Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
„Það er mér með-
fætt að elska liti“
Tryggvi Ólafsson mynd-
listarmaður við tvö verka
sinna sem hann sýnir nú í
Gallerí Borg.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
7 segir Tryggvi
Olafsson mynd-
listarmaður
sem nú sýnir
verk sín í
Gallerí Borg
TRYGGVI Ólafsson, myndlist-
armaður, heldur nú sýningu á
verkum sínum í Gallerí Borg-
við Austurvöll. Sýningunni lýk-
ur á þriðjudag og hefur hún
þá staðið i tæpan hálfan mánuð.
„Ég hef aldrei lagt mig sérstak-
lega fram um að hafa myndimar
litskrúðugar, það er mér meðfætt
að elska liti,“ sagði Tryggvi, þeg-
ar hann var inntur eftir því hvers
vegna myndir hans væra í jafn
skæram litum og raun ber vitni.
„Þessir litir hafa alltaf fylgt mér,
en ég varð hins vegar að læra að
teikna til að geta byggt myndim-
ar upp á minn hátt. Ég byijaði
snemma að mála fjöllin og bátana
á Norðfirði og svo fór ég í nám
til Kaupmannahafnar. Þar var ég
í Listaakademíunni, en strandaði
alveg í listinni árið 1967, eftir sex
ára nám. Ég málaði abstrakt og
gerði tilraunir með allt mögulegt.
Það virtist allt útlit fyrir að ég
væri hættur að mála að eilífu og
ég ætlaði að fara að vinna annað.
Ekki vegna þess að ég vildi verða
ríkur, þvi þá hefði ég nú farið
strax að vinna hjá Hafskip eða
eitthvað slíkt. Jæja, svo haldið sé
áfram með söguna þá fór ég frá
Kaupmannahöfn til Spánar og
rölti um listasöfn. Allt í einu átt-
aði ég mig á því að þetta abstrakt
dót var bara hluti af svo miklu
stærri heild og ég var í raun stadd-
ur í blindgötu. Þá fór ég að mála
eins og mig langaði til að mála
og nú er ég farinn að nálgast það
að geta komið hugmyndum
mínum á framfæri í myndum. Ég
vil þó ekki fara að gefa einhveijar
yfirlýsingar um stíl, svoleiðis tal
er bara yfirborðskennd della.“
Ekki erfði listamaðurinn það við
Kaupmannahöfn að dvöl hans þar
hafði næstum gert út af við feril-
inn, því hann hefur búið í borginni
síðustu 25 ár.
Tryggvi hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga um öll Norðurlönd og
einkasýningamar era farnar að
nálgast annan tuginn. Hann sagði
aðspurður að salan hafi gengið
vel hjá sér á þessari sýningu. „Eg
hef engan sérstakan áhuga á sölu-
mennsku, markaður myndverka
er ekki mín uppfinning. Myndir
era hugsanir í sjáanlegu formi og
peningar eiga ekki að ráða neinu
um það hveijir fá að njóta mynd-
anna. Myndir ættu helst að vera
á söfnum eða í opnum stofnunum,
en enda oft inni á einkaheimilum.
Maður ræður raunveralega litlu
um það samhengi sem þær lenda
í. Mér finnst ríkið nota vel þá
peninga sem fara til kaupa á lista-
verkum og það verður að hafa
það í huga að málarar vinna eins
og hvert annað fólk. Þeir sem
fylgjast með mér vinna geta séð
það að ég vinn tæpast minna en
fólk í frystihúsum. Því miður þá
neyðist ég til að selja myndimar
mínar, því þetta er jú vinnan mín
og ég lifí af henni. En ég verð
aldrei búinn að mála. Ég vinn
nefnilega ekki af skyldu, heldur
af því að ég get leyft mér að
gera hlutina af kærleik. Ástin og
vinnan verða samofnari eftir því
sem árin líða og skipta mig æ
meira máli.“
Það var greinilegt á þeim stutta
tíma sem blaðamaður stóð við í
Gallerí Borg að Tryggvi er upp-
tekinn maður. Hann talaði í
símann, svaraði tveimur spum-
ingum, fór síðan aftur í símann,
heilsaði gestum á sýningunni og
greip svo símtólið á ný. „Þetta
er svona hjá mér, ég þegi og held
mér við efnið þegar ég er að
vinna, en um leið og ég sleppi
penslinum þá verð ég mjög mál-
gefínn og veð úr einu í annað.
Þú verður að virða mér það til
betri vegar,“ sagði hann um leið
og hann kvaddi.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
Fylgisstraumur frá Alþýðu-
bandalagi til Kvennalista
Fylgisaukning Alþýðuflokks er á kostnað Sjálfstæðisflokks
STARFSMENN Félagsvísinda-
stofnunar hafa unnið frekar
úr könnun stofnunarinnar á
fylgi flokka, sem gerð var fyr-
ir Morgunblaðið í fyrstu viku
þessa mánaðar og birt hér í
blaðinu í síðustu viku. Með-
fylgjandi tafla sýnir hreyfingar
sömu kjósenda milli flokka.
Niðurstöðumar era byggðar á
spumingum um hvaða flokk svar-
endur kusu í alþingiskosningun-
um 1983 og hvaða flokk þeir
segjast munu kjósa nú. Svör feng-
ust frá 1.130 manns eða 75,3%
af 1.500 manna úrtaki könnunar-
innar. Þeir sem svöraðu báðum
spumingum era 1.025 og era eft-
irfarandi upplýsingar byggðar á
þeim fjölda.
Vinstra megin í töflunni er sýnt
hvaða flokk svarendur segjast
myndu kjósa nú, en efri ásinn
sýnir hvaða flokk þeir segjast
hafa kosið 1983. Töfluna ber að
lesa á eftirfarandi hátt. Ef fínna
á t.d. hvað þeir sem fylgja Al-
þýðuflokki nú kusu árið 1983 er
lína Alþýðuflokksins lesin frá
vinstri til hægri. Þannig kemur
fram að 36,2% þeirra sem nú segj-
ast ætla að kjósa Alþýðuflokk
kusu hann einnig 1983, 2,3% kusu
Framsóknarflokk og 21,8% kusu
Sjálfstæðisflokk. Þá er einnig sýnt
að 11,5% þeirra sem ekki höfðu
kosningarétt 1983 ætla nú að
kjósa Alþýðuflokk og einnig
11,5% þeirra sem ekki kusu neinn
flokk árið 1983.
Niðurstöðumar fyrir Alþýðu-
flokk og Kvennalista era einnig
sýndar á línuritum.
Meginniðurstöðumar era þær
að Alþýðuflokkurinn fær fylgis-
aukningu allvíða að, en þó mest
frá kjósendum Sjálfstæðisflokks,
og minnst frá kjósendum Fram-
sóknarflokks og Kvennalista.
Framsóknarflokkurinn dregur
lítið að frá öðram flokkum en
heldur hlutfalli sínu meðal nýrra
kjósenda all vel. Svipaða sögu er
að segja um Sjálfstæðisflokk,
enda er fylgi hans samkvæmt
könnuninni minna en verið hefur
undanfarið. Þó fær flokkurinn
hæst hlutfall nýrra kjósenda eða
15,1%. Alþýðubandalag dregur
heldur ekki fylgi frá öðram flokk-
um svo heitið geti, en heldur hlut
sínum meðal nýrra kjóssenda all
vel. Af þeim sem segjast ætla að
kjósa Kvennalista kusu 34,4%
hann árið 1983, en 31,1% kusu
Alþýðubandalag þá.
Fylgjendur flokkanna í nóvember 1986 og hvað þeir kusu
í alþingiskosningum árið 1983.
Kusu Afl. 1983: Ffl. Sfl Abl. BJ. Kl. Án kosninga- réttar 1983 Kaus ekki Alls
Kjósa nú: Alþýðuflokk 36,2 2,3 21,8 5,7 9,2 1,7 11,5 11,5 100
Framsóknarfl. 1,6 68,8 5,6 2,4 0,0 1,0 12,0 8,8 100
Sjálfstæðisfl. 2,1 2,1 73,0 0,0 2,1 1,0 15,1 4,9 100
Alþýðubandal. 1,0 3,6 2,7 64,3 1,8 1,0 12,5 13,4 100
Kvennalista 11,5 3,3 4,9 31,1 4,9 34,4 1,6 8,2 100
Hvaðan koma kjósendur Kvennalistans?
Afl. Ffl. Sfl. Abl. BJ. Kl. Nýir Kausekki
kjósendur 83