Morgunblaðið - 16.10.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
Áfengis-
hækkun
er fyrir-
hugnð
ÁFENGIS- og tóbaksverslun
ríkisins mun á næstunní hækka
verð á áfengi í verslunum sinum.
Höskuldur Jónsson segist ekki
geta sagt hve mikil hækkunin
verði né hvenær hún komi til
framkvæmda.
Um ástæður hækkunarinnar
sagði Höskuldur að gengisþróunin
hefði verið svo óhagstæð undan-
fama mánuði að ríkið yrði fyrir
miklum tekjumissi, miðað við það
sem ráð var fyrir gert í apríl þegar
áfengisverðið var síðast hækkað.
Meirihluti innkaupa ÁTVR er í
þýskum mörkum og frönskum
frönkum og er hækkun þessara
gjaldmiðla ástæðan fyrir tekjumissi
ríkisins. Sagði hann að ef áfengis-
verðið yrði ekki hækkað nú myndi
ríkið verða af tekjum sem samsvara
45 milljónum kr. á ári.
Fyllti
sig án
þess
aðkasta
MIKIL veiði hefur veríð á
loðnumiðunum að undanf-
ðrnu og hafa bátamir
verið að fá óvenju stór
köst. Hafa sumir bátarnir
jafnvel ekki þurft að hafa
fyrir því að kasta til að fá
fullfermi. Þannig lá nótin
í Erni KE óhreyfð í síðustu
veiðiferð, þrátt fyrir að
skipið héldi til lands með
fullfermi. Skipveijar á Al-
bert GK fengu nefnilega
1.200 tonna kast eða helm-
ingi meira en lestir skips-
ins rúma og nutu
félagamir á Erni góðs af
þvi.
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG:
YFIRLIT á hádegi f gær: Skammt vestur af Snæfellsnesi er 973
millibara lægð sem hreyfist norðaustur, og um 300 km norður af
Nýfundnalandi er vaxandi 985 miilibara djúp lægð sem hreyfist
allhratt norðaustur.
SPÁ: Framan af degi verður hæg sunnan- og suðvestanátt og
þurrt um allt land. Bjartviðri fyrir norðan og austan. Síðdegis þykkn-
ar upp með vaxandi suðaustanátt, hvasst og rigning suðvestan-
lands undir kvöld. Hlýnandi veður.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Áframhaldandi umhleypingar
með suðvestanátt ríkjandi en þó stutt í norðaustanátt út af Vest-
fjörðum. Vætusamt sunnan- og vestanlands en úrkomulítið á
norðaustur- og austurlandi. Frostlaust.
Heiðskírt
TÁKN:
G
•á Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
m m.
V T \
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veóur
Akureyri 5 alakýjað
Reykjavfk 3 haglól
Bergen 12 hilfskýjað
Helsinki 8 þokumóða
Jan Mayen 4 alakýjað
Kaupmannah. 14 þokumóða.
Narwareeuaq vantar
Nuuk -2 akýjað
Osló 11 þokumóða
Stokkhólmur 12 rignlng
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 22 akýjað
Amsterdam 18 þokumóða
Aþena 20 hálfakýjað
Barcekma 23 akýjað
Berlln 18 mlatur
Chicago 1 heiðskýrt
Glatgow 13 hátfskýjað
Feneyjar 20 þokumóða
Frankfurt 18 mistur
Hamborg 18 mlttur
Laa Palmas 24 hálfskýjað
London 18 akýjað
LosAngeles 16 akýjað
Lúxembotg 17 þokumóða
Madríd 18 akúr
Malaga 22 alslcýjað
Mallorca 26 akýjað
Mlami 28 Mttskýjað
Montreal 6 lóttskýjað
Nice 22 •kýiMI
NewYork 9 akýjað
Paria 19 hátfskýjað
Róm 24 þokumóða
VCn 16 Mttakýjað
WaaMngton 8 Mttakýjað
winmptg 2 alakýjað
Larry Speakes:
Raunveruleg*-
ur árangur náð-
ist í Reykjavík
Washington, frá fréttaritara Morgunblaðains, Agnesi Bragadittur.
í gær bárust viðbrögð Hvita hússins við ræðu Mikhails Gorbachev,
leiðtoga sovézka kommúnistaflokksins. Starfsmenn Hvíta hússins
lögðu áherzlu á það, að þeir fagna þvi, að Gorbachev hafi i ræðu
sinni lagt sömu áherzlu á það og talsmenn Hvita hússins, að veru-
lega hafi miðað i rétt átta á leiðtogafundinum í Reykjavík.
Larry Speakes blaðafulltrúi hélt
í gærmorgun fund með fréttamönn-
um Hvíta hússins. Hann sagði m.a.:
„Við teljum, að verulega hafi miðað
í samkomulagsátt á Islandi. Fund-
imir, sem hófust á nýjan leik í Genf
f dag, munu halda áfram þar, sem
við hættum á íslandi. Fundimir á
íslandi voru afar þýðingarmiklir og
táknrænt skref í áttina að framtí-
ðarsamkomulagi. Við munum
byggja á þeirri vinnu, sem unnin
var í Reykjavík."
Speakes sagði ennfremur „Okk-
ur er það ánægja, að Gorbachev
Sovétleiðtogi skyldi á blaðamanna-
fundinum í Reykjavík svo og, þegar
hann ávarpaði sovézku þjóðina,
segja það, að sú vinna, sem unnin
var í Reykjavík, hafí ekki verið
unnin til einskis. Vegurinn hafí ver-
ið ruddur fyrir samninga um frekari
afvopnun.
Þetta er einnig okkar skoðun.
Við trúum því, að við getum haldið
áfram frá þessu augnabliki á samn-
ingabrautinni.
Við teljum, að þetta hafí ekki
verið skref aftur á bak og að það
hafí náðst raunverulegur árangur á
þessum fimdi. Við munum halda
áfram samningaviðræðum, sem
byggja á þeirri þróun og þeim
árangri, sem náðist í Reykjavík."
Ljóst er að Reagan er í tölu-
verðri sókn eftir ræðu sína á
mánudagskvöld, hvað almennings-
álitið í Bandaríkjunum varðar. Nú
sýna nýjustu skoðanakannanir, að
hann hefur stuðning 70% þjóðarinn-
ar, hvað varðar geimvamaáætlun-
ina.
Geimvarna-
áætlunin gerð
að flokksmáli
Washington, frá Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunbiaðsins.
ÞAÐ er Ijóst, að miklar annir verða hjá Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta næstu 3 vikur, þvi að hann hefur nú hafið að kappi
þátttöku í baráttunni fyrir þingkosningar þær, sem verða hinn
4. nóvember nk.
Blaðamaður Morgunblaðsins
fylgdi honum til Baltimore í gær
og hlýddi á hann flytja stuðnings-
ræðu við frambjóðandann Lindu
Ghaved, en hún stefnir að því að
ná kjöri sem öldungardeildarþing-
maður í komandi kosningum.
Reagan fór þar hörðum orðum
um andstæðing Lindu, sem er
frambjóðandi demókrata og einnig
kona, en hún heitir Barbara Ma-
kulski. Hann ásakaði demókrata
og þá einkum Makulski fyrir að
vera óábyrga í Qármálum, jafn-
framt því sem hún iéti sig vamir
landsins engu skipta.
Það sem vakti einna mesta at-
hygli fréttamanna í ræðu Reag-
ans, var, að hann gerði
geimvamaáætlun sína að flokk-
spólitísku máli. Hann sagði, að
Linda Ghaved styddi geimvamaá-
ætlun sína, en að Barbara
Makulski væri henni andvíg og
sömu sögu væri að segja um fjöl-
marga aðra demókrata.
Reagan hefur hingað til reynt
að höfða til allrar þjóðarinnar og
sagt, að þjóðin öll yrði að standa
að baki honum í þessu mikilvæga
máli. Hefur hann jafnan hamrað
á því, að geimvamaáætlunin væri
yfír flokkspólitískan ágreining
hafín.