Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
Páll Pétursson um reglugerð landbúnaðarráðherra:
Slysalega til tekizt
Fullvirðisréttur utan dagskrár á Alþingi
Sauðkindin á lífið í íslendingum, sagði einn þingmanna í utandag-
skrárumræðu um búmark og fullvirðisrétt í gær.
Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, sagði í utandagskrár-
umræðu um búmark og fullvirð-
isrétt á Alþingi í gær, að bændur
hefðu fengið fullt verð fyrir
sauðfjárafurðir fyrsta árið eftir
setningu laga um þetta efni
(1985). Kjötframleiðsla 1986 væri
100 tonnum umfram samnings-
bundna framleiðslu. Spár um
umframframleiðslu komandi árs
stæðu tíl svipaðrar niðurstöðu.
Staða bænda væri þvi alls ekki
eins afleit og sumir gagnrýnend-
ur landbúnaðarstefnunnar vildu
vera láta.
Páll Pétursson, formaður
þingflokks framsóknarmanna,
sagði hinsvegar að slysalega hafi
tekizt til með reglugerð land-
búnaðarráðherra, stefnt væri í
mikla „blóðtöku“ hjá bændum,
verið væri að ýta smærri bænd-
um út úr hefðbundinni land-
búnaðarframleiðslu og gera þá
rfku ríkari en fátæku fátækari.
Ólafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.)
hóf umræðuna og gagnrýndi harð-
lega, hve seint reglugerð land-
búnaðarráðherra, varðandi
sauðflárframleiðslu, væri fram
komin - eða ekki fyrr en í endaða
sláturtíð. Hann gagmýndi flutning
búmarks frá Vestfjörðum, viðmiðun
við léleg framleiðsluár og fækkun
bænda sem leitt gæti landauðnar f
byggðum, er höllum fæti stæðu
fýrir.
Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, sagði að hann hafi f
gjörðum sínum byggt á tillögum frá
Stéttasambandi bænda. Gögn þau,
sem reglugerðin byggði á, hafí fyrst
legið fyrir í september. Það væri
orsök þess, hve sfðla árs hún hafi
verið fullfrágengin.
Ráðherra gerði samanburð á
fækkun bú§ár í einstökum lands-
hlutum frá 1977-78. Fækkun á
Vestfjörðum næmi 3% en t.d. 19%
Fundur var í Sameinuðu þingi
í gær. Fimm þingsályktunartil-
lögur vóru afgreiddar til nefnda:
um endurmat á störfum kvenna,
um áhríf markaðshyggju, um
umhverfismál og náttúruvemd,
um nýtingu sjávarfangs og um
afnám einokunar ríkisins á inn-
Halldór Blöndal (S.-Ne.) hefur
mælt fyrir frumvarpi, þessefnis,
að Fiskveiðasjóður veiti hærra
lánahlutfall (75% kostnaðar) til
nýsmíði skipa innanlands en
nýsmíði skipa hjá erlendum
skipasmíðastöðvum (60%).
Halldór sagði f framsögu að
frumvarpið væri flutt af þeirri
ástæðu að sjávarútvegsráðherra
hafí á síðast liðnum vetri gefíð út
reglugerð um Fiskveiðasjóða þar
sem kveðið væri á um jaftihá lán -
f Skagafírði og 28% í Ámessýslu.
Framleiðsluskerðing, sem miðaði
að því að færa búvöruframleiðslu
að markaðsstaðreyndum, hefði
gengið jafnt yfír, og kjötframleiðsla
í ár og ráðgerð framleiðsia næsta
ár, umfram samninga, væri ekki
það mikil að bændur þyrftu að ör-
vænta.
Páll Pétursson (F.-Nv.) sagði
slysalega hafa til tekist með reglu-
gerð ráðherrans. Stefnan væri
illframkvæmanleg nema með mjög
mikilli bióðtöku bænda. Verið væri
að ýta smábændum út úr hefð-
bundinni framleiðslu. Sumir hefðu
meiri framleiðslurétt en þeir hefðu
þörf fyrir. Aðrir minni en þeir gætu
lifað af. Ekki væri sjálfgefíð að
stærri bú hefðu hagkvæmari fram-
leiðslu en smærri. Hann lét að því
liggja að rétt væri að fresta fram-
kvæmd á reglugerð ráðherrans.
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.-Ne.) réðst harkalega á land-
búnaðarstefnuna. Óhjákvæmilegt
væri að taka reglugerð ráðherrans
til endurskoðunar og leiðréttingar.
Hann nefndi sérstaklega bændur á
Hólsfjöllum, sem færu illa út úr
framleiðsluskerðingu, en það væri
samgöngulegt öryggismál að halda
við byggð þar. Svo væri komið að
bændur almennt þyrfti fremur að
biðja um hallæri en góðæri til að
laga sig að Iandbúnaðarstefnunni.
Hjörleifur Guttormsson (Abl.-
Al.) sagði stefnu Framsóknar-
flokksins f landbúnaðarmálum
undraverða. Landbúnaðarráðherra
héldi því fram að bændur þyrftu
ekki að örvænta, bráðum kæmi
betri tíð, en formaður þingflokks
framsóknarmanna hrópaði stefn-
una af í þingræðu.
Árni Johnsen (S.-Sl.) minnti á
fjárhagslega könnun á stöðu bænda
1984-1985. Meðal skilyrða sem
bændum hafí þá verið sett, sem
fengu lánafyrirgreiðslu til fjárfest-
flutningi áfengis.
Kristín S. Kvaran (S.-Rvk.)
mælti fyrir tillögu sinni um sam-
félagsþjónustu, það er beitingu
vinnuskyldu i stað fangelsunar
vegna afbrota, sem ekki teldust
til hinna grófarí. Fríðrik Sophus-
son (S.-Rvik.) mælti fyrir tillögu
sem hlutfall af kostnaði - úr sjóðn-
um til nýsmíði fískiskipa, hvort sem
í hlut ættu skip smíðuð hér á landi
eða erlendis.
Hann sagði nýsmíði skipa innan-
lands nánast hafa legið niðri
næstliðin ár og nauðsynlegt væri
að styrkja stöðu innlendrar skipa-
smíði gagnvart erlendri samkeppni,
en erlendur skipasmíðaiðnaður njóti
bæði framleiðslustyrkja og niður-
greiðslna. Fiskveiðiþjóð væri
nauðsynlegt að búa að traustum
skipasmíðaiðnaði.
ingar, var það, að þeir hefðu óskerta
framleiðslu næstu 10 árin. Sfðan
gerðist það að með einu bréfí frá
Framleiðsluráði var grundvellinum
kippt undan búskap margra við-
komandi. í flestum tilfellum hafí
verið um frumbýlinga að ræða með
góðar byggingar og mikla fjárfest-
ingu. Hringlandaháttur stjómunar
á þessu sviði væri óveijandi. Betur
þurfí að standa að þessum málum.
Halldór Blöndal (S.-Ne) sagði
m.a. að við ákvörðun fullvirðisréttar
væri ekki tekið nægjanlegt tillit til
byggða sem standi höllum fæti, svo
frekari þrenging geti leitt til
byggðahruns.
Pálmi Jónsson (S.-Nv.) gagn-
rýndi viðmiðum við ákvörðun full-
virðisréttar. Miðað væri við
framleiðslu áranna 1984-1985. Þeir
bændur, sem ekkert tillit hefðu tek-
ið til fyrri viðvarana, jafnvel aukið
framleiðslu á þessum árum, væru
í raun verðlaunaðir. Þeir bændur,
sem tekið hafí tillit til óska stjór-
valda og dregið þessi ár úr fram-
leiðslu, sættu refsingu.
Þórður Skúlason (Abl.-Nv.)
sagði fjölda smærri bænda við að
flosna upp, þeir sættu grisjun, og
byggð í heilum sveitum gæti bros-
tið. Þórður talaði um stefnu ráð-
herrans sem „aðför að bændum"
og „eyðibýlastefnu landbúnaðarráð-
herra".
Kristfn Halldórsdóttir (Kl.Rn.)
sagði bændum hafa verið att út í
íjárfestingar og offramleiðslu.
Meira hafí verið horft til hagsmuna
fólksins í Bændahöllinni en búandi
manna, sem færu nú bónleiðir frá
úthlutunarkóngum. Enginn endir
væri á vitleysunni. Nýlega hafí ve-
rið lánað til 80 ijósa eins og ekki
væri nóg af þeim fyrir.
Siggeir Björnsson (S.-Sl.) sagði
ekki margra góðra kosta völ. Fram-
leiðslugetan hafí vaxið, m.a. vegna
tækniframfara, umfram markaðs-
þörf. Hinsvegar mætti betur standa
að framleiðslusljómun og aðlögun
að markaðsaðstæðum, sem hljóti
sinni um útboð á opinberum
rekstrarverkefnum.
Endurgjaldslaus vinnu-
þjónusta
Tillaga Kristínar S. Kvaran og
fleiri þingmanna fjallar um könnun
á því, hvort endurgjaldslaus þjón-
usta í þágu samfélagsins geti við
ákveðnar aðstæður komið í stað
afplánunar dóma í fangelsi og einn-
ig orðið til þess að gera skilorðs-
dóma markvissari.
Kristín vitnaði til reynslu af
samskonar viðurlögum erlendis,
bæði f Bretlandi og á Norðurlönd-
um, sem gefíð hafí góða raun.
Fjölmargir þingmenn tóku til
máls og tóku allir vel í þá hug-
mynd, sem tillaga Krístínar felur í
sér.
Einn þingmaður, Guðmundur J.
Guðmundsson, (Abl.-Rvk.) talaði
um refsigleði embættismanna í
dómsmálaráðuneyti. Sagðist hann
hafa skömm á þeim vinnubrögðum
sem tíðkuðust við framkvæmd
dóma af hálfu manna í þessu ráðu-
neyti.
Jón Helgason, dómsmálaráð-
herra, mótmælti „rakalausum og
ósönnum fullyrðingum" um refsi-
að taka nokkum tíma. Bændur, sem
eigi ævistarf í jörðum, eigi að geta
mætt morgundeginum með reisn,
hvort sem þeir hætti eða haldi
áfram búskap.
Ólafur Óskarsson (S.-Nv.) taldi
fyrirheit landbúnaðarráðherra,
þessefnis, að bændur þurfí hvorki
að kvíða þessu né næsta ári, létt í
vasa. Hann hélt því fram að þegar
hefðbundnar búgreinar hyrfu úr
einstökum sveitum þá hryndi
byggðin.
Stefán Valgeirsson (F.-Ne.) var
eini stjómarþingmaðurinn sem
skjaldaði landbúnaðarráðherra.
gleði embættismanna í ráðuneyti
dómsmála. Ráðuneytinu væri falin
fullnusta dóma með lögum og hvert
og eitt mál fengi þar vandaða skoð-
un og meðferð.
+
Utboð rekstrarverk-
efna
Tillaga Friðriks Sophussonar
fjallar um útboð opinberra rekstrar-
verkefna. Hann minnti á útboð
framkvæmda, sem hafí leitt til þess,
m.a. í vegagerð, að peningar skatt-
borgaranna nýttust betur. Meira
fengizt fyrir sömu fjármuni. Víða
erlendis væra rekstrarverkefni, sem
þættu henta til útboðs, einnig boðin
út. Hvort sem boðnar væru út fram-
kvæmdir eða boðin út rekstrarverk-
efni væri eftirlit með framkvæmd
verks og úttekt þess hjá verksala,
ríkinu eða ríkisstofnunum. Útboð
þýddi því ekki skerðingu þjónustu
heldur betri flármagnsnýtingu.
Hjörleifur Guttormsson og fleiri
þingmenn Alþýðbandalags mæltu
hart gegn tillögunni, sem þeir
mörkuðu fíjálshyggju og töldu að-
fór að opinberri þjónustu.
Friðrik þakkaði andófíð. And-
staða af hálfu „mesta afurhaldsins
á þingi“ væri út af fyrir sig viður-
kenning á því að tillagan vísaði til
réttrar áttar.
Vandinn, sem við væri að glíma,
hafí orðið til á tímum nokkurra
ríkisstjóma og landbúnaðarráð-
herra, en ekki með komu Jóns
Helgasonar í landbúnaðarráðuney-
tið. Margur réðist nú að ráðherra
sem ekki hefði hreinan skjöld í
þessu efni. En víst væri vandinn
mikill og við honum þyrfti að bregð-
ast. Gagnrýnendur ráðherrans
gætu bætt um betur í afstöðu til
þessarar atvinnugreinar það sem
eftir væri þings, ef hugur fylgdi
máli.
Friðjón Þórðarson (S.-Vl.)
sagði bændur hafa sætt Iátlausum,
óréttmætum áróðri í áraraðir, ekki
sízt í vissum fjölmiðlum, sem meir
en tímabært væri að mótmæla. All-
ir flokkar hefðu á stefnuskrá sinni
að byggja landið allt. Því stefnum-
iði þyrfti að fylgja vel eftir, ekki
sízt nú.
Vigfús Jónsson (S.-Ne.) sagði
það rótgróinn en leiðan sið, þegar
hamaði í ári, að leita þyrfti uppi
sökudólg, einhvem til að hengja,
og skipti þá ekki ævinlega máli
hvort bakari eða smiður yrði fyrir.
Fleira kæmi við sögu kjötfallsins,
margumtalaða, en sauðkindin, sem
ætti lífíð í íslendingum. Sauðfé
hafí fækkað um allt að 30% á fáum
áram, en ekki minnkaði kjötfjallið,
enda kæmi önnur framleiðsla einnig
við sögu. Máske er sá tími, sagði
Vigfús, sem við ætlum okkur til
búháttabreytinga, allt of skammur.
Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, sagði fullyrðingar Páls
Péturssonar um gífurlegar blóð-
tökur bænda furðulegar. Hann
kvaðst heldur ekki skilja stóryrði
Steingríms J. Sigfússonar um að
bændur þyrftu að leggjast á bæn
og biðja um hallæri. Framleiðslu-
stjómun við ríkjandi aðstæður hlyti
að koma við ýmsa en stóryrðin
fælu ekki í sér neina lausn.
fllMflGI
Alþingi í gær:
Refsigleði o g verkútboð
Ráðherra mótmælir ummælum um embættismenn
Innlend skipasmíði:
Fái hærra lánahlutfall
Frumvarp Halldórs Blöndal