Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
69
landi. Ekki minnkaði ánægjan,
þegar í ljós kom að um borð var
líka hópur nýstúdenta frá Verzlun-
arskóla íslands. Þessir tveir hópar
sáu um að fagna 17. júní um borð,
nokkuð sem verður ógleymanlegt
okkur öllum; Þama hittust Ám-
heiður og Ágúst Hafberg, síðar
eiginmaður hennar, en þau gengu
í hjónaband 5. júlí 1952. Þeim varð
þriggja bama auðið: Oddný Guðleif
elst.þá Guðmundur Már og yngstur
er Ágúst Friðrik, en öll em þau
uppkomin, gift og búin að stofna
eigin heimili.
Það var alltaf yndislegt að koma
á heimili þeirra hjóna hvort sem var
í Blönduhlíð, Skeiðarvogi eða Ár-
landinu. Allar vorum við umvafðar
hlýju, sem þeim báðum var svo eig-
inleg.
Við emm allar innilega þakklátar
fyrir samvemna með Ámheiði og
biðjum algóðan Guð að styrkja fjöl-
skylduna á sorgarstundu, en
minning um elskaða eiginkonu,
móður, systur, tengdamóður og
ömmu mun lýsa hjörtum ykkar um
ókomin ár. Innilegar samúðarkveðj-
ur til fjölskyldu hennar.
Sofnar drótt, nálgast nótt,
sveipast kvöldroða himinn og sær.
Allt er hljótt, sofðu rótt,
Guð er nær.
Finnlandsfarar
Hún Bibba er dáin, það er erfitt
að horfast í augu við þá staðreynd.
Við getum ekki látið hjá líða að
minnast hennar með nokkmm orð-
um, svo mikils mátum við hana.
Ámheiður Guðný Guðmunds-
dóttir, móðursystir okkar, lézt á
Vífílsstaðaspítala þann 28. nóvem-
ber sl. Baráttan við dauðann var
stutt en ströng. Hún fæddist í
Reykjavík 25. apríl 1929, yngsta
bam hjónanna Maríu Ámadóttur
og Guðmundar J. Guðmundssonar,
sem bæði em látin fyrir fáum ámm.
Systkini Ámheiðar em þau Helga
húsmóðir, búsett í Garðabæ, og
Bragi verkfræðingur, búsettur í
Reykjavík.
Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Ágúst Hafberg framkvæmda-
stjóri. Þau eignuðust 3 böm.
Svo langt sem við munum átti
Bibba, eins og hún ætíð var kölluð,
ríkan þátt í okkar daglega lífi. Hún
var einstaklega vel gerð kona, bjó
yfir mikilli blíðu, jafnvægi og ein-
stakri greiðvikni. Ávallt var það
tilhlökkunarefni þegar við vissum
að hennar væri von í heimsókn að
Bólstað, hún kunni að gleðja aðra.
Ánægjulegar vom skemmtiferðim-
ar sem fjölskyldurnar fóm saman
út fyrir bæinn.
Alltaf var hún boðin og búin að
rétta hjálparhönd þegar eitthvað
stóð til í fjölskyldunni. Þar var hún
ætíð okkar stoð og stytta. Það má
segja að Bibba hafi verið samein-
ingartákn ijölskyldunnar, því til
stuðnings getum við nefnt að hún
notaði hvert tækifæri til þess að
kalla fjölskyldurnar saman.
Heimili hennar og Ágústs stóð
okkur ávallt opið, þangað var ætíð
gott að koma og gott að dvelja.
Engu síðri vom móttökurnar eftir
að fjölskyldumar stækkuðu og
bamahópurinn fylgdi með.
Nú er þráðurinn slitinn, stórt
skarð er höggvið í fjölskyldu okkar.
Það er huggun í harmi að eiga
fagrar minningar um náinn vin og
ættingja. Þá viljum við þakka
Ágústi fyrir hans frábæm ástúð og
hlýju sem hann veitti Bibbu í þeirra
hjónabandi og ekki sízt í hennar
erfiðu veikindum.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
Ágúst og bömin og létta þeim sorg-
ina og kveðjum okkar einstöku
frænku hinstu kveðju, með kæm
þakklæti fyrir allt sem hún var
okkur. Þar mælum við einnig fyrir
munn foreldra okkar, bama okkar
og frændsystkina í Svíþjóð og hér
heima.
Blessuð sé minning hennar.
Systkinin frá Bólstað.
Kveðja frá skólasystrum
Með fáum orðum viljum við
minnast skólasystur okkar, sem
útskrifaðist úr Kvennaskólanum í
Reykjavík með okkur 1947. Þrátt
fyrir að hún hafi ekki gengið heil
til skógar undanfarin ár, kemur
kallið alltaf að óvömm.
Ámheiður Guðný Guðmunds-
dóttir fæddist 25. apríl 1929 í
Reykjavík. Foreldrar hennar vom
María Ámadóttir og Guðmundur
J. Guðmundsson, sem bjuggu meiri
hluta búskapar síns í Laugames-
hverfinu og þar sleit hún bams-
skónum, ásamt eldri systkinum
sínum, Helgu og Braga. Bibba eins
og hún var ávallt kölluð, gekk í
Laugamesskólann og síðan lá leiðin
í Kvennaskólann í Reykjavík, þar
sem frk. Ragnheiður tók okkur
undir sinn vemdarvæng.
Þessi hópur, sem þama myndað-
ist, hefur haldið ótrúlega vel saman
og undanfarin 25 ár höfum við hist
nokkmm sinnum á vetri hveijum.
Bibba starfaði í skátahreyfing-
unni og í einu skátaferðalagi sínu
til Finnlands kynntist hún eftirlif-
andi manni sínum, Ágústi Hafberg,
sem síðan hefur verið hennar
lífsfömnautur. Þau hjónin vom sér-
lega samhent, ekki síst í þeirri
viðleitni að gera heimili sitt að þeim
griðastað, þar sem bæði fjölskyldu
og vinum mætti vel líða.
Þeim hjónum varð þriggja bama
auðið. Elst er Oddný, efnaverk-
fræðingur, gift Hermanni Þórðar-
syni, þau eiga tvö börn, þá
Guðmundur Már landmælingaverk-
fræðingur, giftur Magneu Sverris-
dóttur, þau eiga eitt bam, og
yngstur er Ágúst Friðrik sern stund-
ar nám við Háskóla íslands,
unnusta hans er Guðný Hallgríms-
dóttir. Við viljum biðja góðan Guð
að styrkja Ágúst, bömin og fjöl-
skyldur þeirra.
Það er huggun harmi gegn að
minningin um góða konu og inóður
lifir.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.“
Tvær úr hópnum.
Skuggar feðranna
eftir Kotsjúbinski
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út ástarsögu frá
Úkraínu, Skugga feðranna, eftir
Mykhailo M. Kotsjúbinski í þýð-
ingu Guðmundar Daníelssonar
og Jerzy Wielunski.
Á bókarkápu segir svo um höf-
undinn, söguna og þýðinguna:
„Mykhailo M. Kotsjúbinski
(1864—1913) er frægasta skáld
Úkraínu, en Skuggar feðranna
mun fyrsta ritverk hans sem þýtt
er á íslensku. Sögusviðið er bænda-
byggð í Suðvestur-Úkraínu, í
Karpatafjöllunum. Þetta er ástar-
og bændalífssaga þar sem mikilúð-
ug nátturan leikur jafnstórt hlut-
verk og fólkið sjálft. Stutt er milli
drauma og veruleika, og þó sagan
sé ljóðræn og innileg er hún öðmm
þræði harla váleg. Hún er algerlega
túlkuð frá sjónarhóli hinna frum-
stæðu náttúrubama. Kotsjúbinski
sem var uppreisnargjam föður-
landsvinur blés að frelsisglóðum
kúgaðrar þjóðar sinnar og boðaði
hugsjónina um betra samfélag þar
sem enginn væri ríkur og enginn
fátækur, en hann forðast eins og
heitan eldinn að lita frásögnina eig-
in skoðunum. í alfræðibókum er
hann talinn mesti ritsnillingur Úkr-
aínumanna og sagður ná bestum
árangri í stuttum ljóðrænum sög-
um, svo sem Skuggum feðranna.
Þýðing Guðmundar Daníelssonar
og Jerzy Wielunski er fögur íslenska
og kemur efni sögunnar ágætlega
til skila. Guðmundur telst í hópi list-
rænustu samtíðarhöfunda okkar,
en Wielunski er Pólveiji, skáld og
blaðamaður, einstakur málagarpur
og hefur sér sér í lagi gert sér far
um að nema tungur fámennislanda
og minnihlutahópa eða þjóðabrota
sem innikróuð eru af stómm máls-
amfélögum. Samvinna þeirra félaga
að þýðingunni á Skuggum feðr-
anna virðist snjöll túlkun á frábæm
listaverki."
Skuggar feðranna em 108
blaðsíður að stærð. Fremst í bók-
inni er stutt ritgerð um höfundinn
og söguna eftir Guðmund Daníels-
son. Kápu gerði Sigurður Öm
Brynjólfsson, en bókin er unnin í
prentsmðjunni Eddu.
Barnaskíöi 80-110 cm. Kr: 3.590,00 Svigskíði frá KNEISSL Austurríki
* Unglingaskíöapakki 120-140 cm. Kr: 9.500,00 Skíðafatnaður frá LHUl A Finnlandi.
4 Unglingaskíðapakki 150-170 cm. Kr: 9.900,00 Barnaskiðagallar fra Danmörku og Italíu.
Byrjendaskíði fullorðinna frá Kr: 5.500,00 Skíðahanskar og skíðalúffur fiá Sviþjóö.
Loftpúðaskíðaskór No. 5—11 Va Kr: 6.995,00 Skíðastretchbuxur frá Austumki
Gönguskíðapakki 180-215 cm. frá Kr: 7.200,00
* í pakka eru skídi. stafir, skór. bindingar og asetning