Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Um karl og konu 'í dag ætla ég að fjalla um merkin útfrá kynjaskiptingu. Þegar fjallað er um eðli stjömumerkja er yfirleitt ein- ungis gefin ein lýsing á hveiju merki, burtséð frá því hvort viðkomandi aðili sé karl eða kona. Þó það sé rétt að hvert merki hafi ákveðna grunneiginleika og skiptir þá kynjaskipting engu, sýnir reynsla okkar að karlmenn og kvenmenn þroska mis- munandi eiginleika í fari sinu. Tilfinningar ogkapp Við skulum taka Sporðdreka sem dæmi og skoða tvo ein- staklinga í merkinu, karl og konu. Við vitum að Sporð- drekinn er tilfinningamerki og jafnframt að stjómandi hans er athafna- og keppnis- plánetan Mars. Hvemig skyldi þetta birtast hjá karl- manni og kvenmanni? Uppeldi Stjömuspekingar segja að stjömukortið sýni upplag mannsins og að síðan þurfum við að skoða uppeldi og um- hverfisáhrif. f þessu tilviki þurfum við að skoða það hvemig þjóðfélagsviðhorf móta uppeldi karla og kvenna. Kaldur karl Við getum sagt í grófum dráttum að uppeldi karla miði að því að efla styrk þeirra, ákveðni, dugnað og getu til að takast á við ytri veruleika lífsins. Þeir eiga að “vera fyrirvinna heimila og þurfa að vera hæfir til að draga björg í bú. Þeir þurfa því m.a. að beijast um góða stöðu í lífinu. Allir eiginleikar sem ganga þvert gegn þessu geta því verið ósækilegir. Mjúk kona Hins vegar er ætlast til þess af konunni að hún ali upp böm og sjái um heimili. Hin dæmigerða kona á að vera tilfinningarík, mjúk og gef- andi o.s.frv. Ólík framhliÖ ^Við sjáum af framantöldu hvað getur gerst þegar við höfum tvo Sporðdreka af sitt hvoru kyni. Karlinn þroskar Mars hlið merkisins, þann ákafa, karft og einbeitingu sem býr í merkinu, en neitar að viðurkenna tilfinningahlið þess. Hún er fyrir honum. Konan eflir aftur á móti tiU finningalegan næmleika sinn og innsæi. Hún finnur sér hag í því að vera tilfinninga- rík og góður sálfræðingur, einfaldlega vegna þess að uppeldi bama hennar getur krafist þess. Því er líklegt að hún þroski tilfinningahlið merkisins en láti annað liggja milli hluta. Karldreki Á þessu sjáum við að í raun er æskilegt þegar við tölum um Sporðdreka og vel að merkja önnur merki, að gera greinarmun á því hvort er rætt um karl eða konu. Und- irritaður er sannfærður um að báðir þættimir, tilfinn- ingasemi og kapp plánetunn- ar Mars búi í báðum kynjum. Uppeldi og ríkjandi þjóðfé- lagsviðhorf gera einungis að 'tdíkur flötur fær að snúa út á við. Þangað til kvennabar- átta skilar betri árangri ættum við því kannski að tala um kvensporðdreka og karldreka þegar við ræðum um sporðdrekamerkið. En gera okkur jafnframt grein fyrir að hin hliðin býr innra. TOMMI OG JENNI r- r T3 ~ T* rr’4 —i [—n —: s— L-l ^ ^ 1—* ^/o * ■ lAoi/A LJUbKA -p V jMí ■TE3 : if u'Jli FERDINAND SMÁFÓLK A 5URVIVAL CAMP?! UJHAT ARE UJE POIN6 IN A 5URVIVAL CAMP7 / Qi) 7-e Björgxinarbúðir? Hvað erum við að gera í björgunar búðum? I THINK THEVRE 601N6 TO TEACH U5 UJHAT TO D0 IF THE UJORLP C0ME5 T0 AN ENP.. r~m Ég held að þeir ætli að kenna okkur hvað við eigum að gera ef það kemur heimsendir . . . THAT'5 THE PUMBE5T THIN6 l'VE EVER HEARP' Ég hefi aldrei heyrt aðra eins vitleysu! Hvar eru björgunarbátarn ir? Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Suður verður sagnhafi í þrem- ur gröndum eftir opnun vesturs á veikumm tveimur í spaða, sem sýnir sexlit og 6—10 punkta. Norður ♦ 82 ♦ ÁKD6 ♦ G109843 ♦ G Suður ♦ Á64 ¥74 ♦ Á62 ♦ ÁK762 Vestur spilar út spaðagosa, sem austur yfirdrepur á drottn- ingu, en suður dúkkar. Austur spilar aftur spaða. Á sagnhafi að gefa slaginn aftur eða drepa á ásinn? Þetta er nokkuð leiðandi spuming, sem ætti að gefa vísbendingu um bestu spila- mennskuna. Ljóst er að samn- ingurinn vinnst ekki nema tígullinn sé fríaður. Og það án þess að vestur komist inn. Eigi austur tígulhjónin eða háspil þriðja er spilið rólegt. En vand- inn er að halda austri inni þegar hann á kónginn annan. Norður ♦ 82 ¥ÁKD6 ♦ G109843 ♦ G Vestur Austur ♦ KG10953 ¥532 ♦ D7 ♦ D5 Suður ♦ Á64 ¥74 ♦ Á62 ♦ ÁK762 ♦ D7 ¥ G1098 ♦ K5 ♦ 109843 Til að tryggja það að austur fái tígulslag vamarinnar verður að spila litnum úr blindum. Ekki má leggja niður ásinn heima, því þá getur austur látið kónginn undir. En sé tíglinum spilað úr borðinu nær austur ekki að af- blokkera litinn, því ef hann stingur upp kóngnum fær hann að eiga slaginn. Allt gott og blessað. Nema auðvitað að sagnhafi klúðri spil- inu í upphafi með því að dúkka spaðann einu sinni of oft. Þá getur austur nefnilega látið tígulkónginn fjúka í þriðja spað- ann og tryggt makker sínum þannig innkomu á drottninguna. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti í Kecske- met í Ungveijalandi í október kom þessi staða upp í skák ungverska alþjóðameistarans Perenyi, sem hafði hvítt og átti leik, og Gummermatter, Sviss. 25. Re7+! og svartur gafst upp. 25. — Rxe7? 26. Da8 er mát og svarta staðan er hrun- in eftir 25. — Kb7, 26. Rxf5.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.