Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 I l ÞAÐ VIRÐAST ALLIR VERA Á SAMA MÁLI! Lottó 5/32 hittir beint í mark á íslandi. Flestir eru líklega með leikreglurnar á hreinu og farnir að pæla meira í tölunum. Hver verður lukkulegur á laugardaginn? Fáðu þér miða við fyrsta tækifæri! Upplýsingasími: 685111 enda eru þau þessar mundir. WjjM au eru sterk og falleg, OREENT QUARTZ Ep úrin, enda japönsk gæðaframleiðsla. m m Pú þarfi ekki að leita lengur að góðri gjöfi það er nánast öruggt að þú finnur það sem þú hefur í huga meðal þeirra 150 tegunda ORIENT QUARTZ úra sem um er að velja. ---—. — * fœrðu hjá flestum úrsmiðum, mest seldu úr á íslandi um ORIENT QUARTZ Góði Davíð, láttu ekki Sambandið kæfa okkur eftír Örlyg Sigurðsson Reykjavík væri áreiðanlega hreinasta og besta byggða ból landsins og víðar ef reykhúsi Sam- bandsins leyfðist ekki að spúa eitruðum og menguðum reyk, árið um kring, yfír okkur íbúa Rauðar- árstígs og nágrennis. Eftir rúma tveggja ára búsetu hér við Rauðar- árstíg, andspænis reykhúsinu, er þolinmæði mín á þrotum. Skrifstof- ur Ríkisspítalanna eru í þriggja hæða höll, sem er næstum sam- vaxin þessu reykspúandi fyrirtæki. Frá þessari miklu heilbrigðisstofn- un hefir mér vitanlega aldrei heyrst umkvörtun. Þá hefir Framsóknar- flokkurinn selt sjálfri líknarstofnun- inni, Rauða krossinum, hótel sitt hinum megin götunnar. Ekki hefír heyrst hósti né stuna við þá eignar- tilfærslu varðandi þessa óþolandi mengun. Lungu manna í austan- verðri Norðurmýri og nágrenni hljóta að verða eins og í tóbaks- sjúklingum ef ekkert verður að gert. Heilbrigðisyfírvöld borgarinnar hafa oft látið fara fram rannsóknir af minna tilefni. Þefurinn af þess- ari reykjarsvælu er stundum svo jrfírþyrmandi, að mig hefir dreymt, að ég væri að kafna í gasofni útrým- ingarbúðanna í Auschwitz eða í kjamorkuverinu í Chemobyl. Stundum er eins og verið sé að kæfa og aflífa gamla framsóknar- hrúta eða verið sé að bægja gömlum og tryggum framsóknarhetjum frá soðkötlum uppstillingalistans eins og Stefáni alþm. Valgeirssyni frá Auðbrekku. Til dæmis vaknaði ég við vondan taðreyksdraum nýlega, þar sem mér fannst sjálfur hæst- virtur forsætisráðherra og Þórarinn á Tímanum, Erlendur í Sambandinu og Halldór, vinur minn, frá Kirkju- bóli engjast sundur og saman á sömu spýtunni uppi i ijáfrinu í reykjarkófí reykhússins handan götunnar. Af því að ég veit að þetta em hinir mætustu menn vonast ég til, að þessar óhugnanlegu draumfarir mínar taki á sig fallegri mynd þeg- ar Davíð borgarstjóri tekur á sig rögg og leggur blátt bann við slíku óafsakanlegu athæfí í miðju íbúðar- hverfí borgarinnar. Margir muna hvemig fór þegar ísagaverksmiðjan við Rauðarárstíg sprakk í loft upp og var ótrúleg heppni, að ekki skyldu hljótast af ótal dauðaslys. Hvað sem hver segir er Davíð vinsælasti borgarstjórinn í saman- lagðri sögu Reykjavíkur sakir fijálslegrar framkomu og fmmlegr- ar fyndni. Þannig gerður var líka vinsælasti borgarstjóri New York- borgar þegar ég dvaldist fyrir vestan á stríðsámnum. Hann hét Fiorello (Litla blómið) La Gardia. Hann sat aldrei eins og steinmnn- inn embættisdrumbur í sama skrif- stofustólnum, heldur stjómaði hann borginni á ferð og flugi í gegnum talstöð í aftursæti borgarstjórabíls- ins. Davíð myndi kynnast mörgu betur af eigin raun ef hann hefði stundum sama háttinn á. Þá myndi hann ábyggilega fá óvæntan taðr- eykinn fyrir bijóstið, ef hann ætti leið um Rauðarárstíginn í réttri vindátt. Eitt er víst, að vinsældir Davíðs myndu stórlega aukast ef hann kæfði reykinn til frambúðar í þessu óforbetranlega reykjarhverfí Reykjavíkur. Þá yrðu draumar okk- ar ólíkt fegurri og skemmtilegri þegar við hættum að hrökkva upp um miðjar nætur og öskra í ofboði: Er ég að kafna í gasklefa í Ausch- witz, eða kjamorkuverinu í Chemo- byl, eða í reykhúsi Sambandsins við Rauðarárstíg? Starfsfólk í veit- ingahúsum: Samningamir samþykktir samhljóða FUNDUR Félags starfsfólks í veitingahúsum, sem haldinn var á Hótel Esju á miðviku- dag, samþykkti einróma nýgerðan kjarasamning ASÍ og VSÍ. Að sögn Sigurðar Guðmundssonar, formanns félagsins kom fram almenn ánægja með samkomulagið. Tvo undanfarna kjarasamn- inga hefur félagið fellt, og gert sérsamninga við vinnu- veitendur. Sigurður sagði fundinn hafa verið vel sóttan. „Það vekur at- hygli að þessu sinni að hver einasti launataxti félagsins var fyrir neð- an þau mörk lágmarkslauna sem ákveðin voru í þessum samning- um,“ sagði Sigurður. ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR OG JÓNÍNA MIKAELSDÓTTIR árita bók sína LÍF MITT OG GLEÐI í versluninni milli kl. 4 og 6 í dag, föstudaginn 12. des. Sendum áritaðar bækur í póstkröfu Bókabúð .M ALS & MENNING AR.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.