Morgunblaðið - 16.10.1986, Side 16

Morgunblaðið - 16.10.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 Borgarráð: Uppbygging dagvistarrýma verkefni sveitarfélaga Á FUNDI borgarráðs á mánu- dag voru Iagðar fram þrjár bókanir frá þeim Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fulltrúum Sjálfstæðisflokksins i ráðinu og Siguijóni Péturssyni vegan til- lagna ríkisstjórnarinnar um hlutdeild ríkissins í stofnkostn- aði dagvistarheimila. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir bókaði mótmæli gegn tillögu ríkis- stjómarinnar um að skerða hlutdeild ríkisins í stofnkostnaði dagvistarheimila. Bókunin var felld með fjórum atkvæðum gegn einu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svo hljóðandi bókun, sem samþykkt var samhljóða með 4 atkvæðum: „Borgarráð telur út af fyrir sig eðlilegt að uppbygging dagvistanýma sé alfarið verkefni sveitarfélaga fremur en ríkisins. En eðlilegar forsendur fyrir slíkri breytingu eru: a. að sveitarfélög- um sé bættur tekjumissir vegna breyttrar skipunar, ef af verður. b. að sveitarfélögin hafí algert forræði um rekstur og skipan innri málefna dagvistarstofnana." Siguijón Pétursson, lét bóka að hann væri í meginatriðum sam- mála bókun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur en taldi að vel kæmi til greina að sveitarfélögin sjái sjálf um uppbyggingu dagvistar- rýma enda séu þeim tryggðir telqustofnar til þess. Hann taldi þó óhjákvæmilegt að til væru lög sem tiyggðu að böm, hvarvetna á landinu njóti þeirra uppeldis og þroskamöguleika sem vel rekin dagvistarheimili bjóða upp á. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lét þá bóka að bókun meirihlutans, sem samþykkt var fæli í sér stefnumörkun borgarráðs í dag- vistarmálum. Hún varaði við seinni hluta hennar sem fæli í sér að borgin þurfí ekki að hlýta nein- um lögum og reglugerðum varðandi dagvistarstofnanir. Lykillinn að Stöð 2 er einnig lykillinn að frábærum kjörum því kaupirðu myndlykil þá færðu 5% AUKAAFSLÁTT af öllum sjónvarpstækjum. Tvær stöðvar kalla á tvö sjónvarpstæki. Við erum sveigjanlegir í samningum. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8. SÍMI 27500 — HAFNARSTRÆTI 3 SÍMI 20455 Albert Guðmundsson við islenska sýningarbásinn á sýningunni í Cannes. Albert Guðmunds- son á erlend- um vettvangi eftir Ingvar Nielsson Brautryðjendur og hæfíleikamenn eru undantekningalaust umdeildir. Atgervi þeirra og ósérhlíftú bera góð- an ávöxt og vekja öðrum öfund og illkvittna gagmýni. Síst hefur Albert Guðmundssyni verið hlíft Hann hefur gengið heill hildi frá, ætíð látið hagsmuni lands og þjóðar sitja í fyrirrúmi, en eigin málefiii mæta afgangi. Albert er verðugur fulltrúi lands síns á erlendum vettvangi. Virðuleg og háttvís framkoma hans vekur at- hygii og ekki verður honum skota- skuld úr því að mæla á erlendum tungum. A nýafstaðinni fagsýningu, sem haldin var samtímis alþjóðlegri ráð- stefnu um orkumál í Cannes í Suður-Frakldandi, gafst ágætt tæki- færi til að fylgjast með sjálfsöiyggi og steftiufestu Alberts Guðmunds- sonar. Hann kvaddi sér hljóðs á fundum og í fjöimiðlum með hnitmið- uðum vísbendingum um ágæti jarðhita fyrir orkubúskap heimsins. Vakti þetta að sjálfsögðu feikna at- hygli á hinum sérstæðu yfirburðum okkar íslendinga í þessum eftium. Ef dæma má árangurinn af þess- ari markvissu kynningu Alberts á landi og þjóð eftir þeirri aðsókn sem var að sýningarbási íslands, þá var hann verulegur. Fólk bókstaflega flykktist til að sjá með eigin augum hvað þetta litla, fjarlæga eyland hefði upp á að bjóða. Enginn fór erindisleysu, sýningin var í alla staði vel úr garði gerð og hafði Albert sjálfur verið með í ráðum frá upphafi. í byijun orkuráðstefnunnar voru flestir sammála um að þeim mögu- Ingvar Nielsson leikum, sem jarðhiti biði upp á, væri of lítill gaumur gefinn. Lokaályktun fundarins taldi hinsvegar jaiðhita einn snarasta þátt í lausn orkuvanda heimsins. Albert Guðmundsson lagði þama drjúgan skerf af mörkum til að koma íslandi og íslenzkri sérþekkkingu á framfæri. Að lokum: Við eigum ekki marga hæfileika- menn á borð við Albert Guðmunds- son, sem ávallt eru reiðubúinn að vinna að hagsæld og heill lands og þjóðar. Slíkum mönnum ber að sýna fyllsta traust. Kjósum Albert Guðmundsson. Höfundurer verkfræðingur. Þú svalar lestrarþörf dagsins * jíðum Moggans!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.