Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 281. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Líbanon: Palestínskir skærulið- ar leggja niður vopn Damaskus, Beirút, Trípólí, Tel Aviv, AP og Reuter. SVEITIR Palestínumanna tilkynntu í gær að hafið væri vopnahlé, sem þegar tæki gildi, eftir hörð átök við flóttamannabúðir í Beirút og Suður-Líbanon. Ekki er vitað hvort andstæðingar þeirra, vopnað- ar sveitir amal síta, hefðu samþykkt að virða vopnahléð. Að minnsta kosti 470 manns hafa látið lífið og 1.077 særst síðan átökin brutust út við flóttamanna- KURT Rebmann ríkissaksóknari í Vestur-Þýskalandi sagði alþjóð í gær að búa sig undir aukin hryðjuverk Rauðu herdeildar- innar (RAF). Undanfarin tvö ár hafa útsendarar samtakanna myrt átta manns. Rebmann sagði á blaðamanna- fundi í Karlsruhe að RAF nyti víðtæks stuðnings velunnara sinna. „Það er yfirlýst stefna RAF að hrifsa til sín frumkvæðið og hefja sókn,“ sagði Rebmann. Hann kvaðst ekki geta greint nákvæmlega frá því gegn hverjum árásir Rauðu herdeildarinnar myndu beinast. Þar kæmu til greina menn og stofnanir, sem tengdust stjómmálum, hemum, dómskerf- inu, vopnaframleiðslu og tækni og vísindum. Hann skoraði á ríkisstjórnina að taka til endurskoðunar eftir kosn- ingarnar í janúar hvort ekki ætti að hlífa hryðjuverkamönnum, sem gefa sig yfirvöldum sjálfviljugir á vald, við málshöfðun. búðimar í Beirút og við Maghdous- heh, bæ kristinna manna, 24. nóvember. Stríðið um yfirráð yfír Slíkt ákvæði var fellt úr lögum gegn hryðjuverkum, sem samþykkt voru á þingi í þessum mánuði, vegna ágreinings stjómarflokk- anna. WILLIAM Casey, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), kvaðst í gær hafa byijað að spyrja spurninga um það hverjir hefðu fengið féð, sem flóttamannabúðunum hefur nú staðið í nítján mánuði. Iranar hafa reynt að miðla mál- um milli hinna stríðandi fylkinga og Palestínumennirnir, sem lögðu niður vopn, em hlynntir stjóm Khomeinis erkiklerks. Fatah, stærsti hópurinn innan Frelsissam- taka Palestínu (PLO), átti ekki aðild að vopnahlésviðræðunum. ísraelar gerðu í gær loftárás nærri flóttamannabúðum í norður- hluta Líbanon, sem ar á valdi Sýrlendinga. 15 létustrí árásinni og 22 særðust. Þar á meðal biðu fjórir Líbanar bana þegar sprengja sprakk hálftíma eftir árásina. Talsmaður ísraelshers sagði að árásin hefði beinst að búðum og búnaði palestínskra skæruliða undir forystu Abus Nidal og Abus Mussa. ísraelar hafa gert átján loftárásir á Líbanon á þessu ári. íranir greiddu fyrir vopnasend- ingar, snemma i október. Casey sagði að fyrrverandi skjólstæð- ingur sinn, Roy M. Furmark, hefði þá látið að því liggja að AP/SImamynd Þessi mynd var tekin er vopnuð sveit Palestínumanna lagði niður vopn í bænum Maghdousheh í Libanon í gær. greiðslur fyrir vopn hefðu runn- ið í vasa skæruliða í Nicaragua. Casey virtist þó gera greinarmun á ummælum Furmarks og nánari vitneskju um fynrkomulag vopna- sendinganna: „Ég frétti fyrst af þessu þegar Edwin Meese sagði öllum frá þessu,“ sex vikum síðar. Ungveijaland: Alþjóða- bankinn opnar útibú Washington, AP. ALÞJ ÓÐ ALÁN ASTOFN UNIN mun í næsta mánuði hefja rekstur banka í Búdapest í Ungveijalandi og verður þar með brotið blað í sögu banka- mála þar í landi. Stofnfé bank- ans verður 1 milljarður fór- inta (um 800 milljónir ísl. kr.). Ríkisstjómir 130 landa standa að Alþjóða lánastofnuninni sem er útibú Alþjóðabankans. Hingað til hefur stofnunin ekki annast bankarekstur í kommúnistaríkj- unum þar sem öll fjármálastjóm hefur verið í höndum stjómvalda. Á undanfömum árum hafa Ung- verjar þó gert hvað þeir geta til að laða erlent fjármagn inn í landið í því skyni að auka fram- leiðni og hagvöxt. Casey greindi frá þessu þegar hann kom úr yfírheyrslu fyrir lukt- um dyrum hjá leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Fyrr hafði verið haldið fram að Casey hefði boríð því vitni að Fur- mark hefði 7. október varað sig við því að kanadískir milligöngumenn um vopnasöluna hefðu hótað að greina frá greiðslunum. Heimilda- menn sögðu að nefndarmenn hefðu verið steini lostnir vegna orða Cas- eys, sem bar vitni í gær og fyrradag. Hermt var að 8. október hefði Casey rætt við John Poindexter, sem þá var öryggismálaráðgjafi, um hótun Kanadamannanna. Fabian Ver, fyrrum yfírmaður hersins á Filippseyjum, tók þátt í ráðabruggi um að koma í veg fyrir að George Shultz utanríkisráðherra og Caspar Weinberger vamarmála- ráðherra fregnuðu af vopnasend- ingum til Irans, að því er sagði í dagblaðinu San Francisco Examin- er í gær. Þar var haft eftir embættismanni dómsmálaráðu- neytisins að Ver, sem gegndi embætti undir stjórn Ferdinands Marcosar, hefði ritað nafn sitt á falsaðar móttökukvittanir fyrir vopnasendingum. Saudi-arabíski vopnasalinn og auðkýfingurinn Adnan Khashoggi sagði í viðtali við sjónvarpsstöðina ABC að hann hefði átt frumkvæðið að vopnasölunni. 1. júlí 1985 hefði hann skrifað Robert McFarlane, sem þá var utanríkisráðherra, og boðist til að kynna hann fyrir hóf- sömum öflum í Iran. Utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins: Vilja ræða takmörkun hef ðbundinna vopna Brussel, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins. AÐILDARRÍKI Atlantshafsbandalagsins eru reiðubúin til að hefja viðræður við Varsjárbandalagið um undirbúning samningavið- ræðna um takmörkun hefðbundinna vopna í allri Evrópu, eða frá Úralfjöllum til Atlantshafs. Þetta kemur fram í svokallaðri „Bruss- el-yfirlýsingu um takmörkun hefðbundinna vopna“ sem utanríkis- ráðherrafundur NATO sendi frá sér í gær. Undirbúningsviðræðumar bundnum vopnum og herafla í verða haldnar í Vín þar sem ráð- Evrópu. stefna um öryggi og samvinnu í George Shultz, utanríkisráð- í gær áttu Matthías Á. Mathi- esen utanríkisráðherra og Joe Clark, utanríkisráðherra Kanada, með sér einkafund, þar sem þeir ræddu samstarf Islands og Kanada. Ráð- herrarnir fjölluðu m.a. um leiðir til að vinna gegn sam- tökum er beita ólögmætum aðgerðum til að auglýsa bar- áttumál sín. Evrópu stendur yfír og rætt hefur verið um fækkun herafla í Evrópu í tæp fjórtan ár. Sérstakur starfshópur NATO, sem fjallar um hefðbundinn vígbúnað bæði austan og vestan járntjalds, tók til starfa eftir ráð- herrafund bandalagsins í Halifax fyrir hálfu ári. Fyrsta skýrsla hans var til umræðu á fundinum í gær og var ákveðið að leita leiða til að koma á jafnvægi í hefð- herra Bandaríkjanna, sagði á ráðherrafundinum að ástandið í afvopnunarmálum væri mun betra nú en fyrir tveimur árum. Matthías Á. Mathiesen, ut- anríkisráðherra, situr fundinn ásamt Einari Benediktssyni, sendiherra og fastafulltrúa ís- lands hjá NATO, og Hreini Loftssyni, aðstoðarmanni ráð- herra. Sjá einnig bls. 36. Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir/Símamynd. V estur-Þýskaland: Saksóknari varar við hryðjuverkum Karlsruhe, Reuter. Yfirmaður CIA í yfirheyrslu um vopnasölumálið: Casey hafði spumir af greiðslum til skæruliða - áður en málið komst í hámæli Washington, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.