Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Nú flytjum við dreifistöð okkar frá Seljavegi 12 að Eirhöfða 13.
Sími 91-673070.
Við byrjum af fullum krafti með hleðslu á kolsýrugeyma og aðra þjón-
ustu þann 12. desember og vonum að sú breytta aðstaða, sem við
fáum að Eirhöfða 13, komi fram í betri þjónustu.
Velkomin að Eirhöfða 13. Efnaverksmiðjan Eimur sf.
oa d /cmtpi /eld
ENDURMINNINGAR
PABLO
CASALS
Endurminningar Pablo Casals
eru skrásettar af Albert E. Kahn
og þýddar af Grlmhildi Braga-
dóttur. Bókin greinir frá aevi og
starfi þessa fræga tónlistarsnill-
ings og mannvinar.
Casals var fæddur og uppalinn
í San Salvador á Spáni á síð-
asta fjórðungi 19. aldar. Hann
bjó og starfaði í Parls í byrjun
þessarar aldar, en hvarf aftur til
Spánar, til Barcelona, í lok fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Þar starf-
aði Casals að tónlistarmálum,
þar til hann flúði land í lok
spænska borgarastrlðsins og
settist þá að í Frakklandi á nýj-
an leik. í lok sjötta áratugarins
giftist Casals ungri stúlku frá
Puerto Rico, að nafni Martita,
og settust þau að þar.
PABLO CASALS
í bókinni greinir Casals frá tónlistar-
starfi slnu, tónleikaferðum og sam-
tíðarmönnum sínum í tónlistinni,
sem hann ætíð hafði náin samskipti
við. Frásögnin spannar tímabilið
frá því skömmu fyrir síðustu alda-
mót fram á 8. áratug þessarar aldar.
Vert er að benda á að þessi bók er
ekki aðeins fróðleg og hrlfandi
lesning fyrir tónlistarfólk. Casals
gerir sér far um að greina frá mis-
munandi umhverfi og aðstæðum
sem hann bjó og starfaði við, eink-
um meðan á borgarastrlðinu á
Spáni stóð, og baráttu sinni við
spænsku fasistana.
60 IJOwnyndir
NafnaskrA.
Hljómplötulisti.
Pófeaútpfan ftóðéap
Þingholtsstræti 27, sími 91-13510
Góöan daginn!
„Ný fjölfræði-
bók“ fyrir börn
o g unglinga
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
gefið út bókina „Ný fjölfræði-
bók“ fyrir börn og unglinga.
Örnólfur Thorlacius þýddi og
staðfærði. Hún er 224 bls. með
yfir 1.000 litmyndum.
„Heimurinn er fullur af furðum
og ráðgátum. Frá örófi alda hafa
menn spurt ótal spuminga um
umhverfí sitt og uppruna. Mörgum
spumingum hefur verið svarað,
mörg vandamál verið leyst, en sífellt
vakna nýjar spumingar og ævin-
lega em næg verkefni til að
rannsaka. Ykkur er boðið í rann-
sóknarleiðangur á myndaopnum
þessarar bókar til að skoða lifandi
náttúru — blóm og dýr — fiska og
fugla — bíla og skip — flugvélar
og geimför — plöntur — fjöll og
skóga — sjávarlíf — vísindi og fram-
farir. Með hjálp ímyndunaraflsins
munuð þið leita á vit fortíðar og
framtíðar og þjóta á svipstundu
umhverfis jörðina líkt og eldflaug
til að kynnast því hvemig mennim-
ir lifa, hvemig þeir vinna og við
hvað þeir skemmta sér,“ segir í
frétt frá forlaginu.
Félag ali-
fuglabænda
er á móti
stjórnun
FÉLAG alifuglabænda fagnar
því að fallið hafi veríð frá hug-
myndum um stjórnun alifugla-
framleiðslunnar. Félagið er
samtök alifuglabænda, einkum
eggjaframleiðenda, sem klufu
sig út úr Samtökum eggjafram-
leiðenda fyrír nokkrum árum
vegna stofnunar eggjadreifing-
arstöðvarínnar íseggs. Félagið
sendi frá sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu vegna bréfs Stéttarsam-
bands' bænda til forsætisráð-
herra:
„Félag alifuglabænda hefur inn-
an sinna vébanda mikinn meirihluta
eggjaframleiðslunnar í landinu. Fé-
lagið hefur aila tíð barist hart gegn
öilum hugmyndum um stjómun og
kvótaskiptingu eggjaframleiðslunn-
ar og er svo enn. Því fagnar félagið
þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar
að fallið verði frá öllum hugmynd-
um um stjómun alifuglaframleiðsl-
unnar, enda er ekki fyrir því
lagaheimild að þvf er eggjafram-
leiðsluna varðar.
Jafnframt frábiður félagið sér öll
afskipti Stéttarsambands bænda af
þessu máli, enda er Félag alifugla-
bænda ekki aðili að því sambandi.
Þá skorar félagið á stjómvöld og
neytendur í landinu að standa vörð
um það að alifuglaframleiðslan
verði ekki „landbúnaðarkerfinu" að
bráð eins og aðrar búgreinar hafa
orðið, með hinum skelfilegu afleið-
ingum sem því hafa fylgt, jafnt
fyrir neytendur og bændur."