Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Sala Borgarspítalans:
Hvers vegna vilja starfsmenn ekki
að Borgarspítalinn verði seldur?
eftír Sigrúnu Knúts-
dóttur
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum, að miklar umræður hafa
verið meðal starfsmanna Borg-
arspítalans og annarra undanfama
daga um væntanlega sölu spítalans
til ríkisins. Við starfsmenn höfum
velt því fyrir okkur, hvaða máli
þessi sala skipti okkur, hvort það
breyti einhvetju hvort við heyrum
undir borgina eða ríkið. Hafa heyrst
raddir um það, að það skipti kannski
ekki máli, launin séu hvort sem er
þau sömu, enda greidd af ríkinu.
Borgarstjóri hefur fullvissað okk-
ur um, að öll réttindi starfsfólks
yrðu þau sömu og þau eru nú.
Ég vænti þess, að þar með séu
talin lífeyrissjóðsréttindi okkar. Hér
er um að ræða nokkur hundruð
milljónir, sem Reykjavíkurborg þarf
að ábyrgjast að flyttust með okkur
til ríkisins. Ég vænti þess líka, að
eignir starfsmanna í orlofsheimila-
sjóði Starfsmannafélags Reykjavík-
ur og réttindi í Endurmenntunar-
sjóði flyttust með okkur til ríkisins,
auk annarra réttinda.
Þetta breytir þá kannske engu —
eða hvað?
Nei, þetta breytir engu í launum
og réttindum starfsfólks, en samt
breytir þetta öllu.
Við erum nefnilega ekki að mót-
mæla sölu spítalans vegna eigin
launa og réttinda, við erum að
mótmæla vegna þess, að við viljum
að spítalinn haldi áfram að vera
sjálfstæð stofnun, eign Reyk-
víkinga.
Við erum nefnilega stolt af spítal-
anum og því starfí, sem þar fer
fram. Við teljum, að því starfi sé
stefnt í hættu, ef spítalinn verður
seldur og síðast en ekki síst teljum
við að þjónustan við sjúklingana
verði stórlega skert, ef spítalinn
verður sameinaður Ríkisspítölum.
Okkur hrís hugur við því, að
spítalinn verði seldur ríkinu og telj-
um, að með því verði spítalinn
algerlega ósjálfstæð eining innan
ríkisspítalageirans. Skv. lögum skal
stjóm sjúkrahúsa í eigu ríkisins
vera falin 7 manna stjómarnefnd
Ríkisspítalanna. Sú nefnd er þannig
skipuð, að starfsmannaráð
Ríkisspítalanna tilnefnir 2 menn,
Alþingi 4 menn og ráðherra skipar
einn mann, sem skal vera formað-
ur. Formönnum læknaráða og
hjúkrunarforstjórum sjúkrahúsa
skal heimilt að sitja stjómarfundi
með tillögurétt og málfrelsi. Hér
emm við að tala um mikla miðstýr-
ingu heilbrigðismála, þar sem tvö
stærstu sjúkrahús landsins em
komin undir einn hatt.
Ég tel samsetningu stjómar
Borgarspítalans hins vegar skyn-
samlega, en í henni eiga sæti 2
fulltrúar tilnefndir af Starfsmanna-
ráði spítalans og 3 kjömir af
Heilbrigðismálaráði Reylq'avíkur.
Ég tel, að með slíkri samsetningu
tryggjum við betur að fagleg sjón-
armið um málefni spítalans nái
fram að ganga og að stjómmála-
skoðanir ráði ekki alfarið ferðinni.
Okkur hefur fundist stjórn Borg-
arspítalans yfírgripsmikil, þrátt
fyrir að þeir, sem sitja í þeirri stjóm,
þekki vel til mála spítalans. Ég
hugsa því með skelfíngu til þess,
ef stjóm Ríkisspítalanna á að taka
að sér stjóm Borgarspítalans. Ef
sú stjóm á að reyna að taka mál-
efnalega afstöðu til mála, sem hún
hefur engar forsendur til að geta
fjallað um af þekkingu.
Slík stjóm hlýtur að hafa allt of
mikið á sinni könnu. Ég tel, að
mannleg tengsl milli stjómar og
starfsmanna hljóti að fara forgörð-
um og það verði langsótt fyrir
starfsfólk að koma málum á fram-
færi við stjómina. Slíkt má aldrei
verða.
Við verðum að tryggja sjálfstæði
spítalans með öllum ráðum til að
hindra slíkt stjómskipulag.
Sigrún Knútsdóttir
„Starfsmannaráð Borg-
arspítalans vill beita
öllum ráðum til að
tryggja sjálfstæði
spítalans og til að
hindra að hann fari
undir stjórnarnefnd
Ríkisspítalanna.“
Gouda
Vönduð og falleg kerti aðeins unnin úr
dýra- og jurtafeiti. 10% stearin beint frá
Hollandi.
'>//■
w
ilfe
> >*&"
V xV',
wmm
mgmiii
VERÐTAFLA
Stœrð cm isl. rauftgr. kr. fsl. rura kr.
100-125 540,- 700,-
126-150 765,- 1.000,-
151-175 1.030.- 1.300,-
176-200 201-250 1.380,- 1.800.-
Danskur
þinur
kr.
\Wh. __+\o RÖ
p&v.t&'
v!
/y;
r.
liVTS
Cvfí'orý'a 09 Le?p!,nita y»*ur!
”|f|? > korr>aogske. ^okkar a I
’S-^SSh. *. 'i%k
alanka
m. *-sasC F
% m.
Borgarspítalinn er orðinn stórt
bákn og með útibúum er hann
næstum að svipaðri stærð og
Landspítalinn. í skýrslu Bjöms
Friðfínnssonar og Eggerts Jónsson-
ar um rekstur spítalans, sem mikið
hefur verið fjallað um að undan-
fömu, kom einmitt fram að skyn-
samlegt gæti verið að skipta
Borgarspítalanum niður í smærri
rekstrareiningar til þess að bæta
reksturinn og bæta rekstrarvitund
starfsmanna. Get ég vel tekið undir
þessar hugmyndir þeirra.
Það skýtur því skökku við, að
ætla að skella Borgarspítalanum
saman við jafnstórt bákn og Lands-
pítalinn er til að hagræða og bæta
reksturinn, og er þetta í algerri
mótsögn við hugmyndir þeirra fé-
laga um bættan rekstur.
Rætt hefur verið um kosti og
galla daggjaldakerfisins og kosti
og galla fastra fjárlaga. Við vitum,
að vísitala sjúkrahússkostnaður og
þar með daggjöld hafa ekki hækkað
í neinu samræmi við alm. verðlags-
hækkanir, en með því að lagfæra
daggjaldakerfíð yrðu útgjöld
Reykjavíkurborgar vegna Borg-
arspítalans engin.
Éins og fram kom í grein Gunn-
ars Sigurðssonar yfírlæknis Lyfja-
deildar í Morgunblaðinu sl.
laugardag er daggjaldakerfíð
a.m.k. afkastahvetjandi kerfí en
ekki letjandi, eins og föst fjárlög
eru, þar sem það borgar sig að
hafa sem fæsta sjúklinga og veita
sem minnsta þjónustu.
Ég vil því skora á borgarfulltrúa
Reykjavíkur að standa vörð um
Borgarspítalann með okkur starfs-
mönnum, standa vörð um hann sem
sjálfstæða eign okkar Reykvíkinga.
Stjóm spítalans hefur ítrekað
farið fram á leiðréttingu daggjalda-
kerfisins og þið, borgarfulltrúar,
eruð fólkið, sem getur barist fyrir
því. Styðjið okkur í því að leiðrétta
það kerfí. Með því móti tryggjum
við rekstraraflcomu spítalans,
tryggjum tilverurétt hans, með því
forðumst við miðstýringu heilbrigð-
ismála.
Ég skora á þingmenn Reykjavík-
ur að styðja þetta mál, að fresta
því að setja Borgarspítalann á föst
flárlög, að kaupa ekki Borgarspítal-
ann. Það er ekkert, sem bendir til
þess, að rekstur yrði betri með því
móti.
Ef þessi mál ná ekki fram að
ganga og meirihluti þingmanna er
samt á því, að spítalinn fari á föst
ijárlög og að spftalinn verði keyptur
af rfkinu, þrátt fyrir mótmæli okkar
og rök gegn því, þá skora ég á þing-
menn að standa vörð um sjálfstæði
spftalans, að hann fari ekki undir