Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
53
//
Sæmundur Nikulásson rafmagnseftirlistmaður sýnir muninn á úti-
ljósaseríum. Á annari er frágangur á perustæðum til fyrirmyndar
en hin er hættuleg og getur leitt út ef vatn kemst að.
Selma Júliusdóttir höfundur bamabóka og spila ásamt nokkrum
nemendum Föndurskólans.
Föndurskólinn gef-
ur út bækur og spil
FÖNDURSKÓLINN hefur gefið
út barnabók eftir Selmu Júlíus-
dóttur, myndskreytta af Marilyn
Herdis Mellk. Skólinn hefur einn-
ig látið útbúa föndurstafaspil
sem hönnuð eru af Selmu.
Spilið er ætlað bömum fjögurra
ára og eldri. „Bömin geta lært staf-
ina og jafnvel að lesa með því að
spila þetta spil og ég iegg áherslu
á mikilvægi leiksins við þetta nám.“
Selma sagðist hafa í huga að gefa
út spil með umferðarmerkjunum,
og kenna bömunum þannig hvað
merkin þýða.
Jámsmiðurinn og kóngulóin heit-
ir bók Selmu, en áður hefur
Föndurskólinn gefið út tvær bækur,
Stúf og Bjúgnakræki, og hafa þær
bækur einnig verið gefnar út á
snældu.
VAKA t } fjrl0afell
Ólafur Jóhann Ólafsson
Höfundur bókarinnar er 24 ára
Reykvíkingur, sem nú kveöur sér hljóös
meö athyglisverðu smásagnasafni. Þaö
er enginn byrjendabragur á þessari
fyrstu bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar,
þvert á mótí bera sögurnar vott um öguð
vinnubrögð og listræna framsetningu.
MÍU lyklar Heiti bókarinnar
gefur vísbendingu um aö
lesandinn finni í bókinni eins
konar lykla aö ýmsum sviðum
mannlegs samfélags, lífsreynslu
og mannlegu eöli. í sögunum
birtast trúverðugar og fallegar
mannlífsmyndir dregnar skýrum
dráttum.
Níu lyklar eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson er tvímælalaust
umtalsvert framlag til
íslenskra bókmennta.
Rafmagnseftirlitið varar við hættulegum lömpum:
Vöruþekkingu fólks á raf-
tækjum er mjög ábótavant
- segir Guðbjartur
Gunnarsson
VÖRUÞEKKINGU fólks á raf-
tækjum er mjög ábótavant hér á
landi og á það sérstaklega við
um ljós og lampa til heimilisnota.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem Rafmagnseftirlit
rikisins hélt og einnig að lampar
eru undanþegnir prófunar-
skyldu, þó þeir séu eftirlitsskyld-
ir, þannig að hægt er að setja
hættulega lampa á markaðinn
án þess að fram fari athugun á
þeim áður
Að sögn Guðbjarts Gunnarssonar
upplýsingafulltrúa Rafmagnseftir-
litsins, er markaðseftirlit stofnunar-
innar ekki mikils megnugt vegna
mannfæðar þó eftirlitsmenn fari af
og til í verslanir. Þetta þýði í raun
að á markaðnum er aragrúi lampa-
tegunda sem Rafmagnseftirlitið
hefur aldrei skoðað eða haft af-
skipti af.
Guðbjartur sagði að munurinn á
vönduðum og óvönduðum lömpum
kæmi fyrst og fremst fram í verði,
því ódýrari lampar hefðu verið gerð-
ir einfaldari og þá oftast á kostnað
öryggisþátta þó útlit þeirra væri
oft svipað og þeirra dýrari. Á mark-
aðnum væru einnig til dæmis
lampar sem höfða til bama, og eru
þá oft i brúðulíki. Auðvelt er að
rífa þessa brúðulampa í sundur og
skoða inní þá og þá er hætta á að
böm fari að skrúfa pemna úr og
fikta í perustæðinu og jafnvel bijóta
peruna. Ef bam tekur svona lampa
með sér undir sæng getur hæglega
kviknað í sænginni út frá hitanum;
sumir þessara lampa em illa hann-
aðir og valtir og plastefnið í þeim
sumun lélegt og þolir ekki hita til
langframa.
Á mörgum raftækjum er að finna
viðurkenningarmerki erlendra próf-
unarstofnuna og í flestum tilfellum
ættu þau að vera nokkuð ömgg
viðurkenning á að varan fullnægi
kröfum um öryggi samkvæmt al-
þjóðlegum reglum. Guðbjartur
sagði að samt sem áður fyndust
dæmi um að framleiðendur, oftast
í fjarlægum heimshlutum, taki slík
viðurkenningarmerki traustataki og
setji á framleiðslu sem standist
síðan engar kröfur. Og þó erlend
viðurkenningarmerki finnist á sum-
um hlutum lampa, t.d. klónni, þurfi
það ekki að tákna að lampinn sjálf-
ur hafi fengið viðurkenningu
nokkurs staðar. Vegna þessa prófar
Rafmagnseftirlitið rafiong hvort
sem á þeim finnast erlend viður-
kenningarmerki eða ekki.
Guðbjartur benti á að á raftækj-
um megi sjá ýmsar merkingar sem
feli í sér upplýsingar um tækið og
þá um leið hve öruggt það er. Þar
á meðal eru merki sem sýna hve
mikinn raka eða vatn tækið þolir,
fyrir hvaða spennu það er gert og
hve mikinn straum það tekur.
Hvatti hann fólk til að skoða vel
þessar merkingar á raftækjum og
þá sérstaklega á lömpum áður en
þeir eru keyptir.
--
Morgunblaðið/Bjarni
Þessír brúðulampar eru faUegir og því freistast börn til að leika
sér með þá en afleiðingarnar gætu orðið hörmulegar.
EINSTAKT SMASAGNASAFN
GOTT fÓLK / SlA