Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 31

Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 31 Aukið samstarf íslenskra fyrir- tækja í Evrópu rætt í Brussel EINAR Benediktsson, sendi- herra íslands í Belgíu og stjórn- armaður í Útflutningsráði, átti fund með framkvæmdastjórum islenskra fyrirtækja á megin- landi Evrópu í hinni nýju skrif- stofu íslenska sendiráðsins í Brussel i gærmorgun. Það var í fyrsta skipti sem fundað var á skrifstofunni. Möguleikar á auknu samstarfi fyrirtækjanna og hugsanleg aðstoð skrifstofunnar við þau voru rædd á fundinum. Til greina kemur að við- skiptafulltrúi Útflutningsráðs fái aðstöðu á henni. Matthías Á. Mathiesen, utanrík- isráðherra, hitti framkvæmdastjór- ana að máli en auk þeirra sátu fundinn þeir Hreinn Loftsson, að- stoðarmaður utanríkisráðherra, Þórhallur Asgeirsson, ráðuneytis- stjóri viðskiptaráðuneytisins, Kjart- an Lárusson, formaður Ferðamála- ráðs og Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs. BruHscl, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morjfunblaðsins. Einar Benediktsson Bjargaði telpu úr vök á Tj örninni TÍU ÁRA gamalli stúlku var bjargað upp úr vök á Tjörn- inni síðdegis á mánudag. Telpan var að leik á Tjörninni ásamt vinkonu sinni þegar ísinn brast undan fótum henn- ar. Maðurinn sem bjargaði henni, Bjarni Bargi Jónsson, segir svo frá: „Ég hafði lagt bílnum mínum við Tjörnina um hádegið á mánu- dag. Eftir vinnu ætlaði ég að halda heim á leið og var staddur við hom Tjarnargötu og Vonar- strætis þegar ég tók eftir því að tvær telpur voru úti á ísnum og virtist sem önnur þeirra buslaði í polli. Ég kallaði til hennar hvort hún væri að leika sér, en þá heyrði ég að hún kallaði veikt á hjálp. Þama nálægt vom staddar tvær konur og sagði sú eldri þeirra að það þyrfti að ná í hjálp. Ég sagði henni að gera það og skellti mér svo út í Tjörnina, því þama var engum öðmm til að dreifa en mér. Það gekk nokkuð seint að komast til telpunnar, því ég þurfti að bijóta ísinn á undan mér. Það gekk hins vegar vel að ná henni upp úr vökinni og yngri konan hjálpaði mér síðan við að koma henni á þurrt. Þá bar þá eldri að, en hún hafði farið og hringt á sjúkrabíl. Ég ákvað hins vegar að aka telpunni heim til sín og bað konuna um að senda bflinn þangað. Þetta endaði því allt vel og telpunni varð ekki meint af volkinu," sagði Bjami Bragi, og bætti því við að þetta hefði verið merkileg reynsla. Nú í DÝRTÍÐINNI biðja allir um ÓDÝRU STJÖRNU JÓLAKORTIN FÁST í FLESTUM BÓKA- GJAFA- OG RITFANGAVERSLUNUM LITBRÁ HF. SÍMAR 22930 - 22865 I GJAFAVÖRUR. .. AUÐVITAÐ í IKEA Opið kl. 10.00-20.00 föstudaginn 12. des. Opið kl. 10.00-18.00 laugardaginn 13. des. Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. 108 Reykjavík. Sími 686650

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.