Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
27
Páfinn heim-
sækir Sinsrapore
Singapore, AP. <L Jr JL
JÓHANNES Páll páfi II kom í
gær til Singapore, eftir að hafa
lokið heimsókn sinni til Bangia-
desh. Fyrirhugað var, að dvöi
páfans í Singapore stæði stutt
eða aðeins í fimm klukkustundir
en að hann flytti þar messu fyrir
80.000 manns á stórum útileik-
vangi.
Við komu páfans til Singapore tóku
Gregory Young erkibiskup og Ren-
ato Martino, fulltrúi Páfagarðs á
móti honum, en námsmenn úr kaþ-
ólskum skólum stóðu meðfram leið
páfans, héldu á blómum og fognuðu
honum.
Frá Singapore fer páfínn til Fiji-
eyja, þar sem hann mun dveljast í
sólarhring. Páfínn hefur aldrei
heimsótt Fijieyjar áður, en þar er
mennning og trúarbrögð af mjög
mismunandi uppruna. A Fijieyjum,
sem samanstanda af um 330 eyjum,
búa 700.000 manns. Af þeim er
aðeins tíundi hlutinn kristinn.
Marcos fær ekki
landvist í Sviss
Bern, AP, Reuter.
YFIRVÖLD í Svlss tilkynntu í
gær að Ferdinand Marcos, fyrr-
um forseti Filippseyja, væri
talinn „óæskilegur“ þar í landi.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að Marcos, ættmenni hans
og fylgdarlið, hafi í hyggju að
ferðast til Sviss.
Landamæraverðir fengu fyrir-
skipun um að hleypa Marcosi ekki
inn í landið og utanríkisráðuneytinu
var falið að tilkynna honum um
ákvörðun þessa.
I marsmánuði „frystu" yfirvöld í
Sviss bankainnstæður Marcosar en
fullyrt hefur verið að hann eigi
digra sjóði í þvísa landi. Talsmenn
stjómar Corazón Aquino, forseta
Filippseyja, telja að Marcos eigi 10
milljarða Bandaríkjadala í sviss-
neskum bönkum.
Marcos býr ásamt fjölskyldu
sinni og fylgdarliði á Hawaii og
bárust svissneskum yfirvöldum
njósnir af fyrirhugaðri ferð hans
þangað. Að sögn talsmanns stjóm-
valda var Marcosi tilkjmnt um
ákvörðun þessa fyrir fáeinum dög-
um en eins og fyrr sagði var hún
gerð opinber í gær.
Afríkudrottningin á Thames
Afríkudrottningin, sem kvikmyndaunnendur kannast við úr sam-
nefndri mynd með þeim Humphrey Bogart og Katherin Hepbum,
sést hér á siglingu á Thames. Báturinn var smíðaður í Englandi
árið 1912. í janúar verður opnuð mikil bátasýning í London og er
Afríkudrottningin þangað komin vegna hennar.
,Þaö heitir Bell,Kum
• Með áklœði ur ureeindin le
KRISTJflfl SIGGEIRSSOD HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
M&BNU\
SÍMTAU
Eftir þaö veröa
greidslukortareikning
imin.L-rrif
SÍMINNER
691140-
691141
35 JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavik - Síml 688588
KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM CIRCOLUX “ stílhreint,
fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar
stundum í eldhús, stundum í stofu eða hvar annars
staöar sem er - allt eftir þínum smekk.
OSRAM
Þjónusta í öllum helstu raftækjaverslunum
iLJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR