Morgunblaðið - 16.10.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
53
Mónakóprinsessa
Söngurinn er hennar
líf og yndi
Eftir að hafa gert það gott sem fyrirsæta, fatahönn-
uður og söngkona liggur beinast við að Stefanía
Mónakóprinsessa feti í fótspor móður sinnar og leggi
fyrir sig kvikmyndaleik. Hún hefur nú þegar stigið
fyrsta skrefið í þá átt með því að koma fram á mynd-
böndum þar sem hún syngur lög af plötunni sinni sem
hún gaf út í vor. Stefanía hefur komið lögum sínum
ofarlega á vinsældalista í Evrópu og varð eitt þeirra
mjög vinsælt í Frakklandi í sumar.
Stefanía segir sönginn vera sitt Iff og yndi. „Ég
hef kynnst þeirri dásamlegu tilfinningu sem fylgir þvi
að skapa eitthvað sjálf og get ekki lengur hugsað
mér að sóa tíma mínum í tilgangslausar skemmtanir"
segir hún.
I fyrstu höfðu fáir trú á henni og faðir hennar áleit
þetta söngbrölt bara vera eitt af uppátækjum vand-
ræðaunglingsins Stefaníu. En þegar í ljós kom að
henni var full alvara og fólki líkaði söngur hennar
og keypti piötuna, ekki bara vegna þess að hún var
prinsessa, þá breyttist álit furstans. Nú vinnur Stef-
anía að gerð nýrrar breiðskífu og hún er staðráðin í
þvf að gera sitt besta.
Stefanía er ekki við eina fjölina felld á framabraut-
inni þvf innan skamms mun hún senda frá sér nýja
baðfatalínu. „Margir eru afbrýðisamir vegna vel-
gengni minnar" segir prinsessan, „ en það truflar
mig ekki. Miklu fremur hvetur það mig til að gera
betur og sýna fólki fram á að ég hafi hæfíleika en
sé ekki bara dóttir foreldra minna".
COSPER
(C)PIB
Nei, þau eru bara í kapphlaupi.
Vildu ekki
poppkorn
en Kercheval, sá sem leikur Cliff
Bames í Dallas-þáttunum,
reyndi ekki alls fyrir löngu að semja
við Harrods-verslanimar í London.
Kercheval á nefnilega heljarmikla
maísakra í Bandaríkjunum þar sem
hann ræktar og framleiðir meira en
átta þúsund tonn af poppmaís á ári.
Máísinn er seldur undir nafni hans
og var Ken sannfærður um að þeir
hjá Harrods vildu ólmir selja vöm
með hans nafni. En kaupmennimir
hjá Harrods höfnuðu tilboðinu og
gáfu að sögn Kens þá skýringu að
Bretum þætti poppkom vont.
Ken Kercneval
] NÁMSKEIÐ
A
] MS. DOS
STÝRIKERFI
' EINKATÖLVA
Innan þeirra fyrirtækja er nota einkatölvur er nauðsyn
að hafa starfsmenn með þekkingu á innviðum og
búnaði tölvukerfisins. Tilgangur MS. DOS-
námskeiðanna er að gera starfsmenn sem hafa
umsjón með einkatölvum sjálfstæða í meðferð
búnaðarins. Þátttakendum er veitt innsýn í
uppbyggingu stýrikerfa og hvernig þau starfa. Farið
eryfirallarskipanirstýrikerfisin og hjálparforrit þess.
Kennd verður tenging jaðartækja við stýrikerfi og vél
og rætt um öryggisatriði og daglegan rekstur.
Tími og staður:
28,—31. október, kl. 13.30—17.30
Ánanaustum 15
Leiöbeinandi:
Björn Guömundsson,
kerfisfræöingur.
IBM System/36
DISPLAYWRITE/36
Displaywrite ritvinnslukerfið er hannað með
Displaywriter ritvinnslutölvuna sem fyrirmynd. Þetta
kerfi, sem verður notað jafnt á IBM-4300 tölvur,
IBM System/36 tölvur og IBM-PC tölvur,
er nú tilbúið á S/36.
Markmið:
Tilgangur þessa námskeiðs er tvíþættur. Annars
vegar að þjálfa þátttakendur í notkun Displaywrite/36
og hins vegar að kenna uppsétningu skjala
og bréfa með sérstöku tilliti til þeirra möguleika
sem DW/36 býður upp á.
Efni:
Valmyndir S/36 • Skipanir kerfisins • Æfingar •
íslenskir staðlar • Prentun • Útsending dreifibréfa
með tengslum við Query/36 • Tengsl við önnur kerfi.
Þátttakendur:
Námskeiðið er ætlað öllum notendum IBM tölva
sem áhuga hafa á að kynnast þessu nýja kerfi og
möguleikum sem það býður upp á.
Timi og staður:
27.—30. október, kl. 13.30-
Ánanaustum 15
■17.30
Leiöbeinandi:
fíagna Sigurðardóttir
Guöjohnsen. Hún hetur
nýlokið leiðbeinenda-
námskeiði á vegum IBM
I Bretlandi.
A
Scjórnunarfélag
íslands
Ananausium ' 5 Sim> 82106«