Morgunblaðið - 21.11.1986, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
- en hefur aldrei leikið í 1. deild á íslandi
RÚNAR GuAmundsson er algjörlega óþekktur knattspyrnumaður á
islandi og hefur aldrei leikið f fyrstu eða annarri deild, hvað þá með
iandsliðum. En hann gerði sár iftið fyrir og œfði og lék með hinu
aeimsfraaga félagi Manchester United f sumar - og skoraði gott
íkallamark fyrir llðið í leik gegn Norwich. Rúnar dvaldi einnig hjá
jlasgow Celtic f Skotlandi og lék með þeim tvo leiki. Eftir þessa
aevintýraferð f sumar hefur fyrstudeildarlið frá írlandi og annarardeild-
arlið frá Frakklandi spurst fyrir um hann, og gert tilboð, með atvinnu-
mennsku f huga. Rúnar gerir Irtið úr spádómum um atvinnumennsku
og segist munu bfða sallarólegur eftir frekari fréttum af slfku. En
iiann hefur áhuga á að leika f Reykjavfk næsta sumar.
Rúnar er 23 ára gamall, fæddur
og uppalinn í Víðidal í Vestur-
Húnavatnssýslu þar sem foreldrar
hans búa. Hann fór að leika sér í
knattspyrnu um 10 ára aldur að
undirlagi séra Róberts Jack sem
ar gamalkunnur knattspyrnu-
íhugamaður og sóknarprestur að
Tjörn í Vatnsnesi. „Ég á mína
knattspyrnugetu honum að þakka.
Hann er minn eini eiginlegi þjálf-
ari. Annað er í rauninni sjálflært,
auk þess sem ég tel mig hafa lært
mikið af því að horfa á knatt-
spyrnu," sagði Rúnar í samtali við
Morgunblaðið. Hann hefur leikið
með Ungmennafélaginu Kormáki á
Hvammstanga í fjórðu deild und-
anfarin ár og þjálfaði liðið jafnframt
í sumar. [ eitt sumar lék hann með
Val í öðrum flokki. Það var fyrir 4
árum síðan.
„Það var Róbert Jack sem var
aðal hvatamaðurinn að því að ég
íæri út. Hann hefur verið að tala
um það í mörg ár að sig langaði
il að sýna mig einhverjum liðum.
í vetur var svo ákveðið aö slá til.
Hánn sendi þá Sir Matt Busby,
fyrrum framkvæmdastjóra United,
bréf, og einnig David Hay, fram-
kvæmdastjóra Celtic. Nokkru
seinna komu svarbréf þar sem við
vorum boðnir velkomnir," sagði
Rúnar.
„Við fórum þrjú út - ég, séra
Róbert og unnusta mín, Kristín
Pétursdóttir. Klukkan tíu að
morgni þann þrítugasta júlí mætti
ég svo á æfingasvæöi Manchester
United, sém heitir Cliff. Þar tók á
móti mér Eric Harrison aðstoðar-
þjálfari og hann fylgdi mér til
búningsklefa. Þar stóð ég svo
skyndilega hálf frosin af tauga-
skrekk innan um allar stjörnurnar
sem óg hef fylgst með frá því óg
var strákur. En mór var vel tekið.
Frank Stapleton stóð strax upp,
tók í hendina á mér, bauð mig
velkominn og sagðist tvisvar hafa
komið til íslands - og þótt gaman
þar.
Ron Atkinson og Ken Brown
( rauðum búnlngi númar 9
• Gary Bailey, markvörður Manchester Untted var á hækjum í sum-
ar en gaf sár tíma til að spjalla heilmikið við Rúnar.
stjórnuðu þessari fyrstu æfingu
liðsins eftir sumarleyfi. Hún var
létt, menn gerðu að gamni sínu
og skemmtu sér greinilega vel.
Það var greinilegt á þeim æfingum
sem ég fór á þarna að Stapleton
og Gordon Strachan eru í miklum
metum, því þeir stjórnuðu oft upp-
hitun liðsins og höfðu sig mjög í
frammi á æfingum. Þá þótti mór
mikið til Paul MacGrath koma
bæði sem leikmanns og féiaga.
En bestur þótti mér Jesper Olsen.
Hann er rosalega snöggur og leik-
inn með boltann.
Svo eftir eina æfinguna fékk ég
að vita að fyrirhugaður væri leikur
daginn eftir við Norwich og var
sagt að mæta á æfingasvæðið
klukkan hálf tíu um morguninn. Ég
mætti að sjálfsögðu tímanlega og
var olýsanlega strekktur á taugum.
Ron Atkinson kom inn í búnings-
klefann skömmu áður en leikurinn
átti að hefjast, gaf nokkur fyrir-
mæli og las svo upp liðið. Ég var
númer níu. Liöiö var skipað leik-
mönnum í aðalliðinu og varaliðinu.
Chris Turner var í marki, miöverðir
voru Hogg og Mark Higgins, sem
áður var hjá Everton, Arthur Albist-
on og John Sivebæk voru bak-
verðir, á miðjunni voru m.a. Colin
Gibson og Clayton Blackmore og
í framlínunni voru ég og Peter
Davenport.
Það var stórkostleg tilfinning að
hlaupa með þessum mönnum inn
á völlinn í búningi Manchester
United. Leikurinn var fjörugur og
bæði liðin spiluðu fast. Á þrí-
tugustu mínútu fer Blackmore upp
hægri kantinn og mér tókst að
skalla fyrirgjöfina í netið með því
að kasta mérfram. Þeir komu strax
til mín, sögðu að þetta hefði verið
„great goal" eða frábært mark.
Undir lok leiksins skoraði Paul
Dempsey, ungur leikmaður sem
er að vinna sér sæti í aðalliöinu,
annað mark og við unnum 2:0.
Forráðamenn liðsins sögðu mér
að í flestum tilfellum hefði frammi-
staða mín í þessum leik nægt til
þess að fá reynslusamning að
minnsta kosti í nokkrar vikur, en
þar sem ég er útlendingur í Eng-
landi, og ekki landsliðsmaöur á
Islandi, er nánast útilokað fyrir mig
að fá atvinnuleyfi þar," sagði
Rúnar.
Eftir um tíu daga stórkostlega
dvöl hjá United fóru þau þrju til
Glasgow. Þar æfði Rúnar og lék í
um tvær vikur. „Ég fór þangað
óhræddur eftir dvölina hjá United.
Hjá Celtic er alit talsvert minna í
sniðum, en aðstaðan er engu síður
frábær. Ég fékk að spila tvo æf-
ingaleiki með þeim, þann fyrri með
aöalliðinu gegn varaliðinu. Þann
leik unnum við 5:0 og ég skoraöi
þrjú mörk, Mo Johnstone tvö. Mér
tókst líka að skora eitt mark í leikn-
um með varaliðinu sem við unnum
3:0. En það er sama sagan og í
Englandi. Það kemur í rauninni
ekki til greina að komast á samn-
ing hjá þessum liðum nema vera
landsliðsmaður því aðeins viður-
kenndir landsliðsmenn fá atvinnu-
leyfi með breskum liðum," sagði
Rúnar.
- GA
# Séra Róbart Jack og Rúnar á Parkhead leikvellinum - heimavelli Ceitic
• Rúnar hvítklæddur í miðjum
hóp á æfingu á æfingasvæði
Manchester United. Ef grannt er
skoðað má greina á myndinni
kappa eins og Jesper Olsen, John
Gidman, Frank Stapieton og Pet-
er Barnes.
Rúnar Guðmundsson
Morgunblaðið/RAX
leik með
Manchester
United
Rúnar Guðmundsson:
Skoraði í