Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
Borgarráð:
Uppbygging dagvistarrýma
verkefni sveitarfélaga
Á FUNDI borgarráðs á mánu-
dag voru Iagðar fram þrjár
bókanir frá þeim Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins i ráðinu og
Siguijóni Péturssyni vegan til-
lagna ríkisstjórnarinnar um
hlutdeild ríkissins í stofnkostn-
aði dagvistarheimila.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
bókaði mótmæli gegn tillögu ríkis-
stjómarinnar um að skerða
hlutdeild ríkisins í stofnkostnaði
dagvistarheimila. Bókunin var
felld með fjórum atkvæðum gegn
einu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lögðu fram svo hljóðandi bókun,
sem samþykkt var samhljóða með
4 atkvæðum: „Borgarráð telur út
af fyrir sig eðlilegt að uppbygging
dagvistanýma sé alfarið verkefni
sveitarfélaga fremur en ríkisins.
En eðlilegar forsendur fyrir slíkri
breytingu eru: a. að sveitarfélög-
um sé bættur tekjumissir vegna
breyttrar skipunar, ef af verður.
b. að sveitarfélögin hafí algert
forræði um rekstur og skipan
innri málefna dagvistarstofnana."
Siguijón Pétursson, lét bóka
að hann væri í meginatriðum sam-
mála bókun Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur en taldi að vel kæmi
til greina að sveitarfélögin sjái
sjálf um uppbyggingu dagvistar-
rýma enda séu þeim tryggðir
telqustofnar til þess. Hann taldi
þó óhjákvæmilegt að til væru lög
sem tiyggðu að böm, hvarvetna
á landinu njóti þeirra uppeldis og
þroskamöguleika sem vel rekin
dagvistarheimili bjóða upp á.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lét
þá bóka að bókun meirihlutans,
sem samþykkt var fæli í sér
stefnumörkun borgarráðs í dag-
vistarmálum. Hún varaði við
seinni hluta hennar sem fæli í sér
að borgin þurfí ekki að hlýta nein-
um lögum og reglugerðum
varðandi dagvistarstofnanir.
Lykillinn að Stöð 2 er einnig lykillinn að
frábærum kjörum því kaupirðu myndlykil þá færðu
5% AUKAAFSLÁTT
af öllum sjónvarpstækjum.
Tvær stöðvar kalla á tvö sjónvarpstæki.
Við erum sveigjanlegir í samningum.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8. SÍMI 27500 — HAFNARSTRÆTI 3 SÍMI 20455
Albert Guðmundsson við islenska sýningarbásinn á sýningunni í Cannes.
Albert Guðmunds-
son á erlend-
um vettvangi
eftir Ingvar Nielsson
Brautryðjendur og hæfíleikamenn
eru undantekningalaust umdeildir.
Atgervi þeirra og ósérhlíftú bera góð-
an ávöxt og vekja öðrum öfund og
illkvittna gagmýni.
Síst hefur Albert Guðmundssyni
verið hlíft Hann hefur gengið heill
hildi frá, ætíð látið hagsmuni lands
og þjóðar sitja í fyrirrúmi, en eigin
málefiii mæta afgangi.
Albert er verðugur fulltrúi lands
síns á erlendum vettvangi. Virðuleg
og háttvís framkoma hans vekur at-
hygii og ekki verður honum skota-
skuld úr því að mæla á erlendum
tungum.
A nýafstaðinni fagsýningu, sem
haldin var samtímis alþjóðlegri ráð-
stefnu um orkumál í Cannes í
Suður-Frakldandi, gafst ágætt tæki-
færi til að fylgjast með sjálfsöiyggi
og steftiufestu Alberts Guðmunds-
sonar. Hann kvaddi sér hljóðs á
fundum og í fjöimiðlum með hnitmið-
uðum vísbendingum um ágæti
jarðhita fyrir orkubúskap heimsins.
Vakti þetta að sjálfsögðu feikna at-
hygli á hinum sérstæðu yfirburðum
okkar íslendinga í þessum eftium.
Ef dæma má árangurinn af þess-
ari markvissu kynningu Alberts á
landi og þjóð eftir þeirri aðsókn sem
var að sýningarbási íslands, þá var
hann verulegur. Fólk bókstaflega
flykktist til að sjá með eigin augum
hvað þetta litla, fjarlæga eyland hefði
upp á að bjóða.
Enginn fór erindisleysu, sýningin
var í alla staði vel úr garði gerð og
hafði Albert sjálfur verið með í ráðum
frá upphafi.
í byijun orkuráðstefnunnar voru
flestir sammála um að þeim mögu-
Ingvar Nielsson
leikum, sem jarðhiti biði upp á, væri
of lítill gaumur gefinn. Lokaályktun
fundarins taldi hinsvegar jaiðhita
einn snarasta þátt í lausn orkuvanda
heimsins.
Albert Guðmundsson lagði þama
drjúgan skerf af mörkum til að koma
íslandi og íslenzkri sérþekkkingu á
framfæri.
Að lokum:
Við eigum ekki marga hæfileika-
menn á borð við Albert Guðmunds-
son, sem ávallt eru reiðubúinn að
vinna að hagsæld og heill lands og
þjóðar.
Slíkum mönnum ber að sýna
fyllsta traust.
Kjósum Albert Guðmundsson.
Höfundurer verkfræðingur.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
* jíðum Moggans!