Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
IBM-Reykjavíkur-
skákmótið:
Þátttakendur
verða tólf
VEGNA mikillar ásóknar er-
lendra skákmanna var þátttak-
endum í IBM-Reykjavíkurskák-
mótinu fjölg'að um tvo. Portich
frá Ungvetjalandi og Polugaj-
evsky frá Sovétríkjunum bætast
í hópinn. Mótið hefst á Hótel
Loftleiðum 18. febrúar.
Skákmennirnir tólf eru: Korchnoi
frá Sviss, Timman frá Hollandi,
Short frá Bretlandi, Ljubojevic frá
Júgóslavíu, Agdestein frá Noregi,
Portisch frá Ungverjalandi, Belj-
avsky og Polugajevsky frá Sov-
étríkjunum og íslenzku stórmeistar-
amir Helgi Ólafsson, Jóhann
Hjartarson, Jón L. Árnason og
Margeir Pétursson.
Sjónvarp
Akureyri
Eyfirska sjónvarpsfélagið hf.,
Sjónvarp Akureyri, hóf útsend-
ingu kl. 20 i gærkveldi.
Útsendingin hófst með ávarpi
sjónvarpsstjórans, Bjama Hafþórs
Helgasonar. Eftir ávarp Bjama var
sýndur þátturinn Allt er þá þrennt
er, síðan íslenski þátturinn Sviðs-
ljós, þá sakamálaþátturinn Miami
Vice og loks kvikmyndin Diner.
Útsending verður ótrufluð fyrst um
sinn. í dag hefst útsending Sjón-
varp Akureyrar kl. 20:30.
Jólalesbók
barnanna
Sendið teikningar,
sögur og ljóð
EINS OG á undanförnum
árum mun Morgunblaðið gefa
út sérstaka jólalesbók fyrir
börn, sem kemur með blaðinu
á aðfangadag jóla.
Böm hafa átt meginhluta efn-
is í jólalesbókinni og eru þau
nú enn hvött til þess að setjast
niður hið fyrsta og senda Morg-
unblaðinu teikningar, sögur,
frumsamin ljóð, gátur, skrýtlur
og þrautir.
Eðlilegt er að efnið tengist
jólunum og hátíðinni, fæðingu
frelsarans, friði á jörð og hvem-
ig við getum glatt aðra. Einnig
getið þið sagt frá jólasveinunum
sem eru að flykkjast í bæinn
um þessar mundir og teiknað
myndir af þeim. Segið frá og
teiknið myndir af því sem ykkur
er efst í huga. Tíminn er naum-
ur og þurfa sögumar, teikning-
amar, ljóðin og allt efni að
póstleggjast eigi síðar en nk.
mánudag 15. desember. Merkið
efni ykkar vel.
Heimilisfangið er:
Morgunblaðið
Jólalesbók bamanna
Aðalstræti 6
101 Reykjavík.
Glæsilegir hátíðartónleikar
Morgunblaðið/RAX
ÞETTA voru glæsilegir hátíðartónleikar,
sagði Jón Ásgeirsson, tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins, um tónleika Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands og Pólýfónkórsins í Hallgrimskirkju
í gærkveldi fyrir troðfullu húsi.
Á efnisskránni var Messías eftir Hándel, flutt af
Pólýfónkómum ásamt Sinfóníuhljómsveitinni undir
stjóm Ingólfs Guðbrandssonar. Einsöngvarar voru
Maureen Braithwaite, Sigríður Ella Magnúsdóttir,
Ian Partridge og Peter Colman Wright. Kirkjan tek-
ur um 1100 manns og hafa verið uppi getgátur um
það hvemig hljómburður sé í henni. Jón Ásgeirsson
sagði líklegt, að enn yrði að gera ýmsar tilraunir
áður en úr því fæst skorið hversu vel kirkjan hentar
til tónlistarflutnings. Hvað svo sem segja má um
hljómburðinn voru tónleikamir glæsilegir í alla staði,
sagði Jón.
Sjá bls. 40: Messías er alltaf nýr.
Sj ómannadeilan
til sáttasemjara
DEILU undirmanna á fiskiskip-
um og Landssambands islenskra
útvegsmanna var í gær vísað til
rikissáttasemjara.
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari, sagði að hann hefði
boðað sáttafund á mánudag kl. 14
með fulltrúum LIÚ og Sjómanna-
sambandsins.
Samið um
sölu Borg-
arspítal-
ans í dag?
EKKI var gengið frá samningi
milli Reykjavíkurborgar og ríkis-
ins um sölu Borgarspítala í gær,
eins og búist hafði verið við. AU-
ar líkur eru á að svo verði í dag.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagði
að hann hefði hitt fjármálaráðherra
og heilbrigðisráðherra að máli í
gærmorgun, en ekki _ hefði verið
gengið frá samningi. Óljóst er hve
hlutur borgarinnar í spítalanum er
stór og sagði Davíð að það yrði
metið, en það tæki 2-3 mánuði.
Rætt hefur verið um að ríkið greiði
hlut borgarinnar með skuldabréfum
til tuttugu ára eða lengri tíma.
Ef samningur næst verður hann
lagður fyrir borgarráð á þriðjudag,
en þar sem ljóst er að hann verður
ekki samþykktur samhljóða þar
verður málið lagt fyrir borgar-
stjómarfund næstkomandi fimmtu-
dag. Samningurinn er ekki gildandi
fyrir borgina fyrr en samþykkt
borgarstjómar liggur fyrir.
I fyrirspumatíma á Alþingi í gær
lagði Ragnhildur Helgadóttir heil-
brigðisráðherra áherslu á þau
sjónarmið að saman færu fjár-
hagsábyrgð og rekstrarábyrgð og
að með kaupum ríkisins á spítalan-
um mætti auka hagræðingu og
spamað í rekstri hans án þess að
það kæmi niður á þjónustu við sjúkl-
inga. Þá hefur ráðherra lagt áherslu
á að tryggt verði að spítalinn verði
áfram sjálfstæð stofnun með sjálf-
stæða stjóm. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins liggja
endanlegar tillögur í þeim efnum
ekki enn fyrir, heldur verður geng-
ið frá þeim í samráði við stjóm
spítalans síðar meir.
Sjá frásögn bls. 44
Útlendingurinn í stofufangelsinu
ákærður fyrir svik í bátaviðskiptum
MAÐURINN, sem nú er í
stofufangelsi á hóteii í
Reykjavík vegna framsals-
kröfu sænskra yfirvalda,
starfaði við bátasölu í
Svíþjóð. Fyrirtækið sem hann
starfaði hjá telur að hann
hafi ekki staðið skil á sölu-
verði báta til þess.
Eins og sagt var frá í Morgun-
Bæjarstjórn Grindavíkur:
Slítum samstarfinu í Heilsugæslustöð
Suðumesja reynist það dýrari kostur
blaðinu í gær var maðurinn
úrskurðaður í gæsluvarðhald í
Sakadómi Reykjavíkur í síðustu
viku. Hann mun vera bandarískur
ríkisborgari, en hefur starfað lengi
í Svíþjóð og hefur oftsinnis dvalist
á íslandi, en þá af persónulegum
ástæðum. Sænsk yfirvöld fóru
fram á handtöku og framsal hans
vegna ákæm um stórfelld flársvik.
Ekki fengust upplýsingar um það
í gær hve háar fjárhæðir er um
\
að ræða. Ástæða þess að mannin-
um er haldið föngnum á hóteli í
Reykjavík er sú að heilsa hans
þykir of bágborin til að hægt sé
að vista hann í Síðumúlafangels-
inu.
Hæstiréttur mun fljótlega úr-
skurða um það hvort skilyrði séu
til framsals, en dómsmálaráðherra
tekur síðan ákvörðun um það
hvort maðurinn verði framseldur.
Grindavík.
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi
að fela bæjarráði að kanna frekar hvort ástæða sé til að hætta sam-
starfi í Heilsugæslustöð Suðurnesja og kalla saman sérstakan fund
bæjarstjórnar ef ástæða þykir til að slíta samstarfinu um næstu
áramót.
Fyrir fundinum lágu fundargerð- hækka um 75% miili áranna 1986
ir frá heilsugæslunefnd Grindavíkur og 1987 og samanburðurinn gaf
sem hefur gert úttekt á samstarfinu fyllilega til kynna að Grindvíkingar
við Héilsugæslustöð Suðumesja og ættu að geta rekið eigin heilsu-
samanburð við heilsugæslustöðvar gæslustöð á hagkvæmari hátt. Á
í nokkrum sveitarfélögum á Suður- bæjarstjómarfundinum kom fram
landi. Var sérstaklega varað við að að búið væri að óska eftir sundurlið-
heilsugæsla í Grindavík muni un á fjárhagsáætlun frá HSS en
þar kemur fram að hlutur
Grindavíkinga verður 3,2 milljónir
á næsta ári. Kr. Ben.
INNLENT
Mjólkrn greidd út í dag
RÍKIÐ lánaði afurðastöðvum í
mjólkuriðnaði 85 milljónir í gær
til að mjólkursamlögin geti greitt
bændum fyrir innlagða mjólk í
nóvember. Einnig lánaði verð-
miðlunarsjóður 50 milljónir í
þessum tilgangi.
Mjólkursamlögin áttu að greiða
bændum fyrir mjólkurinnleggið
þann 10. desember, en þau töldu
sig ekki geta staðið við greiðslumar
vegna fjárskorts, einkum vegna
ófrágengins uppgjörs á milli ríkis-
ins, bænda og afurðastöðvanna
vegna framleiðslu mjólkur á síðasta
verðlagsári. Varð að samkomulagi
að samlögin fengju umrædd lán
fram yfir áramót til að leysa vand-
ann á meðan gengið er frá endan-
legu uppgjöri. Fleiri ráðstafanir
voru gerðar og geta bændur átt von
á peningum sínum í dag.