Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
53
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Fjárfestingar og erlent fjármagn:
Umræða vakin eina ferðina enn
- og síðan ekki söguna meir
Velvakandi.
Verslunarráð íslands hefur nú
nýlokið ráðstefnu sinni um hið
sígilda málefni, sem „fj'árfestingar
og erlent samstarf" er, einu sinni
á ári eða svo.
Inn í þetta mál blandast svo alls
kyns efni, sem skeggrætt er fram
og til baka, erlend skuldasöfnun,
aukið fijálsræði í viðskiptum og
einnig það mál, sem enginn þorir
að taka á en er sígilt umræðuefni
á ráðstefnum, nefnilega það, hvort
tengja eigi íslensku krónuna traust-
um erlendum gjaldmiðli.
A þessum ráðstefnum tala menn
venjulega tveimur tungum í sömu
andrá. Annars vegar eru þeir
hlynntir breytingum í fijálsræðisátt
og fullyrða, að veigamikil rök séu
fyrir breytingum, t.d. þetta með
tengingu gjaldmiðilsins við annan
erlendan, — hins vegar hafa menn
mikinn fyrirvara á um breytingar,
og það jafnvel í sömu málsgreininni
í ræðuflutningnum. Það eru nánast
flestir sem telja verður, að vit hafí
á fjármálum hér, sammála um, að
við íslendingar séum of fámenn
þjóð og vanþróuð í milliríkjavið-
skiptum til að reka eigð gjaldeyris-
kerfí.
Ennfremur, að það sé til góðs,
að landið verði opnað fyrirerlendum
aðilum og íslensk fyrirtæki hafí
gott af að fá samkeppni, um leið
og þeim gefíst tækifæri á að eign-
ast hlutdeild í atvinnutekjum
annarra þjóða.
Þrátt fyrir þetta verða litlar sem
engar breytingar. Fjárlög eru sett
fram ár eftir ár með halla og hlut-
verk ríkisins eykst ár frá ári.
Samþykki löggjafarvaldsins fæst
naumlega og stundum aldrei til að
gera breytingar í þjóðfélaginu,
sjálfsagðar breytingar, sem leysa
afdalamennskuna af hólmi í um-
gengni og samskiptum.
Ráðamenn ota hver sfnum tota
og standa saman um „fullveldi
gamla tímans", og hinir yngri
stjómmálamenn eru fljótir að að-
laga sig þinum rótföstu og hefð-
bundnu aðferðum sem notaðar em
til að drepa í fæðingu allar hug-
myndir sem kunna að lyfta
umræðunni upp úr nefndafargani á
framkvæmdastig.
Fastheldni á bann við sölu á
áfengu öli er gott dæmi, en auðvit-
að lítilvægt miðað við fjáfestingar
og erlent fjármagn hér á landi. Bjór-
bannið er hins vegar glöggur vottur
um þá niðurlægingu og kotungs-
hátt, sem við búum við hér á landi
á sama tíma og ríkisvaldið situr að
sölu á eldvatni til þjóðarinnar.
Allir sem vilja landi sínu og þjóð
vel, sjá þá þversögn, sem felst í því
að lúta valdboði ofan frá um fram-
kvæmd sem landsmenn eru almennt
á móti, og telja heyra liðna tímanum
til, ef það þá hefur tilheyrt ein-
hveijum tíma.
Mikilvæg samtök og sterk eins
og Verslunarráð íslands eiga nátt-
úrulega ekki að láta umræður einar
nægja, og það ár eftir ár. Þau eiga
að setja stjómmálamönnunum stól-
inn fyrir dymar, líkt og gert er við
landsmenn, og krefjast skilyrðis-
lausra tilslakana á þeim höftum,
sem íslenskt atvinnulíf er hneppt í
með einskis nýtum gjaldmiðli og
banni við erlendum íjárfestingum
hér á landi, nema í samfloti við hið
opinbera.
Það er hætt við, að fólk hætti
að taka mark á þessum og hinum
ráðstefnunum, þegar þær eru
haldnar í þeim einum tilgangi að
„vekja upp umræður" eins og það
heitir á „fagmálinu" — en síðan
ekki söguna meir!
Geir R. Andersen
Helgi Þór má
vera hreyk-
inn af starfs-
fólki sínu
Nú á þessum siðustu og verstu
þegar vart verður svo opnað blað
að ekki bregði þar fyrir óánægju-
hneggi og jafnvel óbótaskömmum
vegna slælegrar þjónustu á öllum
hugsanlegum sviðum, fínnst mér
að prísa megi það að ósekju sem
góðra gjalda er vert.
Föstudaginn 24. október brugð-
um við okkur starfsfélagamir
ásamt frúm og öðru fríðu föruneyti
til Hveragerðis að kýla vömb okkar
og þreyta síðan diskódans fram
eftir nóttu.
Það þarf ekki endilega að orð-
lengja það, en þjónustan reyndist
það góð að mörg „fyrirmyndar-
hótelin" á Reykjavíkursvæðinu
mættu hengja haus. Maturinn var
fyrsta flokks og ekki skorínn við
nögl. Þjónustufólk var ötult og við-
kunnanlegt og „uppartaði" hvem
mann eins og þar sæti sjálfur Reag-
an eða félagi Gorbachov. Sérstak-
lega er mér minnisstæður
brosmildur starfskrfatur, sem
Hrefna heitir, og á svo sannarlega
skilið rós í hnappagatið fyrir indæla
og lipðra þjónustu.
Já, Helgi Þór Jónsson má vera
hreykinn af starfsfólkkji sínu og
það var samhljóma álit okkar
sextyíumenninganna, sem héldum
austur fyrir fjall, að þetta hefði
verið ein best lukkaða og eftirminni-
legasta kvöldstund sem við höfum
átt í mörg ár.
Birgir Bragason
Leitar vinkonu sinnar
Ég leita gamallar skólasystur
minnar, Amdísar Thorvalds-
dóttur. Árin 1965 til 1966 vorum
við saman í skóla f Bryne. Amdís
hafðu nú samband við mig.
Annars gæti ég vel hugsað
mér að skrifast á við íslending
en hann verður að skrifa dönsku.
Ég er 41, gift og á 18 'ára stúlku
og hund. Eg hef mikinn áhuga
á tónlist og handavinnu. Eg
hleyp mikið og æfi júdó.
Karin Hansen,
Karl Rasmussensvei 19,
9910 Björnevatn,
Norge.
□ □
□
HEILRÆÐI
Á heimilunum leynast viða hættur, sem fjölskyldan verður
að vera sér meðvitandi um.
Gæta verður þess að höldur og sköft ílátanna á eldavélinúi snúi
til veggjar, þannig að stuttir handleggir geti ekki teygt sig í þau
og steypt yfir sig sjóðandi og brennheitu innihaldinu. Alltof oft hef-
ur það hent að böm hafa stungið sig og hlotið djúp sár á eggjárnum
sem skilin hafa verið eftir í hirðuleysi að aflokinni notkun. Aldrei
er það nógsamlega brýnt fyrir foreldrum að hafa ömggan umbúnað
á opnanlegum gluggum og svalahurðum eða áréttuð þau vamaðar-
orð að láta ekki lyf eða önnur hættuleg efni liggja á glámbekk.
Sacco
sæti unga fólksins bólstraðir
með Pollon. Margir litir.
af fallegum
hlutum hjá
okkur. . .
HIGH REOL V/
Stærðir: B66xH160xD29 Kr. 4.610,-
Stærðir: B66xH104xD29 Kr. 2.990,-
Hvítar — svartar — og margir aðrir hillumöguleikar.
SPEGLASULUR
20x20x50 kr. 1.380,-
20x20x70 kr. 1.670,-
45x45x45 kr. 2.510,-
Maxi speglar
4 stk. í pakka 39,6 x 60 cm
með öllum festingum.
Kr 1.370,- M
UNO SMABORÐ
Fást í öllum litum.
Stærð 55x55 cm.
Verð kr. 1.890,
Svartir — hvítir.
Kollar
Svartir — hvrtir — rauðir.
Verö 1.120,-
stykkið.
húsgagn&Jiöllin
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410
PS
PúAar
í fallegum
litum
Dinty 30x30 200 kr. stk.
Dinty 40x40 300 kr. stk.
Tuft 30x30 350 kr. stk.
Tuft 40x40 650 kr. stk.
Silki 30x30 350 kr. stk.
Silki 40x40 650 kr. stk.
i -