Morgunblaðið - 21.11.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖsÆdAGUR 21. NÓVEMBER 1986
43
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík:
Þrjú framboð í
fjórða sætí listans
FRAMBOÐSFRESTUR fyrir
prófkjör Alþýðuflokksins í
Reykjavík rann út á miðnætti í
fyrrinótt. f prófkjörinu er kosið
um fjögur efstu sæti listans og
hafa aðeins flokksbundnir al-
þýðuflokksmenn kosningarétt.
Frambjóðendur geta aðeins boð-
ið sig fram í eitt ákveðið sæti.
Aðeins eitt framboð með tilskyld-
um meðmælendum barst í hvert
þriggja efstu sætanna, en þrjú
framboð í fjórða sæti listans. í
fyrsta sætið Jón Sigurðsson for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, í annað
sætið Jóhanna Sigurðardóttir al-
þingismaður, og í þriðja sætið Jón
Baldvin Hannibalsson alþingismað-
ur og formaður Alþýðuflokksins.
í fjórða sætið bjóða sig fram
Björgvin Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri og fyrrverandi
borgarfulltrúi, Jón Bragi Bjamason
prófessór í lífefriafræði, og Lára
V. Júlíusdóttir lögfræðingur ASÍ
og formaður Kvenréttindafélags
íslands. Morgunblaðið ræddi stutt-
lega við þessa þijá frambjóðendur:
til að kynnast þeirra helstu stefnu-
málum og fara viðtölin hér á eftir.
„Ég mun beita mér fyrir bættum
kjörum hinna lægstlaunuðu og sér-
stökum ráðstöfunum í húsnæðis-
Bókarkynning
féll niður
í MORGUNBLAÐINU í fyrradag
birtist ritdómur eftir Erlend Jóns-
son, sem bar fyrirsögnina: „Meðan
Rómaborg brann".
Þau mistök urðu við vinnslu rit-
dómsins, að niður féll kynning á
bókinni, en hún er þannig: Michael
Grant: Neró. Dagur Þorleifsson þýddi.
Öm og Örlygur hf. Reykjavík 1985.
málum ungs fólks, auk þess sem
ég mun vinna sérstaklega að mál-
efnum Reykjavíkur og þá einkum
á sviði atvinnumála," sagði Björg-
vin Guðmundsson framkvæmda-
stjóri þegar Morgunblaðið spurði
hann um helstu stefnumál.
Björgvin sagði aðspurður að vel
gætu orðið snörp átök um 4. sætið,
enda sýndist honum það sæti koma
til með að verða baráttusæti í kom-
andi alþingiskosningum. Björgvin
sagði að fyrir prófkjörið myndu
stuðningmenn hans hafa samband
við flokksfélaga í Reykjavík en
sjálfur hefði hann ekki hugsað sér
að fara í auglýsingastríð, þar sem
lokað prófkjör fyrir flokksmenn ein-
göngu væri annars eðlis en opið,
og best væri að reka sem minnstan
áróður út á við.
„Mitt aðalbaráttumál er vald-
dreifing úr forræði í lýðræði.
ístenska þjóðin er á það háu menn-
ingar- og menntunarstigi, og býr
við það góðar samgöngur og fjar-
skipti, að hún þarf ekki að afsala
sér völdum til fulltrúa á löggjafar-
samkomunni af sögulegum ástæð-
um. Ég vil ná fram verulegum
breytingum þannig að allir þjóð-
félagsþegnar geti kosið um fnim-
vörp og þingsályktunartillögur sem
þá varðar," sagði Jón Bragi Bjama-
son prófessór þegar Morgunblaðið
spurði hann fyrir hveiju hann hygð-
ist helst beita sér.
Sem önnur baráttumál sín nefndi
Jón Bragi að ná fram jöfnu vægi
til alþingiskosninga, að gildi þing-
skipaðra rannsóknamefnda verði
aukið, að ráðherrar sitji ekki á
þingi, að efnt verði til þjóðfundar
um stjómarskrána, og ýmislegt
fieira sem allt miðar að aukinni
valddreifíngu í þjóðfélaginu.
Jón Bragi Bjamason er boðinn
fram með stuðningi Félags fijáls-
Basar systrafélagsins Alfa
SYSTRAFÉLAGIÐ Alfa heldur
sinn árlega basar í safnaðar-
heimili Að ventkirkj unnar,
Ingóifsstræti 19, sunnudaginn
23. nóvember og hefst hann kl.
...
lyndra jafnaðarmanna, en kjami
þess félags em þeir félagar úr
Bandalagi jafnaðarmanna sem
gengu í Alþýðuflokkinn í haust.
Þegar Jón var spurður hvort þessi
stefnumál, sem mörg hver vom
gmndvallaratriði í stefnuskrá BJ
höfðuðu til annara Alþýðuflokks-
manna, svaraði hann: „Eg held að
þau geri það enda vom þau áður
mörg hver á stefnuskrá Alþýðu-
flokksins."
„Ég er í hópi góðs fólks sem vill
beijast fyrir jöfnuði í þjóðfélaginu,"
sagði Lára Júlíusdóttir lögfræðing-
ur ASÍ þegar Morgunblaðið spurði
hana hver hennar helstu baráttumál
væm.
„Það er þó ljóst," sagði Lára, „að
vegna starfa minna og félagsmála-
þátttöku hef ég meiri áhuga á
ákveðnum málaflokkum en öðmm,
og þar má nefna kvennamál og jafn-
réttismál, og launamál og verka-
lýðsmál. Þá hef ég sem móðir áhuga
á málefnum bama, svo sem dagvist-
unar- og skólamálum, svo og
málefnum aldraðra," sagði Lára.
Þegar Lára var spurð hvort hún
ætlaði að heyja harða kosningabar-
áttu sagði hún að þess hefði
eindregið verið farið á leit við hana
að hún tæki þátt í prófkjörinu og
stuðningsmenn hennar ætluðu að
leggja einhveija vinnu á sig.
Magnús Pálsson myndlistarmaður og Daði Harðarson yfirhönnuður
hjá Glit hf.
Vinnur lág’myndir
fyrir Snælandsskóla
HJÁ GLIT HF. hefur verið starf-
andi sérstök listasmiðja siðan
1983. Þar hafa nokkrir þjóð-
kunnir listamenn fengið aðstöðu
til að vinna að hugðarefnum
sínum og geta notfært sér þá
stóru ofna sem Glit hf. hefur
yfir að ráða, segir í frétt frá
fyrirtækinu.
Um þessar mundir er Magnús
Pálsson myndlistamaður að vinna
að stóru verki fyrir Snælandsskóla
í Kópavogi í Listasmiðjunni. Um er
að ræða 12 stórar lágmyndir, 10
útimyndir en 2 innimyndir. Verða
þær stærstu allt að 15-20 m2. Er
verkið byggt á ævintýrinu um
Karlsson, Lítil, Trítil og fuglana.
Er búist við að fyrstu hlutar verks-
ins verði settir upp í byrjun næsta
sumars.
Aðspurður segir Magnús að hann
sé mjög ánægður með aðstöðuna
hjá Glit hf. Bæði sé alveg einstakt
að hafa húsnæði til að vinna stór
verk í, aðgang að ofnunum og síðast
en ekki síst ómetanlega aðstoð við
tæknilegar framkvæmdir, en Daði
Harðarson hefur verið hans sérleg-
ur aðstoðarmaður. Daði Harðarson
hefur sfðastliðið ár unnið við vöru-
þróun og tæknilega aðstoð hjá Glit
hf.
Búðardalur:
Aiikning í slátrun en
fallþungi minnkar
- Menn uggandi vegnar þróunar landbúnaðarins
14.00.
Þar verður á boðstólum allskonar
handavinna, heimabakaðar kökur
ofl. Allur ágóði rennur til líknar-
mála.
Þessar ungu stúlkur i Hafnarfirði efndu tíl hlutaveltu til ágóða fyr-
ir Hjálparstofnun kirkjunnar og söfnuðu rúmum 900 krónum. Þær
heita Hera Elvarsdóttir, Linda Sigurðardóttir, Bergþóra Björns-
dóttir, Eva Lind Helgadóttir og Ingibjörg Eðvaldsdóttír.
Búðardal.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN þjá Kaup-
félagi Hvammsfjarðar, Búðar-
dal, lauk þann 30. október sl.
með aukadegi. Alls var slátrað
31.673 fjár og innvegið kjötmagn
var 490.104 kg. í fyrra var slátr-
að 25.900 fjár og innvegið
kjötmagn var 408.105 kg. Aukn-
ing á milli ára stafar af fijósemi
og að um það bil 3.000 fjár var
flutt til slátrunar frá Snæfells-
nesi til Búðardals vegna þess að
Kaupfélag Stykkishólms og
Kaupfélag Grundfirðinga slá-
truðu ekki hjá Sláturféiagi
Snæfellinga að þessu sinni.
Skipting fjárins var þannig: Dilk-
ar 28.106 og fullorðið 3.567.
Skipting þyngdar var: Dilkar
409.990 kg, fúllorðið 80.114 kg.
Meðalþyngd dilka var því 14,59 kg
í ár sem er aðeins minna en á fyrra
ári þegar hún var 14,95 kg. I O-
flokk, sem er verðfelling vegna fitu,
fóru 1.114 dilkareða 21.014 kgsem
er 4% af fjölda og 5,1% af þyngd.
Allmiklar umræður fara nú fram
í héraðinu vegna fullvirðisréttar
bæði í sauðfjárframleiðslu og mjólk-
urframleiðslu. Kindakjötsfram-
leiðsla héraðsins var 5—7% umfram
svonefnt svæðabúmark.
Almennt eru menn nokkuð ugg-
andi vegna þróunar í landbúnaðar-
málum og þá sérstaklega með tillit
til byggðaröskunar, sem af þeirri
þróun getur orðið. Skiptar skoðanir
eru um framkvæmd þessara mála
og finnst mörgum að ákvarðanir
þessara mála séu allt of almennar
og það, að yngri bændur, sem land-
búnaður héraðsins mun byggja á
næstu áratugi, skuli vera skomir
niður við trog og gert ógerlegt að
hafa afkomu af búrekstri sínum og
greiða niður fjárfestingar sem þeir
hafa jaftivel verið að fá lánað til
frá Stofnlánadeild landbúnaðarins
fyrir 3 mánuðum.
Öll áform um búháttabreytingar
og atvinnusköpun á öðrum sviðum
eru mjög óljós, enda stutt síðan
„bréfin" komu, en manna á meðal
gengur tilkynning um fullvirðisrétt
undir því heiti.
Kristjana
Ragnhildur Tryggvadóttír i hlutverki Nínu.
Sýningnm á Veruleika
lýkur á næstunni
SÝNINGUM á Veruleika eftír
Súsönnu Svavarsdóttur, sem sýnt
hefur verið í kaffistofu Hlað-
varpans Vesturgötu 3, fer senn
að ljúka.
Sýningin hefur hlotið góðar und-
irtektir hjá áhorfendum, ekki hvað
síst hjá konum, þar sem þær mæðg-
ur Nína og Hallbera velta fyrir sér
ýmsum hliðum á tilverunni og sýn-
ist hverri sitt.
Á kaffistofu Hlaðvarpans er boð-
ið upp á kaffi og konfekt á meðan
á sýningu stendur. Sýninguna á
Veruleika má panta fyrir starfshópa
og/eða félagasamtök, hvort heldur
sem er í Hlaðvarpanum, á vinnu-
staði eða félagsheimili.