Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 I i I Skriðuföll í Hrafnkelsdal: Aurskriða hreif með sér heyvinnutæki og braut gat á hlöðuvegg HEIMILISFÓLK á bænum Aðalbóli í Hrafnkelsdal flúði hús eftir að nokkrar aurskriður höfðu fallið úr fjallinu Fjallkolli fyrir ofan bæinn á miðvikudag. „Aurskriðurnar komu úr lækjum fyrir ofan bæinn sem hafa verið að fyllast af snjó undanfarna daga,“ sagði Kristrún Pálsdóttir sem býr á Aðalbóli ásamt þremur bræðrum sínum. „Við vissum að einn lækurinn ætti eftir að tæma sig og töld- um réttara að forða okkur. Því héldum við til í vörubíl fyrir neðan bæinn frá því klukkan fjögur til átta um kvöldið." Kristrún sagði að mikil úrkoma hefði verið að undanfomu og mæld- ist rigningin 23 mm á miðvikudag. Lækir í hlíðinni fyrir ofan bæinn hefðu verið að safna í sig töluverð- um snjó. Þegar vatn jókst í þeim brustu allar stíflur og aur og bleita skreið fram með þessum afleiðing- um. Ein skriðanna hreif með sér traktor, baggavél, múgavél og hey- þyrlu. Önnur lenti á hlöðunni fyrir ofan bæinn þar sem hún braut gat á útvegg. „Við vorum raunar búin að taka alla bagga frá veggnum svo að skriðan skemmdi ekki hey. Bræður mínir hafa staðið í því í dag að moka aumum út,“ sagði Krist- rún. „Við höfum lítið kannað hvort skemmdir hafí orðið á heyvinnu- tækjunum. Traktorinn slapp vél, baggavélin stendur upp á rönd hér í túninu en múgavélin er á kafí í aur og krapi.“ Kristrún taldi ekki væri hætta á að fleiri skriður féllu í Hrafnkelsdal að þessu sinni. „Það virðist sem að allir skomingar séu búnir að hreinsa sig. Það er eins og hver einasti lækur í dalnum hafí skvett úr sér, aurspýjumar liggja niður eftir öllum hlíðum og yfír veginn á nokkrum stöðum,“ sagði hún. A bænum Vaðbrekku sem er utar í Hrafnkelsdal féll aurskriða sem stöðvaðist nokkru fyrir ofan bæinn en olli engum skemmdum að sögn Kristrúnar. Hún sagði að sér vitanlega hefðu slík skriðuföll ekki áður orðið í Hrafnkelsdal. VEÐURHORFUR IDAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Á Grænlandshafi er 965 millibara nærri kyrrstæð lægð og þaðan lægðardrag norðaustur um Grænlands- sund. Um 800 km suösuðaustur af Hvarfi er vaxandi 975 millibara djúp lægð á hreyfingu norðaustur. SPÁ: Útlit er fyrir hvassa austanátt um allt land með rigningu eða slyddu, einkum á suður- og austurlandi. Hiti á bilinu 2 til 6 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: LAUGARDAGUR: Áframhaldandi umhleypingar með suðvestanátt og éljagangi suðvestanlands en þurru veðri noröaustanlands. Hiti nálægt frostmarki. SUNNUDAGUR: Hvöss suðaustanátt og rigning um mest allt land. Hiti á bilinu 3 til 6 stig. TÁKN: Heiðskirt a m Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. f r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Siydda r * r * * * * Snjókoma * * * ■|0O Hrtastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * . . V El = Þoka = Þokumóða » , ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður F W' * . VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hhl veður Akursyrl 2 hálfskýjað Reykjavik 1 snjóól Borgen 6 alskýjað Helslnki 0 skýjað lan Mayen 2 þokumóða Kaupmannah. 6 þokumóða Narssarssuaq -13 snjókoma Nuuk -11 léttskýjað Osló —3 þoka Stokkhólmur 1 lóttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Algarvo 14 skýjað Amsterdam vantar Aþena 10 skýjað Barcelona 12 heiðskfrt BorKn 6 þokumóða Chlcago -9 helðskfrt Glasgow 8 skýjað Feneyjar 6 jtokumóða Frankfurt 4 skýjað Hamborg S þokumóða Las Palmas 21 léttskýjað London 8 rigning Los Angeles 8 heiðskfrt Lúxemborg 3 léttskýjað Madrfd 4 mlstur Malaga 15 helðskfrt Mallorca 16 skýjað Miaml 25 léttskýjað Montreal -8 alakýjað Nlce 14 heiðskfrt NewYork 1 alskýjað Parfs 6 skýjað Róm 14 þokumóða Vfn -1 slydda Washington 2 fskom Wlnnlpeg -18 snjókoma Lækirnir fyrir ofan Aðalból hafa grafið djúpa skorninga í hlíðar fjallsins. í þeim hafði safnast fyrir aur og krap sem skreið fram með látum þegar flóð kom í lækina í úrhellinu á miðvikudag. Morsfunblaðið/Auðunn Einarsson Aðalból, innsti bær í Hrafnkelsdal. Brattar hlíðar Fjallkolls eru fyr- ir ofan bæinn, þaðan runnu aurskriðumar á miðvikudag. Siglufjörður: Smygl í Hofsjökli TALSVERÐUR smyglvam- ingur fannst á Siglufirði á mánudag og þriðjudag og var varningurinn rakinn til skip- veija á Hofsjökli. Á mánudag fundu löggæslu- menn á Siglufírði nokkuð magn af vodka og tvö myndbands- tæki. Þá hafði vamingurinn verið fluttur úr Hofsjökli sem lá við bryggju. Morguninn eftir hélt skipið til Akureyrar, en siglfírsk yfirvöld grunuðu nokkra menn í bænum um að hafa meira af smyglvamingi undir höndum. Á þriðjudag fannst síðan meira vodka og bjór og hafa fjórir skipveijar á Hofs- jökli viðurkennt að hafa smyglað þessu til landsins. Alls var um að ræða um 400 flöskur af vod- ka og 8 kassa af bjór, auk myndbandstækjanna. Athugasemd Óli Kr. Sigðursson hefur vegna fréttaskýringar í Morgunblaðinu í gær um Olís óskað eftir að koma eftirfarandi á framfæri: „Ég hef aldrei rekið fyrirtæki sem heitir Finnsk-íslenska, eins og haldið er fram í fréttaskýringunni, og ekkert fyrirtæki á mínum vegum hefur orðið gjaldþrota." óli er beðinn velvirðingar á þess- um mistökum. Olís og ísbjörninn í fréttaskýringu í viðskiptablaði Morgunblaðsins i gær um Olís var sagt að skuld ísbjarnarins við Olís hafi numið 130 til 150 milljónum króna og verið breytt í hlutafé í Granda þegar ísbjöm- inn og BÚR voru sameinuð. Hið rétta er að skuldin nam um 80 milljónum og þar af var 30 millj- ónum breytt í hlutafé Olís í Leiðrétting VIÐ birtingu greinar Valdimars Kristinssonar, “Innlegg í umræðu dagsins", sem birtist í Morgun- blaðinu í gær, féll niður kaflafyrir- sögn á fyrri hluta greinarinnar en sá kafli bar heitið: Miðbærinn úr öskustónni. Jafnframt féll niður birting tilvitnunar í þann kafla, sem var svohljóðandi: “Loksins á að fara að reisa Miðbæinn úr öskustónni eftir meira en hálfrar aldar stöðn- un. Unnið hefur verið vel að málinu af færustu mönnum og samræmd sjónarmið nýs og gamals tíma.“ Þetta leiðréttist hér með. Granda. Mestan hluta eftirstöðv- anna yfirtók Grandi en lítill hluti varð eftir sem skuld ísbjarnarins við Olís og er innifalin í þeirri 15—16 milljón króna skuld fyrir- tækisins við Olís sem segir frá í greininni. Þá mátti einnig skilja á greininni að þeir bræður Jón og Vilhjálmur Ingvarssynir hefðu báðir verið í stjóm Olís eftir „hallarbyltinguna" 1981. Því skal tekið fram að það voru þeir feðgar Ingvar Vilhjálms- son og Vilhjálmur Ingvarsson sem sátu í stjóminni á þessum tíma en Jón Ingvarsson tók sæti í stjóminni fyrst síðastliðið vor. Að söpi Jóns Ingvarssonar koma aldrei til greina af hálfu þeirra bræðra að selja hlut sinn í félaginu - amk. ekki á því verði sem óli Kr. Sigurðsson greiddi fyrir meirihluta hlutafíárins. Þessu er hér með komið á fram- færi og beðist velvirðingar á missögnum. Björn Vignir Sigurpálsson Óli Björn Kárason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.