Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 42

Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 198G 256 bönium haldið í fangelsi í landinu Jóhannesarborg, Reuter. ^ Jóhannesarborg, LÖGREGLAN í Suður-Afríku til- kynnti i gær að 256 börn á aldrinum 11 til 15 ára sætu í fangelsum í landinu. Börnunum er haldið föngum í samræmi við ákvæði neyðarlaga sem sett voru í júnímánuði. Samkvæmt neyðarlögunum geta stjómvöld látið fangelsa menn án þess að gefin sé út ákæra á hendur þeim. Þetta er í fyrsta skipti sem lögregluyfirvöld láta upplýsingar um ijölda bama í suður-afrískum fangelsum í té. Hafin er herferð í landinu til að fá bömin leyst úr haldi fyrir jól. Ýmsir hópar sem beijast gegn kynþáttaaðskilnaðar- stefnu stjómvalda í Suður-Afríku hafa birt skýrslur þar sem fullyrt er að 1500 til 4000 böm og ungling;- ar séu í fangelsi þar í landi. Talsmaður lögreglunnar lét ekkert uppi um hversu margir unglingar á aldrinum 16 til 19 ára væru í haldi. hnuplara á þessu ári, og er það 100% aukning frá síðasta ári, að sögn Poppletons. Ekki vissi hann, hversu margir hinna kærðu væru úr röðum starfsmanna. Talsmaður M&S-fyrirtækisins, sem hefur orð á sér fyrir að gera vel við fólk í þjónustu sinni, sagði, að tapið af völdum þjófnaðanna kæmi m.a. niður á ágóðahlut starfs- manna. NATO: „Þú skalt ekki stela“ - segir í starfsmannabréfi Marks og Spencer London. AP. BRESKA stórfyrirtækið Marks og Spencer, sem tapar um einni milljón punda (um 58 miilj. isl. kr.) á viku vegna þjófnaða í versl- unum fyrirtækisins, hefur varað starfsfólk sitt, um 56.000 manns, við að gerast fingralangt. John Poppleton, upplýsingafull- trúi M&S, sagði á sunnudag, að fyrirtækið hefði sent út bækling með heitinu í súginn, þar sem starfsfólkinu væri gert ljóst, að tek- ið yrði hart á þjófnuðum af þess hálfu. í bæklingnum kæmi fram, að það tæki verslanir fyrirtækisins, 269 að tölu, heilan mánuð á ári hverju „að vinna upp í tjón af völd- um þjófnaða". Yfir 90% þjófnaðanna eru framd- ir af viðskiptamönnum fyrirtækis- ins, en ekki starfsfólki þess, en Poppleton sagði, að forráðamönn- um M&S þætti sem fyrri áskoranir þeiira til starfsfólksins um að sýna heiðarleika hefði ekki borið tilætlað- an árangur. „Því miður verðum við að auka eftirlitið," sagði hann, „en það er víst alls staðar sama sagan nú um stundir." M&S hafa kært 18.000 búðar- Eldsvoði: 8 börn farast Bamberg.Suður-Karólínu, Bandaríkjun- um; AP. DRENGUR bjargaði þremur börn- um úr brennandi húsi, í Bamberg í Suður-Karólínufylki, í Banda- ríkjunum, aðfaranótt sl. sunnudags, en brann síðan inni ásamt sjö öðrum börnum, er hann var að reyna að bjarga. Bömin sem björguðust voru 4, 5 og 7 ára gömul. Talið er að eldurinn hafi kviknað er bömin fóru óvarlega með bensín við opinn eld. Þau höfðu verið skilin eftir ein í húsinu yfír nótt og hafa þrír full- orðnir, sem taldir em aðstandendur bamanna, verið handtekin sökuð um vanrækslu. Samtök til stuðnings foreidmm þeirra bama sem hafa verið fangel- suð gagnrýndu stjómvöld harðlega í gær og sögðu tölumar sem birtar vom hreinar blekkingar þar eð fjöldi fanga yfir 16 ára aldri væri mun meiri. Adriaan Vlok, dómsmálaráð- herra Suður-Afríku, sagði í gær að bömunum yrði ekki haldið föngum lengur en nauðsyn krefði. Hins veg- ar sagði hann löghlýðna borgara eiga rétt á því að njóta vemdar fyrir þeim sem brytu gildandi lög og skipti þá engu á hvaða aldri afbrotamennimir væm. Kvað hann það sorglega staðreynd að hinir ýmsu hópar öfgamanna hikuðu ekki við að etja bömum upp á móti stjómvöldum. í gær bámst fréttir um að stjóm- völd hygðust láta til skarar skríða gegn stjómarandstæðingum og á- kváðu ijölmargir þeirra að fara huldu höfði. í gær var tilkynnt að öryggisvörður hefði skotið mann til bana og sært konu nærri Höfða- borg. AP/Símamynd Nóbelsverðlaunahafar íStokkhólmi ELLEFU nóbelsverðlaunahafar á sviði efnafræði, eðlisfræði, læknisfræði, bókmennta og hagfræði komu til Stokkhólms um helgina og hófu í gær að flytja fyrirlestra og halda fundi. Nóbels- verðlaunin verða veitt í Osló og Stokkhólmi á morgun. Rithöfund- urinn Wole Soyinka hélt sérstakan blaðamannafund er hann kom til Stokkhólms og sést hann hér ræða við fréttamenn. Elie Wiesel, sem hlaut friðarverðlaunin, kemur til Osló í dag. Aðrir nóbelsverðlaunahafar héldu í gær fyrrlestra fyrir fullu húsi sænsku vísindaakademíunnar. Hún úthlutar verðlaununum. Athyglin beindist þó fyrst og fremst að Nígeríumanninum Wole Soyinka, sem fyrstur Afríkumanna hefur hlotið bókmenntaverðlaunin. Soyinka sagði blaðamönnum við komuna til Stokkhólms að hluti verð- launaflárins, sem hann fengi í hendur, myndi renna til bókmenntaverð- launa í Nígeríu. Reagan vill nýjan yfírmann Evrópuherstjórnariniiar DEILUR eru milli Ronalds Reag- an, Bandaríkjaforseta, og Bemards Rogers, yfirmanns Evrópuhersljómar NATO, um hver eigi að taka við embætti Rogers 1. júlí á næsta ári. Segir breska vikuritið Jane’s Defence Weekly, að ráðamenn í öðmm NATO-ríkjum undrist þessar deilur og sumir þeirra velti því fyrir sér, hver hafi síðasta orðið innan bandalagsins um mál af þessu tagi. Rogers, hershöfðingi, skipar æðsta embætti einnar af þremur yfirherstjómum NATO. Þær eru: Evrópuherstjómin, Atlantshafs- herstjómin og Ermasundsherstjóm- in. Yfirmaður Evrópuherstjómar- innar er jafnan kallaður SACEUR en Atlantshafsherstjómarinnar SACLANT. Rogers hefur sagt, að hann vilji halda áfram að starfa sem SACEUR eftir 1. júlí. Frá Was- hington hafa hins vegar borist þær fréttir, að Reagan hafí hug á að skipa John Galvin, hershöfðingja. Segir Geoffrey Manners, blaða- Bernard Rogers maður Janeá Defence Weekly, að fulltrúar Bandaríkjastjómar hafí óformlega snúið sér til ráðamanna í höfuðstöðvum NATO í Briissel og kannað viðhorf þeirra til Galvins. Formlega kemur það í hlut fasta- ráðs NATO að staðfesta skipun hans eða Rogers. Talsmenn NATO vilja ekki Iáta hafa annað eftir sér en það, að ekki hafí enn verið tekin formleg afstaða til þess, hvort Ro- gers sitji áfram sem SACEUR eða ekki. Sambandið milli Rogers og stjómvalda í Washington hefur verið slæmt um nokkurt árabil. Hershöfðinginn er ómyrkur í máli. Talið er, að soðið hafí upp úr í Washington eftir leiðtogafundinn í Reykjavík. Þá kvartaði SACEUR undan því, að hann hefði ekki feng- ið að fylgjast með viðræðunum í Höfða. Eftir það bámst þau boð frá Washington, að áhugi væri á, að Galvin, sem nú er yfirmaður her- stjómar Bandaríkjamanna í Panama, tæki við af Rogers. Bemard Rogers hefur verið SACEUR síðan 1979. Nú hefur hann sett andstæðingum sínum í Washington stólinn fyrir dymar með því að segja, að hann hafí sótt um að komast á eftirlaun: „Ég hef verið beðinn af NATO að halda áfram, svo framarlega sem forset- inn endurskipi mig og NATO-ríkin vilji hafa mig áfram," segir Rogers. Embættismenn bandalagsins í Brússel hafa ekki getað skýrt, hvað í þessari tvíræðu yfírlýsingu felst. SACEUR er skipaður til tveggja ára í senn og Rogers hefði að öllu jöfnu átt að hverfa úr embættinu 1985. Þá var honum þó falið að starfa enn í tvö ár, eftir að hafa af tæknilegum ástæðum „sagt af sér fyrir aldurs sakir". Það var Reagan, sem bað hann þá að gegna embætti sínu áfram. Rogers er jafn- framt því að gegna störfum á vegum NATO yfirmaður herafla Bandaríkjanna á meginlandi Evr- ópu. Venjuiega þurfa háttsettir bandarískir herforingjar að segja upp með sex mánaða fyrirvara. Þessi regla gildir ekki um Rogers, þar sem hann hefur þegar einu sinni „sagt af sér störfum fyrir aldurs sakir“. Geíöu mvndaalbúm i jolagjof! VerÖ frá kr. 415.- HfíNS PETERSEN HF BANKASTRÆTI4 GLÆSIBÆ AUSTUKVERI S: 20313 S: 8 2590 S:36161
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.