Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
263. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vopnasendingarnar til írans:
Reagan á enn í
vök að veriast
Þingmenn vilja fá betri upplýsingar
AP/Símamynd
Mikið fjölmenni fylgdi verkalýðsleiðtoganum Rolando Olalia til grafar og voru höfð uppi köll um bylt-
ingfu og stuðning við kommúniska skæruliða. Útförin fór þó friðsamlega fram en hermenn gráir fyrir
járnum voru við öllu búnir.
Filippseyjar:
Skæruliðarnir hætta
samninffaviðræðum
Uanilo A P Rnidor
Manila, AP, Reuter.
UM 100.000 manns fylgdu í gær
til grafar verkalýðsleiðtoganum
Rolando Olalia, sem myrtur var
fyrir fáum dögum. Hrópuðu
margir á byltingu og skrifuðu
kommúnísk slagorð á veggi.
Skæruliðar ákváðu í gær að
hætta viðræðum við stjórnina um
líklegt, að andstæðingar Enriles
hafi verið að verki þegar vinur hans
var drepinn fyrir tveimur dögum.
Fulltrúar skæruliða í samninga-
viðræðunum við stjómvöld ákváðu
í gær að hætta þeim þar til Aqu-
ino, forseti, hefði sýnt, að hún hefði
stjóm á hemum.
Washington, AP. Reuter.
RONALD Reagan, Banda-
ríkjaforseti, þótti ekki bæta
mikið stöðu sína með frétta-
mannafundinum, sem hann
hélt í fyrrakvöld um leynivið-
ræðurnar við írani. Eftir sem
áður telja flestir Bandaríkja-
menn, að honum hafi orðið
á alvarleg mistök.
Á fréttamannfundinum sagði
Reagan, að ekki yrði um að
ræða frekari vopnasendingar til
írans en að hann myndi áfram
reyna að bæta samskipti
ríkjanna. Var forsetinn ekki jafn
öruggur með sjálfan sig og oft-
ast áður, rak í vörðumar og
málflutningur hans þótti stund-
um mótsagnakenndur. Er það
mál manna, að hann hafi komist
illa frá fundinum og að ræða
hans hafí vakið upp fleiri spum-
ingar en hún svaraði. í skoðana-
könnunum kemur fram, að
aðeins 38% Bandaríkjamanna
telja, að Reagan hafi haldið vel
á utanríkismálunum og em það
mikil umskipti frá því, sem áður
var.
Evrópuráðið í Strassborg um Sea Shepherd:
Ronald Reagan.
Stuðningsmenn jafnt sem
andstæðingar Reagans á þingi
kröfðust þess í gær, að hann
segði frá leyniviðræðunum við
Irani án þess að draga neitt
undan og sumir vildu, að stefnu-
mótun Hvíta hússins í utanríkis-
málum yrði tekin til endurskoð-
unar.
Sjá „Reagan tekur...“ á
bls. 25.
sinn a.m.k.
í göngunni voru flestir helstu
leiðtogar vinstriflokka og kommún-
istaflokka á Filippseyjum en þeir
voru bannaðir meðan Marcos var
við völd. Hvöttu sumir til byltingar
og lýstu yfír stuðningi við komm-
úníska skæruliða. Herinn var með
mikinn viðbúnað en ekki er vitað,
að til neinna átaka hafí komið.
Flesta grunar, að einhverjir stuðn-
ingsmanna Enriles, vamarmálaráð-
herra, hafí myrt Olalia og eins þykir
Fordæmir skemmdar-
verkin og vill lögsókn
„Mikilvægur stuðningur við okkur,“ segir
Kjartan Jóhannsson, alþingismaður
Evrópuráðið fordæmdi i gær skemmdarverkin, sem menn frá Sea
Shepherd-samtökunum unnu í Reykjavikurhöfn og Hvalfirði fyrr í
mánuðinum. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá Evrópuráðinu
og i viðtali við Kjartan Jóhannsson, alþingismann, en hann tók þetta
mál upp á fundinum.
Fjárdráttar-
mál í Noregi
Ósló, frá Jan Erík Laure, fréttaritara
Morgunblaðsins.
YFIRMAÐUR útgáfufélags
norsku verkalýðsfélaganna og
Verkamannaflokksins, Einar
Olsen, var handtekinn i gær
vegna gruns um mikinn fjár-
drátt.
Auk Olsens var Hans Asklund,
forstjóri samnefnds fyrirtækis í
Svíþjóð, einnig handtekinn en talið
er, að fjárdráttur þeirra beggja
geti numið 16-17 millj. ísl. kr. Eru
þessi tíðindi mikið áfall fyrir verka-
lýðshreyfinguna og Verkamanna-
flokkinn.
Talið er, að svikin hafi farið
þannig fram, að Olsen keypti nýjar
-prentvélar af Asklund, sem aftur
sá um að selja þær gömlu. And-
virði þeirra hefur hins vegar hvergi
komið fram.
„Þetta er mjög mikilvægur
stuðningur við okkur," sagði Kjart-
an Jóhannsson í viðtali við blm.
Morgunblaðins um samþykkt Evr-
ópuráðsins en í henni er þess
krafist, að gripið verði til alþjóð-
legra aðgerða til að unnt verði að
lögsækja þá, sem að skemmdar-
verkunum stóðu. Var einhugur um
samþykktina og stóðu að henni
þingmenn vinstri-, mið- og hægri-
flokka í aðildarlöndum ráðsins.
Kjartan vakti máls á skemmdar-
verkum Sea Shepherd á fundi, sem
Evrópuráðið efndi til um alþjóðlega
hryðjuverkastarfsemi og setinn var
af utanríkisráðherrum og þing-
mönnum frá aðildarlöndunum. „Eg
sagði í ræðu minni," sagði Kjartan,
„að Sea Shepherd-samtökin væru
hópur, sem hefði tekið lögin í sínar
hendur og reyndu með hryðjuverk-
um að þvinga lýðræðislega kjöma
nkisstjóm til að lúta vilja sínum.
Ég benti á og það vakti auðsjáan-
lega mikla athygli, að yrðu þessir
menn látnir komast upp með her-
verk af þessu tagi myndi það greiða
götuna fyrir önnur öfgasamtök,
sem hugsanlega vildu sprengja upp
efhaverksmiðjur eða kjamorkuver
með alvartegum afleiðingum fyrir
allt mannkyn."
Kjartan kvaðst hafa lagt áherslu
á, að íslendingar hefðu ekki brotið
samþykktir Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins, sem heimilaði hvalveiðar í
vísindaskyni, og varað við Sea
Shepherd-samtökunum, sem hefðu
hótað frekari skemmdarverkum á
íslandi og í Noregi. „Ég hvatti aðild-
arþjóðirnar til að standa við al-
þjóðlegar samþykktir um framsal
og aðstoð i glæpamálum og sagði,
að talið væri, að lagt hefði verið á
ráðin um skemmdarverkin í Bret-
landi. Nú em Bretar að vísu ekki
aðilar að öllum samþykktum, sem
að þessu lúta, en það kom fram hjá
bresku þingmönnunum, að unnt
ætti að vera að semja sérstaklega
um þetta mál,“ sagði Kjartan að
lokum.
Tvísýnar kosningar í
Austurríki á sunnudag
Vín, Router, AP.
ALMENNAR þingkosningar verda í Austurríki á sunnudag og kann
svo að fara, að með þeim verði bundinn endi á 16 ára stíórnartima-
bil jafnaðarmannaflokksins.
Skoðanakannanir segja, að
stærstu flokkamir, jafnaðarmenn
og ihaldsmenn, séu jafnir með 45%
hvor en önnur atkvæði skiptast á
Frelsisflokkinn og Græningja. Odd-
vitar stóru flokkanna eru þeir Franz
Vranitzky. kanslari, og Alois Mock,
formaður íhaldsflokksins, og hafa
margir talið, að eftir kosningar
myndur þeir endurvekja „miklu
samsteypuna", samstjóm íhalds-
manna og jafnaðarmanna, en hún
fór með völdin lengi eftir síðasta
stríð. í gær sagði Mock hins vegar,
að hann ætlaði sér ekki að setjast
í ríkisstjóm undir forsæti Vranitzk-
ys’
Sjá grein Onnu Bjarna-
dóttur, „Stóru flokkarn-
ir...“ á bls. 26.