Morgunblaðið - 09.12.1986, Page 1
96 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
278. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Shultz situr fyrir svörum hjá þing-
nefnd í vopnasölumálinu:
Vissi ekki að féð
fór til skæruliða
Washíngton, AP, Reuter.
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að
hann hefði aldrei verið látinn vita um þá ákvörðun að fá hagnaðinn
af vopnasölunni til írans í hendur skæruliðum í Nicaragua og að
hann hefði vitað sáralítið um vopnasöluna sjálfa. Hefðu sumir hátt-
settir embættismenn farið á bak við sig í málinu. Þeirra á meðal
væri sjálfur sendiherra Bandaríkjanna i Beirút, en hann hefði m.
a. tekið þátt í viðræðum um að láta vopn af hendi í staðinn fyrir
bandaríska gisla þar.
Shultz sagði þetta á opnum fundi
með utanríkismálanefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings, þar sem
hann svaraði spumingum um
vopnasöluna. Sagðist Shultz „ekk-
ert hafa vitað“ um að skæruliðar
hefðu fengið umráð yfir hagnaðin-
um af henni og lýsti sumum þáttum
málsins sem „augljóslega ólögleg-
Mann-
skæð
átök
- milli Honduras
o g Nicaragna
Tegucialpa, AP, Reuter.
í GÆRKVÖLDI hafði dregið
mjög úr bardögum hermanna
Honduras og Nicaragua.
Sagði Hondurasstjóm að 18
af hermönnum hennar hefðu
fallið, en mannfall hefði einn-
ig verið mikið á meðal
hermanna Nicaragua. Hefðu
þeir nú að mestu verið hraktir
frá Honduras.
Stjóm Honduras hélt því fram,
að sandinistastjórnin í Nic-
aragua hefði sent um 700 manna
lið inn í Honduras á eftir skæru-
liðum, sem þangað hefðu flúið.
Samkvæmt beiðni Jose Ascona
Hoyo, forseta Honduras, vom
bandarískar þyrlur fengnar til
að flytja hermenn á vettvang til
að hrekja herliðið frá Nicaragua
til baka. Fullyrt var hins vegar,
að þyrlumar hefðu verið óvopn-
aðar og að engir bandarískir
hermenn hefðu tekið þátt í hem-
aðarátökunum. Hefðu þeir
fengið fyrirskipanir um að halda
sig flarri bardagasvæðinu.
Haft var eftir Ascona, að hann
hefði farið þess sérstaklega á
leit' við Bandaríkjamenn að fá
aðstoð þeirra við flutning á her-
mönnum flugleiðis til vígstöðv-
anna og hefði Reagan forseti
veitt samþykki sitt til þess.
Stjóm Nicaragua neitaði í gær
öllum fregnum um, að her þaðan
hefði farið inn í Honduras, en
staðhæfði, að 7 hermenn og 2
böm hefðu látið lífíð á sunnudag
í loftárásum bandarískra her-
flugvéla á tvö þorp og eina
herbækistöð í Nicaragua.
Shultz kvaðst vera hlynntur ítar-
legri rannsókn í vopnasölumálinu
en lagði jafnframt áherzlu á, að hún
mætti ekki verða til þess að utanrík-
isstefnu Bandaríkjanna út á við.
Nauðsynlegt væri, að halda eðli-
legri starfsemi þar áfram, þar á
meðal tilraunum til að koma á
samningum við Sovétmenn um þau
atriði, sem samkomulag hefði orðið
um á leiðtogafundinum á íslandi í
október.
I gær var skýrt frá því, að Ed-
win Meese dómsmálaráðherra hefði
lagt fram kröfu um að komið yrði
á fót sérstakri óháðri rannsóknar-
nefnd í vopnasölumálinu, líkt og
gert var í svonefndu Watergate-
máli á sínum tíma.
í gær fór svo bandaríska dóms-
málaráðuneytið þess á leit við
svissnesk stjómvöld, að þau léttu
bankaleynd af tveimur bankareikn-
ingum, sein talið er, að hafí verið
notaðir til þess að yfírfæra fé úr
vopnasölunni til skæruliða í Nic-
arag^ua. Báðir þessir reikningar eru
í Credit Suisse, næststærsta banka
Sviss. Stjóm bankans skýrði frá því
síðdegis í gær, að innistaeður á þess-
um reikningum hefðu í reynd verið
frystar á föstudaginn var.
AP/Símamynd
Við styttu heilagrar guðsmóður
Undirbúningur undir jólin er þegar hafínn í Róm eins og svo viða
annars staðar. Mynd þessi var tekin, þegar verið var að koma fyrir
blómsveig á styttu Maríu meyar á Mignalellitorginu í Róm í gær.
Nota varð brunaliðsstiga, því að styttan er 25 metra há.
Vestur-Þýskaland:
Tveir sov-
éskir her-
menn flúðu
vestur yfir
Hannover, Vestur-Þýskalandi. AP.
TVEIR sovéskir hermenn, sem
gegndu herþjónustu í Austur-
Þýskalandi, flúðu til Vestur-
Þýskalands á laugardag, að því
er embættismenn í Hannover
sögðu í gær. Þeir hafa óskað
eftir að fá að flytjast til Banda-
ríkjanna.
Þó að það hafi færst í vöxt að
undanfömu, að austur-þýskir borg-
arar hafi flúið vestur yfír, er það
afar sjaldgæft, að sovéskir hermenn
austanmegin landamæranna hlaup-
ist á brott. Talið er, að um 250.000
sovéskir hermenn séu í Austur-
Þýskalandi.
í yfírlýsingu iandamærayfírvalda
í Hannover sagði, að hermennimir
hefðu tekið sig saman um að flýja
og klifrað yfír víggirðingu á landa-
mærunum í grennd við borgina
Wolfenbiittel, um 300 km suðaustur
af Hamborg, árla laugardags. Hefði
flótta þeirra borið að með svo skjót-
um hætti, að austur-þýskum
landamæravörðum hefði ekki einu
sinni unnist tími til að skjóta að
þeim aðvörunarskotum.
Hermennimir, sem em eistneskir
að uppmna, vom óvopnaðir og
borgaralega klæddir, og siuppu þeir
alls ómeiddir, sagði í tilkynning-
unni. Kemur þessi flótti í kjölfar
frétta í eistnesku æskulýðsblaði um
hálfgerða uppreisn meðal Eistlend-
inga, sem neyddir vom til að vinna
við Chemobyl-kjamorkuverið eftir
slysið þar.
Sovéskir hermenn flúðu síðast til
Vestur-Þýskalands árið 1984.
Stúdentaóeirðirnar:
Franska stjómin aftur-
kallar háskólafrumvarpið
Neyddi Mitterrand Chirac til að láta undan?
París, Reuter, AP.
JACQUES Chirac, forsætisráðherra Frakklands, lét í gær undan
kröfum stúdenta og dró til baka hið umdeilda háskólafrumvarp
stjórnarinnar. í sjónvarpsávarpi síðdegis sagði Chirac, að engar
breytingar á háskólakerfinu, hversu mikilvægar sem þær væru,
væri unnt að framkvæma án víðtæks stuðnings frá öllum þeim
aðilum, sem þær snertu og þá fyrst og fremst stúdentum og kennur-
um.
Chirac kvaðst hafa falið Rene Mon-
ory menntamálaráðherra að heíjast
á ný handa um víðtækar umbætur
í frönskum háskólum, svo að unnt
yrði að koma til „móts við lögmæt-
ar óskir unga fólksins".
Alla síðustu viku fóru stúdenta-
óeirðirnar í París stigvaxandi dag
frá degi. Kom hvað eftir annað til
harkalegra árekstra með stúdentum
og lögreglu og þegar 22 ára gam-
all stúdent, Malik Oussekine, lézt
snemma á laugardagsmorgun eftir
barsmíðar lögreglumanna, náði
spennan hámarki. Lá þá við, að
allt færi í bál og brand í háskóla-
hverfínu í París.
Búist var við, að tilkynning
Chiracs yrði strax til þess að draga
úr óánægju stúdenta. Síðdegis í gær
efndu stúdentar þó enn til fjöl-
mennrar mótmælagöngu í París og
var talið, að um 30.000 manns
hefðu tekið þátt í henni. Báru marg-
ir þeirra svart sorgarband um
handlegginn til þess að minnast
Jacques Chirac
hins látna félaga síns.
Talsmaður Francois Mitterands
forseta sagði í gær, að forsetinn
væri mjög ánægður með ákvörðun
stjórnarinnar og væri hún í „sam-
ræmi við afstöðu forsetans".
Sá orðrómur var á kreiki í París
í gær, að forsetinn hefði tekið af
skarið og neytt Chirac til að láta
undan. Gæti þetta orðið til þess að
draga úr áliti Chiracs á meðal hægri
manna og þannig haft afdrifaríkar
afleiðingar fyrir stjómmálaferil
hans í framtíðinni. Þannig gæti
þetta orðið til þess að draga mjög
úr möguleikum hans í forsetakosn-
ingunum 1988, en hann hefur verið
talinn líklegasti frambjóðandi hægri
manna þar til þessa.
Lionel Jospin, einn helzti leiðtogi
jafnaðarmanna, fagnaði í gær
ákvörðun stjórnarinnar um að aft-
urkalla háskólafrumvarpið, en
Jean-Marie le Pen, leiðtogi Þjóð-
fylkingarinnar, sem er lengst til
hægri, sagði, að Chirac hefði „látið
undan götuvaldinu".