Morgunblaðið - 21.11.1986, Qupperneq 31
Leikhúsið Frú Emilía:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
31
Fnimsýning
á Mercedes
- eftir Thomas Brasch
NÝTT leikhús, sem ber nafnið
Frú Emilia, hefur tekið til starfa
í Reykjavík og verður frumsýn-
ing á fyrsta leikverkinu á
laugardagskvöld í Hlaðvarpan-
um.
„Eitt af markmiðum leikhússins
er að sýna samtímaleikrit, leikrit
sem höfða til fólks nú í dag“ segir
Guðjón Pedersen einn af forsvars-
mönnum leikhússins. Fyrsta leikri-
tið sem Frú Emilía tekur til
Hafnarfjörður:
Stofnfundur
um fiskmarkað
Undirbúningsnefnd um stofn-
un hlutafélags um rekstur
fiskmarkaðar í Hafnarfirði hef-
ur boðað til stofnfundar laugar-
daginn 22. nóvember kl. 13.30 í
Gaflinum við Reykjanesbraut.
Þegar hafa um áttatíu einstak-
lingar og fyrirtæki skrifað sig fyrir
hlutafé að upphæð rúmlega 14
milljónum króna. Bæjarstjóm Hafn-
arfjarðar stendur í samningavið-
ræðum við væntanlega verktaka
um byggingu markaðarins í Suður-
höfninni en stefnt er að því að hann
taki til starfa eigi síðar en 1. febrú-
ar nk.
sýningar er „Mercedes" eftir Thom-
as Brasch. Flestir aðstandenda Frú
Emilíu störfuðu í leikhópnum
Svörtu og Sykurlausu, en Frú
Emilía er þó ekki að þeirra sögn
framhald þeirrar samvinnu, heldur
nýtt og sjálfstætt leikhús.
„Önnur ástæða fyrir því að við
stofnuðum þetta leikhús var að
okkur langaði til að vinna saman.
Við erum öll útskrifuð úr sama
skólanum og vinnum því öðruvísi
saman en fólk sem hefur mismund-
andi skóla að baki.“
Þetta er í fyrsta skipti sem leik-
rit eftir Thomas Brasch er sýnt hér
á landi, en ieikritið „Mercedes" hef-
ur verið sýnt víða, svo sem í
Frakklandi, Þýskalandi og Svíþjóð.
Thomas Brasch fæddist í Englandi
1945, foreldrar hans höfðu flúið
nasismann og flutt aftur til Þýska-
lands 1947. Að loknu stúdentsprófi
stundaði hann ýmis störf og var við
nám í kvikmyndaháskólanum í
Potsdam, auk þess sem hann lagði
stund á blaðamennsku. Hann hefur
lifað á ritstörfum frá 1972 og hlo-
tið ýmis bókmenntaverðlaun.
Leikritið Mercedes fjallar um
Rómeo og Júlíu nútímans, fólk sem
hittist af tilviljun og verður ást-
fangið án þess að vita að þau eru
einmitt ætluð hvort öðru eins og
segir í kynningu á leikritinu, en
leikritið verður gefíð út í heild sinni
í leikskránni sem telst til nýmæla.
Elskendurnir í Mercedes.
Leikarar og leikstjóri Mercedes,
frá vinstri Ellert A. Ingimundar-
son, Bryndís Petra Bragadóttir,
Þröstur Guðbjartsson og leik-
stjórinn Guðjón Pedersen.
Að sögn leikaranna gefur textinn
tilefni til margs konar útfærslu og
umgjarðar og mikil vinna því farið
í að setja það upp, en leikið verður
í kjallara Hlaðvarpans.
Leikendur í Mercedes eru
Bryndís Petra Bragadóttir, Ellert
A. Ingimundarson, og Þröstur Guð-
bjartsson. Leikstjóri er Guðjón
Pedersen. Þýðingu gerði Hafliði
Amgrímsson, lýsingu annast Ágúst
Pétursson og búningagerð er í
höndum Önnu Jónu Jónsdóttur.
Stöð 2:
Innlend
dagskrár-
gerð að
aukast
STÖÐ 2 er þessa dagana að
auka innlenda dagskrárgerð
og verður hún fyrst um sinn
öll sýnd í opna sjónvarpinu,
a.m.k. á meðan ekki er hægt
að fullnægja eftirspurn eftir
lyklum, að sögn Jónasar R.
Jónssonar, dagskrárstjóra.
Á sunnudaginn hefst fyrsti þátt-
ur Jóns Óttars Ragnarssonar um
menningarmál. Á döfinni er þáttur
er nefnist Þjóðmál í umsjá Páls
Magnússonar, fréttastjóra, og
fréttamanna Stöðvar 2. Erlendur
fréttaskýringaþáttur mun einnig
heQast innan skamms í umsjá
Þóris Guðmundssonar og Bryndís
Schram verður umsjónarmaður
þáttar af léttara taginu sem ekki
hefur ennþá hlotið nafn. Tökur á
matreiðsluþáttum eru að hefjast
og er ráðgert að þeir verði viku-
lega á dagskrá Stöðvar 2.
Umsjónarmaður þeirra verður Ari
Garðar Georgsson, sem verið hefur
m.a. yfírkokkur í einu af fímm
stjömu hótelum Bandaríkjanna og
nýlega starfaði við Hótel Holt.
Selst hafa u.þ.b. 3.500 lyklar
alls og er biðtíminn nú 3 til 5 vik-
ur. Um 500 íbúðir eru í svokölluð-
um fjölbýlishúsasamningum, sem
bjóða upp á einn afruglara fyrir
hvert fjölbýlishús. Að sögn for-
■ ráðamanna Stöðvar 2 verður að
öllum líkindum hægt að anna eftir-
spum eftir lyklum um áramótin.
Hispania:
„Talaðu mállausa stúlka“
í Regnboganum á morgun
Elisabeth Saguar kennir tólf krökkum, 5-12 ára, spænsku á vegum
Hispania
Spurningakeppni grunnskólanna:
Urslitin munu
ráðast í kvöld
REGNBOGINN sýnir á morgun,
laugardag, kvikmyndina „Habla,
mudita“ eða „Talaðu mállausa
stúlka". Sýningin hefst kl. 15.15
í E-sal. Kvikmyndin er saga um
náttúruunnanda, sem hittir mál-
lausa stúlku í fjallahéraði og
hann kennir henni að tala og
hegða sér. Bændur í héraðinu
sýna þessu lítinn skilning.
Menningarsamtök íslendinga og
Spánveija á íslandi, Hispania,
standa fyrir sýningunni. Félagið var
formlega hleypt af stokkunum í
desember 1984. Spænskukennslu
bama félagsmanna á aldrinum 5-12
ára var komið á fót sl. vetur og
annast kennsluna í ár Elisabeth
Saguar, EGB-kennari og sálfræð-
ingur. Skráðir em 12 nemendur í
kennsluna nú.
Þá hefur Hispania stofnað kvik-
myndaklúbb í samvinnu við Altor
Yraola sendikennara þar sem mán-
aðarlega eru sýndar spænskar
kvikmyndir í Regnboganum. Auk
þessa hefur Hispania skipulagt tón-
leika og samkomur af margvíslegu
tagi m.a. til að kynna menningu,
siði, tónlist, bókmenntir og aðrar
listgreinar sem tengjast Spáni og
Suður-Ameríku og einnig til að efla
tengsl og kynni félagsmanna inn-
byrðis.
Leiðrétting
Nafn stúlkunnar, sem lést í Norð-
fírði á sunnudaginn misritaðist í
Morgunblaðinu í gær. Hún hét
Karin P. D. van der Stam.
í KVÖLD fara fram úrslit í
Þrautalendingu, spurninga-
keppni grunnskóla Reykjavíkur,
sem fram hefur farið í nóvember
í öllum félagsmiðstöðvum borg-
arinnar.
Sautján skólar hafa tekið þátt í
keppninni, þijú lið frá hveijum
skóla. Fjórir skólar eru eftir í keppn-
inni og keppa þriggja manna lið
úr 9. bekk Árbæjarskóla, Lauga-
lækjarskóla, Réttarholtsskóla og
Ölduselsskóla til verðlauna. Fýrstu
verðlaun eru fataúttekt frá tísku-
vöruversluninni Partý, bókaverð-
laun frá Pennanum, blómvöndur frá
blómastofu Friðfinns og veitinga-
staðurinn American Style býður
sigurvegurum og skólastjóra út að
borða. Þeir sem lenda í öðru til
fjórða sæti fá einnig verðlaun.
Urslitakeppnin hefst klukkan 21
og fer fram í félagsmiðstöðinni
Frostaskjól.
Swen Wollter og Tomas von Brömssen i hlutverkum sinum í mynd-
inni „Maðurinn frá Mallorka.“
„Maðurinn frá Mall-
orka“ sýnd í Tonabíói
TÓNABÍÓ frumsýndi nýverið
sænsku kvikmyndina „Maðurinn
frá Mallorka" sem Bo Widerberg
leikstýrir. Kvikmyndin fjallar
um tvo lögregluþjóna sem vinna
að þvi að rannsaka póstrán í
Stokkhólmi. Þegar á rannsókn-
ina líður gera þeir félagar sér
grein fyrir að verkefnið er
lífshættulegt.
í fréttatilkynningu kvikmynda-
hússins kemur fram að Bo Wider-
berg hafí upphaflega áunnið sér
nafn sem rithöfundur. Ein bóka
hans fjallar um Ingmar Bergman,
og gagnrýnir Widerberg leikstjó-
rann harðlega. Eftir að Widerberg
fór sjálfur að fást við kvikmynda-
gerð hefur hann margoft hlotið
alþjóðleg verðlaun, fyrir myndir
sínar „Elvira Madigan", „Joe Hill“
og „Adalen 31“. Þekktasta mynd
Widerberg er þó án efa „Maðurinn
á þakinu" sem nýlega var sýnd f
Ríkissjónvarpinu.
Basar fyrir
kristniboðs-
INNLEN-T
starfið
BASAR Kristniboðsfélaga
kvenna í Reykjavík, verður hald-
inn í Betaníu, Laufásvegi 13, á
morgun, laugardag.
Basarinn hefst kl. 14.00. Allur
ágóði af basamum rennur til Sam-
bands ísl. kristniboðsfélaga, sem
rekur kristniboðs- og hjálparstarf í
Eþíópíu og Kenýu.