Morgunblaðið - 16.10.1986, Síða 37

Morgunblaðið - 16.10.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 37 AKUREYRI Verð á nýjum vetrarhjól- börðum nokk- uð mismunandi MIKIL hálka var i gær á vegum á Öxnadalsheiði og í Ólafsfjarð- armúla. Lágheiðin er fær en þar var einnig mikil hálka. Þá var hálka í Víkurskarðinu i gær- morgun. í framhaldi af fréttum af hálku á vegum má líta til gamans á verð- könnum sem Neytendafélag Akureyar hefur gert í samvinnu við Akureyrartíðindi og birt var í blað- inu í gær. Þar er kannað verð á vetrarhjólbörðum á nokkrum stöð- um á Akureyri - en skýrt skal tekið fram að um mismunandi gerðir hjól- bjarða er að ræða þannig að varla er rökrétt að gera beinan saman- burð. Mesti verðmunur var á 13 tommu hjólbörðum. Ódýrustu hjólbarðam- ir, sem eru kanadískir, fást hjá Smurstöð Shell og Olís og kosta 2.690 krónur stykkið. Hjá Hjól- barðaþjónustu KEA kosta Michelin hjólbarðar af sömu stærð hins veg- ar 4.658 krónur stykkið. Munurinn 1.968 krónur - og því 7.872 krónur ef keypt eru flórir nýir hjóibarðar. Þá má geta þess að 15 tommu hjólbarðar (Barum Polar) kosta 4.508 krónur hjá Höldi sf. en 3.210 hjá Tómasi Eyþórssyni, hjólbarða- þjónustu. Á öðrum stærðum virðist verð vera svipað á öllum stöðum, einnig er verð á slöngum svipað og um- felgun kostar alls staðar það sama - 1.276 krónur ef viðskiptavinurinn tekur sjálfur undan en 1.576 ef verkstæðið tekur hjólbarðana und- an bílnum. Mimiing- arsjóður um Sölva Sölvason STOFNAÐUR hefur ve- ríð minningarsjóður um Sölva Sölvason, sjómann, af skipsfélögum hans. Markmið sjóðsins er að reisa minnisvarða um drukknaða og týnda. Á sjómannadögum verður þeirra síðan minnst og lagður blómsveigur að minnisvarðanum. Sjóðurinn hefur opnað gíróreikning. Þeir sem vilja styrkja þetta málefni geta lagt inn á gíróreikning númer 57400-7, pósthólf 503, 602 Akureyri, með eða án nafns síns, ftjáls framlög. Gírós- eðlar fást í öllum pósthúsum, bönkum og sparisjóðum. Einnig er hægt að greiða til sjóðsins gegn sérstökum kvittunum og er þá haft sam- band við Ingimund Bem- harðsson, Reykjasíðu 14 Akureyri, sími 25572 og vinnusími 25033 og gefur hann allar nánari upplýsing- ar. Mikill hugur er ríkjandi um að hægt verði að afhjúpa minnisvarða þennan á sjó- mannadaginn 1987. Fréttatilkynning. liorgunbUAið/Slupti Hallgrimnon. Krakkamir kunnu vel að meta söng og leik vísnasöngkonunnar. Therese Juel söng í barnaskólimum SÆNSKA visnasöngkonan Therese Juel hélt tónleika á Akureyri I gærkvöldi ásamt blásarasextettinum Luijamt- arna. í gær og fyrradag heimsótti hún skóla bæjarins og lék og söng fyrir krakkana. Á þriðjudaginn heimsóttu sjö- menningamir Glerárskóla og Síðuskóla og f gærmorgun fóru þau svo í Lundarskóla, Oddeyrar- skóla og Bamaskóla Akureyrar en þar voru meðfylgjandi myndir teknir. Ekki var annað að sjá en sænska söngkonan næði vel til krakkanna - söng m.a.s. eitt lag á íslensku - og var klappað lof í lófa eftir þau lög sem blaðamaður heyrði. Theresea Juel syngur I einum bamaskólanna. Markmiðið að viðhalda gömlum vinnuaðferðum Þórey Halldórsdótdr leiðbeinir á vefnámskeiði. Hotgunbiaðíð/Guðmundur -spjallað við Þóreyu Eyþórsdóttur for- mann Nytjalistar FÉLAGIÐ Nytjalist var stofnað á Akureyri í ársbyijun 1985. Þetta er áhugamannafélag sem hefur það meðai annars að mark- miði að vekja Fiuga á nýsköpun nytjahluta „og viðhalda gömlum vinnuaðferðum," eins og Þórey Eyþórsdóttir, formaður félags- ins, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Upphafið að stofnun félagsins má segja að hafi verið að Þórey fluttist heim frá útlöndum! Nánar um það frá henni sjálfri: “Þegar ég kom sá ég að mjög lítið úrval var af vönduðum heimilisiðnaðar- vörum á boðstólnum. Ég ætlaði að kaupa gjafir handa vinum mínum erlendis en fann að úrvalið var lítið. Ég vissi að mikið af fólki vann við þessa hluti og velti því fyrir mér hvar það væri og hvað það væri að gera. Það má segja að þetta hafi verið kveikjan að félaginu." Þórey segist hafa verið mjög bjartsýn þegar hún fór af stað. “Ég vildi komast yfir Nýja Bíó og stofna þar verkstæði - og vera með söluna frammi í anddyri. Þama hefði getað orðið listmiðstöð í hjarta bæjarins og hefði orðið mjög skemmtilegt mál. Ég fékk fullt af fólki með mér í þetta og það var mjög spennt fyr- ir hugmyndinni með Nýja Bfó. En það varð ekkert úr þessu. Við héld- um að bærinn myndi styðja við okkur en við höfum ekki fengið fyrirgreiðslu frá bænum," segir Þórey. Starfsemi félagsins fer nú fram í gamla útvarpshúsinu við Norður- götu - “Reykhúsinu" svokallaða. Ekki er vitað hve lengi félagið fær þar inni en ríkið á húsið. Félagið er með námskeið f njdja— list, “þar sem við erum að gera hluti með ákveðnar listrænar kröfur í huga ásamt því að þeir hafí ákveð- ið notagildi," segir formaðurinn. í vikunni lauk námskeiði í vefnaði, tuskubrúðugerð og fijálsum út- saumi og annað slfkt námskeið er að fara af stað fljótlega á ný. Þá hefur félagið staðið fyri tveimur sölusýningum - sú fyrri var í fyrrasumar og sú sfðari í vor og fyrir síðustu jól var félagið með gallerí í Hafnarstræti 85. Að sögn Þóreyjar gengu sölusýningamar mjög vel og hefur gróska verið í starfi félagsins. “Á sfðari sölusýn- inguna komu til dæmis tæplega 400 manns og hlutir seldust vel - en sýningin stóð aðeins eina helgi.“ Þórey sagði Nytjalist ætla að vera með fræðslufundi fyrsta mið- vikudag í hveijum mánuði í vetur og þá verður alltaf opið hús á fimmtudögum “svo framarlega sem við fáum húsið,“ eins og Þórey sagði. Félagar í Nytjalist eru um 90 - á öllu Norðurlandi; Húnavatnssýslu og Þingeyjareýslu auk EyjaQarðar. Aðalfundur félagsins er á laugar- daginn kemur í gamla útvarps- húsinu við Norðurgötu og hvatti Þórey alia til að mæta á fundinn sem hefst kl. 14.00. “Þetta er áhugamannafélag fyret og fremst og ég hvet nýja félaga endilega til að koma. Það eru allir velkomnir," sagði Þórey. Lokahóf KRA LOKAHÓF Knattspymuráðs Ak- ureyrar, KRA, verður haldið i félagsmiðstöðinni Dynheimum á laugardaginn og hefst kl. 15.00. Þar verða veitt verðlaun fyrir sigur í Akureyrarmóti allra flokka og boðið upp á veitingar. Þá verða og sýndar knattspymumyndir af mynbandi. Á lokahófinu verður heiðraður markahæsti leikmaður sumareins f mótum KRA og hápunktur samko- munnar verður - eins og verið hefur undangengin 11 ár - að lýst verður kjöri Knattspymumanns Akureyrar fyrir nýliðið leiktímabil verður lýst. Það eru eflaust margir kallaðir að þessu sinni, eins og alltaf, en aðeins einn útvalinn. Það eru fulltrúar fé- laganna í KRA sem velja Knatt- spymumann ársins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.