstrinum sem varð á Bústaðavegi i gærkveldi skemmdist önnur bifreiðin algjörlega, eins og sést giöggt á myndinni.
Harður árekstur á Bústaðabrú
HARÐUR árekstur varð við
endann á brúnni yfir Kringlu-
mýrarbraut um kl. 21:30 i
gærkveldi.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að ökumaður bifreiðar, sem
ekið var vestur Bústaðaveg, hugð-
ist beygja til vinstri niður á
afleggjara að Kringlumýrarbraut.
Var bifreiðinni ekið i veg fyrir
aðra á austurleið eftir veginum,
með þeim afleiðingum að sú skall
í hlið hennar. Ökumaður annarrar
bifreiðarinnar var fluttur á slysa-
deild, en ekki munu meiðsli hans
vera alvarleg. Önnur bifreiðin er
gjörónýt og hin mikið skemmd.
Jerry Lee
Lewis syngur
í Broadway
HINN heimskunni rokkari
Jerry Lee Lewis er væntanleg-
ur til íslands og mun leika og
synga i Broadway ásamt hljóm-
sveit sinni dagana 6.— 9.
nóvember.
Jerry Lee Lewis er einn af fímm
þekktustu rokkurum sögunnar,
en hinir Qórir eru Fats Domino,
Little Richard, Chuck Berry og
sjálfur kóngurinn, Elvis Prestley.
„Það er stórviðburður í íslenzku
skemmtanalífí að fá sjálfan prins-
inn í rokkinu hingað til lands,"
sagði Björgvin Halldórsson söngv-
ari í gær , en hann hefur alla
umsjón með komu erlendra
skemmtikrafta fyrir Broadway.
„Þetta er einn liðurinn í komu
stórstjama í Broadway á komandi
mánuðum og í beinu framhaldi
af komu Jerry Lee Lewis núna
og Fats Dominu s.l. vor verður
reynt að fá Little Richard og
Chuck Berry og eru viðræður við
þá þegar hafnar," sagði Björgvin.
Jerry Lee Lewis mun halda
fema tónleika og mun spila og
Rokksöngvarinn
Lewis.
Jerry Lee
syngja í klukkutíma til einn og
hálfan. „Ef stemningin verður
eins stórkostleg og á tónleikum
Fats Domino í vor verða þetta
eflaust langir og eftirminnilegir
tónleikar," sagði Björgvin. Lewis
kemur með eigin 5 manna rokk-
sveit frá Memphis í Tennesse.
Miðasala er þegar hafin í Bro-
adway.
Starfshópur um sjávarútvegsskóla:
Einn skóli komi í
stað þriggja áður
STARFSHÓPUR um sjávarút-
vegsskóla hefur nú skilað skýrslu
sinni og eru niðurstöður hópsins
m.a. þær að stofnaður verði sjáv-
arútvegsskóli í Reykjavík, er taki
við hlutverkum Stýrimannaskól-
ans, Vélskóla íslands og Fisk-
vinnsluskólans í Hafnarfirði.
Menntamálaráðherra og sjávarút-
vegsráðherra skipuðu í janúar sl.
fjögurra manna starfshóp til að
gera tillögur um stofnun sjávarút-
vegsskóla á framhaldsskólastigi.
Fulltrúar menntamálaráðuneytisins
vom skipaðir Helgi G. Þórðarson,
verkfræðingur sem er formaður
hópsins og Stefán Stefánsson, full-
trúi í menntamálaráðuneytinu.
Sjávarútvegsráðherra skipað: þá
Finn Ingólfsson, aðstoðarmann ráð-
herra og Gylfa Gaut Pétursson,
deildarstjóra. Starfsmaður hópsins
var ráðinn Láms Bjömsson.
Aðrar niðurstöður hópsins vom
þær að gildandi lögum um sjávarút-
Forsætisráðherra flytur
stefnuræðu sína í kvöld
STEINGRÍMUR Hermannsson,
forsætisráðherra, flytur stefnu-
ræðu ríkisstjórnar sinnar í
o
INNLENT
kvöld klukkan 20 og verður
ræðunni og umræðum um hana
sjónvarpað og útvarpað beint.
Forsætisráðherra hefur 30
mínútur til þess að flytja stefnu-
ræðuna og verða umræður um
hana í tveimur umferðum. í fyrri
umferðinni hefur hver stjómmála-
flokkur 20 mínútur, en í þeirri
síðari 10 mínútur. Röð flokkanna
í umræðunum verður sem hér seg-
in Framsóknarflokkur, Alþýðu-
bandalag, Sjálfstæðisflokkur,
Alþýðuflokkur og Kvennalisti.
Þessir verða talsmenn flok-
kanna í umræðunum: Af hálfu
Framsóknarflokks er ræðumaður,
auk forsætisráðherra, Haraldur
Ólafsson. Fyrir Alþýðubandalag:
Svavar Gestsson og Hjörleifur
Guttormsson. Fyrir Sjálfstæðis-
flokk: Þorsteinn Pálsson, Ólafur
G. Einarsson og Matthías Á. Mat-
hiesen. Fyrir Alþýðuflokk: Jón
Baldvin Hannibalsson, Jóhanna
Sigurðardóttir og Stefán Bened-
iktsson. Fyrir Kvennalista: Kristín
Halldórsdóttir og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir.
vegsfræðslu verði breytt og sett
rúm rammalöggjöf, er veiti svigrúm
fyrir breytilegt námsframboð í takt
við þróun atvinnulífsins og þarflr
einstakra greina sjávarútvegsins.
Sjávarútvegsskólinn verði sérstakur
sérskóli á framhaidsskólastigi og
heyri undir menntamálaráðuneytið,
en aðfaramám að skólanum og nám
á einstökum brautum geti einnig
farið fram við aðra framhaldsskóla
„Fiskmarkað-
ur hlýtur að
lækka verð“
„ÉG GET ekki séð að upp-
boðsmarkaður eins og sá, sem
fyrirhugað er að koma upp á
ísiandi til reynslu, breyti ein-
hveiju í útflutningi á ferskum
fiski. Hveijum sem er verður
heimilt að kaupa fiskinn og
sjái hann sér hag í því að
senda hann utan i gámi, getur
hann gert það. Ennfremur
munu skipin fylgjast með
mögulegu verði á markaðnum
heima og úti og haga fisksölu
í samræmi við það,“ sagði
Theodór Guðbergsson, starfs-
maður fisksölufyrirtækisins
Fylkis Ltd. i Grimsby, i sam-
tali við Morgunbiaðið.
Theodór sagði ennfremur, að
væri eitthvað að marka fréttir
um afkomu fyrstihúsa á íslandi
gæti hann ekki séð að þeim yrði
fært að kaupa flsk á fískmark-
aði á hærra verði, en nú væri
lögbundið. Hann sagði að um-
boðsfyrirtækin og fískkaupend-
ur í Englandi hefðu rætt þann
möguleika að koma sér upp
umboðsmönnum á íslandi.
landsins. Þá leggur hópurinn til að
stofnað verði fræðsluráð sjávarút-
vegsins, skipað fulltrúum hags-
munasamtaka, rannsóknastofnana
og ráðuneyta, sem verði stefnu-
markandi í fræðslumálum sjávarút-
vegsins. Skólinn skuli fá til umráða
húsnæði Stýrimannaskólans í
Reylqavík og Vélskóla íslands og
nýtt verknámshús Fiskvinnsluskól-
ans í Hafnarfírði. Loks leggur
hópurinn til að kannað verði sérs-
taklega hvort stefnt skuli að því
að skólinn starfi í þremur önnum,
haustönn, vetrarönn og sumarönn
og verði þannig rekinn allt árið um
kring. Hópurinn leggur til að skól-
inn skiptist í fímm deildir, vélstjórn-
ardeild, fískvinnsludeild, skipstjórn-
ardeild, fískeldisdeild og
endurmenntunardeild.
Hljómskála-
garður:
Ráðist
ákonu
RÁÐIST var á unga konu í
Hljómskálagarðinum aðfamótt
Iaugardagsins og gerði árásar-
maðurin tílraun til að nauðga
henni.
Konan var á gangi á Sóleyjar-
götu milli Skothúsvegar og Braga-
götu þegar maðurinn réðist á hana
og dró hana með sér inn í garðinn.
Konan kærði atburðinn, en hefur
ekki getað gefið góða lýsingu á
manninum. Rannsóknarlögreglan
vinnur að því að upplýsa mál þetta.