Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 15

Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 15 Mannleg tengsl eru ekki íþróttagrein... ____Bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Leo Buscaglia: Að elska hvort annað Þýðandi: Helga Ágústsdóttir Útg. Iðunn 1986. EINS og fram hefur komið í annarri umsögn, gefst nú flestum kostur á að fá alls kyns ráðlegg- ingar í væntumþykju, ástar og kynlífsmálum; bækur um þessi samskiptaefni streyma út á bóka- markaðinn. Sú sem mér hefur nú borizt í hendur eftir Leo Buscaglia gefur ákveðin fyrirheit í formála, sem er hinn viðfelldnasti. Og ýms sannindi þar sögð, þótt þau komi ekki beinlínis eins og þruma úr heiðskíru lofti. Höfundur spyr, hvers vegna við séum svona hrædd við að gefast hvert öðru í einlægri ást...ef við elskum af einlægni og látum það í ljós erum við álitin bamaleg. Að sýna ytri merki gleði og hamingju fær ýmsa til að halda að við séum kærulaus og einföld. Nokkuð til í því. Bókin skiptist í kafla, sem eru síðan mismunandi áhugaverðir og sumir skila sér ekki til íslenzkra lesenda, að mínu viti. Dæmi um heldur þunnildislegan kafla er: Að elska hvort annað:örfá umbeðin ráð. Þar segir Buscaglia:„Ég hef aldrei verið mjög hrifinn af ráð- leggingum. Mín bjargfasta trú er, að við höfum nú þegar bestu svör- in fólgin í okkur sjálfum. Allt og sumt sem til þarf, er að við gerum okkur grein fyrir þeim og förum eftir þeim.“ Nokkru síðar fer höf- undur svo að gefa okkur allar þessar ráðleggingar, sem hann kveðst ekki hafa sérlega mikla trú á. Og mætti ég nefna dæmi: „ Gerðu þér grein fyrir að þú átt alltaf völina. Og það er undir þér komið" og „Farðu þér hægt“ og hið þriðja„Skilnaður, slagsmál og rifrildi munu aldrei leysa vanda ykkar; reynið frekar skilning, hlýju og sveigjanleika. Ef ekki má kalla svona sjálf- sagða hluti, veit ég ekki hvað. En sem betur fer eru bitastæðari þættir í bókinni. Ástúðarsamband, Að elska hvort annað með fyrir- gefningu og í gleði. Á þeim er án efa eitthvað að græða. Kannski lesandi þurfi að vera opnari og jákvæðari. Gagnvart viðfangsefni höfundar og skoðunum hans. Þær eru sannarlega jákvæðar. Það er sjálfsagt mesti plúsinn. Og þýðing- in er þægileg, en svona texti gefur sennilega ekki tilefni til mikilla tilþrifa. „JOLATILBOÐ FJOL5KYLDUNNAR FRA TECHNICS Komið þið nú blessuð og sæl. Ég er hljómtækjasamstæðan Z-50 og er íjólaskapi. Ég er mjög stolt afmér, enda engin furða. Ég erfrá Technics og flokkast þar af leiðandi undir alvöru hljómtæki. Ég er ekki úr plasti. Ég er ekki sambyggð og hliðarnar á mér eru ekki fastar við skápinn. Ef þið hafið áhuga á að heyra hvernig alvöru hljómtæki hljóma og þar að auki frá Technics, þá skora ég á ykkur að koma og hlusta á mig. Nú fæst ég á sérstöku jólatilboðsverði. Þið getið fengið mig með einu eða tvöföldu kassettutæki,og verðið á mér með hátölurum og skáp er frá 33.340 kr. m #JAPIS BRAUTARHOLT 2 SlMI 27133

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.