Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
Af dýru jólakorti
Athugasemd vegna frásagnar í skýrslu um Hjálparstofnun kirkjunnar
eftirBolla Gústavsson
íLaufási
Þann 30. október sl. birtist
skýrsla nefndar þeirrar, sem kirkju-
málaráðherra skipaði 2. október
1986 samkvæmt ósk Hjálparstofn-
unar kirkjunnar „til að upplýsa
staðreyndir um starfsemi stofnun-
arinnar". Þessa skýrslu sendi
biskup íslands öllum prestum Þjóð-
kirkjunnar og auk þess birtist hún
í heild hér í Morgunblaðinu. Satt
að segja brá mér í brún, þegar ég
hóf lestur 5. kafla skýrslunnar á
bls. 16. Þar segir í upphafi fyrstu
greinar undir fyrirsögninni, Skipti
Hjálparstofnunar kirkjunnar og
Skálholtsútgáfunnar: „Sam-
kvæmt viðskiptamannareikningi
31. desember 1985 er skuld Skál-
holtsútgáfunnar við Hjálparstofnun
kirkjunnar kr. 230.494,00.
Skuld þessi er þannig til komin
(auk smáfjárhæða) að á árinu 1984
er Skálholtsútgáfunni veitt
40.000,00 króna lán í sambandi við
jólakort er séra Bolli Gústavsson
hafði gert og gefa átti út til ágóða
fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar."
Síðan eru taldir fleiri þættir þess-
arar skuldar. Tengsl mín við þennan
dapurlega þátt í skýrslunni, sem
komu mér öldungis á óvart við lest-
urinn, gerðu mér jafnframt ljóst,
að skýrslan getur ekki verið áreið-
anleg ef j>annig er yfírleitt á málum
haldið. Eg hef aldrei teiknað jóla-
kort, sem gefa átti út til ágóða
fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar og
hefði til þess komið, að mér hefði
verið falið að teikna jólakort fyrir
þá stofnun, þá get ég staðhæft
það, að mér hefði aldrei komið til
hugar að þiggja eina krónu fyrir
þá teikningu, hvað þá 40 þúsundir.
En þó virðist ástæða fyrir því,
að þessi misskilningur er birtur á
FORD THUNDERBIRD
4 CYL TURBO COUPEÁRGERÐ1983
5 gíra beinskiptur. Þessi glæsibifreið er nú til sölu hlaðin
aukahlutum t.d.: sportfelgum, veltistýri, Cruise Control,
rafmagnsrúðum, rafmagnsspeglum, fullkomnu stereo-
setti og fl. og fl.
Til sýnis á bílasölunni Bílahöllinni, Lágmúla, sími
688888 eða á kvöldin i síma 43738 og 45548.
Blaðburóarfólk
óskast!
.
I
UTHVERFI
Heiðargerði 2-124
MEÐEINUSÍMTAU
er hægt að breyta innheimtuaö-
ferðinni. Eftir það verða áskri
argjöldin skuldfær
viðkomandi greiðslukortareikn
ing manaðarlega
SÍMINN ER
1 691140
691141
þessum stað. Árið 1983 kom Gunn-
laugur Snævarr, þáverandi fram-
kvæmdastjóri bókaútgáfunnar
Skálholts, að máli við mig og kvaðst
hafa fengið þá hugmynd, að út-
gáfan léti teikna allar kirkjur
landsins, sem eru rúmlega 300 tals-
ins. Síðan yrði söfnuðunum gefínn
kostur á að njóta þessara teikninga
þannig, að Skálholtsútgáfan léti
prenta kort eftir þeim, sem söfnuð-
imir fengju síðan við vægu verði
og seldu til ágóða fyrir kirlg'ulegt
starf eða til viðhalds kirkjubygging-
um. Þá var og ákveðið, að þegar
allar teikningarnar lægu fyrir, yrðu
þær gefnar út í bók með upplýsing-
um um hveija kirkju. Mæltist
Gunnlaugur til þess við mig, að ég
tækist þetta verk á hendur. Fór svo
að gerður var samningur milli mín
og Skálholtsútgáfunnar, að ég
teiknaði kirkjumar og árið 1983
varð ákveðið að ég fengi kr.
2.000,00 fyrir hveija teikningu.
Tekið skal fram, að um pennateikn-
ingar var að ræða. Auk þess samdi
Skálholtsútgáfan við Prentverk
Odds Bjömssonar á Akureyri um
að það tæki að sér prentun kor-
tanna og síðar bókarinnar. Ég hófst
þegar handa á haustdögum 1983,
þegar tómstundir gáfust við teikni-
borðið, og sóttist verkið allvel.
Þegar kom fram á árið 1984 barst
Sr. Bolli Gústavsson
„Ég hef aldrei teiknað
jólakort, sem gefa átti
ót til ágóða fyrir Hjálp-
arstofnun kirkjunnar
og hefði til þess komið,
að mér hefði verið falið
að teikna jólakort fyrir
þá stofnun, þá get ég
staðhæft það, að mér
hefði aldrei komið til
hugar að þiggja eina
krónu fyrir þá teikn-
ingu, hvað þá 40
þúsundir.“
mér til ejrma, að hagur Skálholts-
útgáfunnar væri erfíður og fór svo
að lyktum, að Gunnlaugur Snævarr
lét af starfí framkvæmdastjóra.
Hafði ég þá hægt á ferðinni, en um
þær mundir lágu fyrir 20 teikningar
og hafði Prentverk Odds Bjömsson-
ar gert fílmur af allmörgum þeirra
og ljósmyndir verið sendar Skál-
holtsútgáfunni. En þegar ég ræddi
við menn í stjóm útgáfunnar töldu
þeir ekki lengur Qárhagslegan
gmndvöll fyrir áframhaldi þessa
verks og því yrði Skálholtsútgáfan
að rifta samningi okkar. Ég kvaðst
þá reiðubúinn að sætta mig við þær
dapurlegu málalyktir, en taldi hins
vegar næsta eðlilegt, að ég fengi
umsamda greiðslu fyrir þær mynd-
ir, sem ég hafði þegar teiknað og
væru ógreiddar. Því var vel tekið
og mér greiddar umyrðalaust kr.
40.000,00 fyrir 20 teikningar. Að
sjálfsögðu var mér með öllu ókunn-
ugt um, hvert útgáfan sótti það fé
til greiðslu, enda kom mér ekki til
hugar að spyija að því.
Af þessum myndum er það að
segja, að þær em ennþá í minni
vörslu og ekki verið eftir þeim geng-
ið, hvað sem síðar verður. Hitt tel
ég nauðsynlegt, að hið sanna komi
í ljós, vegna þess að margir hafa
óskað eftir skýringum á þeim við-
skiptum mínum við Hjálparstofnun
kirlqunnar, sem skýrslan greinir
frá. Jafnframt er ekki síður æski-
legt að fram komi hér, hvers vegna
hið umfangsmikla verkefni, sem ég
tók að mér fyrir Skálholtsútgáfuna,
var ekki til lykta leitt. Frá því var
greint í fjölmiðlum fyrir þrernur
ámm og ég því ósjaldan inntur eft-
ir framvindu þess verks.
Félag jámiðnaðamanna og Félag dráttarbrauta og skipasmiðja:
Alltof mikið um að verk-
efni séu unnin erlendis
STJÓRN Félags járniðnaðar-
manna hefur lýst yfir áhyggjum
sínum vegna þess hve mikið af
viðhaldi skipa er unnið erlendis
og telur að þær afleiðingar, sem
þessi þróun geti haft, sé að verk-
þekking og tækniþróun við þessi
verkefni muni staðna. í sam-
þykkt aðalfundar Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja, segir að
þó verkefnastaða skipasmiða-
stöðva sé góð um þessar mundir
vegna bættrar stöðu útgerðar og
aukinna viðhaldsverkefna, þá
gefi það ekki tilefni til þess að
beina verkefnum við skipasmíðar
og viðhald til útlanda. Starfsfólki
skipasmiðastöðvanna hafi fækk-
að og sé það í samræmi við fyrri
reynslu, að því fækki þegar
nýsmíðar liggi niðri
í fréttatilkynningu frá stjóm
Félags jámiðnaðarmanna segir að
samkvæmt fréttum hafí mörg
íslensk fískiskip verið send til er-
lendra skipasmíðastöðva til breyt-
inga og nú sé fyrirhugað að senda
sex skuttogara smíðaða í Japan til
breytinga í 'Póllandi. Sjaldnast hafí
verið leitað eftir tilboðum í þessi
verkefni innanlands, þó ljóst sé að
íslenskar skipasmíðastöðvar séu
samkeppnisfærar bæði hvað varðar
verð og framkvæmdatíma. Síðan
segir: „Stjóm Félags jámiðnaðar-
manna hvetur stjómvöld að gera
ráðstafanir til að beina þessum
verkefnum til innlendra skipaiðnað-
arfyrirtækja og tryggja að þau fái
tækifæri til að gera tilboð í þau
verkefni, sem nú em framundan
við skipaviðgerðir og skipasmíðar
og jafnframt að bankaábyrgðir fáist
frir greiðslum þegar verkefnin em
leyst af hendi innanlands, ekki síður
en þegar greitt er fyrir þau með
erlendum gjaldeyri".
Fundarmenn á aðalfundi dráttar-
Ertu að byggja — Viltu breyta
J3
«o
(0
3
€
©
JQ.
I
©
£
©
>
I
©
'55
I
«o
©
3
tr
LU
Þarftu að bæta
LÆKKAÐ VERÐ
Afsl.
Málning .. 15%
Penslar, bakkar,
rúllusett .. 20%
Veggfóður og veggdúkur.... .. 40% __
Veggkorkur .. 40%
Veggdúkursomvyl .. 50%
LÆKKAÐVERÐ
til hagræðis fyrir þá sem eru að
BYGGJA - BREYTA EÐA BÆTA
Líttu við í LITAVERI því það hefur
ávallt borgað sig.
o-
I
0>
I
z
3-
C
©
o«
ö-
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
m
3
c.
©
o>
O"
*<
(Q
(Q
brauta og skipasmiðja vom
sammála um að verði ekki gripið
til ákveðinna aðgerða í málefnum
skipaiðnaðarins, stefni í enn eina
flóðbylgju í innflutningi skipa og
jafnframt færist nú mjög í aukanna
að skip séu send til útlanda til við-
gerða og endumýjunar. í ályktun
sem fundurinn samþykkti er bent
á eftirfarandi leiðir til úrbóta.
Tryggt verði að að innlend lán og
heimildir til erlendra lántöku vegna
nýsmíða eða viðgerða á fískiskipum
verði ekki veitt án undangenginna
útboða á verkþáttum. Veittar verði
sambærilegar bankaábyrgðir vegna
skipaiðnaðarverkefna innanlands
og veittar em, þegar verkefnin em
unnin erlendis. Ávallt verði tryggt
80% lánshlutfall til allra skipaiðnað-
arverkefna, sem unnin em hér á
landi. Framleiðslulán til skipaiðnað-
arfyrirtækja verði aðgreind frá
hinum endanlegu lánveitingum til
kaupandans. Lánshlutfall Fiskveiði-
sjóðs til nýsmfða innanlands verði
hækkað a.m.k. upp í 75%. Lögum
um Fiskveiðasjóð verði breytt á
þann veg, að skipaiðnaðurinn til-
nefni einn mann í stjóm sjóðsins á
meðan hann er framleiðslulánasjóð-
ur skipaiðnaðarins. Veitt verði
sérstök samkeppnislán, óafturkræf
að hluta, til þess að mæta einstök-
um undirboðstilboðum frá erlendum
skipasmfðastöðvum.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!