Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
59
Svo bregðast
krosstré...
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
NÝJA BÍÓ: í hæsta gír -
Maximum overdrive ☆
Leikstjóri, saga og handrit
Stephen King. Aðalhlutverk
Emilio Esteves, Pat Hingle,
Laura Harrington, J.C. Quinn,
Yeardley Smith. Bandarísk.
DEG 1986. 100 min.
Stephen King hefur sannað það
rækilega í fjölmörgum metsölu-
bókum á röskum áratug að hann
er enginn meðalmaður í skrifum
hrollvekjandi afþreyingarbók-
mennta. Svo er og komið að búið
er að festa bækur hans flestar á
fílmu og talsverðan slatta af smá-
sögum. Með misjöfnum árangri,
reyndar. En nú fær meistarinn
sjálfur kjörið tækifæri til að sýna
hvers hann er megnugur því í í
hæsta gír hefur hann megin
stjómtaumana í höndum sér;
handrit og leikstjóm.
Efnið er af ættum vísinda- og
hryllingsskáldsagna, einsog von
var á frá þessum bæ. Móðir Jörð
lendir inní áhrifasvæði hala-
stjömu og fylgja hinar ískyggile-
gustu aukaverkanir í kjölfarið.
Tæki og vélar hverskonar taka
uppá því að fara að stjóma sér
sjálfar og gera uppreisn gegn
sköpurum sínum. Áhorfendur
fylgjast með heiminum í hnot-
skum á áningarstað flutningabif-
reiðastjóra í Norður-Karólínu. Þar
lendir hópur manna í blóðugum
útistöðum við hingað til undirgef-
in sköpunarverk sín, maskínur af
öllum hugsanlegum gerðum og
stærðum, sem skyndilega ganga
berserksgang.. .
Ekki bætir King rós í hnappa-
gatið að þessu sinni, því miður
nýtist honum ekki á nokkum hátt
sú snilld sem fengið hefur tug-
milljónir manna til að rífa út
hugsmíðir hans. Ekki vantar að
nóg er um ákeyrslur, spennuat-
riði, sprengingar og blóðsúthell-
ingar, en í slíku magni að þær
verða hvimleiðar. Þá tekst skáld-
inu ekkert betur upp í persónu-
sköpun, þær eru flatar og
litlausar, manni stendur nánast á
sama hvað verður af öllu hyskinu.
Bestu atriðin em í upphafi,
þegar kónginum sjálfum bregður
fyrir í hraðbanka og öngþveitið í
brúnni er allt í senn; æsilegt, fynd-
ið og vel leikstýrt. Uppfrá því fer
myndin dalandi allt til loka. En
við, sem höfum gaman að lipmm
penna Kings, getum þó altént
huggað okkur við að kvikmynda-
vélin tekur ömgglega ekki tímann
frá ritstörfum hans í náinni
framtíð...
Hin
FJÖGUR
FRÆKNU
OG
j UámtQtr. f'tníoHCt
ISJAKINN
Hin 'Í'C'" • -.'Kx&vvj »>*>*<*« OnrtwT *’»•>*» OngB C»«M
HJÖGUR OG ' ■ ^
{FRÆKNU EINHYRNINGURINN j
Nýjar sögur um
hin fjögur fræknu
HIN FJÖGUR fræknu og ísjakinn
og Hin fjögur fræknu og ein-
hyrningurinn nefnast tvær nýjar
bækur sem Iðunn gefur út í
flokki teiknimyndasagnanna um
Hin fjögur fræknu eftir Craen-
hals og Chaulet.
í frétt frá Iðunni segir m.a.:
Ný bók um
félagana fimm
FIMM í fjársjóðsleit nefnist ný
bók eftir Enid Blyton sem Iðunn
gefur út.
í fréttatilkynningu frá Iðunni
segir: „Nú ætla þau félagamir Júlli,
Jonni, Anna, Georgína og hundur-
inn Tommi að eyða sumarleyfínu
sínu í sveit. Og eins og alls staðar
þar sem krakkamir era gerast æv-
intýri. Áður en langt er um liðið
em þau komin í æðisgengið kapp-
hlaup við fégráðuga fomminjasafn-
ara í leit að fólgnum fjársjóði."
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi.
I fyrsta
sinn á Islandi bjóðum við
á Vöruloftinu ellilífeyrisþegum
10% afslátt milli kl. 10 og 12
alla daga.
Gallabuxur
l.eðurjakkar
Skyrtur
Buxur
Peysur
Úlpur
Pilot jakkar
Jogging gallar
Polo treyjur
Sokkar
Nærfatnaður
Barnafatnaður
Sængurverasett
Hversdagsfatnaður á
skrifstofuna, verkstæðið,
hesthúsið eða fjósið.
„Fjórmenningamir láta sér ekki allt
fyrir bijósti brenna f hvers kyns
ævintýmm og viðureignum við
harðsvíraða þrjóta. Þetta em við-
burðaríkar og spennandi bækur sem
öðlast hafa hylli bama og unglinga
um allan heim.“
Bjami Fr. Karlsson þýddi.
Það þarf ekki sporhund til að leita uppi
lágu verðin á Vöruloftinu.
Lítið við í 100 krónu horninu.
Sparaðu þér hlaupin og gerðu
kaupin á Vöruloftinu.
Vöruloftíð
Sigtúni 3, Sími 83075
~s