Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
17
þetta væri „metnaðarfull tillaga þar
sem margt væri mjög vel leyst".
Teiknivinnuna taldi hún vera góða
en sjálfur skipulagsþátturinn væri
ekki nógu vel undirbyggður. Hún
sagðist vonast til að orðið yrði við
þeirri frestun sem Alþýðubandalag,
Kvennalisti og Alþýðuflokkur færi
fram á „og að við látum þetta geij-
ast í svartasta skammdeginu og
ijöllum síðan um það með hækk-
andi sól“.
Guðrún Ágústsdóttir (Abl)
sagði andstöðu Alþýðubandalagsins
aðallega vera tvíþætta. Þau væru
andvíg „því mikla niðurrifí gamalla
húsa sem gert er ráð fyrir" og hins-
vegar hvemig umferðarmálin væru
skipulögð.
Hvað varðar gömlu húsin sagði
Guðrún að Aðalstræti 16 skæri sig
þar algjörlega úr „ef rétt væri að
það væri elsta hús í Reykjavík".
Þau teldu að best hefði verið að
skipuleggja nýbyggingar við hlið
gömlu húsanna og þau færð sem
mest í upprunalegt horf að utan.
„Hugmyndir um niðurrif og §ar-
lægingu fjölmargra sögufrægra
húsa úr elsta hluta borgarinnar eru
sorglegar og spuming hvort við sem
nú ráðum ferð höfum leyfí til að
taka svo afdrifaríka afstöðu gagn-
vart komandi kynslóðum", sagði
Guðrún.
Varðandi umferðarmálin sagði
hún m.a.að Alþýðubandalagsmenn
hefðu talið eðlilegra að beina einka-
bflaumferð sem mest frá miðborg-
inni en bæta almenningsvagnasam-
göngur við miðbæinn. Ef þessi leið
hefði verið farin taldi Guðrún að
það hefði getað komið í veg fyrir
„gífurlegan kostnað" við umferðar-
mannvirki.
Bjami P. Magnússon (A) sagði
tillöguna um margt með ágætum
þó ekki væri hann sammáia henni
í öllu.
Hánn spurði m.a. hvort að full-
trúar Sjálfstæðisflokksins og
Pramsóknarflokksins legðu sama
skilning í orðin „að efla og end-
umýja“ og fulltrúar minnihlutans.
Bjami vísaði því á bug að minnihlut-
inn væri að mótmæla deiliskipulag-
inu til þess eins að vera á móti.
„Fólk vill umgangast gömlu húsin
með virðingu", sagði Bjami.
Alfreð Þorsteinsson (F) sagði
að Kvosin myndi drattast niður ef
ekki yrði gert eitthvað í skipulags-
málum hennar. Hann sagðist heyra
á ýmsum að „gera þyrfti átak en
ekki mætti gera átak“. Ekki mætti
rífa skúra eða byggja í skörð „þótt
þau hrópi á vegfarendur vegna ljót-
leika og ósamræmis". Sagði hann
að minna væri talað um af þessum
sömu aðilum að „mörg gömul hús
standa enn í tillögunum og þá helst
þau sem hafa menningarsögulegt
gildi".
Alfreð sagði að í tillögunni væri
tekið tillit til ólíkra sjónarmiða og
reynt að samræma gamalt og nýtt.
Einnig væri það jákvætt að hans
mati að íbúðum í Kvosinni væri
fjölgað. „Ef við viljum lífga Kvosina
við þarf að auðvelda aðgang að
henni".
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði fáar tillögur hafa fengið betri
umflöllun og verið kynntar borg-
arbúum jafn vel. Þær hefðu legið
fyrir vel fyrir síðustu kosningar og
ekki verið faldar heldur efnt til sýn-
ingar á þeim.
Minnihlutann sagði hann sleppa
helstu þáttum skipulagsins en „ein-
blína á örfá hús og tala um tillöguna
sem ákvörðun um niðurrif þessara
húsa“. Davíð sagði tillöguna ekki
vera ákvörðun um slflrt niðurrif.
Slík ákvörðun væri tekin sérstak-
lega og af réttum aðilum. Sagði
hann Guðrúnu Ágústsdóttir vera
að tala gegn betri vitund þegar hún
héldi öðru fram. Ákvörðun vinstri
meirihlutans 1981 hefði þá einnig
falið í sér niðurrif þessara húsa.
Þetta væri skipulagstillaga en ekki
niðurrifstillaga.
Davíð sagði að endumýjuð hús
gætu vel fallið að skipulagstillögun-
um og hús eins og Aðalstræti 16
væri hægt að skoða sérstaklega
þegar að þvi kæmi. Ekki væri verið
að samþykkja eitthvað „heilagt
plagg sem ekki má frá víkja heldur
meginstefnu". Tillagan væri líka
það varfæmisleg að í henni fælist
lítill hvati til niðurrifs.
Davíð sagði Ingibjörgu Sólrúnu
ekki vilja byggja upp miðbæinn
heldur hafa hann eins og „dúkku-
hús“ áfram. Hún „hamaðist" gegn
því að fólk fengi möguleika til að
flytja þangað. Davíð sagði það vera
mikilvægt að fólk fengi greiðan
aðgang að þessum borgarhluta ef
hann „ætti ekki að deyja". Varð-
andi umferðarmálin sagði hann það
vera staðreynd að menn kysu að
koma í einkabflum. Því þyrfti að
byggja bflastæðahús í göngufæri
frá Kvosinni, þannig yrði henni
bjargað.
Kristín Ólafsdóttir (Abl) sagð-
ist nýlega hafa setið ráðstefnu um
miðborgina og mannlíf þar. Á ráð-
stefnunni hefði fjöldi Reykvíkinga
núna fyrst verið famir að velta
skipulaginu fyrir sér. Hún taldi því
að borgaryfírvöld ættu að gefa sér
meiri tíma til að athuga gagnrýni,
taka tillit til hennar og jafnvel út-
búa nýjan valkost í ljósi þess að
Reykvíkingar „væm nú fyrst að
taka við sér“.
Hún sagði fólk hafa verið á því
að þama væri „framsýni á blaði en
vantaði framkvæmdaáætiun til að
koma henni í framkvæmd". Margir
hefðu þó dáðst af viðleitni til að
skapa hlýtt og mannlegt umhverfí.
Árni Sigfússon (S) sagði að
þetta væri viðkvæmur staður og
að tekið hefði verið tillit til ýmissa
gagnrýnisatriða, m.a. ákveðið að
halda nýtingarhlutfalli í lágmarki.
Þetta væri ákjósanleg tillaga sem
nú lægi fyrir.
Aðalatriðið væri að með þessari
tillögu væri bæði verið að varðveita
sögu og menningu bæjarins og
forða miðbænum frá „kaldauða“.
Verið væri að stuðla að því að
byggja upp sérstöðu miðbæjarins.
„Við emm að byggja upp heildar-
mynd sem borgarbúar em sáttir við
og leyfír miðbænum að byggja á
eigin forsendum".
Frá fundi borgarstjórnar á fimmtudag
STJORNUNARNAM
ERLEND NÁMSKEIÐ
UTFL UTNINGS- OG
MARKAÐSSKÓLI
ISLANDS
TÖL V USKOLI/
TÖL VUFRÆÐSLA
MIMIR
NAMSKEIÐ SFÍ
Ritvinnsla er nú fastur liöur I störfum á flestum
skrifstofum. Ritvinnslukerfið WORD er eitt
öflugasta og mest notaóa ritvinnslukerfió
hérlendis. Auk hefðbundinna ritvinnsluaógerða
býöur Word m. a. upp á samruna skjala
„merging", stafsetningarleiðréttingar og
fjölbreyttar útlitsgerðir sama skjals, „style sheet“.
Tilgangur þessa námskeiðs er tvlþættur. Annars
vegar að þjálfa þátttakendur I notkun
ritvinnslukerfisins WORD en einnig aó kenna
uppsetningu skjala og bréfa, með sérstöku tilliti
til þeirra möguleika sem Word þýður uppá.
L Efni:
— Helstu skipanir kerfisins.
— íslenskir staölar.
— Æfingar.
— Helstu skipanir stýrikerfis.
Námskeiðið er ætlað öllum
notendum IBM einkatölva eóa
samhæfðra véla.
Leiðbeinandi er Ragna Siguröardóttir Guðjohnsen,
ritvinnslukennari. Auk þess að hafa kennt notkun fjölda
ritvinnslukerfa hefur Ragna mikla reynslu sem ritari.
Timi: 15,—18. desember, kl. 13.30—17.30.
VIÐ VILJ Ui
Sölutækni 115.-
kl. 9.00—17.00
16. janúar 1987,
Skipulag starfsmannafræðslu
12.—13. janúar, kl. 13.30—17.30
Tollskjöl og verðútreikningur
12.—14. janúar, kl. 9.00—13.00
/ A slöustu arum hefur verðbrefamarkaóurinn a Islandi
/ vaxið hratt en um leið hefur skort töluvert á þekk-
I ingu á eðli þessa markaðar. Á þessu námskeiði um
verðbréfamarkaðinn verður fjallað um fjármögnun I
rekstri fyrirtækja meö útgáfu og sölu verðbréfa og
fjárfestingar einstaklinga og fyrirtækja I verðbréfum, i
markaðssetningu veróbréfa og gerður samanburður |
við aðrar sparnaðarleiðir. m
□ Etni:
— Stefnumótun I fjármagnsupp-
byggingu.
— Mat á fjármagnsþörf.
— Æskileg fjármagnsúppbygging,
meginsjónarmiö.
— Helstu tegundir veröbréfa á inn-
lendum markaöi og helstu form
þeirra erlendis.
— Þáttur veröbréfa (hlutabréfa og
skuldabréfa) I fjárhagslegri upp-
byggingu fyrirtækja, rekstri og
fjárfestingu.
— Tæknilega hlióin: útreikningur
gengis.affalla, ávöxtunar og
annars kostnaöar.
— Tlmaáætlanir viö útgátu og sölu
veróbréfa.
— Skattalegar ivilnanir viö
verðbréfakaup.
- Breytingar á sparifjármarkaóinum og
samanburöur viö ávöxtun sparnaðar I
viðskiptalöndum.
— Samanburóur á núverandi sparnaðar-
formum.
— Starfsemi veröbréfasjóóa.
— Helstu sjónarmiö vió ákvarðanatöku I
verðbréfaviöskiptum: Einstaklingar —
fyrirtæki — stofnanir.
— Kröfur Verðbréfaþings islands —
tengsl við veröbréfasala — tengsl viö
fjölmiðla.
— Avöxtun innlends sparifjár I erlendum
veröbrétum og/eóa erlendum
gjaldeyri.
— Markaóssetning veröbréfa.
Þátttakendur: Námskeiðiö er ætlað starfsfólki I
fjármáladeildum fyrirtækja, fjármálafyrirtækja, opinberra
sjóða og llfeyrissjóða og öllum þeim sem hafa áhuga á
verðbréfa viðskiptum.
Leiðbeinendur verða frá Fjárfestingarfélaginu, Kaupþingi hf.
og Veröbréfamarkaði Iðnaðarbanka undir forystu Gunnars H.
Hálfdánarsonar, Gunnars Óskarssonar, Sigurðar B.
Stefánssonar, Péturs H. Blöndal og Davlðs Björnssonar.
Timi og staður: 15.—16. desember 1986 kl. 13.15 til 18.00
á Hótel Sögu.