Morgunblaðið - 09.12.1986, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur VSÍ:
Yerðbólgan næst örugg-
lega niður á næsta án
Réttur hlutur þeirra sem setið hafa eftir, segir Björn Björnsson hagfræðingur ASÍ
„HÖFUÐATRIÐI þessa samn-
ings er að með honum er verið
að rétta hlut þess fólks sem setið
hefur eftir i launaþróuninni. í
aðdragana þeirra samninga sem
gerðir hafa verið á undanförnum
árum hefur meira verið rætt um
að laga þetta, en það hefur meira
verið í orði en á borði,“ sagði
Björn Bjömsson hagfræðingur
Alþýðusambandsins í samtali,
sem Morgunblaðið átti við hann
og Vilhjálm Egilsson hagfræðing
Vinnuveitendasambandsins, þeg-
ar náðst hafði nýr kjarasamning-
ur. Vilhjálmur sagði að þetta
væri nýtt átak til að staðfesta
þann árangur sem náðist í kjölfar
febrúarsamninganna. Með þeim
væri misræmi í launaþróun leið-
rétt með hækkun lægstu launa
og verðbólgan næðist ömgglega
niður á næsta ári.
Vilhjálmur lýsti samningnum
sem krossferð, frekar en venjuleg-
um launabreytingum, breytingin
væri svo mikil. Hann sagði að þrjú
skilyrði þyrftu að vera til staðar til
að krossferðin tækist: Lítil verð-
bólga þannig að fólk verði vart við
launahækkanimar. Samningamir
séu bundnir til einhvers tíma. Og
að efnahagslegar forsendur í hag-
kerfinu leiði ekki til launaskriðs og
þennslu sem grefur undan samning-
unum. Sagði hann góðar líkur á að
þetta gengi eftir. „Ég efast um að
nokkrir samningar hafí fært lægst
launaða fólkinu jafn stórkostlegar
kjarabætur. Jafnframt er það
tryggt að þær haldist en hverfí
ekki,“ sagði Vilhjálmur.
Aðspurður um efnahagsleg áhrif
samninganna sagði Bjöm: „Á
næstu tveimur til þremur mánuðum
em vemleg verðhækkanatilefni en
það er einnig ljóst að með þeim
takmörkunum sem sett em á opin-
bera þjónustu mun hægja vemlega
á verðbólgunni." Viðurkenndi hann
að viss hætta væri á því að launa-
skrið kæmi í kjölfar samninganna.
Hann sagði þó að hagur launafólks
hefði batnað nokkuð á árinu og
drægi það úr spennunni og það
væri líka eindreginn vilji allra aðila
að þessi samningur yrði til að jafna
hin raunvemlegu kjör í landinu. Það
gerðist ekki öðm vísi en þeir lægst
launuðu fengju meiri hækkanir en
aðrir.
Vilhjálmur sagði að hægt væri
að koma í veg fyrir að launaskrið
væri látið eyðileggja samningana
og væri gert ráð fyrir slíkri stjóm
peningamála við samningsgerðina,
meðal annars með stöðvun erlendr-
ar skuldasöfnunar.
Svar ríkisstjómarinnar um stjóm efnahagsmála og skattamál afhent ái laugardag, f.v. Vilhjálmur Egils-
son, Þórður Friðjónsson efnahagsráðunautur ríkisstjómarinnar og Víglundur Þorsteinsson.
Björa Björasson og Þórarinn V. Þórarinsson fara yfir einhver at-
riði kjarasamningsins skömmu fyrir undirritun hans á laugardag.
Örn og Örlygur:
Þingvallabókin, Reykjavíkur-
bók og íslandsmyndir Mayers
- meðal bóka sem koma út fyrir jól
„Meðal merkustu bóka okkar að
þessu sinni era Ensk-íslensk
skólaorðabók, Plöntuhandbókin,
Þingvallabókin, Reykjavíkurbók-
in og bók um Islandsmyndir
Mayers, svo einungis örfáar séu
nefndar" sagði Örlygur Hálf-
dánarson bókaútgefandi.
Aðventuhá-
tíð í Húsa-
víkurkirkju
Húsavík.
AÐVENTUHÁTÍÐ var haldin í
Húsavíkurkirkju sl. sunnudag.
Kór bamskólans undir stjóm
Hólmfríðar Benediktsdóttur söng
og sömuleiðis Samkór Húsavíkur
undir stjóm Úlriks Ólasonar, kirkju-
organista. Nemendur tónlistarskól-
ans léku á hljóðfæri. Hugvekju
flutti Sigurður Hallmarsson skóla-
stjóri og hátíðinni, sem var fjöl-
menn, lauk með ávarpi hins nýja
sóknarprests, séra Sighvatar Karls-
sonar og almennum söng við-
staddra.
Fréttaritari
í ensk-íslensku skólaorðabókinni
em um 36.000 uppflettiorð og
50.000 orðskýringar, en bókin er
samin fyrir grunn- og framhalds-
skóla. Hörður Kristinsson prófessor
er höfundur plöntuhandbókarinnar,
en í henni er fjallað um alla íslensku
flóruna, einkum þó um 365 aðalteg-
undir. í Þingvallabókinni eftir Bjöm
Þorsteinsson prófessor er flallað um
sögu Þingvalla, náttúmfræði og
staðfræði. Páll Líndal er höfundur
texta í Reykjavíkurbókinni, en rit-
stjóm annast Einar Amalds. Ámi
Bjömsson þjóðháttafræðingur og
Ásgeir S. Bjömsson em höfundar
texta í bókinni „íslandsmyndir
Mayers". „Goð og hetjur í heiðnum
sið“ er alþýðlegt fræðirit um goð-
sögur og hetjusögur. „Iceland
Breakthrough" er samvinnuverk-
efni The Oxford Illustrated Press
og Amar og Örlygs. „Chantis Is-
landais" -íslenskir söngvar, nefnist
bók sem fylgir íslandsmyndum
Mayers. Þá kemur út bókin „Nýtt
líf - meðganga, fæðing og fyrsta
árið.“ Ritstjóri bókarinnar er dr.
David Harvey, en Guðmundur Karl
Snæbjömsson þýddi. Bókin „Lönd
og þjóðir" kemur út í bókaflokknum
Heimur þekkingar. Höfundar em
Arthur Butterfíeld o.fl., Gunnfríður
Hermannsdóttir og Sigríður Stef-
ánsdóttir þýddu.
„Kreppuárin á íslandi" nefnist
fyrsta bindið af þremur um tímabil-
ið 1930—1940, höfundur er Kjartan
Jónasson. „Þorrablót á Islandi" er
heiti bókar eftir Áma Bjömsson
þjóðháttafræðing, en þar fjallar
hann um þorraveislur og þorrasiði.
„Draumar og ráðning þeirra" nefn-
ist bók sem kemur út eftir Geir
Gunnarsson. Ólafur Halldórsson
sendir frá sér bókina „Horfnir heim-
ar“.
„Neró" heitir bók eftir Michael
Grant, sagnfræðing og prófessor í
Edinborg. Þýðandi bókarinnar er
Dagur Þorleifsson. Þá verður 111.
Síðustu
Háskóla-
tónleikarnir
ÁTTUNDU og síðustu Háskóla-
tónleikarnir á þessu misseri
verða í Norræna húsinu miðviku-
daginn 10. desember.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari flytja On This Island
eftir Benjamin Britten og W.H.
Auden.
Tónleikamir hefjast kl. 12.30 og
standa í u.þ.b. hálfa klukkustund.
bindið í bókaflokknum „Landið þitt
ísland“ eftir Þorsteinn Jósepsson,
Steindór Steindórsson og Páll
Líndal endurútgefið með lagfæring-
um og leiðréttingum.
„Bókin um létt vín“ eftir Pamelu
Vandyke Price í þýðingu dr. Ama-
rÓlafssonar er einnig á lista yfir
þær bækur sem gefnar em út fyrir
jólin, en bókin hefur að sögn útgef-
enda verið 5 ár í undirbúningi.
Þriðja og fjórða bindi í bókaflokkn-
um „íslenskir sögustaðir" eftir
P.E.K. Kálund í þýðingu dr. Harald-
ar Matthíassonar íjalla um Norð-
lendingafjórðung og Austfírðinga-
fjórðung og auk þess em í
lokabindinu skrár um menn, staði
og efnisatriði í öllum bindunum fjór-
um. Magnús olafsson borgarlög-
maður hefur safnað efni í bókina
„Alíslensk fyndni". „Matreiðslubók
— 220 gómsætir ávaxta- og berja-
réttir" nefnist bók Kristínar Gests-
dóttur kennara. Ríkisstjóm íslands
gefur út Ríkishandbók Island 1986,
Sigrún Hjálmtýsdóttir.
ritstjóri er Birgir Thorlacius fv.
ráðuneytisstjóri. Öm og Örlygur sjá
um dreifingu bókarinnar. „Við-
skiptaenska" nefnist bók með
málfræðiæfingum og svömm. Höf-
undur er Terry G. Lacy. Þýðandi
Kristín Guðmundsdóttir. „Brúin yfir
Kwai“ er eftir Pierre Boulle, í þýð-
ingu Sverris Haraldssonar. „Setið á
svikráðum" nefnist bók Snjólaugar
Bragadóttur. Ármann Halldórsson
fræðimaður er höfundur bókarinnar
„Hrafn á Hallormsstað og lífíð
kringum hann“. „Frá Halamiðum á
Hagatorg“ nefnist bók Þómnnar
Valdimarsdóttur sagnfræðings.
„Bilin á að brúa“ er síðara bindi
ævisögu Haildórs E. Sigurðssonar
fyrrum ráðherra.
„Á misjöfnu þrífast bömin best“
nefnist ævisaga sr. Emils Bjöms-
sonar I. bindi. Annað bindi ævisögu
Huldu Á. Stefánsdóttur nefnist
„Æska“ og Torfí Jónsson hefur
safnað, þýtt og sett saman bókina
„Spakmæli í gamni og alvöru".
.# \
Anna Guðný Guðmundsdóttir.