Morgunblaðið - 21.11.1986, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
55
Pétur bætir sig mikið
Kúluvarp:
af neinni alvöru undanfarin ár
vegna meiðsla og húsbygginga. Nú
ætla ég hins vegar að setja kraft í
þetta og stefni á enn betri árangur
næsta sumar," sagði Pétur, sem er
húsasmiður og lögregluþjónn.
Framfarir Péturs hafa verið mikl-
ar í ár. Hann varpaði 17,18 metra
fyrir tveimur vikum og 17,89 sl.
laugardag. Bezti árangur hans þar
til í haust var 16,89 metrar. Þeim
árangri náði hann á móti í Alabama
vorið 1983, þar sem hann var vetur-
langt við nám.
„Ég held að Pétur eigi eftir að
ná miklu lengra," sagði Erlendur
Valdimarsson, fyrrum íslandsmet-
hafi í kringlukasti, sem Pétur hefur
haft stuðning af í æfíngum sínum
að undanfömu og keppni. Pétur er
24 ára gamali og ætti að eiga mik-
ið inni í kúluvarpinu. Ýmsir af beztu
kösturum heims í dag eru t.d. marg-
ir um þrítugt.
Til fróðleiks fer hér á eftir árang-
ur tíu beztu kúluvarpara landsins
frá upphafí:
Hreinn Halldórsson, KR 21,091977
Óskar Jakobsson, (R 20,611992
Guðnnundur Hermannsson, KR
18,481969
Eggert Bogason, FH 18,321986
GuAni Halldórsson, KR 17,931978
Pótur GuAmundsson, UMSK
17,811986
Vósteinn Hafstelnsson, HSK
17,351984
ErlendurValdimarsson, (R 17,141969
Pótur Pótursaon, UÍA 17,131980
Gunnar Huseby, KR 16,741950
Pílukast:
^ Fy rsta
íslands-
mótið
FYRSTA íslandsmótið í pflukasti
hefst í dag klukkan 19.30 f Ball-
skák að Skúlagötu 46 meö þvf
aft keppt verftur f riftlum.
Á morgun verður síðan mótinu
fram haldið og hefst þá klukkan
12.30 en úrslitakeppnin verður á
sunnudaginn klukkan 13.
Þaö er til mikils að vinna hjá
þeim sem þátt taka því fyrstu tveir
fá ferö til Lundúna á opna breska
meistaramótið sem þar fer fram
2. og 3. janúar á næsta ári.
Ef til vill mitt síð-
asta keppnishlaup
- segir Sigurður Pétur Sigmundsson
„ÞETTA var ef til vill síðasta
alvöruhlaup mitt sem keppnis-
manns. Ég er tekínn að lýjast á
þvi að æfa eins og nauðsynlegt
er við þau skilyrði, sem íslenzkir
afreksmenn búa við. Fórnar-
kostnaðurinn er orðinn of mikill.
Ég ætla að taka því rólega næstu
vikurnar og hugsa málið," sagði
Sigurður Pétur Sigmundsson,
íslandsmethafi í maraþonhlaupi,
nýkominn úr alþjóðlegu mara-
þonhlaupi á eynni Krít í Miðjarð-
arhafi.
Sigurður sagði að nær útilokað
væri fyrir sig að halda áfram æfing-
um og keppni af fullum krafti með
því að þurfa að sinna brauðstriti
samtímis. Hann sagði nauðsynlegt
fyrir langhlaupara, sem dveljast á
íslandi, að komast helzt tvisvar til
útlanda til æfíngadvalar meðan vet-
urinn er hvað harðastur heima.
Einnig þyrftu þeir að geta tekið
þátt í nokkrum góðum hlaupum
ytra. Félögin og íþróttahreyfíngin
væri þess ekki megnug að styðja
menn nema sem svaraði broti af
tiikostnaði. „Það þurfa því að verða
miklar breytingar á högum mínum,
ef ég á að halda áfram,“ sagði Sig-
urður.
„Ég er þokkalega ánægður með
árangurinn á Krít, varð í sjötta
sæti, en 110 hlauparar frá 11 lönd-
um kepptu í hlaupinu. Átti ég 9.
bezta tímann fyrir hlaupið. Tími
keppenda var hins vegar svolítið frá
þeirra bezta vegna gífurlegs hita.
Brezkur hlaupari að nafni John
Wheway sigraði á 2:22,53, klst. en
hann á 2:15 f maraþonhlaupi. Ég
hljóp á 2:29,31 og varð sjötti og
Sighvatur Dýri Guðmundsson varð
f 22. sæti á 2:50,35 klst. Steinar
Friðgeirsson varð að hætta hlaupi
eftir 32 kílómetra vegna hitans."
ALOHA- mótið:
GR — sveitin
í sjötta sæti
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Pétur Guðmundsson slær hvergi slöku við i æfingum sinum og það
hefur skilað sér i stórum betri árangri í kúluvarpinu að undanfömu.
Sigurður Pétur Sigmundsson i maraþonhlaupinu á Krit. _
Kepptu í maraþonhlaupi á Krít:
SVEIT GR hækkaði sig um sex
sæti á öðrum degi ALOHA golf-
mótsins sem fram fer á Spáni. í
gær láku strákarnir á 153 högg-
um og hafa þvf samtals leikið á
312 höggum og eru í sjötta sæti.
Sveitin er þegar búinn að skjóta
öllum sveitum frá Skandinavíu
aftur fyrir sig og nú eru þeir að
nálgast toppinn en þar ætiuðu
þejr sór að vera f þessu móti.
í gær lék Ragnar Ólafsson best
en hann sló hvíta boltann 76 sinn-
um til þess að koma honum niður
í holurnar 18. Hannes Eyvindsson
notaði einu höggi meira en Sigurð-
ur Pótursson var ekki í essinu sínu
og lék á 82 höggum.
Ragnar lék þrettán holur í gær
á pari, eina lék hann á einu höggi
undir pari, þrjár á einu höggi yfir
pari og eina á tveimur höggum
yfir pari. Fyrri níu holurnar lék hann
á pari, eða 36 höggum, en síðari
níu á 40 höggum.
Hannes fékk einnig 13 pör og
eina holu lék hann einu undir pari
eins og Ragnar. Hann lék tvær
hofur á einu höggi yfir pari og aðr-
ar tvær á tveimur höggum yfir
pari. Hann lék fyrri hringinn á 38
höggum og þann síðari á 39.
Sigurður lék fyrri hringinn vel
og kom þá inn á 37 höggum sem
er einu höggi yfir pari. Það var á
KR og IS
á toppnum
KR og ÍS eru nú í efsta sæti f 1.
deild kvenna í körfuknattleik en
þessi tvö lið hafa hlotið 10 stig.
KR burstaði Grindvikinga í gær
og ÍS komu á óvart með að vinna
ÍBK stórt.
Það voru 18 stig sem skildu ÍS
og ÍBK þegar flautað var til leiks-
loka í Kennaraskólanum í gær.
Stúdínur höfðu þá gert 55 stig en
ÍBK-dömurnar 37. Staðan í leikhléi
var 29:19 fyrir ÍS.
Hafdís Heigadóttir skoraði 10
stig fyrir (S en þær Vanda Sigur-
geirsdóttir, Anna B. Bjarnadóttir,
Kristín Magnúsdóttir og Vigdís
Þórisdóttir gerðu allar 8 stig. Hjá
ÍBK var Anna M. Sveinsdóttir at-
kvæðamest og skoraði 14 stig og
Guðlaug Sveinsdóttir gerði 11 stig.
íslandsmeistarar KR áttu ekki t
erfiðleikum með Grindvíkinga og
þegar upp var staðið hafði KR
skorað 71 stig en UMFG 28 þann-
ig að munurinn var mikill.
„ÉG Á vonandi eftir að bæta
þennan árangur áður en árið er
úti. Það er ekkert því til fyrir-
stöðu að keppa meðan veðrið
leikur við mann,“ sagði Pétur
Guðmundsson í samtali við Morg-
unblaðið, en hann náði sjötta
bezta árangri íslendings í kúlu-
varpi sl. laugardag, varpaði
17,81 metra á kastmóti ÍR.
„Ég hef lítið keppt og ekki æft
• Ragnar Ólafsson lák vel f gær
og ísland er nú í 6. sæti.
14. holu sem það byrjaði að ganga
illa hjá honum og eftir það náði
hann sér ekki á strik. Á 16. braut
fékk hann tvö högg yfir pari og
þeirri næstu lék hann á þremur
yfir pari. Þessi hola er 225 metra
löng par 3 með geysilega erfiðri
flöt og það fékk Siguröur að reyna
í gær. Hann þrípúttaöi en átti að
eiga möguleika á að leika einu
undir pari. Fyrri hringurinn á 37
hjá honum en sá síðari á 45 högg-
um.
Þess má geta hér að þekktur
írskur kylfingur lék 14 holur af 18
í gær á pari en þær fjórar sem
eftir voru lék hann samtals á 12
höggum yfir pari þannig að hann
kom inn á 84 höggum. Greinilega
erfiður völlur ef menn eru ekki al-
veg á boltanum.
Frakkar eru enn efstir og hafa
nú notað 292 högg. Þjóðverjar eru
í öröu sæti með 297, þá Englend-
ingar á 299 höggum, Wales er með
300 högg, Spánverjar á 311 og
ísland og Finnland með 312 högg.
Næstir eru Belgar með 313 og
Norðmenn hafa það einnig en
Svíar eru búnir að nota 314 högg.
Danir léku herfilega í gær en
besti maður þeirra lék á 84 högg-
um og sá versti á 92 höggum og
eru þeir nú í 17. sæti með 332
högg.
Ragnar er í 14. sæti yfir einstakl-
inga eftir fyrstu tvo dagana og
Hannes í því 16. en Sigurður er
komin niður í 28. sæti af þeim 60
keppendum sem eru í þessu móti.
I gær léku (slendingar með
Skotum og Svtum en í dag eru
þeir komnir í næst síðasta rás-
hópinn og leika með Wales og
Spáni.
Luxemborg er í 14. sæti á 326
höggum en í þeirri sveit er íslend-
ingurinn Ingi Jóhannesson. Ingi lék
vel fyrsta dag mótsins en þá not-
aði hann 79 högg en í gær lék
hann á 88 höggum.
• Úrleik ÍSogÍBKf gærkvöldi.
Getrauna-
seðillinn
EFTIRFARANDI leikir eru á
getraunaseðlinum laugardag-
inn 22. nóvember 1986:
Uerdingen — Bayern Munchen
Charlton — Southampton
Chelsea — Newcastle
Coventry — Norwich
Everton — Liverpool
Man. United — QPR
Nottrh Forest — Wimbledon
Oxford — Tottenham
Sheff. Wed. — Luton
Watford — Leicester
West Ham — Aston Villa
Derby — Sheff. United