Morgunblaðið - 16.10.1986, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 16.10.1986, Qupperneq 60
MORGUNBLAJDIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 Þurfum að halda alþjóðlegt skíðamót sem fýrst á íslandi - segir Hafsteinn Sigurðsson, landsliðsþjálfari í alpagreinum SKÍÐAÍÞRÓTTIN er nœst fjöl- mennasta íþróttin, sem iðkuö er innan íþróttahreyfingarinnar á íslandi. Samkvæmt skýrslum eru um 12.000 fólagsbundnir eln- staklingar sem stunda skfða- íþróttina, auk þúsund annarra sem fara á skíði nokkuð reglu- lega. Nú þegar tfmi vetraríþrótta er að renna upp er tilhlíðilegt að ræða stuttlega við landsliðsþjálf- arann f alpagreinum, Hafstein Sigurðsson, frá ísafirði. Haf- steinn hefur nú starfað sem landsliðsþjálfari hjá SKÍ f 4 ár. Hann er sjálfur gamalreyndur skfðakappi en hefur nú alfarið snúið sér að þjálfun og hefur sótt mörg námskeið erlendis að þvf tilefni. Verða að stunda heils- ársþjálfun til að ná árangri Hafsteinn varfyrst spurður hvað þyrfti til að fslenskir skíðamenn næðu góðum árangri á alþjóða- mælikvarða. „Til að ná árangri verða kepp- endur að stunda heilsársþjálfun. Það er ekki nóg að æfa og keppa bara yfir veturinn. Við höfum ágæt- -*iis aðstöðu hér heima, getum stundað alhliða líkamsþjálfun hér á sumrin. Við höfum Kerlingafjöll og fleiri sumarskíðastaði og getum æft sumarskíðun og tækni eins og aðrir. Með því að lengja þetta tíma- bil getum við flýtt fyrir árangri erlendis. Einnig er mjög mikilvægt aö samræma grunnaþjálfunina út um allt land. En það er Ijóst að þeir bestu þurfa að dvelja nokkuð mikið erlendis við æfingar og keppni, meðan veðrið og myrkrið, hamlar skíðaiðkun hér heima, " sagði Hafsteinn. ' Daníel hefur sýnt miklar framfarir „Þetta er fjórða árið sem keyrt er svona heilsárs áætlun með Daníel Hilmarsson, en hann er eini A-landsliðsmaðurinn sem eftir er af þeim sem byrjuðu og hefur hann sýnt miklar framfarir á þessum tíma. Þegar hann byrjaði var hann t.d. með 90 fis-punkta í svigi en er nú með 57. Stúlkurnar eru að byrja sitt annað tímabil með sömu heilsársáætlun og eiga lengra í land. En þetta virðist vera á góðri leið." Hafsteinn er nú staddur f Hint- ertux í Austurríki þar sem hann er með A-liðin og endurnýjunar- liðin f æfingabúðum og verður þar í um mánaðartíma. Nú má ætla að þessi ferðalög kosti landsliðsmenn mikla peninga. Hvernig fjármagna þeir þessar ferðir eríendis til æfinga og keppni? Þetta kostar mikla peninga „Þetta kostar allt mikla peninga, *en þau vinna á sumrin og svo styðja bæjarfélögin myndarlega við bakið á sumum eins og Daníel, sem hefur fengið mikinn stuðning frá Dalvik, og gerir það honum kleyft að stunda þetta af kappi. Skíðasamband íslands borgar þriðjung af kostnaði hvers kepp- anda, skíðaráðin á viðkomandi stöðum greiða annað eins og þriöja hlutann verður skíðamaður- inn að borga sjálfur. SKÍ sér svo alfarið um kostnað vegna þjálfara og annað sem tilheyrir því." Skíðamenntaskólinn er lífsvonin Skíðabraut við Menntaskólann á ísafirði er nú starfrækt annað árið í röð og eru bundnar miklar vonír við þennan möguleika keppnisfólks. Nemendur sem vilja stunda nám samhliða skíða- iðkun fá þarna upplagt tækifæri á að samræma skíðin og námið. Lengi hefur það veríð mikill höf- uðverkur unglinga og foreldra þeirra, að þjálfun og keppnis- ferðalög hafa stangast á við skólann, með þeim afleiðingum að uppgjör á milli fþróttarinnar annars vegar og skólans hins vegar hefur verið óumflýjanlegt. Með skíðabraut MÍ ætti slíkt að vera úr sögunni. -Hvaða þýðingu hefur skiða- brautin við MÍ fyrir framgang skfðafólsins að þínu mati? „Ég mundi segja að þessi nýja skíðabraut væri lífsvonin í þessari langtíma skíðaþjálfun. Þessi skfða- braut var öll endurskipulögð núna í vor, miðað við reynslu síðasta árs, og vonandi að takist betur til núna. það tekur tíma að þróa þetta. Nemendur sem stunda nám á þessari braut fá sérstaka að- stöðu. Þau eru ekki í þessari föstu íþróttakennslu í skólanum, heldur fá sérþjálfun. Þarna er hópur sem er líkur að getu, sem æfir saman, og ætti það að vera kostur miðað við að æfa hver í sínu héraði." Þurfum að halda al- þjóðamót á íslandi Áhugi almennings virðist ekki vera eins mikill fyrír keppnisí- þróttinni eins og áður. Hvað er hægt að gera til að auka áhuga almennings á skíðamótum? „Það þarf að halda alþjóðlegt- skíðamót hér á íslandi. Við þurfum fyrst að vinna okkur sess, láta vita af okkur, og fá keppendur til að koma hingað. Ef keppendur koma hingað upp þá verða að vera nokk- ur mót í röð fyrir þá. Við fáum ekki keppendur hingað til að taka þátt í einu móti. Svo er líka mikill kostnaður við svona mótahald." Hafsteinn hefur lagt fram iangtíma áætlun fyrir alla lands- liðsmennina og hefur hann alfariö unnið það sjálfur og er mjög í sam- ræmi við það sem aðrar skíðaþjóð- ir eru að gera. Þetta fyrirkomulag hefur skilað árangri og á eftir að gera það enn frekar í framtíðinni. Hafsteinn sagði að það væri liðin tíð að senda keppendur á heims- meistaramót og á Olympíuleika án þess að hafa nokkuð þangað að gera. „Ef við ætlum að ná árangri eins og aðrir verðum við að æfa eins mikið og þeir. Það er mikil vinna sem liggur í þessu og verða kepp- endur að gefa sig alfarið í þetta ef árangur á að nást, “ sagði Haf- steinn Sigurðsson. Hafsteinn Sigurðsson hefur nú verið landsliðsþjálfari í alpagreinum f 4 ár: „Skíðamenntaskólinn er Iffsvonin f þjálfun afreksfólksins". Ýmsilegt getur komlð fyrir á skfðamótum. Á þessari verðlaunaljósmynd Franco Vlllani, sem tekln var á heimsbikarmóti f fyrra, hefur skíðamað- urlnn mlsst hárbandið fyrir augun og er að reyna að ná þvf af sór f miðri braut.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.