Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 3

Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 3 Berglind Bjarnadóttir Berglind Bjarnadótt- ir látin BERGLIND Bjarnadóttir söng- kona lést á Landspítalanum síðastliðinn miðvikudag, eftir langvarandi veikindi. Hún var 29 ára gömul. Berglind var fædd í Hafnarfírði 6. apríl 1957, dóttir hjónanna Fríðu Ásu Guðmundsdóttur og Bjarna Ólafssonar. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla og stundaði söngnám frá unga aldri. Árið 1979 fluttust hún tii Svíþjóðar ásamt eig- inmanni sínum, Rúnari Matthías- syni sálfræðingi, og bjó lengst af síðan í Stokkhólmi og stundaði söngnám og kennslu. Berglind hélt nokkra hljómleika hér heima og í Svíþjóð og var þekkt fyrir þátttöku sína í söngflokknum „Lítið eitt“. Kjóll kr. ■ 1.490,- Eyrnaskjól . kr. 250,- Gamosíur .. kr. 850,- Belti kr. 590,- Peysa kr.Z >.490.- Buxur kr.Z >.790,- KARNABÆR unglingadeild Austurstræti 22 sími — 45800 ♦ Opið til kl. 18 á morgun laugardag. Nokkrir sýna áhuga á gras- kögglaverk- smiðjunum NOKKRIR aðilar hafa sýnt áhuga á að kaupa þær þrjár gras- kögglaverksmiðjur rikisins sem auglýstar hafa verið til sölu. Heimamenn á öllum stöðunum hafa sýnt áhuga og fleiri. Til dæmis hefur þýskur aðili sýnt áhuga á að kaupa grasköggla- verksmiðjuna í Flatey í Horna- firði. Mun hann hafa í huga að reka þar hestabú og flytja gras- köggla út til Þýskalands. Graskögglaverksmiðjumar sem ríkið ætlar að selja eru: Fóðuriðjan í Saurbæ í Dölum, Stórólfsvallabúið við Hvolsvöll og graskögglaverk- smiðjan í Flatey í Hornafirði. Tilboðsfrestur rennur út 15. janúar næstkomandi og hafa engin tilboð borist enn sem komið er. Sumir af þeim sem áhuga hafa sýnt á rekstri verksmiðjanna hafa orðað leigu verksmiðjanna eða kaupleigu. Nokkrir menn í Rangárvallasýslu eru að kanna undirtektir bænda og fyrirtækja þeirra á Suðurlandi fyrir kaupum á Stórólfsvallabúinu. • Magnús Finnbogason á Lágafelli staðfesti þetta í samtali í gær. Hann sagði að einungis væri verið að leita að grundvelli til kaupa, og ekki byijað að safna hlutafé. Hann sagði að draumur sinn væri að mynda öflugt almenningshlutafélag um kaupin og sagðist vera með hugmyndir um breytingar á rekstr- inum með tilliti til markaðsað- stæðna í kögglaframleiðslunni, meðal annars með því að leggja aðaláherslu á fóðurblöndun. Fleiri aðilar hafa sýnt áhuga á kaupum verksmiðjunnar á Hvolsvelli, til dæmis fiskeldismaður sem mun hafa hug á að framleiða þar fiska- fóður. Föt .............. kr. 9.450.- Skyrta ........... kr. 1.690.- Bindi ............ kr. 550.- Skyrta ........... kr. 1.690.- Peysa ............ kr. 2.190.- Bindi ............ kr. 550.- NÝ OG BETRI BÚÐ Bonaparte L Austurstræti 22 ----—a—

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.