Morgunblaðið - 09.12.1986, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
79
á níðræðisaldri
Flýgur
egar dregur að sjötugu fara
flestir að hyggja að rökkri ævi
sinnar og helgum steini að setjast
í. Ekki er málum þó svo farið hjá
Ednu Gardner Whyte, en hún flýg-
ur ennþá daglega og kennir öðrum
að fljúga, þrátt fyrir að hún sé 84
ára gömul!
Til gamans má geta þess að
Edna fæddist 16 mánuðum áður
en Wilbur og Orville Wright flugu
flugvél fyrstir manna. Hún hefur
flogið í 60 ár, en um dagana hefur
hún sagt 4.800 flugnemum til um
hvemig halda eigi um pinnann.
Edna hefur aldrei dregið af sér
og má nefna að sjötug hófst hún
handa við að leggja eigin flugvöll
í Roanoke í Texas, en þar eru nú
þrír flugskólar auk hennar eigin,
flugskýli fyrir 434 flugvélar, en
sjálf á sú gamla 12 stykki.
„Ég er 84 ára og flýg enn á
hveijum degi. Það ætla ég að gera
þar til daginn sem ég dey, enda er
ég viss um að ég hrekk upp af ef
ég bregð mér ekki í háloftin dag-
lega. Ef það er satt sem þeir segja
um englana að þeir fljúgi, nú þá
veit ég hvert ég flýg. — Ég er samt
enginn sunnudagaflugmaður þó ég
sé orðin svona gömul. Ég geri enn-
þá allar kúnstir á rellunni minni.“
Edna byrjaði að fljúga árið 1926,
þá 24 ára gömul, og fékk skírteinið
sitt tveimur árum síðar. „Það var
bölvað vesen, ég þurfti að rífast við
þessa karlskrögga daglega, en þeir
voru vissir um að ég ætti ekkert
erindi utan veggja heimilisins. jEn
í þá daga var mörgum karlmantíin-
um óskiljanlegt að konur gætu verið
með heila. T.d. var prófdómarinn
hálfsmeykur þegar ég átti að taka
prófið og í raun alls ekki viss um
að hann ætti að stíga upp í vélina
með þessum bijálaða kvenvargi."
Þrátt fyrir að Edna hafi selt flug-
völlinn sinn flýgur hún ennþá 900
tíma á ári og kennir nánast dag-
lega. Auk þess flytur hún fyrirlestra
um flug og sýnir. Hún telur hátind
ferilsins vera þegar hún fékk Char-
les Lindberg viðurkenninguna fyrir
ævistarfíð.
„Sumir spyija mig hvemig ég
fari að því að vera í formi. Svarið
er það að meðan viljinn er fyrir
hendi er ekkert ómögulegt. Það er
leyndardómurinn við það að vera
ungur í anda.“
84 ára gömul flýgur hún ennþá 900 tfma á ári og kennir flug.
Þessi mynd var tekin árið 1928 þegar hún Edna Gardner Whyte.
fékk flugprófið.
Aukasýning vegna fjölda áskorana:
ÓMAR RAGNARSSON
og Haukur Heiðar
skemmta matargestum í
allra sídasta sinn
laugardaginn 13. desember.
Skemmtun á heimsmælikvarða.
Ómar hefur aldrei verið betri og flytur
nýja skemmtidagskrá sem enginn verð-
ur svikinn af.
Þríréttaður kvöldverður
Borðapantanir hjá veitingastjóra í síma
23335 alla daga frá kl. 9.00-17.00.
Hljómsveitin
Santos
leikur fyrir dansi
Brautarholti 20 Sími: 23335
SIEMENS
Góð og hagkvæm
þvottavél
• 18 þvottakerfi.
• Sparnaðarhnappur.
•Frjálst hitaval.
•Vinduhraði 600 og 800
sn./mín.
•íslenskur leiðarvísir.
•Gömlu góðu Siemens-
gæðin.
Komið í heimsókn tilokkar:
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
Bókaskápar
Fjölbreytt úrval bókaskápa í ýmsum
viðartegundum og litum
Verð frá kr. 2.535,- stgr.
BÚSTÖFÍfL
Smiöjuvegi 6, Kópavogi simar 45670 — 44544.