Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Atlaga gegn rokkínu
Hér á þessum stað var ekki alls
fyrir löngu greint frá Frank
Zappa og baráttu hans gegn rit-
skoðunartilhneigingu siðprúðra
kvenna í Bandaríkjunum, en textar
og framkoma einstakra rokkhljóm-
sveita hafa farið mjög fyrir hjartað
á þeim. Þessar hneigingar virðast
berast með leifturhraða um heims-
byggðina og núna síðast berast
fréttir um slfkt ffá Malasíu.
Stjómvöld í Malasíu hafa nýverið
hafíð herför gegn rokki og segja
að markmiðið sé að minnka kynlíf,
eiturlyfjanotkun og ofbeldi. Nú þeg-
ar hefur nefnd á vegum Upplýs-
ingaráðuneytisins samið uppkast
að reglum um hvað skuli vera leyfi-
legt og hvað ekki og verður það
lagt fyrir ríkisstjómina von bráðar.
Aðallega munu reglumar beinast
gegn rokktónlist — sérstaklega
þungarokki — en ekki verður ein-
ungis ráðist gegn söngtextunum,
heldur einnig klæðaburði og hár-
greiðslu rokkstjamanna.
Líklegt er að allt myndrokk verði
grannskoðað af yfirvöldum áður en
það fæst sýnt úi sjónvarpi og telja
kunnugir að fátt muni sleppa í gegn
Morten í A-Ha
auðfúsugestur.
Hætt er við að þessir foringjar fái ekki inni í Malasíu — Mötley
Cruö og Judas Priest.
um nálarauga stjómvalda.
Samkvæmt ráðuneytisstjóra
Upplýsingaráðuneytisins munu ráð-
stafanir stjómvalda beinast gegn
„öllu ofbeldi, siðleysi og klámi"
hvort heldur er í útvarpi, sjónvarpi,
á prenti, hljómplötum, eða öðrum
miðlum. Þá munu auglýsendur
þurfa að athuga sinn gang, því
kynæsandi sýningarfólk, sem ekki
kemur umræddri vöm beint við,
verður ekki leyft.
Þessar ráðstafanir sigla í kjöhfar
banns við rokktónleikum, sem sett
var í september síðastliðnum, en
þá urðu nokkrar róstur á þunga-
rokkstónleikum. — reyndar var
banninu aflétt að hluta á meðan
nefndin var að störfum. en þunga-
rokk er algerlega bannað.
Ekki er enn ljóst hverjar aðgerð-
ir stjómvalda verða, en ljóst má
vera að andstaða gegn rokki er að
magnast í heiminum, ekki síst þeg-
ar litið er til þess að margir tengja
rokktónlist við eiturlyfjanotkun,
fijálsar ástir og ofbeldi, af hveiju
sem það nú stafar.
Hins vegar geta unnendur léttari
tónlistar andað léttar því að afráðið
hefur verið að létt danstónlist ógni
valdakerfinu ekki. Meðal þeirra sem
hafa fengið gæðastimpil stjómvalda
em A-Ha, Wham!, Nolan-systur og
Bítlarnir. Stjómvöldum virðist ekki
alveg kunnugt um að búið er að
leggja niður þijár þessara hljóm-
sveita. Sérstakir andstæðingar alls
hins góða í manninum segja stjóm-
völd hins vegar vera hljómsveitina
Motorhead og er allt henni tengt
því rækilega bannað í Malasíu.
Söngkonan Bonnie Tyler hélt tónleika í Laugardals-
höll á föstudagskvöld ásamt hljómsveit sinni.
Einnig komu fram á tónleikunum hljómsveitimar Rik-
shaw, Skriðjöklar og Foringjamir, en einnig kom
Eiríkur Hauksson fram sem sérstakur gestur Foringj-
anna.
Rúmlega fjögur þúsund unglingar komu í Höllina
og fóm hljómleikamir vel fram þó nokkuð hafi verið
um ölvun á unglingum, að sögn lögreglu. Ekki kom
þó til neinna óspekta.
Tónleikamir hófust kl. 21.00 og stóðu í fjóra tíma.
Það var Íspopp, nýtt umboðsfyrirtæki, sem fékk
Bonnie til landsins og sagði einn af aðstandendum
þess að skipulagning og tónleikahaldið hefði gengið
ákaflega vel fyrir sig. „Stemningin í Höllinni var mjög
góð og Bonnie var mjög hress með tónleikana", en
hún hélt til London snemma á laugardagsmorgun.
Söngkonan var fyrir stuttu á hljómleikaferð í Frakk-
landi og er á Ieið þangað aftur í aðra slíka ferð.
Bonnie Tyler í Laugardalshöllinni.
Morgunblaðið/Bjarni
SIÐASTA SYNINGARHELGI
Nú er síðasta tækifærið að sjá
þessa frábæru skemmtidagskrá
Ladda á Sögu föstudaginn 1 2. og
laugardaginn 1 3. desember.
Miða- og borðapantanir daglega
frá kl. 16—19 í síma 20221.
GILDIHF
fclk í
fréttum
Bonnie Tyler
í Höllinni