Morgunblaðið - 16.10.1986, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
Leikfélag Reykjavíkur:
„Rétti tíminn til
að skipta um starf “
- segir Stefán Baldursson leikhússtjóri
STEFÁN Baldursson leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur
Morgunblaðið/Þorkell
Ólafur Halldórsson, handritafrœðingnr, sýndi Shultz handritin f Árnastofnun sl. sunnudagskvöld
og sagði Ólafur að áhugi hans hefði greinilega verið mikill enda hefði þetta verið þriðja tilraun
hans til að sjá þau
Shultz í Árnastofnun
GEORGE Schultz, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, lét
það verða sitt sfðasta verk áður
en hann hélt úr landi sl. sunnu-
dagskvöld eftir stffa fundi
þeirra Reagans og Gorbachevs
að skoða Árnastofnun.
Ólafúr Halldórsson, handrita-
fræðingur, sagðist hafa sýnt
Shultz bæði Flateyjarbók og
Eddukvæði ásamt öðrum merkum
handritum okkar íslendinga. Ólaf-
ur sagði að þetta hefði verið þriðja
tilraun Shultz til að fá að sjá
handritin okkar. Fyrst hefði hann
ætlað að koma þegar hann var
hér á ferð fyrir nokkrum mánuð-
um en hafði þá ekki tíma, síðan
var Shultz búinn að ákveða að
heimsækja Ámastofnun sl. fostu-
dag, en Reagan hefði þá neitað
honum um fríið, en Shultz kom
við í stofnuninni um kl. 21.00 á
sunnudagskvöld rétt áður en hann
hélt af landi brott, en þá hafði
hann nýlokið við að svara spum-
ingum blaðamanna.
Fimmtíu og fimm milljónir
í Kvikmyndasjóð:
„Menmngarsögu-
legur viðburður“
-segir Guðbrandur Gíslason
framkvæmdastjóri sjóðsins
Á FJÁRLÖGUM er 55 milljónum króna úthlutað til Kvik-
myndasjóðs, upphæðin er töluvert hærri en í fyrra, en þá
fékk sjóðurinn 16 milljónir til úthlutunar. Guðbrandur Gísla-
son framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs segir þetta menning-
arsöguiegan viðburð og beri vott um að stjórnvöld geri sér
grein fyrir mikilvægi íslenskrar kvikmyndagerðar.
„Við fengum úthlutað 16 millj-
ónum í fyrra“ sagði Guðbrandur,
„en fyrir harðfylgi Sverris Her-
mannssonar fengum við 10 millj-
ónir til viðbótar á þessu ári. Á
fjárlögum á næsta ári er 55 millj-
ónum króna veitt til kvikmynda-
gerðar og eru þetta menningar-
söguleg tíðindi fyrir okkur
íslendinga. Nú kemur það í ljós
að stjómvöld gera sér grein fyrir
því að íslensk kvikmyndagerð má
ekki fara halloka þegar yfir okkur
er að hellast meira magn af er-
lendu myndefni en nokkru sinni
fyrr, frá nýjum sjnvarpsstöðvum,
í gegnum gerfíhnetti og á mynd-
bandamarkaðinum.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra og Þorsteinn Páls-
son fjármálaráðherra beittu sér
fyrir því að þessi hækkun varð á
fjárveitingunni og eiga allan heið-
ur skilið fyrir það. Þetta eru
tímamót fyrir íslenska kvikmynda-
gerð, hingað til hefur hún verið í
fjársvelti, menn hafa framleitt
kvikmyndir og farið á hausinn.
Það hefur mikið menningargildi
fyrir okkur íslendinga að geta
framleitt kvikmyndir sjálfír sem
endurspegla íslenska reynslu,
íslenskan hugarheim, land og þjóð
og skapa þannig mótvægi við er-
lent myndefni.
Sumir neftia þessa ákvörðun
Hólaprent hið nýja, þegar Guð-
brandur nafni minn Þorláksson
kom með Hólaprentsmiðjuna til
landsins og prentaði biblíuna,
hafði það geysilega víðtæk áhrif,
varð til þess að halda íslenskri
tungu við og þar með íslenskri
menningu. Þessi ákvörðun stjóm-
valda núna stefnir í sömu átt.
Guðbrandur Gíslason
Þetta er ekki aðeins fagnaðarefni
fyrir kvikmyndagerðarmenn í
landinu, heldur alla þá sem unna
íslenskri menningu. Við eigum
mikið af hæfu fólki hér á landi sem
kann kvikmyndagerð og hefur
aldrei fengið tækifæri til að leggja
sitt af mörkum í þessari listsköp-
um, en nú býðst þessu fólki betra
tækifæri en nokkru sinni fyrr. Við
munum leggja enn meiri áherslu
á það en áður að styrkja menn
vel til að þeir geti leyst þessi verk-
efni af hendi, í stað þess að ýta
mönnum á flot og láta þá síðan
sigla í kaf.“
Umsóknarfrestur í kvikmynd-
asjjóð rennur út 1. desember og
þá tekur úthlutunamefndin til
starfa.
Kostnaður ríkisins
640 milljónir króna
ÍIRSKURÐUR kjaradóms nm
kjör starfsmanna innan BHMR
og gerð sérkjarasamninga hækk-
ar útgjöld ríkissjóðs um 640
miHjónir króna á þessu ári, tun-
fram það sem gert var ráð fyrir
í endurskoðuðum fjálögum frá
þvi í mars í vor. Þetta kemur
fram í frumvarpi til fjárlaga fyr-
ir árið 1987, sem lagt var fram
á mánudaginn var.
Alls eru útgjöld talin hækka um
2.350 milljónir króna frá því sem
var í frumvarpinu endurskoðuðu og
auk þessara 640 milljóna króna,
hækkuðu tryggingabætur um 500
milljónir króna vegna kjarasamn-
inganna frá því í febrúar í vetur.
Samkvæmt íjárlagafrumvarpi
næsta árs er gert ráð fyrir að ríkis-
sjóður selji skuldabréf að upphæð
500 milljónir króna. Sigurgeir Jóns-
son, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, sagði að vextir á
skuldabréfunum yrðu ekki ákveðnir
fyrr en þau yrðu boðin til söiu á
næsta ári og markaðsaðstæður þá
myndu ráða vaxtakjörunum. Sigur-
geir sagði að einnig væri gert ráð
fyrir að ríkissjóður seldi víxla á
næsta ári að upphæð 100-200 millj-
ónir, en tilraun með slíka sölu var
einnig gerð á árinu 1984. Sigurgeir
sagði að ennþá væri ekki ákveðið
með hvaða hætti yrði staðið að sölu
þessara vixla.
Hjálparsveitarmenn fyrir framan Höfða að loknum stðrfum við öryggisgæslu vegna Ieiðtogafundarins.
Myndin var tekin þegar Kristján Gislason framkvæmdastjóri Radiómiðlunar hf. afhenti Tryggva Páli
Friðrikssyni formanni Landssambandi hjálparsveita skáta farsima að gjöf.
mun láta af störfum 1. september á næsta ári, þrátt fyrir
áskorun samstarfsmanna um að gera það ekki. Umsóknar-
frestur rann út 1. október sl. og sóttu þrír um starfið.
Hjálparsveitimar fá farsíma að gjöf
LANDSSAMBAND hjálparsveita
skáta færði aðildarsveitum
sinum farsíma að gjöf siðastlið-
inn sunnudag i tilefni af 15 ára
starfsafmæli Landssambandsins
og góðrar rekstrarafkomu á ár-
inu.
Margar af hjálparsveitunum tóku
þátt í öryggisgæslu vegna leið-
togafundarins um helgina og var
tækifærið notað er henni lauk á
sunnudagskvöld og farsímamir af-
hentir við formlega athöfti fyrir
framan Höfða. Farsímamir eru af
tegundinni Dancall frá fyrirtækinu
Radíómiðlun hf. í frétt frá LHS
segir að Kristján Gíslason fram-
kvæmdastjóri Radíómiðlunar hafi
við þetta tækifæri afhent samband-
inu einn farsíma að gjöf. í frétt LHS
segir að aðildarsveitimar 21 séu
nú betur í stakk búnar en áður til
að takast á hendur margþætt björg-
unar- og þjónustustörf.
„Ég er búin að vera í þessu
starfí í sjö ár og mér fínnst þetta
vera rétti tíminn til að hætta,"
sagði Stefán. „Ég tel óæskilegt
að listamenn festist of lengi í
stjómunarstörfum. Mér hefur liðið
vel hér og fékk reyndar áskorun
frá meirihluta starfsmanna um að
gefa kost á mér áfram. Staldraði
þá aðeins við þegar ég fékk hana
í hendumar en þetta varð samt
niðurstaðan."
Þeir sem sóttu um starf leik-
hússtjóra era, Ámi Ibsen, Hallmar
Sigurðsson og Þórhildur Þorleifs-
dóttir. Stjóm Leikfélags
Reylgavíkur mun taka ákvörðun
um hver verður ráðinn í lok þessa
mánaðar og verður sú tillaga bor-
in upp á félagsfundi til samþykkt-
ar.