Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Aðventuljós
>
Isvartasta skammdeginu ná stund-
um aðventuljósin ekki að lýsa upp
myrkur veraldarinnar og á sumum
bæjum eiga menn reyndar vart fyrir
aðventukertum. Hugsum til gamla
fólksins er hún Ólína Þorvarðardóttir
sagði okkur frá í Kastljósi síðastlið-
inn föstudag sumt býr hér umkomu-
laust í kjallaraholum án rennandi
vatns eða jafnvel mannsæmandi
hreinlætis og eldunaraðstöðu. Getur
íslenska þjóðin unað því lengur að
þetta gamla og vamarlausa fólk er
hefur reist burðarása velferðar okkar
búi við slíkt myrkur? Mannúðin sigr-
aði í fimmtíutíma lotunni í Garða-
stræti þótt gjáin milli þeirra er hafa
fleytt ijómann af okurvaxtaholskefl-
unni skattfijálsu og láglaunafólksins
er hefir borið uppi verðbólguhjöðnun-
ina hafi fráleitt verið brúuð —
sennileg hefir sjaldan verið breiðara
bil milli ríkra og fátækra á landi
voru en nú í dag. Lítið bara á alla
Bensana, Jagúarana og fl'ögurra
dyra Range Roverana er skjótast
gljáfægðir um götumar? Hinir ríku
græða reyndar hvort sem óðaverð-
bólgan geisar eða okurvextimir, en
sárast þykir mér að horfa uppá
gamla fólkið er hrekst um vamar-
laust á leigumarkaðinum. Gullasni
sá er Lottó nefnist hefði getað hjálp-
að þessu fólki en því miður þeir sem
frekastir em hafa þar náð undirtök-
unum eða 3/4 gróðans. Til allrar
hamingju rataði fyrsti vinningur
Lottósins líkt og fyrir guðlega mis-
kunn til umkomulausrar sjómanns-
ekkju. Blessuð konan var að
sjálfsögðu dregin uppí sjónvarpssal
þar sem þau Bogi Ágústsson og Ölína
Þorvarðardóttir létu spurninga-
hríðina dynja. Fréttamenn mega vara
sig á því að spyija ekki of
ákaft þegar í hlut á fólk sem hefir
nýlega misst ástvin. Syrgjendur
verður að umgangast með varkámi
en vissulega var fréttamönnunum
vandi á höndum.
Aðventuljósin tendrast eitt af
öðm. í Geisla sunnudagsins var rætt
við Kristján Jóhannsson ópemsöngv-
ara. Kristján er jákvæður maður og
bjartsýnn og var hann óvenju hógvær
í spjallinu við Sigurð Hróarsson. Er
annars nokkurt vit í því að hengja
haus þegar menn stefna á La Scala?
Kristján hélt því fram í viðtalinu að
sósíalismi ætti ekki við í listinni...við
verðum að styðja þá sem skara fram-
úr. Athyglisvert viðhorf hjá stór-
söngvaranum Kristjáni Jóhannssyni.
Er nokkurt vit í því að mjatla svona
peninga í formi liststyrkja? Ég segi
fyrir mig að ekki gæti ég með góðri
samvisku kropið fyrir úthlutunar-
nefndum. Og ekki get ég borið mikla
virðinjru fyrir þeim „listamönnum"
er hafa áratugum saman smjaðrað
fyrir úthlutunamefndunum í von um
sporslu. Væri ekki nær að ríkið hætti
að níðast á listinni í formi söluskatts-
heimtu? í Bretlandi þekkist ekki að
skattleggja bækur nema virðisauka-
skatturinn hafi þar gripið í taumana?
Telja Bretar, nánar til tekið 85%
þjóðarinnar, ganga glæpi næst að
skattleggja bækur og að slíkur skatt-
ur jafngildi nánast ritskoðun, sem
er auðvitað alveg hárrétt því hátt
bókaverð veldur því að ungjr og
óþekktir höfundar og svo þeir höf-
undar er ekki fara troðnar slóðir á
ritvellinum og leita ekki eftir lýð-
hylli eiga næsta litla von að komast
á blað.
En kveikjum á enn einu aðventu-
kerti. Síðastliðinn föstudag voru:
Unglingamir í frumskóginum á dag-
skrá ríkissjónvarpsins. Umsjónar-
maðurinn Ami Sigurðsson leitaði
víða fanga í þættinum og kynnti
fyrir alþjóð ungmenni sem fást við
fallhlífastökk, golfs vaxtarrækt, tón-
list og ritstörf. Áma fórst stjóm
þáttarins vel úr hendi og fannst mér
birta til í stofunni er ég horfði á
þetta unga fólk gneistandi af lífsgleði
og vakandi áhuga. Þá fannst mér
leikmynd Bjöms Emilssonar snjöll,
ekki síst hin hljóðræna leikmynd,
fuglakvakið og ómur fnimskógarins.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Rás 1:
Orrustan við
Lepantó
■■■■ í kvöld verður
QQ20 endurtekið leik-
— ritið Orrustan
við Lepantó eftir Howard
Barker í þýðingu Sverris
Hólmarssonar, en leikstjóri
er Jón Viðar Jónsson. Það
var áður flutt sl. fimmtu-
dag.
Leikritið gerist í Feneyj-
um á 16. öld og fjallar um
málarann Galactíu, sem
fær það verkefni hjá ríkinu
að mála geypistórt málverk
af orrustunni við Lepantó.
Hún var háð árið 1571 við
Grikklandsstrendur og
báru Feneyingar og banda-
menn þeirra sigurorð af
Tyrkjum, sem um langt
skeið höfðu ógnað feneysk-
um viðskiptahagsmunum
við austanvert Miðjarðar-
haf.
Til þess er ætlast að
Galactía lofsyngi orrustuna
og sigursæld Feneyjalýð-
veldisins, en það reynist
henni ofviða. I hennar aug-
um eru styijaldir einungis
viðbjóðsleg slátrun og mál-
verkið verður því ekki
annað en afhjúpun á villi-
mennskuy styijalda.
Galactía fylgir sannfær-
ingu sinni eftir af slíku
hugrekki og festu að vald-
höfunum er nóg boðið og
ógnarstjómin sýnir að lok-
um sitt rétta andlit.
Howard Barker er fædd-
ur árið 1946 og er í hópi
fremstu leikskálda Breta
af yngri kynslóð. Orrustan
við Lepantó var frumflutt
í BBC fyrir tveimur ámm
og hlaut í fyrra hin eftir-
sóttu verðlaun Prix Italia.
í helstu hlutverkum em:
Margrét Ákadóttir, Erling-
ur Gíslason, Sigurður
Skúlason, Hanna María
Karlsdóttir, Ámi Tryggva-
son, Róbert Arnfinnson,
Amór Benónýson, Rósa G.
Þórsdóttir og Gísli Alfreðs-
son.
Árni Tryggvason, Hanna María Karlsdóttir, Sigurður Skúlason, Margrét Akadótt-
ir, Erlingur Gíslason og Jón Viðar Jónsson Leikstjóri.
Stöð tvö:
Venjulegt fólk
■■■■ Á dagskrá
QOIO Stöðvai tvö í
kvöld er endur-
sýnd myndin Ordinary
People, eða Venjulegt fólk
eins og hún nefnist í
íslenskri þýðingu. Með
helstu hlutverk fara Mary
Tylor Moore, Donald Suth-
erland og Timothy Hutton,
en leikstjóri er Robert Red-
ford og var þetta fyrsta
kvikmyndin, sem hann
leikstýrði.
Myndin fjallar um
hvemig venjulegt fólk
bregst við áfalli og nýjum
kringumstæðum þegar
fjölskyldumeðlimur fellur
frá.
Myndin fékk Óskars-
verðlaunin árið 1980 sem
besta mynd þess árs og
þótti mönnum það harla
gott hjá Redford, sem ekki
hafði áður fengist við leik-
stjóm, en mál manna var
að það hefði einmitt -verið
hún sem gerði gæfumun-
Kvikmyndahandbók vor
gefur myndinni fjóra og
hálfa stjömu af fimm
mögulegum.
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
9. desember
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. Páll Ben-
ediktsson, Jón Baldvin
Halldórsson og Guðmundur
Benediktsson. Fréttir eru
sagöar kl. 7.30 og 8.00 og
veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegtmál.Guðmund-
ur Sæmundsson flytui
þáttinn.
9.00 Fréttir.
9.03 Jólaalmanakið: „Brúðan
hans Borgþórs", saga fyrir
þörn á öllum aldri. Jónas
Jónasson les sögu sína (7).
Jólastúlkan, sem flettir al-
manakinu, er Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiðúrforustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson-
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Hvað
segir læknirinn? Umsjón:
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miödegissagan:
„Glópagull", ævisöguþættir
eftir Þóru Einarsdóttur.
Hólmfríður Gunnarsdóttir
bjó til flutnings og les (6).
14.30 Tónlistarmaður vikunn-
ar. Eric Clapton.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Suðurlandi. Umsjón: Hilmar
Þór Hafsteinsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.16 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
17.00 Fréttir
17.03 Síðdegistónleikar.
a. „Vilhjálmur Tell", forleikur
eftir Gioacchino Rossini.
Fíladelfiuhljómsveitin leikur;
Eugene Ormandi stjórnar.
b. „Fransiska frá Rimini"
eftir Pjotr Tsjaíkovskí. Cleve-
land-hljómsveitin leikur;
Riccardo Chailly stjórnar.
17.40 Torgiö — Samfélags-
mál. Umsjón: Bjarni Sig-
tryggsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar. Daglegt
mál. Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guömundur
Sæmundsson flytur.
19.35 Lestur úr nýjum barna-
og unglingabókum. Um-
sjón: Gunnvör Braga.
Kynnir: Ágústa Ólafsdóttir.
20.00 Lúðraþytur. Umsjón:
Skarphéöinn H. Einarsson.
SJÓNVARP
jOt
ÞRIÐJUDAGUR
9. desember
18.00 Dagfinnur dýralæknir
(Dr. Dolittle). Áttundi þáttur.
Teiknimyndaflokkur gerður
eftir vinsælum þarnabókum
eftir Hugh Lofting. Þýðandi
Rannveig Tryggvadóttir.
18.20 Fjölskyldan á Fiðrildaey
(Butterfly Island). Annar
þáttur.
Ástralskur myndaflokkur i
átta þáttum fyrir börn og
unglinga um ævintýri á Suð-
urhafseyju. Þýðandi Gunnar
Þorsteinsson.
18.45 Skjáauglýsingarog dag-
skrá
18.60 íslenskt mál
Sjöundi þáttur.
Fræðsluþættir um mynd-
hverf orðtök. Umsjónarmað-
ur Helgi J. Halldórsson.
18.55 Poppkorn
Tónlistarþáttur fyrir táninga
á öllum aldri. Þorsteinn
Bachmann kynnir músik-
myndbönd. Samsetning:
Jón Egill Bergþórsson.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Sómafólk
(George and MikJred).
5. George eignast hjólhýsi.
Breskur myndaflokkur. Þýð-
andi Ólöf Pétursdóttir.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar
20.40 í örlagastraumi
Lokaþáttur. Upp úr hyldýp-
inu.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
21.40 „Til sjóndeildar tíbráin
kvikar"
Þáttur úr ferð sjónvarps-
manna til Súdans fyrir
skömmu, en þar var litast
um i búðum flóttafólks frá
Eþiópíu. (Erítreu og Tigray).
Mynd: Páll Reynisson.
Hljóð: Halldór Bragason.
Umsjón Margrét Heinreks-
dóttir.
22.30 Heimurinn fyrir hálfri öld
4. Harmleikur í Austurlönd-
um.
(Die Welt der 30er Jahre).
Þýskur heimildamynda-
flokkur í sex þáttum um það
sem helst bar til tíöinda á
árunum 1929 til 1940 í
ýmsum löndum. I fjórða
þætti segir frá vaxandi iðn-
aði og hernaðarmætti
Japana og ófriði i Kina. Þýð-
andi Veturliöi Guðnason.
23.20 Fréttir í dagskrárlok.
STOD TVO
ÞRIÐJUDAGUR
9. desemhftr
17.00 Myndrokk. Nýbylgjutón-
list, stjórnandi Timmy.
18.00 Teiknimynd. Gúmmi-
birnirnir (Gummi Bears).
18.30 Morðgáta (Murder She
Wrote). Bandariskur saka-
málaþáttur.
19.30 Fréttir.
19.55 í návígi. Fréttaskýringa-
þáttur í umsjón Páls
Magnússonar.
20.40 Þrumufuglinn (Airwolf).
Bandariskur framhaldsþátt-
ur með Jan Michael Vinc-
ent, Ernest Borgnine og
Alex Cord i aðalhlutverkum.
21.30 Skyndiárás Ulzans (Ulz-
an's Raid). Bandarísk
kvikmynd frá árinu 1972
með Burt Lancaster, Bruce
Davison, Jorge Luke, Rich-
ard Jaeckel og Lloyd
Bochner í aðalhlutverkum.
Gamall indiáni og óharnað-
ur liösforingi stýra herdeild
sem send er gegn árás
Apache-indíána.
23.10 Venjulegt fólk (Ordinary
People). Bandarísk fjöl-
skyldumynd með Donald
Sutherland og Mary Tyler
Moore í aöalhlutverkum.
Mynd þessi fjallar um þá
röskun er verður innan fjöl-
skyldunnar þegar einn
meðlimur hennar fellur frá.
Timothy Huttón leikur hinn
tilfinninganæma unga mann
sem verður fyrir áfalli við frá-
fall bróður síns. Endursýn-
ing.
1.10 Dagskrárlok.
20.40 Iþróttaþáttur. Umsjón:
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson.
21.00 Perlur. Peggy Lee og
Elvis Presley.
21.30 Útvarpssagan: „Jólafrí í
New York" eftir Stefán Júli-
usson. Höfundur les (7).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Leikrit: „Orrustan við
Lepanto" eftir Howard Bar-
ker. Þýöandi: Sverrir
Hólmarsson. Leikstjóri: Jón
Viðar Jónsson. Leikendur:
Margrét Akadóttir, Sigurður
Skúlason, Erlingur Gísla-
son, Arnór Benónýsson,
Rósa G. Þórsdóttir, Ása
Svavarsdóttir, Róbert Arn-
finnsson, Hanna María
Karlsdóttir, Gisli Alfreðsson,
Valdemar Helgason, Rand-
ver Þorláksson, Árni
Tryggvason, Sigurður Karls-
son, Örn Árnason, Jóhann
Sigurðarson, Harald G. Har-
alds, Sverrir Hólmarsson og
Aöalsteinn Bergdal. (Endur-
tekið frá fimmtudagskvöldi).
00.30 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
9. desember
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Barnadagbók
í umsjá Guðríðar Haralds-
dóttur að loknum fréttum
kl. 10, Matarhorniö og get-
raun.
12.00 Hádegisútvarp meö
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Skammtað úr hnefa.
Stjórnandi: Jónatan Garð-
arsson.
15.00 í gegnum tíðina. Þáttur
um íslensk dægurlög i um-
sjá Vignis Sveinssonar.
16.00 Vitt og breitt. Bertram
Möller og Guðmundur Ingi
Kristjánsson kynna gömul
og ný dægurlög.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
989
BYLGJAN
ÞRIÐJUDAGUR
9. desember
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blööin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar.
Afmæliskveðjur, matarupp-
skriftir og spjall til hádegis.
Síminn er 611111.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með þvi
sem helst er í fréttum,
spjalla við fólk og segja frá.
Flóamarkaðurinn er á dág-
skrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar siðdegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson i Reykjavik
síðdpgis. Hallgrímur leikur
tónlist, litur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Þorsteinn J. Vil
hjálmsson kynnir 10 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
21.00—23.00 Vilborg Hall-
dórsdóttir. Vilborg sníður
dagskrána við hæfi ungl-
inga á öllum aldri. Tónlist
og gestir í góðu lagi.
23.00—24.00 Vökulok. Þægi-
leg tónlist og fréttatengt efni
i umsjá fréttamanna Bylgj-
unnar.
24.00—07.00 Naeturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp
lýsingar um veður.