Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 Uppselt Itakt við tímann var að venju í umsjón þeirra Elísabetar Sveins- dóttur, Jóns Hákonar Magnússonar og Ólafs Haukssonar. í þættinum var að ríkulega kneyfað af tónlistar- brunninum og lyfti sannarlega huganum að sjá Jón Hákon í Lang- holtskirkju þar sem Jón Stefánsson söngstjóri æfði kórinn. Gaman að sjá hversu áhuginn getur lyft fólki í fang tónlistargyðjunnar en mikið og óeig- ingjamt starf er unnið í kirkjum lands vors og vissulega stendur kór Langholtskirkju þar framarlega í fríðum flokki. Þeir nafnamir náðu og vel saman í kirkjunni og er ætíð gleðilegt að sjá sjónvarpsmenn ná áttum . Menn eiga bara að vera þeir sjálfir fyrir framan sjónvarpsvélam- ar í stað þess að eltast við hann Ómar Ragnarsson. En ekki létu stjómendur fyrr- greinds sjónvarpsþáttar staðar numið síðastlið miðvikudagskveld við hina kirkjulegu tónlist. Ólafur Hauksson kvaddi til Eirík Hauksson kennara og söngvara en Eiríkur hef- ir að undanfömu gert það gott á jólaplötumarkaðinum með dyggum stuðningi nemendanna. Er svo sem ekkert við þvi að segja þótt kennarar freistist til að þyngja pyngjuna svona rétt fyrir jólin og vafalust þykir krökkunum bara gaman að syngja inná jólaplötuna hans Eiríks. En svo mætti Ólafur Hauksson á vettvang með sjónvarpsmyndavélamar. Platan hans Eiríks er spiluð og nokkmm krökkum sópað útúr Tjamarskóla á ísilagða Tjömina þar sem þau sprikla í takt við hinn fslenska bamakenn- ara. Hvílík auglýsingamennska eða telja menn við hæfi að íslenskir gmnnskólanemendur séu notaðir til að selja jólaplötur? Vafalaust er Friedman blessaður harðánægður með þessa þróun en hvað um for- eldra bamanna og skólayfírvöld að ekki sé talað um yfirstjóm sjón- varpsins? Em þáttastjómm engar skorður settar hvað varðar auglýs- ingamennsku? Jólasaga En víkjum nú spönn frá hröngli jólamarkaðarins er senn frýs saman þannig að hvergi verður þverfótað fyrir glingrinu . í Bók bókanna Jó- hannesarguðspjalli 8.54 segir Krist- ur: Ef ég vegsama sjálfan mig.er vegsemd mín engin. Þessu virðist þveröfugt farið á hinum íslenska jóla- markaði. Þeir rithöfundar er hafa hæst seljast og auglýsingameistar- amir lofa áræðni listamannanna. Hinir hógværa er vilja snerta lesend- ur með listinni einni saman hverfa í skuggann. Hljóönar að kveldi Einna hæst lætur í auglýsinga- meisumnum á Bylgjunni en þó hljóðnar sá kliður er liður að kveldi. Tökum sem dæmi síðastliðið mánu- dagskveld er hún Vilborg Halldórs bauð Gunnlaugi Guðmundssyni stjömuspekingi til skrafs og ráða- gerða en Gunnlaugur var með stjömukort Bylgjunnar í farteskinu. þótti mér merkilegust greining Gunnlaugs á Einari útvarpsstjóra sem hann kvað hinn mesta ná- kvæmnismann.harðstjóra og stöðugt í leit að fullkomnun. Er greinilegt að Einar hefir til að bera ríkulega leiðtogahæfíleika. Nú og svo var hún Vilborg býsna lipur við að veiða leyndardóma stjömuspekingsins oní hlustendur. Að afloknum þætti Vil- borgar hófust Vökulok Bylgjunnar notalegur fréttatengdur þáttur sem allajafna er í umsjón fréttamanna. Sigmar B. á hér síðasta orðið. í gærmorgun á Rás 2 lýsti hann rann- sóknum sænsks jólagjafadósents (cand merc) á jólagjafavenjum Svía er leiddu í ljós að 73% jólagjafanna missa marks og í öðm lagi komst jólagjafadósentinn að þeirri merki- legu niðurstöðu að blessuð Jólin séu stöðugt að lengjast. Þá vitum við það. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP Rás 2: Tónlistar- krossgátan Á sunnudag 1 f;oo verður Jón ■*■ Gröndal með tónlistarkrossgátu sína að venju og er þetta sú 67. í röðinni. Jón leggur einfaldar tón- listarspurningar fyrir hlustendur, leikur lög og spyr um flytjendur þeirra, höfunda eða annað þeim tengt. Þá leggur hann gát- ur fyrir hlustendur, en þær má ráða af textum lag- anna. Lausnir kossgátunnar skulu sendar til Tónlistar- krossgátunnar og heimilis- fangið er: Ríkisútvarpið Rás 2, Efstaleiti 1, 108 Reykjavík. Stöð Tvö: Skriðdrekinn ■H í kvöld er á 05 læstri dagskrá Stöðvar tvö myndin „Skriðdrekinn“ eða Tank eins og hún nefnist á ensku. Myndin fjallar um skriðdrekaforingja nokk- urn, sem James Gamer leikur, en sá er hörkutól mikið. Skriðdrekaforinginn á son, en sá verður svo óheppinn að fá sveitalög- reglustjóra nokkurn upp á móti sér. ímugustur lög- reglustjórans verður slíkur að hann handtekur strák- inn og stingur honum inn á fölskum forsendum. Eng- in leið reynist að fá kauða úr haldi, svo pabbi gamli grípur til eina ráðsins sem hann kann. Hann fer á fjöl- skyldu-skriðdrekanaum og nær í strákinn. Fjallar myndin um þetta brottnám og eftirmál þess. I kvikmyndahandbók vorri segir að ekki sé vinn- andi vegur að gagnrýna myndina, þar sem að hún skili algerlega því sem lof- að er og áhorfendur kunni svo sannarlega að meta hana burtséð frá kvik- myndfræðilegu gildi. Myndin fær tvær og hálfa stjömu af fimm möguleg- um. ÚTVARP FÖSTUDAGUR 12. desember 6.45 Veðurfregnir. Baen. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. Páll Benediktsson, Þorgrím- ur Gestsson og Guðmundur Benediktsson. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 7.20 Daglegt mál. Erlingur Siguröarson flytur þáttinn. (Frá Akureyri.) 9.00 Fréttir. 9.03Jólaalmanakiö. „Brúðan hans Borgþórs'', saga fyrir börn á öllum aldri. Jónas Jónsson les sögu sína (10). Jólastúlkan, sem flettir almanakinu, er Sigurlaug M. Jónasdóttir. 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesiöúrforustugreinum dagblaðanna. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. 10.30 Sögusteinn. Umsjón: Haraldur Ingi Har- aldsson. (Frá Akureyri.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Sigurður Einars- son. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Miðdegissagan: „Glópagull", aevisöguþættir eftir Þóru Einarsdóttur. Hólmfriður Gunnarsdóttir bjó til flutnings og les (9). 14.30 Nýtt undir nálinni. Elín Kristinsdóttir kynnir lög af nýjum hljómplötum. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Lesið úr forustugreinum landsmálablaða. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Stjórnendur: Kristin Helga- dóttir og Vernharður Linnet. 17.00 Fréttir. 17.03 Síðdegistónleikar. a. Semiramide, forleikur eft- ir Gioacchino Rossini. Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur; Claudio Abbado stjórnar. b. Atriði úr óperunni „Hans og Gréta" eftir Engilbert Humperdinck. Herman Prey, llse Gramatzki, Eugem Hug, Birgitte Lindn- er, Edda Mosert o.fl. syngja með Gurzenich-hljómsveit- inni í Köln; Heinz Wallberg stjórnar. 17.40 Torgið — Menningar- mál. Umsjón: Óðinn Jóns- son. 18.00 Þingmál. Atli Rúnar Halldórsson sér um þáttinn. 18.00 Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá morgni sem Erlingur Sigurðarson flytur. (Frá Akureyri.) 19.40 Lestur úr nýjum barna- og unglingabókum. Umsjón: Gunnvör Braga. Kynnir: Ágústa Ólafsdóttir. 20.00 Lög unga fólksins. Valtýr Björn Valtýsson kynn- ir. 20.40 Kvöldvaka. a. Ljóöarabb. Sveinn Skorri Höskuldsson flytur. fJi. tf FOSTUDAGUR 12. desember 17.30 Á döfinni Jólabækur kynntar. 18.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies). 21. þáttur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.25 Stundin okkar Endursýndur þáttur frá 7. desember. 18.66 Skjáauglýsingar og dag- skrá 19.00 Á döfinni 19.10 Þingsjá Umsjónarmaður Ólafur Sig- urðsson. 19.30 Spítalalíf (M*A*S*H). Ellefti þáttur. Bandarískur gamanmynda- flokkur sem gerist á neyöar- sjúkrastöð þandaríska hersins í Kóreustríðinu. Að- alhlutverk: Alan Alda. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar 20.40 Bonny Tyler Frá hljómleikum rokksöng- konunnar í Laugardalshöll föstudaginn 5. desembersl. 21.45 Sá gamli (Der Alte). 26. Bjargvættirn- ir. Þýskur sakamálamynda- flokkur. Aðalhlutverk Sieg- fried Lowitz. Þýðandi Þórhallur Eyþórsson. 22.45 Kastljós Þáttur um innlend málefni. 23.20 Seinni fréttir 23.25 Komdu aftur, Jimmy Dean (Come Back to the Five and Dime, Jimmy Dean). Bandarísk bíómynd frá 1982. Leikstjóri Robert Alt- man. Aðalhlutverk: Sandy Dennis, Cher og Karen Black. Sex konur, sem mynda kjarnann í aödáendaklúbbi kvikmyndaleikarans James Dean, hittast í smábæ I Texas til að minnast þess að tuttugu ár eru liðin frá dauöa átrúnaðargoðsins árið 1955. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 01.20 Dagskrárlok. STÖDTVÖ FÖSTUDAGUR . 12. desember 17.00 Myndrokk. Bandaríski vinsældalistinn, stjórnandi er Simon Potter. 18.00 Teiknimynd. Gúmmí- birnirnir (Gummi Bears). 18.30 Einfarinn (Traveling Man). Breskur framhalds- þáttur. 19.30 Fréttir. 19.55 Um víða veröld. Frétta- þáttur í umsjón Þóris Guðmundssonar. 20.15 Klassapíur (Golden Girls). Þættirnir fjalla um fjórar eldri konur sem ætla að eyða hinum gullnu árum ævi sinnar i sólinni í Flórida. 20.40 Hann rekinn, Hún ráðin (He's fired, She's hired). Bandarísk sjónvarpskvik- mynd frá CBS með Karen Valentine og Wayne Rogers í aðalhlutverkum. Virtum framkvæmdastjóra auglýs- ingastofu er skyndilega sagt upp störfum og þarf hann því að finna leiö til þess að sjá fjölskyldu sinni farboröa. Konan fer á vinnumarkaöinn og með hans hjálp gerist hún textahöfundur hjá fyrr- um samstarfsmanni eigin- mannsins. 22.10 Benny Hill. Breskur gamanþáttur. 22.35 Hvarf Harrys (Disap- pearance of Harry). Bresk sjónvarpskvikmynd með Annette Crosbie, Cornelius Garret og Kavid Lyon í aðal- hlutverkum. Einn morgun- inn fer Harry Webster í vinnuna eins og vanalega, en hreinlega gufar upp. Kona hans hefur leitað að honum en á meöan á þeirri leit stendur, kemur ýmislegt upp sem er henni ekki að skapi. 00.05 Skriödrekinn (Tank). Bandarísk kvikmynd með James Garner, Shirley Jones, C. Thomas Howell og G.D. Sprodlin í aðalhlut- verkum. Þegar syni skrið- drekaforingja nokkurs er stungið I fangelsi á fölskum forsendum reynir Garner að ná honum út á skriödreka sínum. 1.05 Myndrokk. 5.00 Dagskrárlok. b. Úr Mímisbrunni. Þáttur íslenskunema við Háskóla íslands. Umræðan um bæk- ur kvenna í lok nítjándu aldar. Umsjón: Sigurrós Erl- ingsdóttir. Lesari með henni: Anna Þ. Ingólfsdóttir. c. Úr sagnasjóði Árnastofn- unar. Hallfreður örn Eiríks- son tók saman. 21.30 Sígild dægurlög. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orö kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Vísnakvöld. Ingi Gunnar Jóhannsson sér um þáttinn. 23.00 Frjálsar hendur. Þáttur í umsjá llluga Jökuls- sonar. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturstund i dúr og moll með Knúti R. Magnús- syni. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarps á rás 2 til kl. 03.00. FÖSTUDAGUR 12. desember 9.00 Morgunþáttur i umsjá Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Spjallað við hlustendur á landsbyggð- inni, vinsældalistagetraun o.fl. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist i umsjá Gunnlaugs Sigfús- sonar. 13.00 Bót í máli. Margrét Blöndal les bréf frá hlust- endum og kynnir óskalög þeirra. 16.00 Sprettur. Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir tónlist 12. desember 07.00—09.00 Á fætur með Siguröi G. Tómassyni. Léít tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Föstu- dagspoppiö allsráðandi, bein lína til hlustenda, af- mæliskveöjur, kveöjur til brúðhjóna og matarupp- skriftir. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Fréttapakkinn, Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, segja frá og spjalla við fólk. úr ýmsum áttum og kannar hvað er á seyöi um helgina. 17.00 Fjör á föstudegi með Bjarna Degi Jónssyni. 18.00 Hlé. 20.00 Kvöldvaktin - Andrea Jónsdóttir. 23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni og Þorgeiri Ást- valdssyni. 3.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1. 18.00-19.00 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5. Föstudagsrabb. Inga Eydal rabbar við hlustendur og les kveðjur frá þeim, leikur létta tónlist og greinir frá helstu viðburðum helgarinnar. Flóamarkaðurinn er á dag- skrá eftir kl. 13.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—16.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar síðdegispoppið og spiall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. Þægileg tónlist hjá Hallgrími, hann lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk- ið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil- hjálmsson. Þorsteinn leikur tónlist úr ýmsum áttum og kannar hvað næturllfið hefur upp á að bjóða. 22.00-03.00 Jón Axel Ólafs- son. Þessi síhressi nátt- hrafn Bylgjunnar heldur uppi helgarstuöinu með hressri tónlist. 03.00—08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Haraldur Gísla- son leikur tonlist fyrir þá sem fara seint í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.