Morgunblaðið - 21.11.1986, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
Sviss:
Efnaslys í Basel
Basel, AP.
EFNASKÝ steig á loft í Basel í
gær þegar tilraun efnfræðinga
fór út um þúfur. Óhappið átti sér
stað eigi fjarri vöruskemmu
Sandoz-efnafyrirtækisins, sem
fuðraði upp i eldi um síðustu
mánaðamót með þeim afleiðing-
um að lífriki Rínarfljóts stór-
spilltist.
Efnið, sem slapp út úr verk-
smiðju Ciba-Geige-fyrirtækisins í
gær, er ekki eitrað og var almenn-
ingi því engin hætta búin. Fólk var
hvatt til að loka gluggum og dyrum
þegar efnaskýið barst til vesturs
jrfír borgina.
Slysið átti sér stað í tilraunastofu
Ciba-Geige, sem er stærsta efnafyr-
irtæki Sviss. Efnið, sem vísinda-
menn voru að vinna með, ofhitnaði
og breyttist í lofttegund með fyrr-
greindum afleiðingum. 31. október
láku 400 lítrar af illgresiseyði út í
Rín frá Ciba-Geige-verksmiðjunni í
Basel. Ekki hlaust teljandi tjón af
vegna þess að efnið hafði verið
þynnt út og var því langt frá upp-
runalegum styrkleika.
ERLENT
Rabin í Helsinki:
Ósammála Finnum
um friðargæslu
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaósins.
YITZHAK Rabin, vamarmála-
ráðherra ísraels, hefur án
árangurs reynt að sannfæra
ríkisstjóra Finnlands um það að
óæskiiegt sé friðargæslusveitir
Sameinuðu þjóðanna séu í Suð-
ur-Líbanon. Finnskt herlið tekur
virkan þátt í starfi sveitanna og
yfirmaður þeirra er finnskur
hershöfðingi. Þetta kom fram á
fundi Rabins með fréttamönnum
í Iok tveggja heimsóknar hans
til Finnlands á miðvikudag.
Rabin sagðist hafa komið til
Finnlands til að skýra afstöðu ísra-
elsstjómar til friðargæslusveitanna
í Suður-Líbanon. Hann vildi einfald-
lega að Finnar öðluðust skilning á
sjónarmiðum ísraela. Rabin varð
þó að játa að fínnskir viðmæjendur
hans hefðu sýnt afstöðu ísraela
lítinn skilning.
Rabin hitti Mauno Koivisto for-
seta á þriðjudag og síðan ræddi
hann við vamarmálaráðherra Finna
og yfirmann hersins. Viðmælendur
Rabins ítrekuðu allir að brýnt væri
að Sameinuðu þjóðimar tækju þátt
friðaraðgerðum í Líbanon. ísraelar
segjast aftur á móti ekki vilja utan-
aðkomandi aðstoð, heldur treysti
þeir á mátt sinn.
Á fréttamannafundinum kvaðst
Rabin skilja að Finnar vildu fylgja
stefnu Sameinuðu þjóðanna, en
hann vonaði að sjónarmið sín fengju
einhveija áhejm.
Rabin játaði einnig óbeint að
ísraelar ættu kjamorkuvopn, en
hann lofaði að þeir yrðu ekki fyrst-
ir til að nota gjöreyðingarmátt
þeirra ef til styijaldar kæmi í Mið-
Austurlöndum.
Að sögn Rabins er stjómmála-
samband Israela og Finna nú í góðu
lagi. í júní í fyrra voru samskipti
ríkjanna mjög stirð vegna þess að
bandamenn Israela í Suður-Líbanon
tóku fínnska hermenn í gíslingu
með þegjandi samþykki ísraelsku
ríkisstjórnarinnar.
AP/Símamynd
Skæruliðabúðir á Indlandi
Ungur Tamíli frá Sri Lanka við þjálfun í skæmliða- I landi, en ljósmyndari AP fréttastofunnar tók þessa
búðum á Suður-Indlandi. Indverks yfírvöld hafa I mynd Tamil Nadu ríki.
þráfaldlega neitað að slíkar búðar væru þar í I
Dóttir flóttamanna
fær brottfararleyfi
Frá Erik Liden, fréttaritara MorgnnbladsinB í Stokkhólmi.
ALMENNINGSALITIÐ getur
haft áhrif á ráðamenn í Sovétíkj-
unum. í gærmorgun barst þeim
Leilu Miller og Valdo Randpere,
sem bæði eru flóttamenn frá
Eistlandi, sú ánægjulega frétt að
þriggja ára dóttir þeirra fengi
að fara frá Sovétríkjunum.
Þau Miller og Ranpere flúðu yfír
til Finnlands árið 1984. Þaðan kom-
ust þau með feiju til Svíþjóðar.
Síðustu fjóra mánuði hefur Leila
Miller mótmælt fyrir framan sendi-
ráð Sovétríkjanna í Stokkhólmi og
krafíst þess að dóttir hennar fái að
flytjast til Svíþjóðar. Mál þetta hef-
ur vakið mikla athygli í Svíþjóð og
tóku ökumenn upp á því að flauta
jafnan þegar þeir áttu leið framhjá
sendiráðinu.
í gær bárust þær fréttir að for-
eldrum Leilu Miller og dóttur
hennar hefði verið veitt leyfí til að
fljdjast fá Sovétríkjunum. Bróðir
hennar fékk hins vegar ekki farar-
lejrfi þar eð hann gegnir herþjón-
ustu.
Þegar Ingvar Carlsson, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, var í Moskvu í
apríl á þessu ári ræddi hann mál
Leilu Miller við þarlenda ráðamenn.
Starfsmenn sendiráðs Svíþjóðar í
Moskvu hafa einnig þrýst á sovéska
embættismenn vegna máls þessa.
Valdo Randpere sagði í útvarps-
viðtali í gær að dóttir hans og
tengdaforeldrar væru væntanleg til
Svíþjóðar eftir hálfan mánuð.
Austurríki:
Stóru flokkarnir berjast
um kanslaraembættið
ZOrích, frá Önnu Bjaraadóttur, fréttaritara Morgunblaðains.
Kosningabaráttan í Austurríki fyrir þingkosningarnar á sunnudag
er komin á lokastig. Stóru flokkarnir, Jafnaðarmannaflokkurinn,
SPÖ, og Þjóðflokkurinn, ÖVP, beijast um sigur í kosningunum
og þar með um kanslaraembættið. Þeir eru svo til jafnir í skoðana-
könnunum. Þjóðflokkurinn, stærsti borgarlegi flokkur Austurrík-
is, hefur þó aðeins meira fylgi en Jafnaðarmannaflokkurinn, eða
45% á móti 44,5% fylgis, samkvæmt nýjustu könnunum. Það er
fastlega búist við að stóru flokkamir myndi samsteypustjóra
eftir kosningaraar en óvíst er hvor verður kanslari, Franz Vran-
itzky, núverandi kanslari samsteypustjómar SPÖ og Fijálslynda
flokksins, eða Alois Mock, formaður ÖVP.
Almennt áhugaleysi ríkir um
kosningamar. Búist er við að allt
að 13% kjósenda undir þrítugu
og 4% kjósenda yfír fímmtugu
sitji heima á kjördag. Þó gætu
þetta verið mikilvægustu kosning-
ar í Austurríki í langan tíma. En
kjósendur sjá lítinn mun á flokk-
unum. Sjónvarpsviðræður kansl-
araefnanna í byijun mánðarins
voru svo flatneskjulegar og leiðin-
legar að fjöldi áhorfenda gafst
upp og skipti jrfír á aðra stöð.
Óákveðnir kjósendur, sem horfðu
á viðræðumar til enda, vom engu
nær um hvor mannanna væri
betra kanslaraefni. Frambjóðend-
unum var svo umhugað um að
styggja ekki hvor annan og spilla
ekki fyrir hugsanlegu stjómar-
samstarfí að afar lítill stefnumun-
ur kom í ljós í viðræðunum.
Austurríki á við alvarleg vanda-
mál að stríða. Stáliðnaðurinn er
rekinn með gífurlegu tapi, at-
vinnuleysi er mikið og á eftir að
aukast, ríkisbáknið er stórt og
verulegur halli er á fjárlögum.
Hvorugur stóm flokkanna er tal-
inn þora að takast á við erfiðleik-
ana án stuðnings hins.
Jafnaðarmannaflokkurinn hef-
ur verið í stjóm síðan 1970 og
ber að miklu leyti ábyrgð á hvem-
ig komið er fyrir þjóðinni. En
kanslaraskiptin í sumar björguðu
flokknum. Vranitzky tók við
kanslaraembættinu af Fred
Sinowatz, heldur óframbærileg-
um formanni flokksins, eftir að
frambjóðandi jafnaðarmanna tap-
aði fyrir Kurt Waldheim í forseta-
kosningunum. Vranitsky nýtur
vinsælda og hefur endurlífgað
flokkinn. Hann er viðskiptafræð-
ingur að mennt og er sagður hafa
áhuga á að verða seðlabankastjóri
þegar hann hættir í pólitík. Hann
vill draga úr fjárstuðningi við
ríkisrekin fyrirtæki, selja hluta
þeirra og lækka útgjöld til félags-
legrar þjónustu. Þjóðflokkurinn
hefur svipaða hluti á stefnuskrá
sinni auk þess sem hann vill að
skattakerfið verði endurskoðað og
lýðræði í landinu aukið með því
að auðvelda framkvæmd þjóðarat-
kvæðagreiðslna.
Hinn nýi formaður Fijálsljmda
flokksins, Jörg Haider, hefur vak-
ið einna mesta athygli í kosninga-
baráttunni. Hann er 36 ára og
þykir mjög myndarlegur maður.
Kosningafundir hans eru vel sótt-
ir og hann höfðar til fólksins.
Hann er hægrisinnaður þjóðemis-
sinni og er oft nefndur í sömu
andrá og Hitler. Jafnaðarmenn
ákváðu að slíta stjómarsamstarf-
Franz Vranitsky (til vinstri) tók við embætti kanslara Austurrikis
í sumar. Myndin var tekin er hann hafði svarið embættiseiðinn.
Aðrir á myndinni era, frá vinstritRudolf Kirchslager, fyrrum
forseti, Fred Sinowatz, fjrrum kanslari, og Leopold Gratz, sem
gegndi embætti utanrikisráðherra i stjóra Sinowatz.
inu og ganga til kosninga eftir
að hann var kjörinn formaður
Fijálslynda flokksins nú í haust.
Alois Mock fullyrðir í viðtali við
vikublaðið Profíl nú í vikunni að
Jafnaðarmannaflokkurinn muni
halda stjómarsamstarfínu með
fijálslyndum áfram, ef jafnaðar-
menn hljóta fleiri atkvæði en
Þjóðflokkurinn í kosningunum.
Ifylgi fijálslyndra í skoðanakönn-
unum minnkaði fyrst eftir kosn-
ingu Haiders en nú er talið að
flokkurinn geti náð nokkm fylgi
af Þjóðflokknum. Mock hefur ekki
útilokað þann möguleika að hann
myndi stjóm með frjálsyndum ef
flokkurinn eykur fylgi sitt í kosn-
ingunum.
Eilífar deilur hafa sett svip á
kosningabaráttu Græningja og
það kemur jafnaðarmönnum vel.
Freda Meissner-Blau, sem hlaut
5% atkvæða í forsetakosningun-
um í sumar, er helsti frambjóðandi
Græningja og þykir helst til
ráðrík. Hvorugur stóru fíokkanna
hefur sýnt áhuga á samstarfi við
Græningja. Þeir eru báðir með
umhverfísvemdunarmál á stefnu-
skrá sinni en leggja minni áherslu
á þau en efnahagsmálin. Kosning-
amar snúast um viðreisn efna-
hagslífsins í Austurríki.
Kjósendur þurfa að gera upp við
sig hvorum þeir treysta betur í
embætti kanslara, Vranitzky eða
Mock, en báðir ætla að gera sömu
hlutina.